Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Blaðsíða 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985.
Mikill munur á hæsta og lægsta verði:
Dæmi um fímmfalt
veró á varahlutum
Samkvæmt upplýsingum
Verðlagsstofnunar má ætla aö ís-
lensk meðalfjölskylda verji að
jafnaði um 115 þúsund krónum ár-
legatil rekstrareigin bifreiöar.
Kaup á varahlutum er oft drjúgur
hluti af rekstrarkostnaði bifreiða.
I viðamikilli verðkönnun Verðlags-
stofnunar sem gerð var í febrúar sl.
og náði til varahluta í 19 bifreiðateg-
undum af árgerð 1982 kemur
gífurlegur verðmismunur í ljós á
hæsta og lægsta útsöluveröi.
Á algengum varahlutum er
munurinn oft mörg hundruð prósent.
460% verðmunur
á bremsuklossum
Verð bremsuklossa fyrir bæði
framhjól í Honda Aecord EX er hæst
2032 krónur í Hondu-umboðinu, en
lægst 363 krónur hjá Olíufélaginu h/f,
eða 460% verðmunur.
Geir Gunnarsson, framkvæmda-
stjórihjá Hondu-umboðinu: „Þaðer
rétt, okkar verð er töluvert hærra á
þessari tilteknu vöru en aðrir hafa
boðiðuppá.
1 okkar klossum er annaö og
fullkomnara efni, ekki hið
hefðbundna asbestefni sem notað
hefur verið, heldur ný tegund af járn-
efnum sem farið er að nota í dýrari
gerðir af bifreiðum. Það er okkar
stefna að vera einungis með
„original” varahluti og þeir eru jú
ailtaf dýrari.
Þórarinn Þórarinsson, innkaupa-
stjóri h já Olíufélaginu h/f.
„Við kaupum inn bremsuklossana
frá Triton í Danmörku, viðurkennt
merki traustra framleiðenda. Við
höfum fengið góð kjör hjá umboðs-
aðila okkar og fengið afslátt vegna
magninnkaupa.”
-h.hei.
Yst: Triton bremsuklossarnir frá
Oliufólaginu á 363 krónur. Neflst:
Hondu-bremsuklossar, beint frá
framleiflanda samnefndra bif-
reifla. Seldir i Hondu-umboði á
2.032 krónur. Myndir KAE.
íslandsmet í maraþon-
dansi á Fáskrúösfiröi:
Dönsuðusig
íferðalag
Maraþondanskeppni var haldin í
Æskulýðsheimilinu Fáskrúðsfirði
föstudagskvöldiö 1. mars sl. Hófst
dansinn klukkan 20.00, stóð samfellt í
52 klukkustundir og lauk á miönætti
aöfaranótt mánudags.
I dansinum tóku þátt sextán
nemendur í 8. bekk í Grunnskóla Fá-
skrúðsfjarðar. Tilefnið var söfnun fjár
í ferðasjóð. Áður hafði verið leitað
áheita meðal bæjarbúa og safnaðist
álitleg upphæð.
Krökkunum. tókst líka að setja nýtt
Islandsmetímaraþondansi. -EH.
Örvæntingarfullir
húsbyggjendur.
Heimta
iækkun
vaxta
Síöan nokkrir örvæntingarfullir og
aöþrengdir húsbyggjendur tóku sig
saman og hvöttu fólk til að Iáta í sér
heyra hafa símalínur til þeirra verið
rauðglóandi. A Reykjavíkursvæöinu
voru á þriðja þúsund búnir að skrá sig.
Á ísafiröi voru það 150 og á Reyðarf irði
70 manns.
Þeir sem standa bak við þessa vakn-
ingu eru gamlir hvatamenn að svo-
nefndum Sigtúnshópi sem er gamall
þrýstihópur í húsnæðismálum. Þessi
nýi þrýstihópur viröist vera oröinn öfl-
ugur og kallar hann sig Samtök
áhugamanna um úrbætur í húsnæðis-
málum.
„Með þessu erum við fyrst og fremst
að vekja athygli á því sem okkur finnst
vera að í húsnæðismálum,” segir Bald-
ur Gíslason, einn forsvarsmaður hóps-
ins.
Það eru einkum tvö atriöi sem sam-
tökin hafa bent á að þarfnist skjótrar
lagfæringar.
I fyrsta lagi að sambandið milli
launa og greiðslubyrðar hafi verið slit-
iö. Þetta þurfi að lagfæra strax. Lag-
færingin á þessu hafi í för meö sér var-
anlega tryggingu á því að hún haldist
til frambúðar. Þessi lagfæring reiknist
frá þeim tíma sem misræmis fór að
gæta á milli lánskjaravísitölu og
launa.
I öðru lagi hefur verið bent á að háir
vextir á lánum til húsbygginga séu
óviðunandi og þá beri þegar í stað að
lækka.
„Með þessu erum viö að benda á
stórt vandamál margra. Við ætlum að
þrýsta á stjómvöld og sjá hver við-
brögð þeirra verða. Við höfum ekki
bent á lausnir á þessum málum heldur
fyrst og fremst bent á þann vanda sem
blasir við,” segir Baldur Gíslason. -APH.
„Ég var að selja mjólk við dyrnar
hjá mér í dag. Eitthvað verður maður
að gera,” sagði Sólveig Olafsdóttir,
annar eigandi verslunarinnar Grundar
á Flúðum sem brann í fyrrinótt.
Verslunin Grund er eina matvöru-
verslunin á Flúðum og í eldsvoðanum
brann allt í versluninni, bæði vörur og
innréttingar. Húsið stendur þó uppi.
„Ætli við ryðjum ekki húsinu burt og
byggjum aftur yfir kjallarann. Þetta
er mikið fjárhagslegt tjón, svo mikið
er víst,” sagði Sólveig.
Rafmagnseftirlitsmenn, rann-
sóknarlögregla og brunamatsmenn
voru staddir á Flúðum i gær vegna
eldsvoðans. Helst er hallast að því að
kviknaö hafi í út f rá rafmagni.
-EH.
Inni í versluninni var Ijótt um að litast enda brann þar allt sem brunnið gat í fyrrinótt.
DV-mynd Kristjðn
Fljúgandi Hollendingar
á Keflavíkurflugvelli?
— hafa áhuga á að stunda eftirlitsf lug með Orionvélum
„Jú, það er rétt, þeirri hugmynd
hefur verið hreyft að leyfa einni eöa
tveimur hollenskum Orion eftirlits-
flugvélum að hafa aðsetur á Kefla-
víkurflugvelU,” sagði Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra við
DV.
„Ef af yrði þá yröi hér ekki um
aukningu aö ræða á því eftirUti sem
haldið er uppí frá Keflavík heldur
myndi hollenska sveitin ganga inn í
störf Bandaríkjamanna og þeirra
eftirlitsflug minnka aðsama skapi.”
Kvaö Geir Atlantshafsbandalagið
og HoUendinga sjálfa hafa sýnt máU
þessu nokkum áhuga, hoUenskar eft-
irUtsvélar hefðu t.d. áður haft aðset-
ur á KeflavíkurflugvelU í skamman
tíma sem hluta af æfingaáætlun At-
lantshafsbandalagsins og í sam-
vinnu við Bandaríkjamenn.
Aö lokum kvaöst Geir vUja leggja
áherslu á aö máUnu hefði mjög lítiö
verið hreyft og hefði ekki enn verið
til umfjöUunar í ríkisstjórninni.
hhei.
Kaupmaðurínn í versluninni Grund á Flúðum:
Se/nr mjólkina við húsdymar
— mikið f járhagslegt tjón af völdum eldsins