Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985.
5
Ástandið ískólunum:
„Vægast sagt
hörmulegt”
— nemendur við það að hætta námi og margir
komnirívinnu
„Þetta hefur gengiö vægast sagt
hörmulega. Þaö er auövitaö viöbúiö
þegar nær 70 prósent af kennslunni
fellur niður. Nemendur mæta illa,
sem er eölilegt viö þessar aöstæöur.
Margir eiga langt að og þegar ekki er
kennt nema innan við 10 tíma á viku
þá er ekki von aö nemendur mæti í
skólann,” sagði Sveinn Ingvarsson,
konrektor í MH, í viðtali við DV.
— Hafa einhverjir nemendur
ákveðiö aö hætta námi á þessari
önn?
„Þaö er töluveröur hópur nemenda
sem nú þegar er kominn í góöa vinnu
og margir vilja ógjarnan sleppa
henni úr því sem komið er. En hvort
nemendur hætta í skólanum held ég
aö ráöist af því hversu lengi þetta
ástand stendur yfir.”
Sveinn sagði aö ef þetta ætti eftir
að standa út þessa viku og lengur
væri nokkuö ljós't aö þessi önn væri
farin í súginn. Upphaflega var rætt
um að hægt yröi aö vinna á laugar-
dögum, hluta af páskafríi og jafnvel
aöeins fram á sumar. Þessir
möguleikar eru nú aö veröa aö engu.
Þaö aö vinna fram á sumar, ef deilan
leysist, er ekki vænn kostur. Margir
nemendur byggja lífsafkomu sína á
sumarvinnu og mega ekki við því aö
tapa mikluaf henni.
— En ef svo fer aö önnin eyði-
leggst. Hvernig verður skólahald að
hausti?
„Þá stöndum viö frammi fyrir
miklum vanda. Ljúki nemendur ekki
námi nú i vor er ljóst aö við getum
ekki bætt við nema óverulegum
Beðið eftir kennurum í Menntaskólanum í Reykjavík
DV-mynd KAE
f jölda nemenda í haust.
Það er því verulega svart hljóöiö í
okkur um þessar mundir og getur
engan veginn veriö ööruvísi,” sagði
Sveinn Ingvarsson.
MH hefur þegar of marga
nemendur og á hverju hausti bætast
viö um 170 nemendur og aö vori um
100 nemendur. I vor var áætlað aö út-
skrifa um 140 stúdentsefni frá
skólanum.
-APH.
Norrænir
starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Svíþjóðar veita á námsárinu 1985 — 86 nokkra styrki
handa islendingum til náms við fræðslustofnanir í þess-
um löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhalds-
náms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undir-
búnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsskólum iðn-
skólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem
ekki er unnt að afla á íslandi. — Fjárhæð styrks í Dan-
mörku er 15.000 d.kr., í Finnlandi 13.600 mörk, í Noregi
15.850 og í Svíþjóð 9.800 s. kr. miðað við styrk til heils
skólaárs. — Umsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 9. apríl nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu. 7. mars 1985
Menntamálaráðuneytið
Bergþóra Árnadóttir og Graham
Smith slá á strengi hjartans.
Komið og bragðið nýju Naustlínuna
— gmsir girnilegir réttir sem kitla
bragðlaukana.
„ \<Ö
V
FIAT ÞJÓNUSTA
Viljum minna eigendur FIAT bifreiöa á að reglubundnar
skoðanir og stilling á 10.000 km fresti fyrirbyggja oft alvar-
legri bilanir, viðhalda verðgildi bílsins og auka öryggi
farþega.
Munið að vel stillt vél sparar bensín.
F I A
Tímapantanir í síma
77200 og 77756
Egill Vilhjálmsson hf., Davíð Sigurðsson hf. og FIAT
EGILL /
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200—77202.