Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985.
7
Útlönd Útlönd
ísraelar hefna—
og 34 láta lífið
Israelar skildu eftir sig blóðuga slóð
líka eftir árás á shítaþorpiö Zrariyeh í
Suöur-Líbanon í gær. Alls drápu þeir 34
grunaða skæruliða, handtóku tugi i
viðbót, særöu sjö, sprengdu upp 11 hús
sem í voru vopn og handtóku 20 her-
menn líbanska hersins fyrir aö
„trufla”sig.
Þetta var þriðji bardagi herja
Líbanons og Israels og harðasta árás
Israela gegn skæruliöum síöan Israels-
her dró sig til baka f rá Sídon-svæðinu.
Shimon Peres, forsætisráðherra
Israels, sagöi að árásin ætti að sýna aö
Israelsmenn ætli „ekki aö láta undan
hryðjuverkamönnum og hótunum
þeirra”.
Þegar fréttamenn heimsóttu
Zrariyeh eftir árásina beið þeirra
blóöugt bardagasvæði. Dæmi voru
þess að skriðdrekar hefðu keyrt yfir
bíla og kramið þá sem í þeim voru til
dauða. Á vegg einum stóð á arabísku :
„Þetta er hefndin fyrir hvern dropa af
ísraelsku blóöi, hefnd ísraelsku
vamarsveitanna.”
r
Islenskir sendiráðsmenn í Moskvu:
Gömlu mennimir
vildu brúa
kynslóðabilið
„Þaö þögðu allir þunnu hljóði um
þetta í morgun,” sagði Páll Asgeir
Tryggvason, sendiherra Islands í
Moskvu, við DV í gær. „Stjórnarerind-
rekar staðfestu klukkan 1.45 aö
samninganefndin, sem var í
Bandaríkjunum, væri komin í loftið á
leið heim.” Þá fyrst gátu sendiráðs-
menn vitaö með nokkurri vissu að eitt-
hvaö alvarlegt hafði gerst.
Benedikt Jónsson, sendifulltrúi í
Moskvu, sagðist halda að „öllum
vestrænum sendierindrekum litist vel
á Gorbatsév. Þeim leist lika vel á hann
Ljósmyndarinn, sem tók þessa
mynd, trúði varla sínum eigin augum.
Yfirleitt hefur oröið að notast við teikn-
ingar tíl aö sýna hinn „dæmigerða”
indverska fakír liggjandi á nálarúmi.
En þessi maður sefur í raun og veru á
slíkú rúmi í Hardwar, pílagrímabæ
síðast, þegar Téménko var síðan
valinn.
Hann hefur beitt sér fyrir nýjungum
í efnahagsmálum og er talinn opnari
fyrir efnahagsbreytingum. Hann er
ekki endilega Andropovsmaður, en
liann hlaut frama sinn á tíma hans.
Þaö er erfitt að draga menn stjóm-
málanefndarinnar í hópa. En eldri
mennirnir eru búnir að sætta sig við
Gorbatsév núna. Það er talið að þeir
hafi viljað láta Gorbatsév bíða aðeins
til að brúa kynslóðabiliö eftir
Bréznev.”
hindúa við Ganges -fljótið. Með þessu
vill hann sanna að hægt sé að sætta sig ■
við líkamlegan sársauka með andlegri
hugleiðingu. „Það var næstum sárs-
aukafullt að taka þessa mynd,” sagði
ljósmyndarinn.
Viðræðumar
hófustídag
I dag hefjast vopnatakmörkun-
arviðræður stórveldanna, þrátt
fyrir dauöa Sovétleiðtogans
Térnénko. Bandarískir stjórnar-
erindrekar telja þaö merki þess að
Sovétmenn vilji sýna aö stefna
þeirra í viðræðunum verði óbreytt,
hvaö sem líöur dauða leiðtogans.
Gorbatsév lagöi áherslu á að
Sovétmenn vildu binda enda á
vopnakapphlaup stórveldanna.
Bandarikjamenn í Genf sögðust
ekki getað lofaö skjótum úrslitum í
viðræðunum, en þeir myndu stefna
að þeim.
Sendimenn stórveldanna hittust
í dag um klukkan 10 í húsi sovésku
sendinefndarinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum í Genf. Næsti fundur á
síðan að vera á fimmtudag, daginn
eftir jarðarför Térnénkos.
Blóðugbarátta
gegn glæpunum
Aö minnsta kosti 104 lögreglu-
menn í Kína hafa verið drepnir
undanfarna 18 mánuði í aðgerðum
gegn glæpamönnum, að sögn kín-
versku stjómarinnar.
Kínverskur ráöherra sagði í
gær aö auk þeirra heföu 1.022
lögreglumenn særst í herferð
stjórnvalda tii að stemma stigu við
öldu ofbeldisverka og spillingar
síðaní ágúst 1983.
800faristí
loftárásum
Fimm manns fórust og fjórir
slösuðust í loftárás Iraka á Teher-
an aðeins rúmum hálftíma áður en
vopnahlé átti aö taka gildi á ,mið-
nætti í nótt. Arásin á Teheran var í
hefndarskyni viö árás Irana á Bag-
dad í gær.
Iranir segja að alls hafi 800 látið
líf ið í árásum Iraka á borgir í Iran.
Sikkumsleppt
Rajiv Gandhi, forsætisráöherra
Indlands, hefur rétt sikkum frið-
arpálmann með þvi aö leysa úr haldi
leiðtoga sikka sem setíð hafa í fang-
elsi síðan herinn réöst á Gullna hofið
síðastliðið sumar. Meöal þeirra sem
var sleppt voru Sant Harchant Singh
Longowal, forseti stjómmálaflokks
sikka.
FAKIRINALARUMI
VERKFÆRAMARKAÐUR
Smiðjuvegi E 30, Pósthólf395,200Kópavogi,Sími (91)79780
IÐNAÐAR VÉLAR
VÖR UL YFTARAR
Úrval notaðra iðnaðarvéla og annarra tækja. Eigum núna
fyrirliggjandi eftirtaldar vélar auk margs annars:
Fræsivél, rennibekki, 60 tonna vökvapressu, smergla, hjakk-
sög, höggpressu, plötuvals, loftpressur, vökvadrifnar teina-
klippur, borðsagir með rúlluborðum, bandsagir, 4ra pósta
bílalyftur, punktsuðuvél, steypusílóvagn, ventlaslípivélar,
raf- og dísillyftara. Erum einnig með mikið úrval af slípi-
pappír og slípiböndum. Rafhandverkfæri, loftverkfæri og
handverkfæri á mjög hagstæðu verði.
Tökum vélar í umboðssölu.
Stærðir: 40 — 46. Verð kr. 1.595,-
Litir: grár og svartur.
SK0VERSLUN þóRÐAR PÉTURSS0NAR
LAUGAVEGI 95, SIMI 135/U. KIRKJUSTRÆTI 8, SIMI 14181
vlniM Lausar stöður
heilsugæslulækna
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsugæslu-
lækna semhérsegir:
1. Borgarnes H 2, ein staða læknis af þremur frá 1. júlí
1985.
2. Þingeyri H 1, staða læknis frá 1. maí 1985.
3. Ísafjörður H 2, ein staða læknis af fjórum frá 1. júlí
1985.
4. Siglufjörður, önnur staða læknis frá 1. okt. 1985.
5. Akureyri H 2, tvær læknisstöður frá 1. júlí 1985, ein
læknisstaða frá 1. september 1985.
6. Þórshöfn H 1, staða læknisfrá 1. maí 1985.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um læknis-
menntun og læknisstörf skulu berast ráðuneytinu á þar til
gerðum eyðublöðum, sem fást i ráðuneytinu og hjá land-
læknisembættinu, eigi síðaren 12. apríl nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í ráðuneytinu og hjá
landlæknisembættinu.
6. mars 1985.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
AUGLÝSING
um nám í sérkennslufræðum við Kennara-
háskóla íslands
Haustið 1985 gefst kennurum í grunnskólum og sér-
skólum kostur á að hefja nám í sérkennslufræðum við
Kennaraháskóla íslands sem hér segir:
a) Fyrsti áfangi sérkennslunáms til 30 námseininga.
Þetta nám er ætlað kennurum í grunnskólum og sér-
skólum sem lokið hafa almennu kennaraprófi eða
B.Ed. prófi og hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu.
b) Annar áfangi sérkennslunáms (sérhæfing) til 30
námseininga, ætlað kennurum sem nú þegar hafa
lokið 30 námseiningum í sérkennslu (fyrsta áfanga).
Að þessu sinni verður boðið upp á sérhæft nám fyrir
þá sem kenna eða hyggjast kenna nemendum sem
eiga af ýmsum ástæðum við alvarlega námsörðug-
leika að stríða.
Námi í hvorum áfanga fyrir sig verður dreift á u.þ.b.
tveggja ára tímabil, á árlegum starfstíma skóla og utan.
Kennarar munu því stunda námið samhliða kennslu í
grunnskólum og sérskólum sem mynda eins konar starfs-
vettvang námsins.
Óskað er eftir umsóknum frá einstaklingum og skólum
sem hefðu áhuga á og aðstæður til að mynda slíkan
náms- og kennsluvettvang fyrir hópa starfandi kennara er
hygðust stunda ofangreint nám.
Varðandi fyrsta áfanga námsins (30 ein.) er hugsanlegt
að boðið verði upp á þennan áfanga sem fullt eins vetrar
nám. Þetta er þó háð þeim skilyrðum að nemendafjöldi
reynist nægur. ^
Umsækjendur þurfa að búa yfir staðgóðri kunnáttu í
ensku og Norðurlandamálum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans.
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 1985.
Rektor.