Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Blaðsíða 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985. 5* Báftir eru þeir heimsfrægir leikarar og sextíu ára, auk þess scm þeir fara oft með mjög svipuð hlutverk. Þessir merkis- menn. Jack kemmon og hinn italski Marcello Mastroianni, höfðu aldrei áður hist fyrr en á Italíu í vetur í kvíkmynd scm þeir leika í um Bandaríkjamann og Itaia er hittust á dögum scinni heimsstyrjaldar en sjást síðan ekki í f jörutiu ár. Kvikmyndin, Maecheroni, verður vist frumsýnd í haust og kemur án efa til með að vckja mikla athygli. A myndinni sjáum við vinina saman á götu í Napóli með stærðar r jómaís hvor. Haing S. Ngor hlaut óskars- verðlaun fyrir frábæra frammi- slöðu sína í kvikmyndínni „The Killing Fields” sem blaðamaður- inn Dith Pran. Ngor er líffræð- ingur að mennt og flóttamaður frá Kambódiu, þar sem hann var pyntaður og látinn vinna þrælavhmu undir stjórn rauðu khmeranna. Raunveruleg saga hans er alls ekki frábrugðin því hlutverki er hann lék í myndinni. Eftir að Ngor fór að verða þekkt- ur fyrir leik sinn bárust honum dag einn skilaboð frá Frakkiandi. Þar var á ferð náfrænka hans sem hann hélt að væri látin og hafði ekki séð í tíu ár. Hafðí frænkan þekkt Ngor í blaðaúr- klippu er fjailaði um kvik- myndina og hina kambódisku stjörnu. Ngor bauð frænkunni þegar i stað til sin i Hollywood og m.a. á óskarsverðlaunaafhend- inguna sjálfa. Það urðu sannar- lega miklir fagnaðarfundir eftir langan aðskilnað. 011 vitum við aö popparinn kunni, Michael Jackson, tekur ekkert sterkara inn heldur en sinn daglega skammt af Pepsi, allir nema kannski tollararnir á Heathrowflugvelli við London. Vfð komu tii Englands nýlega til að vera við afhjúpun eigin styttu í vaxmyndasafni Madame Tnssaud, var hann stoppaður af tolli og þauileitað á honum og fylgdarliði hans í 35 mínútur. Auðvitað fannst ekki neitt, enda Jackson vottur Jehóva og mikili reglumaður. Það fylgdi fréttinni að íbúar London hefðu tckið ögn betur á móti Jackson heldur en tollararnir, æstur múgurinn var alls staðar þar sem goðið lét sjá sig. Charlie Chapiin A hverju mtrái. Krakkamir i fjórða bekk, nóttúrufrasðideild, vseta kverkamar i morgunkulinu. Sviðsljósið Sviðsljósið Go-go dansmeyjar f flamingostil. Fjórði bekkur B, mAladeild. Þorkeli, Keli eins og fleetir jrekkja hann, lelðir hér Playboymeyjar sfnar af stað. Elns gott að fylgjast vel með hjðrðinni. Fjórði Y, eðlisfrmðibekkur. Mata Hari meyjar i stelpubekknum. Fjórði A, fullar meyjar, ekki satt? MS-INGAR UMmERA Fjórðubekkingar í Menntaskólanum við Sund kvöddu gamla skólann, kenn- ara og yngri nemendur með miklum virktum i vikunni áður en strangur stúdentsprófslestur hófst. Burtfarardagurinn hófst hjá mörgum í morgunpartíum eldsnemma að morgni, þar sem bekkimir hittust og dubbuðu sig upp í múnderingu dagsins. Búningamir vom oft hinir skrautlegustu: go-go meyjar, lyftingadömur, heil tylft af Charlie Chaplin, Mata Hari stældömur frá fyrsta áratugnum, Playboy „dömur” og villtar gleöikonur á vergangi. Eftir skrautlegan dag hélt út- skriftarárgangurinn á Hótel Sögu og skemmti sér þar fram á rauða vomótt- ina. Blaðamenn fréttu af föngulegum hópi vændiskvenna í strákabekknum, f jórða bekk hagfræðideildar. Því miður, „stúlkumar” hljóta allar að hafa verið í bisness því engin þeirra var sjáanleg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.