Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 23
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. 67 Bflar Bflar Bflar Bflar Bflar Fire 1000 Nýr smá- mótor f rá Fiat — kemur fyrst í „litlu músinni”, Topolino, sem kynntverður síðar í vetur Bílmótorar veröa yfirleitt til í vélum sem búa þá til en nýjasta bílvélin frá Fiat varö þó til á hóteli. Á meöan 35 daga verkfall stóö í Tor- ino, þegar jafnframt var ómögulegt fyrir verkfræöinga Fiat aö komast á vinnustaö sinn, lokuðu þeir sig inni á hóteli og einbeittu sér aö því verkefni aö hanna nýjan mótor fyrir smábíl. Árangur þess að leggja undir sig veit- ingastaði, bari og svefnrými hótelsins er nú aó koma í ljós. ,,Fire 1000” kalla þeir þennan nýja mótor. Þegar Italirnir kynna nú í fyrsta sinn nýja smábílinn Topolino, sem sagt hef- ur veriö frá hér á bílasíöunni, en sú kynning veröur í tengslum viö alþjóð- legu bílasýninguna í Genf í mars, þá veröur þaö jafnframt í fyrsta sinn sem þessi nýi mótor verður kynntur í bíl. Það sem fæddist á hótelinu var ekki aðeins mótor í smábílinn Topolino heldur er hér um aö ræöa vél sem Nýi sparneytni mótorinn frá Fiat sem fyrst mun birtast í „litlu músinni”, Topo- lino, í byrjun næsta árs. Þaö eru fáir hlutir sem gera þaö að verkum að ending vélarinnar á að verða meiri og það hve létt vélin er, 69 kíló, verður til þess að notagildið verður verulega mikið meira. koma mun fram í Fiat Panda, Uno og jafnvel nýju Lanciunni sem er í burðarliönum. Allir þessir bílar munu njóta góðs af hóteldögunum í Torino 1980. Þessi vél er afsprengi nútima tækni og ekki hafa tæknimenn aðeins lagt höfuðiö í bleyti heldur voru hér notaðar tölvur til hins ýtrasta til aö ná tilætluð- um árangri. Viö smíöina verða auk þess notuö vélmenni til aö ná sem mestri hagkvæmni viö f ramleiðsluna. Nafn vélarinnar er skammstöfun á „Fully Integrated Robotized Engine”, FIRE 1000. Þessi vél á aö taka eldri vélum Fiat fram um margt í endingu og viöhaldi og er það helst aö þakka því hve fáir hreyfihlutir eru og þá jafnframt slit- fletir. Þessari vél veröur greinilega ætlað að koma í staö núverandi 900 rúmsentí- metra vélarinnar sem Fiat notar og mun hún gefa meiri kraft, skemmti- legri gang og umfram allt minni eyðslu. Spamaöurinn í eyðslu er talinn vera um 15% og því talinn vænlegur kostur fyrir Uno. Meö „Fire 1000” myndi hann koma út meö aðeins 4 lítra eyöslu miðaö við 90 km jafnan meðalhraða. Þá er hann orðinn samkeppnisfær viö minnstu dísilútgáfursmábíla. Sennilegast bíður þessi vé) þess aö koma í nýrri h'nu bíla frá Fiat. Ein út- gáfa, 75 hestöfl, er í buröarhðnum og önnur með forþjöppu sem skila á um hundrað hestöflum. Jafnvel dísilvél er möguleg því véiarblokkin leyfir slíka vél. Þyngdin, aðeins 69 kíló, og möguleik- ar á blýfríu bensíni, gefa vélinni mikla framtíöarmöguleika. Framtíðin kann aö bera meö sér æ víðtækari notkun þessarar vélar því talað hefur verið um samvinnu milli Fiat og Peugeot um notkun og fram- leiöslu vélarinnar. Slík samvinna er aö veröa æ algengari og eitt talandi dæmi þar um er samvinna Fiat viö marga bílaframleiðendur sem nú eru famir aö nota nýju sjálfskiptinguna frá Fiat í bilasína. Vélin: Fjögurra strokka, 999 rúmsentímetr- ar, 45 hestöfl við 5000 snúninga á mínútu. OPIÐ í DAG 4 tii ki.^Tí öllum deildum Leiðin /iggur tíl okkar í verslanamiðstöð vesturbæjar JL- GRILLIÐ- GRILLRÉTTIR ALLAN DAGINN NYR AFGREIÐSLUTÍMI Mánud. -fimmtudaga kL 9-18.30. Föstudaga kl. 9—20. Laugardaga kl. 9—16. Allar vörur á markaðsverði Munið okkar hagstæðu greiðsluski/mála Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.