Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Síða 12
12 DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. Spurningin Finnst þér góðir frostpinnar? Margrét Gísladóttir textílforvörður: Nei, mér finnst þeir litiö spennandi. Eg boröa lítið af þeim. Olafur Magnússon nemi: Þaö fer eftir því hvemig þeir eru. Mér finnst þeir grænubestir. Dagfinnur Sveinbjörnsson nemi: Já, já, mér finnst þeir góöir en ég borða ekki mikið af þeim. Helst ef ég fæ þá ókeypis. Dagbjartur Pétursson neml: Já, alveg ágætir. Mér finnst þeir gulu bestir á bragöið. Guðmundur Hannesson bóndi: Nei, ég held hreint ekki. Eg borða lítið af þeim. Ingólfur Guðnason, starfsm. Vífils- staðaspítala: Ekkert sérstakir. Uppá- haldsbragðið? Ætli það sé ekki ananas. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Kjamorkustríð, tímabærar vangaveltur? Móðir hringdi: Ég get ekki oröa bundist vegna framkomu dönskukennara dóttur minnar í 7. bekk grunnskóla. Án þess að þau mál væru sérstaklega til um- ræðu sagði hann nemendum sínum, 13 til 14 ára unglingum, aö þau gætu ekki átt von á því að eignast barna- börn né börn. Þau mættu þakka fyrir að fá að lifa til 20 ára aldurs áöur en kjarnorkustríö skylli á. Krakkarnir urðu stjarfir þegar þeir heyrðu þetta. Ég get ekki séð hvað svona umræða, sem byggð er á naflaskoð- un kennarans, kemur dönskukennslu viö. Eg fæ ekki heldur skiiiö gagn- semi hennar. Onæði afþunga- vinnubfíum og rútum Lesandi spyr: Mig langar aö vita hverju það sætir að á torgi viö Litlu-Hlíð hafa í áraraðir veriö geymdir rútubílar, ekki færri en fjórir, og þar aö auki hefur verið lagt þarna þungavinnubílum. Af þessu stafar mikiö ónæði fyrir íbúa sem búa í nágrenninu, sérstak- lega á sumrin er rútubilar leggja upp eldsnemma að morgni. Fylgir þessu mikil stybba og hávaði svo að tæplega er hægt að opna glugga. Ég hélt að þaö væri fyrir löngu búið að setja löggjöf sem bannaöi að þvílíkum tækjum væri ekið inn í íbúða- hverfi. En eru lögin bara til þess aö brjóta þau? Mig langar til að vita hvort það sé til- felliö aö þeir sem þarna eiga hlut að máli njóti einhverra sérréttinda. Að auki er á þessum sama stað, við þetta sama torg, skóli, sem ég myndi álíta að stafaöi hætta af akstri svona stórra bíla. Vinsamlegast látiö okkur vita, Hlíða- búar. Guttormur Þormar, yffrverkfr. umferðard. gatnamálastjóra: Það hefur verið kvartaö yfir þessu við okkur og þetta sama vandamál hefur skotiö upp kollinum víðs vegar um borgina. Þaö eru ákvæöi sem banna veru svona bíla á götum og bíla- stæðum borgarinnar í lögreglusam- þykktinni en menn hafa viljað mis- skilja það. Nú er unnið að nýrri lög- reglusamþykkt þar sem skýrt verður kveðið á um þetta. Þar er bannað að leggja svona bílum yfir nóttina innan borgarinnar nema á svæðum sem borgarráð hefur gefið leyfi fyrir. Það er svo verk lögreglunnar að sjá til þess aðlögreglusamþykktin sé haldin. Gisti við störf sín heima á Uppsölum. VINSÆLDIR GÍSLA ÁUPPSÖLUM Elisabet Guömundsdóttir hringdi: Fyrir nokkru keypti ég myndbands- tæki og síðan þá hef ég tekið upp alla Stikluþættina hans Ömars. Mig vantar illilega einn í safniö en þaó er þátturinn þegar Gísli á Uppsölum var sóttur heim. Mig langar til að spyrjast fyrir um þaö hvort sjónvarpið hyggst sýna þennan þátt enn á ný. Mér skilst aö hann hafi þegar verið endurtekinn einu sinni en minni á máltækið góða: Aldrei er góð vísa of oft kveöin. I framhaldi af þessu þætti mér snjallt ef almenningi stæði jafn- ágætt sjónvarpsefni og þetta til boða á myndbandaleigum. Það yröi vafalaust eftirsótt. Misnotkun á féiagsiegrí aðstoð Konahringdi: Ég las nýlega frétt í DV um framkomu Islendinga í Færeyium. Ekki var landanum borin vel sagan enda eru Islendingar nokkuð duglegir viö að misnota hjálp stjómvalda. Ég veit um einn mann sem er á atvinnu- leysisstyrk í Svíþjóð en kemur hingaö heim aö vinna í byggingarvinnu sem ekki er gefin upp til skatts. Það er með þessum hætti sem grafið er undan vel- feröarþjóðfélögum og þrengt að þeim sem þurfa raunverulega á félagslegri hjálp aö halda. Við getum heldur ekki vænst góös af norrænu samstarfi ef það er misnotað á þennan hátt. Sök bítursekan. Trúðsbrögð Jóns Baldvins Jón Baldvin i ræöustól. Sævar Geirdal Gíslason sjómaður hringdi: Ég er búinn að fá nóg af Jóni Bald- vini Hannibalssyni í fjölmiölum. Maöur flettir vart DV án þess aö reka augun í mynd af honum á annarri hverri síöu. Maöurinn notar lúalegustu aðferðir tii að koma sér á framfæri og láta á sér bera. Nú síðast var hann með svívirðingar og árásir á ráðherra frá hinum Norðurlöndunum sem eru okkar bestu vinaþjóöir. Ég á bágt með að trúa því að Islendingar gangist inn á slík trúðsbrögð í stjórnmálum. Ef þetta er það sem koma skal, þá líst mér illa á. Kostnaður við gjaideyrisviðskipti Guðjón hringdi: Eg varö fyrir sérstæðri reynslu ný- lega. Ég þurfti að greiða gíróseðil í banka, rúmar 10 krónur, og þar sem ég hafði enga smápeninga handbæra flaug mér í hug að skipta pundsseðli sem ég var með á mér. Ég taldi það vera hagkvæmra en að skrifa ávísun á svona lága upphæð. Gengi pundsins er rúmar 45 krónur en bankinn tók 13 krónur í kostnað fyrir að skipta seölin- um. Ég stóð eftir með 32 krónur, stúr- inn yfir því að sjá rúman fjóröung upphæðarinnar hverfa ofan í kassa bankans. Það er augljóslega dýrt að skipta litlum fjárhæðum annarra gjaldmiöla yfir í íslenskar krónur. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á gjaldeyrisdeild Lands- bankans eru 13 krónur fast gjald sem bankinn innheimtir fyrir aö skipta erlendum gjaldeyri án tillits til þess hve há upphæöin er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.