Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Síða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. Frjálst.óháð dagblað Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÓRDUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMÓLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Aígreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. Áskríftarverð 6 mánuði 330 kr. Verð 1 lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. i A ð Téménko látnum Konstantin Térnénko, forseti Sovétríkjanna, er látinn, 73ja ára aö aldri. Því er efst á baugi að spá í framvindu mála eftir fráfall þessa æðsta manns annars risaveldis- ins. Térnénko lézt í þann mund, sem viöræður risaveldanna um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar höfðu komizt í gang að nýju. Margir gera sér vonir um, að með þeim viðræðum dragi úr kalda stríðinu og hervæðingu. Síöasta ár einkenndist mjög af aukinni hörku í kalda stríðinu. Ekki er að búast við meiriháttar breytingum í stefnu Sovétríkjanna enn um langt skeið, þótt nýr maður taki við. Spurningin um eftirmann tók einkum til þess, hvort Kremlklíkan teldi nú rétt að setja yngri mann en verið hefur í æðsta sætið. Þrjú gamalmenni hafa stýrt Sovét- ríkjunum síðustu ár, menn sem hafa veriö heilsuveilir, Brézhnev, Andrópov og Térnénko. Brézhnev lézt í nóvem- ber 1982. Eftirmaður hans, Andrópov, lézt í fyrra og Tér- nénko tók við. Á þessum tíma var talinn „stöðugleiki” í stefnu Sovétríkjanna, stöðugleiki, sem almenningur var lítt hrifinn af. Öldungaveldið í Sovétríkjunum er sterkt sem fyrr. Síð- ustu ár hafa öldungarnir í Kreml og Washington magnað kaldá stríðið að nýju. Sovétríkin reyna að knésetja Afgani, sem enn berjast hetjulegri baráttu fimm árum eftir innrás Sovétmanna. Sovétríkin kúga Pólverja og aðrar þjóðir Austur-Evr- ópu. Kremlverjar standa bak við ógnirnar, sem stjórnin í Varsjá hefur beitt. Heilsulitlu öldungarnir í Kreml hafa haldið þessari stefnu óbreyttri og notið við það annarra öldunga í liði sínu. Ætla má, að margir bindi of miklar vonir við viðræð- ur risaveldanna. En vafalaust er skárra en ekki, að talað sé saman. Gorbatsév, 54ra ára, var í gær settur formaður komm- únistaflokksins, „aðalritari”, og því talinn hafa tekið æðstu völd í Kreml. Hann er maður nýrrar kynslóðar, maður sem sér hlutina líklega í öðru ljósi en fyrirrennar- ar hans. Gorbatsév nýtur nokkurs trausts á Vesturlöndum. Margrét Thatcher, forsætisráöherra Bretlands, hefur til dæmis sagt um hann, að „við hann megi tala og gera við hann samninga”. Járnfrúin leggur þó ekki í vana sinn að hrósa Kremlverjum. Aðrir sem komu til greina voru Rómanov, 62ja ára, Grishin, 70 ára, Grómýkó, 75 ára, og Tíkhonov, 79 ára. Eins og sést af þeirri upptalningu eru þeir flestir á átt- ræðisaldri, menn Brézhnevstímabilsins. Æðstu menn í Kreml kusu að velja mann annarrar kyn- slóðar. Mestu íhaldsmönnunum í Kreml mun þykja það óráðlegt. En andlát Térnénkos opnar leiðir fyrir þá Sovétmenn, sem vilja marka nýja stefnu. Réttast er að gera sér ekki miklar vonir um þíðu í kjöl- far andláts Térnénkos forseta. Sovétmenn munu áfram beita ógnum, þar sem þeir telja sér einhvern hag í. Borgarar Sovétríkjanna munu áfram búa við ógnar- stjórn og kröpp kjör, þar sem f jármagnið fer til vígbúnað- ar. En verði breytingar gætu þær fremur orðið til hins skárra. Haukur Helgason. DV skólaskipinu Stormasamt þing Þá er þingi Noröurlandaráös lokiö, en stóö í tæpa viku á fjölum Þjóðleik- hússins, sem þó mun vera í minna lagi fyrir pappírsóperur af þessu tagi. Þetta var stormasamt þing, þótt vel væri þaö undirbúið, og veðurlag á Islandi gekk í takt. Byrjaði meö mildu vorveöri og volgu regni, en endaöi í stórstraumi, þannig að kolblár sjór flæddi víða á land og stormurinn hljóöaöi. Aö þessu sinni þurfti landið aö vísu ekki aö biöja neinn afsökunar á tíðarfari, því yfirlöndin í samstarfinu, Noreg- ur, Svíþjóö og Danmörk, hafa veriö frosin saman svo vikum skiptir og þaö sama gildir raunar um Finn- land. Hiö mikla kuldakast, sem gengið hefur yfir á norðurhveli jarðar í vetur, hefur á hinn bóginn nær alveg sneitt hjá Islandi, meöan innisetur hafa verið í London, París og New York, að ekki sé nú minnst á tíðar- fariö í jámtjaldslöndunum. Viö jjinglok gekk hann svo í stóra- sunnan, bæöi á þinginu og eins úti á vonarvölinni, og þeir sem leið áttu um miöbæinn sáu stóra trukka vera aö flytja burtu heilu kýrfóðrin af ræðum, kjaftastólum og boröum. Sérstök eins og hálfs tonna blaöur- maskína var nefnilega fengin til landsins til að fjöifalda ræður á mörgum tungum. En nú er þessu öllu lokiö og þá veröa sviðsgræjur Norðurlanda að víkja í bili því aörar uppfærslur í leikhúsinu geta ekki beðið. Jón Baldvin veröur því aö semja afsökunarbréfin sín viö púlt- iö heima, en forseti Norðurlanda- ráðs sagöi í útvarpinu aö áður- nefndur þingmaöur ætti nokkur slík bréf óskrifuö. Þó viö í Framsókn, og aörir sandínistar, séum tiltölulega ánægö meö þetta þing, eða meö störf þess sem heild, þá má nú að ýmsu finna. Til dæmis eru ekki allir ánægöir meö hiö peningalega „Vestursvæöi”, þar sem ísland er í háöungarskyni sett á bás meö dönskum kjördæmum, og minnir þetta óneitanlega dálítið á Svíagaldurinn, sem fengiö hefur Is- lendinga til þess aö keppa og taka þátt í héraösmótum meö Löppum á hreindýraslóðum, eöa svonefndum Karlotten-mótum „nyrstu byggða”. Ekki var manni þó alveg ljóst fyrst, hvers vegna slíkt ofurkapp var lagt á að fá okkur til sér samstarfs við minnihlutahópana í noröri, en þaö kom þó í 1 jós núna, eftir aö viö urðum aöilaraö „Vestursvæðinu”, ogþá um leið utan viö öll stærri plön og alvöru í samnorrænum framkvæmdum og efnahagsmálum. Og þótt einhverjir séu sáttú- viö þessa nýju útivist meö vandræöakjördæmunum dönsku, hygg ég aö margir Islendingar séu á JÓNAS GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR bandi fjármálaráöherra, sem telur þetta vera kynþáttamisrétti fremur en skipulagslega hagræöingu og ekki boölega lausn fyrir sjálfstæöa þjóö. Þaö kann því svo aö fara aö fleiri á „Vestursvæöinu” eigi óskrifuö köld bréf en Jón Baldvin Hannibalsson frá Isafiröi. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Meðal áhugaveröra mála á þingi Norðurlandaráðs voru bókmennta- verölaun ráðsins og ömurlegur árangur íslenskra skálda á þeim verölaunamarkaöi. Þeir, sem gerst þekkja, vita aö oft hefur þaö komiö fyrir að vondar þýöingar á stóru málin hafa spillt fyrir framlögöu verki, þótt hinu sé ekki aö leyna aö oft hafa íslensku nefndarmennimir haft meö sér verri farangur en efni stóöu til, aö framlagðar bækur hafi veriö jafn óskiljanlegar á íslensku og í sænskum eöa dönskum þýðingum. Bækumar virðast nefnilega oftar en hitt hafa verið valdar kúltúrpólitískt, þótt maöur hliöri sér hjá þeirri grimmd aö taka einstök dæmi. Þó er þaö eftirtektarvert aö nánast aldrei er lögö fram af Islands hálfu metsölubók, þótt innansveitar- króníkur, eins og ævisögur, seljist gjarnan meira en skáldrit og bækur um andalækningar og drauga séu vinsælli en t.d. ljóö, þá er mér til efs aö þýðingarnar hafi verið stærsti þröskuldurinn, því bækur sem engan mann varöar um á íslandi, en lagöar hafa veriö fram til verðlauna, era raunveralega dauðadæmdar fyrir- fram, nema lífseig er sú von aö „nú hljóti rööin aö vera komin aö Islandi”, þótt vissulega hafi þaö ekki átt við þegar Olafur Jóhann fékk þessi verölaun. Hann fékk þau fyrir góðabók. Og sem dæmi um aðferðimar þá munu íslensku fulltrúarnir hafa lagt fram bækur sem seldust í minna í 10 eintökum hér á landi. Augljóst er aö svoleiðis vinna skilar ekki árangri. Þaö er því mál til komið að reglum veröi breytt, til dæmis á þann veg aö allar bækur, sem til greina koma, verði í þýöingu á eitthvert heimsmálanna (sem getur komið sér vel án tillits til verö- launa) og svo þyrfti að hverfa frá því einræði sem ríkt hefur í bókavali og finna bækurnar meö skoöanakönnun og úrvali úr henni síðar. Annaö er kák. Vinnuálag á skólaskipinu Þaö hefur veriö fróölegt fyrir marga aö fylgjast meö vinnu- deilunum, eöa sjómannaverkfallinu og uppsögnum framhaldsskóla- kennara, því inn í málin hafa kjör á svonefndum frjálsum vinnumarkaöi komið til umræöu. Einnig er fróðlegt aö bera saman kauptryggingu háset- ans á vertíðinni og kauptrygginguna á skólaskipinu mikla. Sé það gjört kemur í ljós aö há- setinn fær aöeins greidda kauptryggingu, mánaðarlega trygg- ingu meöan skipiö er á sjó, eöa vertíð stendur. Unniö er dag og nótt, og ef vel fiskast eru launin góö. Á sama tíma er fullyrt að kennaralaun í framhaldsskólum séu um 20 þúsund krónur á mánuöi. En fyrir 9 mánaöa úthald era þá greiddar krónur 240 þúsund á skólaskipinu. Þarna fengi sjómaöur þó aöeins greiddar 180 þúsund krónur, ef hann væri á kennaralaunum við úthaldið. Viö nánari athugun og meö fyrir- spurnum kemur þó í ljós, að þaö er ekki aðeins á togurum og bátum, sem hægt er aö fá hlut. Oljúgfróður maður sagöi mér til dæmis aö viö ákveðinn menntaskóla væru kennaralaun á bilinu 400 —600 þúsund krónur fyrir 9 mánaða úthald, eöa aö sjómannasið er kennarakaupiö á bilinu 45—65 þúsund krónur á mánuöi, eða um þaö bil tvöfalt á viö þaö sem maöur les umíblööunum. Þaö skal fúslega viöurkennt aö vinnuálag er mikið í skólum og að- staða víöa vond, að minnsta kosti ef miðað viö mótorbáta og togara. En samanburður, hvort sem mönnum líkar þaö betur eöa verr. Alhvít jörö var koinin á Samlags- svæöinu um helgi og tignarlegt aö líta til fjalla og til himins. Verst aö yfirþjóöimar skyldu missa af þessum stóra stormi og fegurð himinsins á „Vestur- svæðinu”. Jónas Guömundsson, rithöfundur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.