Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Qupperneq 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. Utvarp Sjónvarp Veðrið 31 Nú er tækifæri! Litla hryllingsbúðin hefur nú verið sýnd rúmlega þrjátíu sinnum fyrir fullu húsi við frábærar undirtektir. Aðsókn hefur verið slík, að nú er nær fullbókað á sýningar í mars. Við hjá Hinu leikhúsinu hörmum að geta ekki annað eftirspurn á miðum á fyrsta viðfangsefni okkar, en vonum að þeir sem ekki hafa fengið sæti að sinni ósk hafi biðlund. Vegna mikillar aðsóknar hefur nú verið ákveðið að bæta við sýningum næstu vikur. Sýningarnar verða sem hér segir: 36. sýning 14. mars - fimmtudag kl. 20.30. 37. sýning 15. mars - föstudag kl. 22.30. 38. sýning 16. mars - laugardag kl. 20.30. 39. sýning 17. mars - sunnudag kl. 20.30. 40. sýning 18. mars - mánudag kl. 20.30. 41. sýning 21. mars - fimmtudag kl. 20.30. 42. sýning 22. mars - föstudag kl. 20.30. 43. sýning 23. mars - laugardag kl. 20.30. 44. sýning 24. mars - sunnudag kl. 20.30. Sjö dagar í sýningu Viku fyrir hverja sýningu sendir skrifstofa Hins leikhússins óráðstaf aða miða og einstaklingspantanir í miðasölu Gamla bíós. Eftir það er miðum einungis ráðstafað gegnum miðasöluna, sem hefur símann 91-11475. Hóppantanir og pantanir lengra fram t tímann. 91-82199 er símanúmer skrifstofu Hins leikhússins. Þar er tekið á móti pöntunum lengra fram í tímann, einnig eru þar teknar allar hóppant- anir sem skulu og sækjast þangað. Skrifstofan er staðsett á 3. hæð Skeifunni 17. Föstudagssýningar Engar pantanir eru teknar á föstudagssýningarnar tvær, þ.e. 37. og 42. sýningu. Miöar á þessar sýningar verða einungis til sölu í Gamla bíói og hefst sala á þær mánudag fyrir sýninguna. Miðaverð Hér að neðan má sjá hvernig miðaverði er háttað á sýningum Litlu hryllingsbúðarinnar. Niðri: 1. -12. bekkur: kr. 590.- 13.-15. bekkur: kr. 500.- Uppi: Stúka/1. bekkur: kr. 690,- 2. -4. bekkur: kr. 500,- 5.-8. bekkur: kr. 300.- Hóp- og skólapantanir eru teknar í síma 91-82199 alla virka daga frá 10-16. Athugið! Ósóttar pantanir eru jafnan seldar þrem dögum fyrir sýningu. Bókanir í aprtl og maí! Því miður er ekki unnt að svo stöddu að hefja bókanir fyrir apríl og mai, en við vonum að ekki líði á löngu þar til sýningar þessa tímabils verði fastákveðnar. Upplýsingar verða gefnar um sýningaráætlanir í síma 91 -82199. MIOAR GEYMDIR PAW TIL SVNING H6FST A ABYRGÐ KORTHAFA Sjónvarp kl. 22.25: Fjármál Reykjavíkurborgar til umræðu í sjónvarpinu í kvöld Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir þetta ár er umræðuefnið í þættinum Setið fyrir svörum sem verður í sjónvarpinu í kvöld kl. 22.25. Þátturinn er í umsjá Ingva Hrafns Jónssonar og fær hann borgarstjór- ann, Davíð Oddsson, til að sitja fyrir svörum. Spyrjendur verða fulltrúar frá minnihlutaflokkunum í borgar- stjóm. Þeir koma örugglega til með að reyna eftir mætti aö setja Davíð upp við vegg og sauma örugglega aö honum eins og hægt er. Hann lætur án efa ekki bjóða sér það — hvorki þegj- andi né hljóðalaust — enda getur hann m.a. státað af því aö fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar sé mjög góð um þessar mundir. Hann bendir sjálfsagt á aö fjármagn til dagvistarstofnana var nærri tvö- faldaö frá síðasta ári og tæplega 100 milljónir króna fari í byggingar fyrir aldraða á þessu ári, væn fúlga eigi að fara í búningsklefa í Laugardal og meöal verkefna sem fyrirhuguð séu á árinu sé bygging borgarleikhúss, breikkun Skúlagötu og bygging brúar yfir Kringlumýrarbraut svo eitthvað sé nefnt. En minnihlutaflokkarnir hafa örugg- lega eitthvað í pokahominu til að sýna fram á að Davíð og hans liö sé ófært til að ráða ríkjum í Reykjavík. Getur þetta því orðiö hiö skemmtilegasta sjónvarpsefni. -klp- Islenska hljómsveitin er meðal þeirra mörgu hljómsveita sem koma fram i þáttum í útvarpinu, rás 1, í dag. . Útvarpið, rásl, ídag: Klassísk tónlist úr öllum áttum Þeir sem áhuga hafa á klassískri tónlist í útvarpinu geta verið ánægðir meö sinn hlut í dagskrá útvarpsins í dag. Þeir fá hátt í þrjár klukkustundir af dagskránni í dag og geta hlustaö á verk leikin af ýmsum frægum hljómsveitum og einleikurum. Miðdegistónleikamir em kl. 14.30. Þar leika Salvatori Accardo og Fílharmoníusveit Lundúna undir stjóm Charles Dutoit. Síödegistónleikar em kl. 16.20. Þar koma fram fílharmoníusveitin í Osló, sinfóníuhljómsveitin í Baden-Baden og sinfóníuhljómsveitin í Búdapest. Islensk tónlist er á dagskrá kl. 21.05. Þar verða flutt verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Hróðmar Sigurbjckns- son og Jón Nordal. Þar kom fram Blásarakvintett Reykjavíkur, Islenska hljómsveitin, ásamt Elísabetu Waage, Martial Nardeau og önnu Guðnýju Guömundsdóttur, svo og Guðni Frans- son. Kvöldtónleikamir em svo í útvarp- inu kl. 22.35 og þar leikur m.a. Nýja fílharmoníusveitin í Lundúnum ásamt fiðluleikaranum David Oistrakh og fleiri. Þaö er sem sé nógu úr aö velja fyrir unnendur klassískrar tónlistar í útvarpinuídag. -klp- Tekst fulltrúum minnihlutaflokkanna í borgarstjórn að klemma eitthvað að borgarstjóranum, Davíð Oddssyni, í sjónvarpinu i kvöld? Útvarp, rás 1, kl. 20.00: Einhyrn- ingurínn I kvöld kl. 20 verður fluttur 8. þáttur framhaldsleikritsins Landið gullna EUdor eftir Alan Garner í útvarpsleik- gerð Maj Samzelius. Sverrir Hólmars- son þýddi leikritið, Láms Grimsson samdi tónlistina og leikstjóri er HallmarSigurðsson. I 7. þætti vom krakkarnir staddir í unglingaboði hjá kunningjum sínum. Þarhöfðuþeirm.a. fiktaðvið andaglas og urðu ekki lítið hissa þegar „andinn” lét Róland teikna mynd af einhyrningi. Á leiðinni heim urðu börnin fyrir undarlegri reynslu. I gegnum þokuna heyröu þau hröð hófaslög nálgast. AUt í einu var eins og eldingu slægi niður og rifa kæmi á himininn og út úr henni kom hvítur hestur með eitt hom á enni. Hann þaut froðufellandi fram hjá þeim yfir brú nokkra og hvarf þóm sjónum. Daginn eftir rannsökuðu Róland og Davíö stíginn við brúna. Hófförin vom greinileg öðrum megin við hana en hinum megin voru þau hvergi sjáan- leg. Skömmu síðar gerðist það kvöld eitt að börnin sáu skuggana tvo í rósa- beöinu breytast í skikkjuklædda menn sem hurfu hljóðlega yfir garðmúrinn. Utsendarar hins Ula frá EUdor vom komnir aö sækja dýrgripina. Þriðjudagur 12. mars Sjónvarp 19.25 Geimferjan Kólumbia — seinni hluti. Norsk fræðslumynd fyrir böm og unglinga. Fylgst er með geimferð bandarisku geimferjunn- ar Kólumbíu og störfum áhafnar- innar. Þýðandi: Jóhanna Jóhanns- dóttir. Þulur: EUert Sigurbjöms- son. (Nordvision — Norska sjón- varpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáll. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Skyndlhjálp. Þriðji þáttur: um hættur á heimilum. Umsjónar- menn: Omar Friðþjófsson og Hall- dór Pálsson. 20.50 Nýjasta tækni og vísindl. Um- sjónarmaður: Sigurður H. Richt- er. 21.25 Derrick. 9. Margot litla Ahr- ens. Þýskur sakamálamynda- flokkur í sextán þáttum. Aöalhlut- verk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi: Veturliði Guðnason. 22.25 Setið fyrir svörum. Nýlega var gengið frá f járhagsáætlun Reykja- víkurborgar fyrir þetta ár, sem er síðasta heila ár kjörtímabils nú- verandi borgarstjómar. Davíð Oddsson borgarstjóri situr fyrir svörum um borgarmálefni. Asamt honum mæta til leiks fulltrúar til- nefndir af minnihlutaflokkunum i borgarstjóm. Umsjónarmaður: Ingvi Hrafn Jónsson. 23.25 Fréttirídagskrárlok. Útvarp rásI 13.30 Dansktpopp. 14.00 „Blessuð skepnan” eftir Jam- es Herriot. Bryndís Víglundsdóttir lesþýöingusína. (24). 14.30 Miðdegistónleikar. „I Palpiti” eftir Niccoio Paganini. Salvatori Accardo og Filharmoníusveit Lundúna leika; Charles Dutoit stjórnar. 14.45 Upptaktur. — Guðmundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Sinfónía nr. 1 eftir Miklos Maros. Sinfóníu- hljómsveitin í Budapest leikur; höfundurinn stjómar. 17.10 Síödeglsútvarp. 18.00 FrétUr á ensku. Tilkynningar, 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Baraa- og unglingaleikrlt: „Landið gullna Elidor” eftlr Aian Garner. 8. þáttur: „A flótta”. Út- varpsleikgerð: Maj Samzelius. Þýðandi: Sverrir Hólmarsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Tónlist: LárusGrímsson. Leikend- ur: Viðar Eggertsson, Emil Gunn- ar Guðmundsson, Kjartan Bjarg- mundsson, Kristján Franklín Magnús, Sólveig Pálsdóttir, Bessi Bjarnason og Aðalsteinn Bergdal. 20.30 t framvarðasveit. Guðrún Guð- laugsdóttir ræöir við Gunnar Guð- bjartsson. Annarþáttur. 21.05 tsiensk tónlist. a. Adagio fyrir flautu, hörpu, píanó og strengi eft- ir Jón Nordal. Martial Nardeau, Elísabet Waage og Anna Guðný Guðmundsdóttir leika meö ts- lensku hljómsveitinni á tónleikum í Bústaðakirkju 20. desember sl. Guömundur Emilsson stjómar. b. Músik fyrir klarinettu eftir Hróð- mar Sigurbjömsson. Guöni Franz- son leikur. c. „Burtflognir papp- írsfuglar” eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Blásarakvintett Reykjavikurleikur. 21.30 Utvarpssagan: „Folda” eftir Thor Vllhjálmsson. Höfundur les. (2). 22.00 LesturPassiusálma. (32). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kvöldtónleikar. a. Flautusón- ata op. 94 eftir Sergej Prokofjeff. James Gaioway og Martha Arge- rich leikar. b. Fiðlukonsert nr. 1 eftir Dmitri Sjostakovitsj. David Oistrakh og Nýja fílharmoníu- sveitin í Lundúnum leika; Maxim Sjostakovitsj stjórnar. Kynnir: Ýrr Bertelsdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Útvarp rás II 10.00—12.00 Morgunþáttur. Stjóm- andi: Páll Þorsteinsson. 14.00—15.00 Vagg og velta. Stjóm- andi: Gísli Sveinn Loftsson. 15.00-16.00 Með sínu lagi. Lög leikin af ísienskum hljómplötum. Stjórn- andi: SvavarGests. 16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur. Stjóm- andi: Kristján Sigurjónsson. 17.00—18.00 Fristund. Unglinga- þáttur. Stjómandi: Eðvarð Ingólfsson. Gert er ráð fyrir hægri breyti- legri átt á landinu í dag meö snjó- komu á sunnanverðu landinu fram eftir degi, léttir síðan til. A Norðausturlandi er gert ráð fyrir élj um þegar líður á daginn. Veðrið hér ogþar ísland kl. 6 i morgun: Akureyri ský jað 0, Egilsstaöir skviaö 0. Hnfn snjókoma 1, KeflavíkurflugvöUur snjókoma 0, Kirkjubæjarkiaustur snjókoma -1, Raufarhöfn alskýjað ,-1, Reykjavík snjókoma 0, Sauðárkrókur alskýjað 0, Vest- ma nnaeyjar snjókoma 0. Útlönd kl. 6 í morgun: Bergen rigning 5, Helsinki alskýjað 0,' Kaupmannahöfn þoka -2, Osló1 skýjað 0, Stokkhólmur skýjaö 0, Þórshöfn rigning 5. Utlönd kl. 18 í gær: Algarve heiö- skirt 17, Amsterdam skýjað 4, Aþena léttskýjað 8, Barcelona (Costa Brava) þokumóöa 11, Berlín mistur 2, Chicago alskýjað 8, Feneyjar (Rimini og Lignano) heiöskírt 6, Frankfurt súld 4, Glas- gow léttskýjað 6, Las Palmas (Kanaríeyjar) léttskýjað 19, London léttskýjað 8, Los Angeles léttskýjað 15, Lúxemborg slydda 1, Madrid heiðskírt 14, Malaga (Costa Del Sol) heiðskírt 15, Mallorca (Ibiza) skýjað 11, Miami léttskýjað 28, Montreal skúr á síðustu klukku- stund 4, New York alskýjað 15, Nuuk snjóél -8, Paris skýjað 7, Róm skýjað 8, Vín slydda 1, Winni- peg skýjað -2, Valencía (Benidorm) skýjað 14. Gengið Gengisskiáning nr. 49-12. rnars 1985 kl. 09.15 Einingkl 12.00 Kaup Sala Tolgengi Doiar 41.860 41,980 42,170 Pund 46,151 46,283 45,944 Kan. dolar 30295 30,382 30830 Dönskkr. 3,5490 3,5591 3,5274 Norsk kr. 4,4168 4,4294 4,4099 Sænsk kr. 4,4414 4,4541 4,4755 Fi. mark 6,0985 6,1160 6,1285 Fra. franki 4,1487 4,1606 4,1424 Belg. franki 0,6297 0,6315 0,6299 Sviss. franki 14,9154 14.9581 148800 Hnl. gylini 11,1865 11,2186 11,1931 V-þýskt mark '12,6791 12,7154 12,6599 it. lira 0,02029 0,02034 0,02035 Austurr. sch. 1,8078 1,8130 18010 Port Escudo 0,2281 0,2288 02304 Spá. peseti 0,2287 0,2294 02283 Japanskt yen 0,16175 0,16221 0,16310 irskt pund ,39.495 39,608 39,345 ~ SDR (séfstök dráttarréttindi) 40,5753 40.6901 Sfmivarí vagna gwiglsakrénlngar Z21SO. Pósthólf 369 200 Kópavogur Opiö mánuda^a til laugardaga (d.18 -20. Simavari á öðrum timum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.