Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. 11 Þaö hefur ekki fariö fram hjá nein- um hvernig ástandið er í skólamál- um á tslandi þessa dagana. Fram- haldsskólarnir eru lamaöir vegna skorts á kennurum og viö liggur aö grunnskólar landsins leggist afvelta vegna óánægju kennara meö kjör sín. Þrátt fyrir þetta ástand er ekki sýnilegt aö neitt þaö sé á döfinni af hálfu yfirvalda sem breytt geti þessu ástanditilbóta. Ég man ekki til þess aö slíkt ástand hafi fyrr skapast í íslenskum skólum. Þaö hefur aö vísu fyrr hent aö kennarar hafi lagt fram uppsagn- ir, en viö því var þá brugðist með þeim hætti aö ekki kom til stöðvunar ákennslu. Kjör kennara Um langan tíma hafa kennarar verið mjög óánægöir meö kjör sín. Þeir hafa lengi talað fyrir daufum eyrum ráöamanna í viðleitni sinni til að gera þeim ljósar afleiðingar þess ef áfram héldi slíkt vanmat á störf- um kennara og lengi hefur viögeng- ist. A síðasta ári þóttust kennarar verða þess varir aö málflutningur þeirra heföi náö eyrum almennings. Margir töluðu um aö bæta þyrfti kjörin ef ekki ætti aö koma til flótti úr stéttinni. Menntamálaráðherra tók undir þaö að bæta þyrfti kjör kennara en auövitað y röi aö passa aö þeir ynnu fyrir kaupinu sínu. Þessi umræða, sem varð um kjör kennara, fylgdi í kjölfar þinga Kennarasam- bands Islands og Hins íslenska kenn- arafélags. A þessum þingum var ákveöiö aö grípa til þess neyðarúr- ræöis að segja stööum lausum ef bætt kjör næöust ekki fram meö öörum hætti. Rétt er aö vekja athygli á því aö þetta gerðist í júní í fyrra. Stjórnvöld létu þessar aövaranir Að bera ábyrgd sem vind um eyru þjóta og er skemmst aö minnast viötals viö menntamálaráðherra í DV í fyrra- haust. Þar eins og ávallt síðan höföar hún sífellt til ábyrgöar kennara sem hún þó í raun metur einskis og verð- ur að því vikið síðar. Endurmat Eitt af því sem samþykkt var á þingi Kl, sem getiö er um aö framan, var krafa um endurmat á kennara- starfinu. Það er því fjarri öllum sanni aö endurmatið, sem svo hefur starfsins hafa aukist mjög verulega ef miðað er viö lögin frá 1946 og einn- ig ef miðaö er viö starfsmatið frá 1970. Nefndin hefur einnig sýnt fram á aö kennarar hafa dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum frá 1970 og voru þó ranglega metnir þá þeg- ar. Einnig er sýnt fram á hvernig • menntunarkröfur hafa aukist á þessu tímabili án þess aö tekið sé til- lit til þess í launum. Skýrsla nefndar- a „Þaö hefur aö vísu fyrr hent að w kennarar hafi lagt fram uppsagn- ir, en viö því var þá brugðist meö þeim hætti að ekki kom til stöðvunar á kennslu.” KÁRI ARNÓRSSON, SKÓLASTJÓRI verið nefnt, hafi verið aö frumkvæði Ragnhildar Helgadóttur. Hún var knúin til þess af samtökum kennara. Endurmatið hefur þó að sjálfsögöu ekki farið fram ennþá en eftir því er beðið. Sú nefnd sem ráöherra skipaði og í áttu sæti þrír fulltrúar frá ráöu- neytinu og þrir frá kennarasamtök- unum hefur ekki endurmetiö kenn- arastarfið. Enda stóð þaö ekki til. Nefndin hefur hins vegar unnið mjög gott starf í því að safna saman úr lög- um og reglugeröum þeim þóttum sem sýna fram á aö kröfur til kennara- innar er fyrst og fremst vinnuplagg fyrir menntamálaráöuneytið til þess aö geta endurmetið störf kennara. Nú skyldum við halda aö mennta- málaráöherra heföi brugðist fljótt viö þar sem allir nefndarmenn voru sammála um að starf kennara væri verulega vanmetiö og fengið hinar auknu kröfur strax metnar til launa. Þegar þetta er skrifað er vika liðin síöan skýrslan kom fram. En ekkert bólar á endurmatinu. Þaö eina sem heyrist er aö fulltrúi fjármálaráöu- neytisins leggi allt annaö mat á þær auknu kröfur sem skýrslan greinir frá heldur en nefndin gerði. Vilji er allt sem þarf Menntamálaráðherra hefur marg- lýst þeirri undrun sinni að kennarar skuli ekki taka góð og gild loforö hennar fyrir því aö tekið skuli fullt tillit til skýrslunnar við endurmat á störfum. A sama tíma lýsir ráöherra því yfir aö hún hafi ekkert með samninga aö gera og hafi engin áhrif í þeim efnum, enda hefur þaö sýnt sig. Kennarar áttu því aö treysta á þaö aö Albert Guömundsson fjár- málaráöherra myndi náðarsamleg- ast líta jákvæöum augum á nefnda skýrslu. Sami ráöherra hef ur lýst því yfir á Alþingi (11. okt. 1984) aö kenn- arar séu ekki nema hálfdrættingar í störfum miðað viö aörar stéttir. Fyrstu viðbrögð samninganefndar ríkisins viö kröfum framhaldsskóla- kennara benda eindregiö til þess að fjármálaráöherra hafi ekki skipt um skoöun. Er nema von aö menn séu tortryggnir. En þaö vekur athygli aö á sama tima og skólastarf er aö lam- ast í landinu og menntamálaráö- herra fær engu um þokað í fjármál- unum þá hafa aörir ráðherrar mun meiri völd eöa gera sig í þaö minnsta gildandi. Sjávarútvegsráöherra geng- ur í þaö meö forsætis- og fjár- málaráöherra aö leysa sjómanna- deiluna, landbúnaðarráðherra fær 12 milljónir handa kartöflubændum, fé- lagsmálaráðherra fær fjármálaráö- herra til að leggja fram 150 milljónir til húsnæðismálalána. Hér er ekki verið aö gagnrýna þessar ráðstafan- ir heldur aöeins aö sýna fram á aö þaö eru til fjármunir til að bregöast viö vanda ef vilji er fyrir hendi. En menntamálaráöherra Islands viröist ekki hafa bolmagn til neins og lætur skólastarf í landinu drabbast niöur meö ófyrirsjáanlegum afleiöingum. Með slíku framhaldi blasir við algert hrun íslenska skólakerfisins. Mér er til efs að nokkur fagráö- herra hafi haft betri gögn í höndum til að réttlæta bætt kjör skjólstæö- inga sinna en Ragnhildur Helgadótt- ir hefur haft og koma meö þeim hætti í veg fyrir þaö hörmungarástand sem nú er aö skapast. Hún ber því höfuðábyrgðina. Kári Arnórsson. Kjallarinn RÖNG Til er máltæki sem segir að ekki veröi bókvitið í askana látið. Enda var svo í eina tíö aö handverk var burðarás allrar framleiöslu og upp- haf nýrra verðmæta. Svo er reyndar enn aö mörgu leyti en þó mun aug- ljósara en áöur að hugur og hönd verða aö vinna saman; bókvit og verksvit renna í eitt. Þetta stafar af því aö tækninni fleygir fram og hvers kyns framleiðsla er aö veröa aö flóknu ferli þar sem margir veröa aö vinna saman, hver með nokkra sér- þekkingu. Tæknin og fjöldafram- leiðslan kallar á nýja menntastefnu. Þekkingin og þar meö menntun veröa aö einum af vaxtarbroddum efnahagslífsins. Hvers kyns framfarir eru háöar góðu mennta- kerfi. Heimskulegur sparnaður og þó.... Til þess aö bókvit og verksvit verði látiö í askana þarf bæöi nemendur og kennara; skóla. Góöa skóla meö hressilegum nemendum og hæfustu kennurum. Skóla þar sém tekist er á um inntak námsins, um kennsluað- ferðir og lýöræöi og þekkingar eða þjálfunar er aflaö fyrir næsta skóla- stig. Stjórnvöld hafa um margt fylgt eftir nýrri menntastefnu meö laga- breytingum, tilraunastarfi, rann- sóknum og f jölgun skóla. En hængur er á. Stjórnvöld hafa litið á mennta- kerfiö eins og hvert annaö hagnaöar- fynrtæki þar sem mest á aö fást fyrir sem minnsta peninga. Að því leyti er afstaða stjómvalda til tjóns og menntastefnan röng. Þaö er kreppt að skólunum. Sparnaður er látinn bitna hart á þeim. Þessu á að vera þveröfugt fariö. Þegar hiö ónýta gróðakerfi á í erfiðleikum verður að berjast fyrir því aö menntun sé bætt, skólar efldir og rannsóknir auknar. Sú er nefnilega ein leiöanna fyrir alþýöu manna út úr erfiðleikunum. En stjómvöld spila eftir nótum peningamannanna. Þess vegna er stefna þeirra ekki heimskuleg þótt hún sé röng, heldur skiljanleg og úthugsuö. MENNTASTEFNA „Kjarabarátta kennara er björgunaraðgerð langþreyttra en þolinmóðra karla og kvenna; tilraun til að reisa við fallandi menntakerfi og búa nemendum tryggari framtið, sem og öðru fólki." • „Allir þessir flokkar ip^ga vita aö þaö kostar meira en 5% launa- hækkun aö hindra öngþveiti í skóla- málum; einnig þegar núverandi stjórn- arandstaöa kemst næst aö ráðherra- stólunum.” Sendilslaun til erfiðustu starfa Hin ranga aðhaldsstefna í mennta- málum birtist einna skýrust í launa- stefnunni. Alþýða manna berst í bökkum og verulegur hluti skóla- nema veröur aö vinna meö námi. Þaö skerðir námið. Kennararnir hafa svo lág grunnlaun aö þeir neyöast til mikillar eftirvinnu eða til aö vinna meö kennslu. Slíkt skerðir kennsluna og getur eyöilagt hana til lengdar. Þetta hefur blasað viö um hríð. Þeir kennarar sem ekki fara til annarra starfa missa flugiö þreyttir, óánægðir og starfsleiðir. Gegn launastefnunni og eyðingu skólanna hefur nú verið gerö upp- reisn. Kjarabarátta kennara er björgunaraðgerö langþreyttra en þolinmóðra karla og kvenna; tilraun til aö reisa viö fallandi menntakerfi og búa nemendum tryggari framtíð, sem og öðru fólki. Peningar eru til Hrakleg kennaralaun eru ekki ný af nálinni. Margar ríkisstjómir hafa vegiö aö launum kennara (og flestra opinberra starfsmanna) með margs konar krukki í samninga, vísitölufitli og yfirvinnuþökum. I 12 ár a.m.k. hafa kjörin versnað, mishratt að vísu uns steininn tók úr á fyrstu starfs- mánuöum ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og litils harölínu- hóps í Sjálfstæðisflokknum. Allir fjórir gömlu stjómmálaflokkarnir bera ábyrgö á núverandi stööu kenn- ara — mest má skemmta sér yfir Alþýöubandalaginu sem nú gengur í liö meö kennurum en er fyrrum þekkt fyrir vísitölufitl, köld afsvör í öllum samningum viö kennara og reiddan hnefa viö andlit hjúkmnar- fræðinga sem börðust nákvæmlega sömu baráttu og kennarar heyja nú. Allir þessir flokkar mega vita að þaö kostar nú meira en 5% launa- hækkun aö hindra öngþveiti í skólamálum; einnig þegar núver- andi stjórnarandstaöa kemst næst aö ráöherrastólunum. Launastefna ríkisvaldsins er búin aö vera. Fé til launagreiöslna er til. Þaö þarf að sækja í óðafjárfestingar milliliðanna og meö beinni skattheimtu hjá þeim ríku. Þeir berast mikiö á. Þaö vita allir og þess vegna dugar Steingrími og samstarfsmönnum hans ekki lengur að höföa til „minnkandi þjóðartekna og aflasamdráttar”. Fólk veitbetur. Með samstöðu hefst það Þaö er misskilningur hjá mörgum aö menntamálaráöherra sé einhver sérstakur andstæðingur í launadeil- unni. Ég get gagnrýnt ráðherrann fyrir margt, t.d. fyrir of sein við- brögö. En sannleikurinn er líka sá að hún er sammála því aö kjör kennara og starfsaðstaöa í mörgum skólum er fyrir neðan allar hellur. Hún bifar bara ekki viö áöurgreindum stýri- mannahópi Sjálfstæðisflokksins. Hópurinn sá er að vísu ráðalaus núna og tefur fyrir lausn deilunnar í von umbjargráð. Nemendur virðast styöja kennara sína. Líklega er svo um flesta for- eldra. Samstaöa kennara er ágæt. Og þá varðar líka mestu aö halda hópinn og koma í veg fyrir að ég og aðrir gerumst bílstjórar, afgreiöslu- menn, reddarar og tölvarar hjá einkafyrirtækjum til aö bjarga afkomunni. Ekki svo að skilja að slíkt fólk sé ekki vert launa sinna. Skólar og menntakerfi eru í veði þegar til lengri tíma er litið. Kosti það aö sjá verður íslenskum kenn- urum fyrir norrænum verkamanna- launum þá verður svo aö vera. Viðveröumöllaöleggjastá eitt. Ari Trausti Guðmundsson. ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON, KENNARI, MENNTASKÓLANUM VIÐ SUND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.