Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Page 10
54 DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. Weltschmerz Viðtalið er allt skrifað í nokkuð upphöfnum stíl menntskælinga og sennilega hálfvegis í gríni og hálfvegis í alvöru einsog lesa má af þessari klausu: — Hvenær byrjaðir þú að yrkja, Sverrir? ,,Í5g hóf fyrstu fálmkenndar tilraunir mínar til ljóðageröar, þá er ég sat í öðrum bekk gagnfræðaskóla, sagði Sverrir á bókmáli. Eg hef frá byrjun notfært mér nýtízkulegt form í ljóöagerð minni enda löngum haft ímugust á stöðnuðum og úrkynjuðum listformum.” Einnig segir Sverrir um ljóð sin: „Þau hafa mestmegnis orðið til í drepleiðinlegum kennslu- stundum,” hélt Sverrir áfram og dæsti. „E.t.v. er það orsök þess, að ýmsir hafa þótzt finna í þeim svart- sýnisboðskap og „Weltschmerz”.” Eftir að Sverrir haföi sagt þessi spaklegu orð, varð honum orðfall. Síðan lýsti hann því yfir, að visku- brunnur sinn væri þurrausinn í bili. Viðtaliö heldur áfram í sama dúr og í lok þess segir Sverrir: „— Lifi einstaklingshyggjan! Niöur með meöalmennskuna! ” FRAMHALD AF BLS. 53 Á sögueynni okkar hafa flestir eyjar- skeggjar einhvern tímann reynt aö sitja skáldfákinn. Nokkrir hafa haldið áfram, og orðiö skáld, aörir hafa stigið eöa dottið af baki. Enn aðrir hafa uppgötvað aö þaö sem þeir héldu vera skáldfákinn var reiöprik sem hentaði ekki fullorðnummanni. Við skyggndumst í nokkur skólablöð MR á tímabilinu 1960—1970 og þar kom margt athyglisvert í ljós. Ýmsir hafa ort og skrifað og síöan hætt. Aðrir hafa helst sést í stól gagnrýnandans. Glettilega margir þeirra sem hafa séð ástæöu til að tjá sig á síðum skóla- blaösins í einhvers konar skáldlegum búningi hafa samt haldiö ótrauðir áfram og þó þeir hafi ekki allir skrifað skáldverk hafa þeir á einhverti hátt veriö virkir á ritvellinum. Eitt af því fyrsta sem verður fyrir í skólablaði MR frá ’60 er viðtal viö Sverri Hólmarsson, nú gagnrýnanda. Þaö er undir fyrirsögninni: Niður með meðalmennskuna. I kynningu er sagt um Sverri: „Hann stendur oft upp á málfundum og lætur ljós sitt skína yfir óupplýstan lýðinn. Hann er afkasta- mikill við ritstörf og kallar sig jafnvel skáld.” Orti bara til ónafn- grcindra kvenna — segirJónÖrn Marinósson um Jón Örn Marínósson. Hann segist ekki myndu ve/ja bókmennta/ega /eið að hjarta konu núna ef hann vi/diná ástum hennar. D V-mynd: GVA. menntaskólaljóð sitt Þráinn Eggertsson hagf ræðingur um — Ortiröu mikiö í skóla ? „Eg get svarað því til að ég hafi ort álíka mikiö og aðrir innblásnir menn á þessum aldri,” svarar Jón Örn Marinósson, tónlistarstjóri Rik- isútvarpsins, höfundur Jónsbókar og fyrrum skólaskáld. — Ortirðu einungis ljóö? ,,Ég fékkst, held ég, við allar hugsanlegar tegundir bókmennta á þessum árum. Innblásturinn var svo gífurlegur og tjáningarþörfin. Eg setti saman ljóð, greinar og leik- þætti. Eg býst við að andlegt líf þjóðar- innar hefði ekki farið úr jafnvægi þó að ég heföi sleppt því að festa staf á blað en hins vegar hélt þetta mér á þessum tíma í sæmilegu andlegu jafnvægi. Sársauki, ástarsorgir og ýmiss konar áföll í tilfinningalífi fenguþarnaútrás.” — Var litið upp til þín sem skálds meðal félaga þinna? Jón svaraði því til aö auövitaö spilaði þaö inn í á þessum aldri að vilja vera í metuin meðal félaga sinna og þá sérlega í menntaskóla: „Þar eru andleg afrek oft talin meira virði en þau líkamlegu. Þeir sem gáfu sig út fyrir aö geta ort voru þarna í svoUtilli afrekskeppni. Menn ímynduðu sér aö þeir væru aðeins skör ofar en ahnúginn sem orti ekki neitt,” sagði Jón. En hvort aörir hefðu haft þetta í miklum metum treysti Jón sér ekki til að fullyröa um. „Það má vel vera, ég veit það ekki. Ég varð ekki fyrir neinni ásókn út af þessu. — Enda orti maður bara til ónafngreindra kvenna.” Háar kröfur í ritstjórastöðu — Varstu í einhverri skáldaklíku? „Nei, nei. Þaö var ég ekki.” — Manstu eftir einhverjum skáld- umsamtíma þér? „Þráinn Bertelsson var þarna, Megas var þarna. Rétt á eftir mér voru Hrafn og Davíð og það lið.” — Þú varst ritstjóri skólablaðs- ins? ,,Já, það gerist í fimmta bekk ef maður þykir nógu litterer. Nógu há- fleygur, það er skilyrðið. Þaö eru ekki geröar jafnmiklar kröfur í nokk- urri ritstjórastöðu. Maöur verður að hafa sýnt andlega yfirburði í 4. bekk. Starfið krefst svo mikils aö maöur á ekkert eftir. Það er alla vega svo í mínu tilviki. Ég hef ekki þótt gjald- gengursem ritstjórisíðan.” — Manstu eftir ljóðinu þínu: Und- irfjöguraugu? „Mig rámar nú aðeins í það. Hefð- irðu lesið það fyrir mig og ekki sagt eftir hvern það væri hefði ég kannast við það. Það er annað með stórskáldin sem eiga mikið. Eins og Nóbelsskáldið sem man ekki eftir heilum ljóöabók- um. Það slær einhverju saman í höfð- inu á mér þegar ég heyri þetta ljóð. Ég heyri aö það er ákaflega ástríöu- þrungiö. Ég hef greinilega verið mjög ástfanginn en man ekki lengur hver stúlkan var. En ég hef nú ekki elskað fleiri konur en ég hef ort kvæði. Eg man ekki hvort þetta kvæði hafði nokkur áhrif til að bræða hjarta skólasystur. Núna, eftir þann tíma sem liöinn er, myndi ég velja einhverja aðra aöferð en þessa ef ég vildi ná ástum einhverrar konu. Ég myndi ekki fara bókmenntalega leiö aö hjarta henn- ar.” Kannski aftur eins innblás- inn — Nú hefuröu verið með Jónsbók- arpistla í Ríkisútvarpinu. Ertu alltaf sískrifandi? „Ekki vil ég nú segja þaö. En ég held aö ég geti nú sagt aö það hafi ekki liðið það árið aö ég hafi ekki fest á blað — mismikið. Þannig aö ég er ekki hættur þessu. En það er hvorki svo mikið né merkilegt aö ég sé aö senda þaö frá mér yfirleitt. Þetta er eitthvaö sem maöur venur sig á þeg- ar maður er á unglingsárunum. Þaö kemur alltaf upp öðru hverju einhver þrá til að festa eitthvað á blað. ” — Stendur kannski til að gefa út Jónsbók? ,,Eg vil engu um það spá. Það get- ur vel verið. Þaö myndi þá vera í eitt- hvað breyttri mynd. Þetta er út- varpsefni og tengist margt líðandi stund. Ég myndi nú ekki taka það al- veg hrátt. Eg veit ekki. Kannski á maöur eftir að vera eins innblásinn og mað- ur var á menntaskólaárunum. Hver ,veit?” sagði JónÖrn. SGV Menntaskólaljóð eftir Jón Örn Marinósson Undir fjögur augu Sktn máni, skín nótt, skína þín augu. Enginn söngur, allt er hljótt, adeins þín augu. fírosir nótt, hrosir vör, hrosa þín augu. Engin spurn, engin svör, aðeins þín augu. ímgrkrinuþau mást, meitluð af fögnuði og ást. menntaskólaskáldskap sinn: Bamabrek Þegar ég var unglingur leit ég aldrei á mig sem skáld eöa rithöfund í mótun, en haföi gaman af því aö skrifa. Fyrsta árið mitt í Mennta- skólanum í Reykjavík tók ég þátt í smásagnasamkeppni, en þá keppni vann Ragnar Amalds, fyrrverandi ráðherra, með miklum glæsibrag. Eg fékk sérstaka viðurkenningu fyrir sögu um gamla konu í enskum strandbæ, en sjórinn gleypti hana einn góöan veðurdag og ekkert var eftir nema hundur í fjörunni og hár- kolla í flæöarmálinu. Þetta meistara- verkmunhafatýnst. Eg var í ritnefnd Skólablaösins í fjóröa bekk og ritstjóri þess í fimmta bekk; tók viö embættinu af dr. Þóröi Harðarsyni, prófessor í læknisfræði, en fyrirrennari Þórðar var Jónas Kristjánsson, er síðar varö alvörurit- stjóri. Skrif mín á þessum árum voru að mestu leyti ómerkileg skólablaða- mennska og þar á meðal sérkenni- legar ferðasögur, Blóðbað í Barcelona, Tálborgin Tangiers, ritað í útflúrsstíl fyrri alda og með því skáldaleyfi sem menn taka sér við slík tækifæri. Síðasta afrek mitt í þessum anda var heil opna í Morgun- blaðinu haustið eftir aö ég lauk stúdentsprófi. Þar var fjallað í ýkju- stíl um heimsókn til Damaskusborg- ar í Sýrlandi, eins konar sumar í Sýr- landi. Einnig minnist ég þess að hafa skrifað í gríni söguþráð óperu um Lo Sgobbone, kúristann, líf hans og dauöa, sem kom í Skólablaðinu þeg- ar ég var í fjóröa bekk. Á þessum árum fylgdi andlegt líf í MR þriggja ára hagsveiflu. Þegar sveiflan var í botni geröist andrúms- loftið pólitískt, menn gengu í Heim- dall eöa voru í leshring hjá Einari 01- geirssyni sem bar í þá vitleysu úr Þjóðverjum. Eitt mesta lán í lífi mínu var að fylgja ópólitískum ár- gangi gegnum skólann, fylgja upp- sveiflunni úr pólitískri lægö. Olafur Ragnar Grimsson var ári á eftir mér í skóla og meira að segja honum datt ekki pólitík í hug á þessum árum, nema kannski menningarpólitík, enda stofnaöi hann barnungur Menn- ingarfélag íslenskrar æsku. En á hæla okkar kom sveit pólitískra úlfa og síöasta árið í MR mátti heyra í þeim gjammið alla leið neðan úr þriðja bekk. Eg hef eiginlega ekki skrifað um annað en hagfræöi og skyld efni frá því ég lauk menntaskóla, en ávallt haft meira gagn og gaman af skáld- skap en hagfræði og félagsvísindum. Um árabil átti ég oft leið um Lundún- ir og greip tækifærið til að fylgjast meö leikhúsum þar. Þetta gekk svo langt að ég útvegaöi mér bækur um leikhús og leiklist og reyndi að átta mig á því, hvernig gott leikrit verður til, en sú viðleitni var árangurslaus. Það hefur ekki elst af mér að þykja meir koma til mikilla skálda en merkra vísindamanna. Á fyrri hluta þessa árs gisti ég bandarískan há- skóla og hlýddi þar á mál ýmissa heimsfrægra hagfræðinga. Við sama háskóla var einnig gestkomandi Carlos Fuentes, en hann er eitt af stórskáldum Rómönsku Ameríku. Ég sótti nokkra fyrirlestra hjá Fuentes og það eru þeir sem eru mér minnisstæðir en hagfræðingamh' eru meira eða minna gleymdir. Þráinn Eggerts- son hagfræðing- ur. ,,Á þessum árum fyigdi and- legt lif i MR þriggja ára hag- sveiflu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.