Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Side 8
Iðntæknistofnun íslands Framkvæmdastjóra (verkefnisstjóra) Leitaö er að manni meö fjölbreytta reynslu og háskólapróf í verkfræöi, raunvísindum eöa viðskiptafræði. Starfið er veitt til fjögurra ára samkvæmt lögum um Iðntæknistofnun Islands. Verkefnisstjóra fyrir framleiðniátak. Leitað er að manni með alhliöa reynslu sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni. Starfið er veitt í eitt ár með hugsanlegri framlengingu um eitt ár. Nánari upplýsingar veita Ingjaldur Hannibalsson og Sigurður Guðmundsson í síma 687000. Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækniþróun og auk- inni framleiöni í íslenskum iðnaði með því að veita einstökum greinum hans og iðnfyrirtækjum sérhæfða þjónustu á sviði tækni- og stjórnunarmála og stuðla að hagkvæmri nýtingu íslenskra auðlinda til iðnaðar. Iðnskólinn í Reykjavík Innritun nýnema á vorönn 1985. Innritun í eftirtaldar deildir skólans stendur nú yfir og lýkur 7. desember. 1. Samningsbundnir nemar 2. Rafsuöa 3. Grunndeild málmiðna 4. Grunndeild tréiöna 5. Grunndeild rafiðna 6. Framhaldsdeild vélvirkja/rennismíði 7. Framhaldsdeild rafvirkja/rafvélavirkja 8. Framhaldsdeild rafeindavirkja 9. Framhaldsdeild bifvélavirkja 10. Fornám 11. Almenntnám 12. Tækniteiknun 13. Meistaranám Fyrri umsóknir, sem ekki hafa verið staðfestar með skólagjöld- um, þarf að endurný ja. Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu skólans. Innritun í einstakar deildir er með fyrirvara um næga þátttöku. Jólagjafahandbók II kemur út 13. desembér nk. Þeir augljsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í jólagjafahandbók- inni hafi vinsamlegast samband við auglýsingadeild DV Síðumúla 33, Reykjavík, eða ísímum 82260 og 27022 milli kl. 9 og 17.30 virka daga sem allra fyrst. jA DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. j&ÍSSS: Draugaveiðimenn væddir vopnum sínum. GHOST- BUSTERS Hvað á maður að taka til bragðs ef hópur drauga svífur skyndilega um- hverfis mann í lausu lofti? I Banda- ríkjunum er fólk ekki í neinum vafa. Maöur kallar á draugaveiðimennina. Þetta fyrirtæki er þekkt af hverju einasta mannsbarni í Bandaríkj- unum í gegnum toppmyndina Ghost- busters. Viö heyrðum vígsöng draugaveiðimannanna um síðustu helgi í Skonrokki sunginn af Ray Parker Jr. Sagan um draugaveiðimennina er skrifuö af tveimur þekktum banda- rískum leikurum og grínurum, Dan Aykroyd og Harold Ramis. Sá fyrr- nefndi er líklega þekktastur sem helmingurinn af Blues Brothers (hinn látni John Belushi var hinn helmingurinn.) Þeir leika vísinda- menn sem hafa drauga sem sér- grein. Þriðji félaginn í hópnum er Bill Murray, frægur leikari. Myndin gengur út á að það að þessir þrír alvarlegu „andans” vísindamenn missa herbergi sín í Kólómbíuháskólanum í New York. Þeir stofna einkafyrirtæki sem glím- ir viö aö veiða drauga og þeir fá fljót- lega meira en nóg að starfa. Það er fullt af draugum í stórborg- inni. Þeir eru hér, þar og alls staöar og þeir eru ekki allir jafnsætir og vingjarnlegir. Meðal þess sem vísindamennirnir þurfa að glíma við er feit græn pylsa sem svífur um loftið. Pylsan og félagar hennar reynast hins vegar vera fyrsta þrep í mikilli atsókn anda sem eru sendir af löngu gleymdum hittískum guði og þegar þeir fá loft undir vængina fara hlut- irnir að gerast. Draugaveiöimenn- irnir hafa til allrar hamingju sin úrræði. Sló í gegn Myndin hefur tekiö inn meira en 220 milljónir dollara í Bandaríkj- unum og Kanada og hefur þannig slegið myndina Indiana Jones and The temple of Doom út. Sem þykir talsvert. „Vinsældirnar koma mér ekki á óvart. Bara hversu miklar þær eru,” segu- leikstjórinn Ivan Reitman. „Að fólk er oröið svo hrifið af Ghostbusters er líklega vegna þess að þaö hefur aldrei séö þessa blöndu af gamanleik og sjónhverfingaleik. Leikstjórinn ivan Reitman. Hann segir að það só alveg rétt að það só erfiðast að gera skemmtilegar og fyndnar myndir. Gog og Gokke, Jerry Lewis og aörir hafa áöur gert draugamyndir en þegar litið er á þær í dag virka þær ekki sérlega vel því draugamir eru alltaf vondir menn sem vilja hræöa eðagabbaaöra. Þetta er ekki svo í okkar mynd. Við trúum á drauga og höfum þrjár reglun a) Þaö er hægt að finna drauga. b) Það er hægt að veiöa drauga ef maður er með rétt tól. c) Stundum birtast draugar í stórum hópum,” segir Reitman. Reitman hafði áður unnið með Murray Aykroyd og Reitman viö hin ýmsu verkefni eins og myndirnar Animal House, Meatballs ogStripes. Gaman og alvara Reitman framleiddi einnig rokk- teiknimyndina Heavy Metal en hann langar ekki til að gera fleiri þannig myndir. Honum f innst skemmtilegra að vinna með venjulegu fólki og það var hlegið mikið á meðan á upptök- um stóð á Ghostbusters. ,,Eg vinn eins og er aö því að gera alvarlega mynd með Dustin Hoffman og það verður nánast afslöppun fyrir mig eftir aö hafa gert svo marga gleðileiki. Fólk hefur rétt fyrir sér sem segir aö þaö sé erfiðast aö gera fyndnar myndir. En mér finnst gaman að fá fólk til að hlæja og gera það glatt eins og það verður af að horfa á Ghostbusters. Við höfum rætt um að gera aðra mynd í kjölfar þessarar en þaö verður í fyrsta lagi eftir tvö ár og kannski verður hún öðruvísi,” segir Reitman sem enn bíöur eftir að sjá alvöru- draug. Ekki er vitað hvort draugaveiði- búnaöur myndarinnar hrekkur til í slíkum tilvikum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.