Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1985, Page 32
FRETTASKOTIÐ
(68) • • (58)
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsinqar, áskrift og dreifing, sími 27022.
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
r
i
i
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985.
..Brosandi og bjartsýnn," sögðu starfsmenn Þörungavinnslunnar hf. í gnr um Sverri Hermannsson. Það sama veröur sagt um þessa kappa og
heimamenn almennt; tilbúnir að stofna nýtt hlutafélag um verksmiðjuna. DV-mynd Krlstján Arl.
Sverrir og Matthías á Reykhólum í gær:
„SVERRIR SA ÞAÐ
SEM HANN VILDISIA”
íbúar Reykhóla og nærliggjandi hreppa mættu eldhressir á fundinn til Sverris,
tilbúnir að taka við Þörungavinnslunni
„Sverrir sá það sem hann vildi
sjá; aö þaö fylgdi hugur máli, að hér
væri samstaða um verksmiðjuna,”
sögðu eldhressir starfsmenn
Þörungavinnslunnar hf. er við DV-
iPOKON
BLÓMAÁBURÐUR
FRA
HOLLENSKU
BLÓMAÞJÓÐINNI.
menn vorum á ferð á Reykhólum í
gær.
Dagurinn í gær var mikill
stemmningardagur hjá íbúum Reyk-
hóla og nærliggjandi hreppa.
Iðnaðarráðherra sjálfur, Sverrir
Hermannsson, mættur ásamt
Matthíasi Bjamasyni og stjóm verk-
smiðjunnar.
Kunn em ummæli Sverris um að
best værí að gefa heimamönnum
verksmiðjuna. „Hálf óheppileg um-
mæli,” sögðu heimamenn við DV í
gær.
Sverrir og föruneyti mætti til
Reykhóla klukkan hálftíu í gær-
morgun. Skoðaði verksmiðjuna og
heilsaði mönnum. Fundurinn með
heimamönnum hófst svo klukkan
11.00 í Mjólkurstöðinni, samkomu-
húsinu.
Það sem allt gekk út á að svara á
fundinum var hvort heimamenn
væru tilbúnir til að taka við rekstri
verksmiðjunnar eða ekki. Og heima-
menn eru tilbúnir. Fundurinn sam-
þykkti nefnilega tvær tillögur.
önnur var þannig að samþykkt
var að stefna að stofnun hlutafélags
um rekstur verksmiðjunnar, hin;
samþykkt að fela tveimur mönnum
að undirbúa stofnun hins nýja félags.
Annar mannanna er núverandi
framkvæmdastjóri Þörungavinnsl-
unnar hf., Kristján Þór Kristjánsson.
Það kom fram hjá honum í gær að ef
gengið yrði til samninga við iðnaðar-
ráðuneytið mætti ekki kæfa frum-
kvæði heimamanna í byrjun.
Hann sagði að hugmyndir manna
væru nú þær aö iðnaðarráöuneytiö
héldi öllum gömlu dollaralánunum
en hið nýja félag keypti veritsmiðj-
una og ræki hana úr þessu.
Með þetta fór Sverrir heim.
„Sverrir er ákaflega hress maður,”
sagði einn starfsmanna veiksmiðj-
unnar. „En í þetta skiptið fannst mér
hann með stilltara móti.” „Jú, jú,
hann kom og tók í hendurnar á
okkur.” -JGH.
FYRIR VISA
LOKI
Sælla er að gefa
en þiggjal
Hitaveita Akureyrar:
IVATNSÞROT
EFTIR ÞRJU AR
Borhola Hitaveitu Akureyrar mun
ekki gefa Akureyringum nægjanlegt
vatn frá áramótum ’88/’89 miöað við
1,75% fjölgun bæjarbúa á ári og
sömu vatnsnotkun og nú er. Þetta
kemur fram i spám hitaveitunnar
um orkubúskapinn til aldamóta.
Heitavatnssvæðin, sem Hitaveita
Akureyrar notar, gefa mun minna
vatnsmagn en gert var ráð fyrir þeg-
ar ráðist var í stofnun veitunnar. Nú
stefnir í það aö innan fárra óra verði
ekki hægt að láta alla sem vilja fá
heitt vatn. Sé miðað við 1% fjölgun
bæjarbúa á árí má draga þaö til árs-
loka 1990.
Nú standa yfir breytingar á
sölufyrirkomulagi heita vatnsins úr
hemlakerfi þar sem hver notandi
kaupir ákveðiö vatnsmagn í
rennslismælakerfi. Þá er notkunin á
hverjum tlma mæld nákvæmlega.
Hingaö til hafa bæjarbúar notaö
jafnmikið vatn í 20 stiga hita og 20
stiga frosti. Gert er ráð fyrir aö meö
breytingunni náist 15% spamaður i
vatnsnotkun sem aftur þýðir að
vatnið verði nóg eitthvað fram yfir
aldamót Ef sá sparnaður næst ekki
þarf aö fara í dýrar orkuöflunar-
framkvæmdir á næstu órum með
milljóna skuldaaukningu ofan á allar
skuldimarsemfyrir em.
-JBH/Akureyrl.
Nýrnasjúkdómurínn í
fjórum
strandkvíastöðvum?
Veikin í
Grindavík
Nýrnasjúkdómurinn í laxaseiðum
frá Laxeldisstöð rikisins hefur gert
vart við sig hjá Fiskeldi hf. í Grinda-
vík. Aður í stöð í Höfnum. Sjúk-
dómurinn er í seiðum frá 1983. Hugs-
anlegt er að hann sé í alls fjórum
laxeldisstöðvum með strandkvíaeldi.
I gær var slátrað tveim milljónum
seiða í Laxeldisstöð ríkisins, öllum
seiðum frá 1984. Eftir em 230 þúsund
gönguseiði frá 1983. I þeim hefur ekki
fundist sýking, einungis smit. Nú er til
rannsóknar að Keldum stórt sýni frá í
gær. Verðmæti gönguseiðanna er 10—
15 milljónir, eftir mörkuðum. Þau seiði
sem þegar hefur verið fargað vom
metiná7—8milljónirkróna. -HERB.
Veröbólgan 15%
Verðbólguhraðinn liggur nú í rúmum
15 prósentum sé mið tekið af hækkun
lánskjara- og byggingarvísitölu á milli
mánaða.
Lánskjaravísitalan fyrir maímánuð
reyndist vera 1119 stig og hefur
hækkað um 1,8 prósent frá fyrra
mánuði. Byggingarvísitalan hækkaði
aftur á móti um 0,2 prósent frá mars til
apríl. -EIR.
„Teppalagningin”
Eyjólfur
Konráð Jónsson:
ígildi
um veginn
i
i
i
I i
i
i
i
i
i
i
i
i
Steingrímur
J. Sigfússon:
Þensla á
einu svæði
i
i
i
„Eg vil láta skoða þetta,” sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður
Norðurlandskjördæmis vestra, um
tilboð Hagvirkis.
„Hugmyndin er ekki ný. Eg var
fyrsti flutningsmaður frumvarps, sem
samþykkt var í þinginu 1974 til 1975,
um aö afia fjár til að klára noröur-
veginn á fjórum árum. Norður-
vegurinn væri fyrir löngu búinn ef
lögin hefðu verið framkvæmd.
Peningamir fóru í annað, Borgar-
fjarðarbrú og fleira,” sagði Eyjólfur
Konráð.
Hann minnti á að Iögin um norðurveg
og vesturveg, eins og það var kallað
endanlega, væmennígildi. -KMU.
i
i
i
i
i
i
„Það stæði ekki á okkur þing-
mönnum Norðurlands eystra að taka
þennan vegarkafla út úr,” sagði Stein-
grimur J. Sigfússon um tilboð Hag-
virkis.
Hann taldi eðlilegra að bjóða slíkt
verkefni út en að semja við einn
verktaka. Taldi hann það ekki mikil
tíðindi að fara niður i 70 prósent af
kostnaðaráætlun.
Steingrímur sagði að með slíkri stór-
framkvæmd yrðu ýmsir kostnaðarliðir
minni og tæki nýttust betur. Hins veg-
ar ylli þetta þenslu á einu svæði meðan
dauði yrði á öðru svæði.
Þingmaðurinn hafði áhyggjur af
áhrifum á islenska lánamarkaðinn og
ennfremur varhugaverðri þróun gagn-
vart verktökum í smærri byggðar-
lögum. .rmu.