Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Side 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. 13 Lesendur Fúskararífaginu: Athugasemd vegna eigin skrifa Kristján Einarsson, Selfossi skrifar: Þriöjudaginn 5. mars birtist á les- endasíðu DV bréf sem ég skrifaði undir fyrirsögninni FÚSKARAR í FAGINU. Bréf þetta hefur valdiö miklu fjaðrafoki hér á staðnum og símhringingum hefur ekki linnt hjá mér. Skrifin eru annaðhvort lofuö eða löstuö. Ráðamenn SG eininga- húsa hafa sakað .mig um óheilindi með skrifum þessum og telja þau skaða fyrirtækiö. Þeir telja einnig að ég heföi mátt nafngreina fleiri fyrir- tæki sem hafa ófaglærða smiði í vinnu. Ég tek undir það síðasttalda og bendi á að það var ekki ætlun mín að skaða SG einingahús með skrifunum. Bréfið var skrifað til að leiðrétta frétt sem Regína sendi frá sér um fyrirtækið og í framhaldi þess sagði ég frá réttindamálum okkar trésmiða hér á svæðinu. Aö sögn SG manna vann ófaglærði flokksstjór- inn, sem ég minntist á í bréfi mínu, aðeins í tvo mánuði við að reisa einingahús hjá fyrirtækinu. Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið tveimur mánuöum of mikið. Ég vil þó taka það fram að þessir tveir mánuðir hafa ekki skaðaö fram- leiöslu fyrirtækisins, sem að mínu viti er góð. Ráðamenn SG eininga- húsa eru dugmiklir menn og léttir í lund „eins og þeir eiga kyn til”. Ég er þess fullviss að þeir séu reiðu- búnir til aö lagfæra það sem laga þarf, jafnvel réttindamál trésmiða á svæðinu. FOSSHALSI 27 - SlMI 687160 Styrkir til framhaldsnáms iðnaðarmanna erlendis Menntamálaráðuneytið veitir styrk til iðnaðarmanna, sem stunda nám erlendis, eftir því sem fé er veitt í þessu skyni í fjárlögum 1985. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 9. apríl næstkomandi. 7. mars 1985 Menntamálaráðuneytið IAUSAR STÓÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • RÖNTGENTÆKNIR á lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkurborgar. Fulltstarf. • DEILDARFULLTRÚI á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Starfið er meðal annars fólgið í gjaldkerastörfum, launaútreikningum, framkvæmd kjarasamninga o.þ.h. Æskileg er starfsreynsla á þessu sviði. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Heilsugæslu- stöðva í síma 22400 alla virka daga frá kl. 10—11. • FORSTÖÐUMENN við dagheimilin Völvuborg, Völvufelli 7, dagh./leikskóli, Iðuborg, Iðufelli 16, og leikskólann Leikfell, Æsufelli 4. • FÓSTRUR við Iðuborg og Hálsaborg. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur á skrif- stofu dagvistar í síma 27277. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 18. mars 1985. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Nesbala 24, Seltjarnamesi, þingl. eign Þórunnar Steinarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 15. mars 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Stekkjarflöt 20, Garðakaupstað, þingl. eign Aðalheiðar Karls- dóttur, fer fram eftir kröfu Landsbanka islands á eigninni sjálfri föstu- daginn 15. mars 1985 kl. 15.30. Baejarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð annaö og síðasta á eigninni Suöurgötu 72, 1. hæð t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Guömundar Karlssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudag- inn 15. mars 1985 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð sem auglýst var i 18., 22. og 26. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Melabraut 20, Hafnarfirði, þingl. eign Sandblásturs hf., fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 15. mars 1985 kl. 14.00 Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Barrholti 23, Mosfellshreppi, þingl. eign Emils Adolfssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 15. mars 1985 kl. 17.15. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu LAUS STAÐA Staða skrifstofumanns á skrifstofu embættisins í Ólafsvík er laus til umsóknar frá og með 1. maí 1985. Um er að ræða fullt starf. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 1. apríl nk. 6. mars 1985 Bæjarfógetinn í Ólafsvík LAUS STAÐA Lektorsstaða í rómönskum málum, með sérstöku tilliti til spænsku, í heimspekideild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um náms- feril og störf, svo og ritsmíðar og rannsóknir, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 9. april nk. 5. mars 1985 Menntamálaráðuneytið Nýjungar: OKTUBROD 14.00. Málmfylltur suðuvír á rúllum hentugur í stúf- og kverksuður í öllum stellingum. Hraðvirkur og gefur áferðarfallega suðu án gjalls. OKTUBROD 14.04. Málmfylltur suðuvír á rúllum. Hefur breitt notkunarsvið, einnig þar sem miklar kröfur eru gerðar við lágt hitastig. OKTUBROD 15.00. Basiskur púlverfylltur suðuvír á rúllum. Hentugur í stúf- og kverksuðu þar sem miklar kröfur eru gerðar. OKTUBROD 15.15. Rútil púlverfylltur suðuvír á rúllum. Sýður í öllum suðustellingum. Gefur áferðarfallega suðu með iausu gjalli. Einnig massífurOK 12.51 vír á rúllum frá 0,6 mm í þvermál. Þjónustudeild okkar veitir allar upplýsingar — hafið samband. FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR GÆÐUM OG GÓÐRI ÞJÓNUSTU. = HEÐINN = VÉLAVERSLJJN, SEUAVEGI2 REYKJAVlK.SÍMI 24260

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.