Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Side 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985.
Starfsmenn Leiðbeiningastöðvarinnar á skrifstofunni. Frá vinstri: Sigriður Kristjánsdóttir og arftaki
hennar Ingibjörg Þórarinsdóttir.
Hvemig næ ég þessum bletti úr,
hvaða tegund þvottavéla er hentugust?
Leiðbeiningastöð húsmæðra heimsótt
1 meira en tuttugu ár hefur Kven-
félagasamband Islands rekiö alls-
herjar ráðgjafaþjónustu fyrir
almenning eöa Leiöbeiningastöö hús-
mæðra, eins og hún heitir.
Kvenfélagasamband Islands hefur
skrifstofu aö Hallveigarstööum viö
Túngötu í Reykjavík og þar er
Leiöbeiningastöö húsmæðra einnig til
húsa.
Stööin hefur frá upphafi verið opin
tvær klukkustundir á dag, nú er skrif-
stofutíminn á milli 14 og 16 alla virka
daga vikunnar. Sími Leiöbeininga-
stöövarinnar er 12335.
Á Leiöbeiningastöðinni er leitast viö
aö svara fyrirspumum almennings um
ýmiss konar heimilisstörf, hagnýtingu
matvæla og geymslu þeirra, hollustu-
hætti og matargerö, blettahreinsun og
ræstistörf.
Einnig er mikiö spurt um ráö viö
kaup á heimilistækjum ýmiss konar.
Á skrifstofunni liggja frammi
margs konar erlend neytendablöð og
skýrslur er varöa neytendamál. Reynt
er aö byggja starfsemina upp á
upplýsingum frá erlendum og
innlendum rannsóknarstofnunum,
neytendablöðum og fræðsluritum um
heimilisstörf og tæki.
Leiðbeiningastöðinni hafa aö jafnaði
borist um 250—300 fyrirspurnir á
mánuöiá undanförnumárum.
Starfsmenn Leiöbeiningastöðv-
arinnar síöustu árin hafa verið
Sigríður Kristjánsdóttir hússtjórnar-
kennari, sem veitt hefur stöðinni for-
stööu, og Vigdís Jónsdóttir, fyrrver-
andi skólastjóri viö Húsmæörakennar-
skóla Islands, hefur starfaö meö henni.
Sigríöur Kristjánsdóttir er nú aö hætta
störfum um einhvem tíma viö stööina
og mun Ingibjörg Þórarinsdóttir taka
viö af Sigríöi.
-hhei.
Fjölbreytt fræðsluritaútgáfa
Kvenfélagasamband Islands hefur á
undanfömum árum gefiö út talsvert af
fræöslu- og kynningarritum fyrir
íslenskar húsmæöur.
Má þar t.d. nefna eftirtalin
fræöslurit: Frysting matvæla, Ger-
bakstur, Glóöarsteiking, Hreindýra-
kjöt, Nútíma mataræði, Mataræöi
bama, Matur og hreinlæti, Svona
gemm við .. ., Blettahreinsun,
Félagsmál og fundarstjóm, Islenskir
þjóðbúningar, 1. Upphlutur, 2.
Peysuföt, Upphlutur telpna og upp-
hluturl9. aldar.
Fræðsluritin er hægt aö nálgast á
skrifstofu Kvenfélagasambandsins og
kosta í kringum 50 krónur eintakiö.
-hhei.
Spennandi fiskréttur
Islenskur fískur er einn sá besti í
heimi og ein undirstööufæöa okkar Is-
lendinga. Hann er hægt að matreiða á
margs konar hátt, hér fylgir eitt lítiö
dæmi.
2—3 msk. smjör eöa smjörlíki
1 stórt epli
1— 2 meðalstórir laukar
1 sítróna
1 búnt dill
1 búnt steinselja
1 hvítlauksrif
2 súputeningar
ca 600 g fiskflök, ýsa eða þorskur
2— 3tsk. sítrónupipar
Flysjið eplið og skeriö það í báta,
flysjið laukinn og skeriö hann í sneið-
ar.
Flysjið sítrónuna og skerið hana í
bita. Saxið eöa klippið helminginn af
dillinu og steinseljunni gróft niður.
Steikiö nú allt í þykkbotna potti eöa
pönnu og látið hvítlauksrifið, semskor-
ið hefur verið ofan í, út í pottinn. Skerið
fiskflökin í 5 cm breiðar sneiöar.
Kryddið þær með sítrónupipar og látið
út í pottinn. Látiö lok á pottinn og látið
innihaldiö sjóöa i um það bil 10 mínút-
ur. Stráið þá afganginum af dillinu og
steinseljunni yfir og berið fram.
hhel/A. Bj.
Enskunám í Englandi:
Flogið til London alla sunnudaga. — Ekið þaðan
til Bournemotuh á suðurströnd Englands —
þekktur baðstrandarbær í Dorset. Hægt er
að velja um 3 almenn enskunámskeið, 20—25—
30 tíma á viku, lágmark 3 vikur — Auk þess sér-
hönnuð námskeið fyrir ýmsar starfstéttir: iðnað
og verslun — stjórnun og markaðsleit —
bankastarfsemi — bréfaskriftir — einkaritara —
ferðaskrifstofu — hótel- og veitingahúsarekstur
— tæknimál og tölvunám — undirbúningur að
langskólanámi í Englandi o.s.frv. Gist á einka-
heimilum (hótel ef óskað er). Skólinn er búinn
fyrsta flokks kennslutækjum, útvarpi, sjónvarpi
og upptökutækjum o.s.frv. Fysta flokks kennar-
ar. Fjölbreyttar skoðunarferðir, leikir og íþrótta-
líf.
Verð frá 31.700 fyrir 3 vikur, innifalið flug, fæði,
gisting og kennsla.
Tryggið ykkur far í tíma. Allar upplýsingar og
bæklingar í skrifstofu okkar. g* 68*62*55
tSÞ
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík
SNIFF-FRÍTT LÍM
KOMIÐ Á MARKAÐ
„Unibond er raunar safnheiti nokk-
urra límtegunda sem öll eru sniff-frí,
þ.e. griplím, alhliöa gólflím og kork-
lím,” sagði Tryggvi Magnússon hjá
málningarverksmiðju Slippfélagsins í
Reykjavík er DV spuröi hann um sniff-
fría límið sem komiö er á markaöinn.
„Þaö er raunar eltki nýtt aö kork- og
alhliða gólflím sé sniff-frítt en það er
nýjung aö geta fengið sniff-frítt grip-
lím og einstætt aö límið hafi jöfn gæði á
viö hefðbundið þynnislím,” sagði
Tryggvi.
Engin íkveikjuhætta
Ikveikjuhætta samfara notkun þessa
efnis er engin þar sem það er þynnis-
laust. Ætlast er til aö límið sé borið á
báöa fleti meö rúllu eöa pensli en ekki
meö límspaða eins og algengt er um
þynnislím. Mislengi þarf aö bíöa og fer
þaö eftir efnum sem líma á saman og
hitastigi en algengasti tíminn er 15—20
mín. Þetta lím veröur glært þegar þaö
er tilbúið til límingar.
Unibond límið er þunnt, einn 1
þekur 15 m2 sem er helmingi meira en
þynnislím gerir. Það dregst dýpra inn í
gljúpa fleti, t.d. svampa, og er þá
ráðlagt að bera fyrst eina þunna
umferð á flötinn til mettunar og síöan
aðra umferö til límingar.
— Viðhvaðergriplímiðhelstnotað?
„Þaö er t.d. notað á haröplast,
borðplötur, einangrunarplast, bólstur-
svamp, leður, poplin, vinyl, gólfdúka,
flísaro.s.frv.
I þeim tilfellum þar sem Unibond
limir ekki eins og skyldi hefur ekki
verið farið eftir leiöbeiningunum um
meðferð límsins. A dósamiöunum eru
skýrar og greinargóðar leiöbeiningar
sem nauösy nlegt er aö f ólk lesi áður en
límið er notað.
Ef upp koma einhver vandamál ætti
viökomandi strax aö hafa samband við
næsta söluaðila á líminu eöa viö sér-
fræöinga málningarverksmiöju
Slippfélagsins,” sagði Tryggvi
Magnússon.
Þaö hlýtur aö koma aö því að fleiri
hættulaus eöa hættulítil efni komi á
markaðinn í byggingavörum en þar
hefur víða verið pottur brotinn. Nefna
má ýmis málningarefni, t.d. epoxy-
lökk. Er óskandi að áframhald veröi á
þeirri braut sem málningarverk-
smiöja Slippfélagsins hefur nú varðað
með því að koma meö þetta nýja sniff-
fríalímámarkaðinn. A. Bj.
Sniff-fría griplímið f rá Slippfélaginu er
til i þrenns konar hentugum umbúöum.
Hræðileg slys hafa orðið á undanförn-
um árum er unglingar hafa andað aö
sér rokgjörnum efnum úr limi og
öðrum slikum efnum. Ástæða er til að
gleðjast þegar á markaðinn kemur
efni sem hefur ekki þessa hættu í för
með sér.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur