Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Side 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985.
Ur heróínhelvíti í Kaupmannahöfn í veitingahússreksturí Reykjavík:
„ÞETTA ER ALLT SATT’
„Allt sem gerist í bókinni er satt.
Ég fer ekki ofan af því,” segir Freyr
Njaröarson, annar höfunda bókar-
innar Ekkert mál er út kom um síð-
ustu jól og lýsir eiturlyfjahelvíti Is-
lendings í Istedgade í Kaupmanna-
höfn. Islendingurinn heitir Freddy
og hörmungar hans eru nær
ólýsanlegar þó tilraun sé gerö til
þess í bókinni og stundum listavel.
Freddy og Café Gestur
— ErtþúFreddy?
„Nei! Freddy er hjúpur sem er lát-
inn ganga í gegnum öll stig heróín-
helvítisins svo lesandanum veröi
ljóst hvaö hér er á ferðinni. Allt hefur
þetta gerst þósvo ég sé ekki í raun og
veru aðalsöguhetjan,” segir Freyr
þar sem hann situr á kafi í ryki í
húsakynnum þar sem í eina tíö var
veitingahúsið Askur viö Laugaveg.
Freyr hefur keypt reksturinn ásamt
nokkrum félögum sínum og áöur en
langt um líöur verður þar opnaöur
nýr veitingastaöur; Café Gestur.
„Viö ætlum aö vera meö ameríska
!inu í matargerð, gott, fljótt og ódýrt.
Þetta veröur vonandi góöur staöur,”
segir Freyr. Hann er meö hárklút
vafinn um enniö aö hætti japanskra
rithöfunda, hamar dinglar í belti og
eiginlega finnst manni hann of ungur
til aö opna stóran veitingastað viö
Laugaveginn. Hvaö þá aö þessi
strákur hafi kynnst helvíti heró-
ínsins í Kaupmannahöfn.
EITUR
ÁEYJU
ÁR ÆSKUNNAR
1985
Amfetamín í æð
„Erlendis er taliö aö 95 prósent
þeirra heróínsjúklinga sem vilja
fara í meðferð falli aftur í sama
farið. Þar bíöur heróiniö líka eftir
þeim þegar þeir koma út. Hér á
tslandi er þetta heróínumhverfi
aftur á móti ekki til staðar og þaö
munar aö sjálfsögöu miklu. En ef
menn vilja falla þá er til nóg af efni
til að sprauta sig meö. Ég veit um
fjölmarga sem „djönka” sig meö
amfetamíni.”
íslenskir heróínistar í Höfn
— Hvaö helduröu aö þaö séu
margir íslenskir heróínneytendur í
Kaupmannahöfn í dag?
,,Eg veit þaö ekki meö vissu. En ég
hef hey rt um eina 4—5.”
Eins og fram kemur í forsíöufrétt
DV í dag hafa um 10 Islendingar
verið til meöferöar á Kleppi vegna
heróínneyslu. Undantekningarlaust
Freyr Njarðarson i fullum skrúða við nýja veitingahúsið sem verður opnað innan skamms:
— Hef heyrt um 4—5 íslenska heróínneytendur í Kaupmannahöfn. DV-mynd KAE
hafa þeir komiö erlendis frá. Að sögn
Jóhannesar Bergsveinssonar yfir-
læknis eru þeir enn fleiri sem fiktaö
hafa viö heróín en komiö í meöferð
vegna þess og annarra vandamála.
Fyrir aðeins örfáum dögum lét
heróínsjúklingur leggja sig inn á
Klepp. Var þar um aö ræöa útlending
sem hér var á ferö og þoldi ekki
meira.
ísland gósenland
„Þetta er allt sama sukkiö,” segir
Freyr, veitingamaöur og fyrrver-
andi Kaupmannahafnarbúi. „Efnin
eru bara mismunandi sterk og þar er
heróínið að sjálfsögöu verst. Þaö er
mest krefjandi. Á vissan hátt er
Island gósenland fyrir þá sem vilja
rífa sig upp úr þessum óþverra. Þaö
getur veriö nógu slæmt aö vera meö
dóma á bakinu og sligandi skulda-
byröi eftir áralanga vitleysu þó svo
heróínið fljóti ekki fyrir næsta götu-
horn.”
Eiturlyf og
sársauki
Freyr veröur hugsi, dregur
málband 25 sentímetra út og lætur
þaö smella til baka: „Fólk er svo
mismunandi næmt fyrir eiturlyfjum
eins og sársauka. Sumt fólk leggur
þaö á sig aö eyða heilum degi í það
eitt að útvega sér eitt gramm af
hassi. Hvaö myndi þetta sama fólk
ekki gera fyrir sterkari efni? Þaö eru
vafalaust margir á hættumörkunum
og fyrir löngu kominn tími til aö aðil-
ar sem láta þessi mál sig varða taki
höndum saman og geri eitthvað rót-
tækt.
Frúin er ófrísk
I bókinni Ekkert mál fer Freddy
loks heim til Islands og fellst á aö
fara í meðferð. Ásta, sambýliskona
hans og kærasta, er þó á ööru máli,
hleypur út af Kleppi og út úr sögunni.
— HvaðvarðumÁstu?
„Það veit ég ekki. Aftur á móti er
konan mín ófrísk núna,” segir Freyr
Njarðarson. Helvítiö er aö baki og
eftir nokkra daga opnar Café Gestur.
Svona getur lífiö líka veriö.
-EIR.
I dag mælir Dagfari___________ í dag mælir Dagfari__________ j dag mælir Pagfari
Af norrænum móðgunum
Eftirmálar Noröurlandaráðs-
þingsins ætla að verða nokkrir og
þaö fyrir sakir sem ekki voru bornar
á þinginu heldur utan þess. Eins og
frægt er orðið lét Jón Baldvin Hanni-
balsson falla nokkur orð um flokks-
bræður sína í Skandinavíu sem hafa
dregiö þann dilk á eftir sér að annar
hver stjómmálamaður á Norður-
löndunum er alvarlega móðgaður út
í Jón.
Fyrst móðgaðist Ánker Jörgensen
þegar Jón minnti á að Islendingar
væru hættir aö vera nýlenduþjóð hjá
Dönum. Síðan móðguðust Finnar
þegar Jón talaði um finnlandiseringu
án þess að muna eftir því. Síðan kom
röðin að Svíum sem móðguöust yfir
því að minnt var á að þeir væru um-
fangsmiklir vopnasalar og að lokum
móðguðust Norðmenn þegar styrkja-
kerfi þeirra í sjávarútvegi var mót-
mælt á útifundi sem aldrei var hald-
inn.
Allar þessar móðganir urðu til
þess að Anker mætti ekki á
kjarnorkuf undi, Sorsa lét ekki sjá sig
í kvöldverðarboði og enginn lét sjá
sig á útif undinum.
Gekk nú maður undir manns hönd
að sleikja fýluna úr binum norrænu
gestum og gamlir krataformenn,
eins og Kjartan Jóhannsson og Gylfi
Þ. Gíslason, voru pússaðir upp til að
lýsa því yfir að ummæli Jóns væru
byggð á misskilningi. Var þó ijóst að
íslenski Alþýðuflokkurinn var stór-
lega móðgaður út í formann sinn og
voru þau boð látin út ganga að
íslenskir alþýðuflokksmenn væru
innilega móðgaðir fyrir hönd þeirra
gesta sem móðgaðir höfðu verið.
Dagfari stóð í þeirri meiningu að
móðganirnar væru einkamál krat-
anna enda hafði enginn móðgað
neinn svo vitað væri þangað til Ámi
Johnsen tók upp á því að móðga þing-
heim með því að geta þess að
íslenska væri heimsmál.
Þessi ummæli vöktu móðgun hjá
Eiði Guðnasyni en hann er krati sem
hefur getið sér gott orð í móðgunar-
girni og er ýmist Leiður eða Reiður
Guðnason. Hins vegar er Árni ekki
krati og spurning hvort hann hafi
leyfi til að blanda sér í þennan
móðgunarleik.
Skýringin er sennilega sú að Árni
hefur viljað vekja á sér athygli og
talið árangursríkast að móðga ein-
hvem vegna þess að þeir einir
komust í blöðin sem móðguðu eða
vora móðgaðir.
Nú hefur hins vegar komið í ljós
að fleiri hafa móðgast heldur en
íslenskir og skandinavískir kratar.
Páll Pétursson, forseti þingsins, er
feykilega móðgaður. PáU hefur
móðgast fyrir hönd íslensku þjóðar-
innar og vUI að Jón Baldvin biðji
hana afsökunar. Fer nú skörin
heldur betur að færast upp í bekkinn
þegar í Ijós kemur að PáU hefur
móðgast yfir því að þjóðin hafi verið
móðguð yfir því að Jón Baldvin hafi
móðgað erlenda krataforingja.
Þetta uppátæki Páls Péturssonar
hefur Jón Baldvin kaUað
svívirðingar á sig og hlýtur þá að
koma að því að Framsóknarflokkur-
inn aUur móðgist út í Jón Baldvin
fyrir að móðga Pál.
Og þar sem PáU er forseti Norður-
landaráðs og Framsóknarflokkurinn
er þátttakandi í ríkisstjórninni getur
þetta orðið að stórpólitísku alvöm-
máU.
Niðurstaðan er sem sagt sú að
erlendu gestirnir era móðgaðir út í
Jón, islendingarnir eru móðgaðir út í
Jón fyrir aö hafa móðgað útlending-
ana og nú er Jón orðinn móðgaður út
í Pál fyrir að hafa móðgað sig. Segi
menn svo að Norðurlandaráðs-
fundurinn hafi verið tíðindalaus!
PáU Pétursson telur þetta merkasta
þingið og maður skilur nú hvers
vegna.
Dagfari