Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ —VISIR 99. TBL. - 75. og 11. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. MAÍ1985. HM-slagurínn á Laugardalsvellinum: Aukin vopnaleit á skoskum íslandsförum hópur lögreglumanna kemur hingað með skosku áhorf endunum Skoska knattspymusambandið gerir allt til að ólæti brjótist ekki út á Laugardalsvellinum 28. mai, þar sem Islendingar og Skotar mætast í heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu. Reiknað er með að allt upp undir 1200 Skotar komi gagngert til Islands til að sjá leikinn. Ákveðið hefur veriö að auka vopnaleit á skoskum áhorfendum þegar þeir halda á stað til Islands með flugvélum um hádegið 28. maí. Skoska sambandið tekur niður nöfn allra þeirra sem koma hingað og hafa tilkynnt í Skotlandi að þeir sem verða með óspektir á Islandi verði útilokaðir frá ferðum með skoska landsliðinu — ævilangt. Þegar Skotar léku á Spáni á dög- unum fóru 5000 Skotar á vegum skoska sambandsins til Sevilla. Aðeins einn af þeim, hefur fengið ævilangt bann. Skosku áhorfendurnir koma til landsins siðdegis og fara með lang- feröabifreiðum beint á Laugardals- völlinn. Þeim bifreiðum verður lagt á ákveðinn stað og þær fara svo fljót- lega eftir leikinn beint til Keflavíkur. Skotamir fá ekki að koma við i frí- höfninni á Keflavíkurflugvelli á leið til landsins og jafnvel ekki heldur á útleið. Knattspymusamband Islands og vallarstjóri Laugardalsvallar, Baldur Jónsson, hafa enn ekki óskaö eftir efldri löggæslu á Laugardals- vellinum, hvað sem síðar verður. Þess má geta að skosku áhorfend- unum verður skipt niður í hópa. Með hverjum hópi verða tveir til þrír nú- verandi og fyrrum skoskir lögreglu- menn sem stjóma hópnum. Þeir sjá um aö allt f ari friðsamlega fram. -SOS Hamingjusöm hjón f rá Eskifirði þremur börnum ríkari: Jóna Mekkína Jóns- dóttir og Magnús Guðnason með þríbur- ana. Jóna heldur ó syninum og Magnús é dœtrunum. DV-mynd GVA í i „ERU OLL ALVEG NAKVÆMLEGA EINS” i. * .........~ . t i „Maðurvarö auðvitaö steinhissa. Okkur hafði verið sagt að þetta væri bara eitt barn, svo fyrir hálfum mán- uði kom í ljós, að börnin vom þrjú,” sagði Jóna Mekkina Jónsdóttir, 24 ára gömul, sem eignaðist þribura í fyrra- dag, tvær stúlkur og dreng, eru telp- uraar eineíggja. Þaö var glatt á hjalla á herbergi 5 á fæðingardeild Landspitalans i heim- sóknartímanum i gærkvöldi þar sem Jóna liggur. Þar var pabbinn, Magnús Guönason, nýkominn inn úr dyrunum, en hann hafði verið úti á sjó þegar bömin komu í heiminn. Hann hristi bara hausinn yfir öllu tilstandinu og var ekki enn farinn að sjá bömin. Hann bætti þó úr því og þegar hann kom til baka, sagði hann: „Þau eru öll alveg nákvæmlega eins. Hvemig fer maður að því að þekk ja þau í sundur? ” Jóna og Magnús em frá Eskifirði. Þau sögöust ekkert hafa orðiö undr- andi þótt þetta heföu orðið tvíburar, þvi nokkrir slíkir væru í fjölskyldum þeirra beggja, „en þríburar, á þvi áttir ég ekki von,” sagöi Jóna. Hún sagöi aö síðast heföu fæðst þríburar á Eskifirði fyrir 107 árum en hvort þeir hefðu verið skyldir öðm hvom þeirra vissi hún ekki. — En hvemig stóð á því að ekki kom í ljós fyrr en svona seint, að bömin vomþrjú? „Ég veit það ekki. Eg var þrisvar búin að fara í sónar á Norðfirði og þar sást bara eitt bam. Svo fyrir hálfum mánuði fannst þeim þar ég eitthvað orðin svo sver og var ég þá send suður og þá kom þetta í ljós.” — Varstu farin að prjóna eða undir- búa þig eitthvað f yrir barnsburðinn? „Eg var búin að prjóna eina peysu, átti eftir að setja hana saman, en eftir að ég frétti að þetta væru þríburar gafstégupp.” — Eruð þið búin að ákveöa nöfn á börnin? „Það var nú búið að nefna þau öll úti á sjó , en það er ekki hafandi eftir,” sagði pabbinn og brosti við. Sama sólarhríng og þríburafæðingin varð fæddust tvíburar á fæðingardeild- inni og von er á tvennum þríburum. Hvernig skyldi standa á þessari óvenjulegu frjósemi? „Þetta er ekkert óvenjulegt,” sagði Reynir Tómas Geirsson læknir sem tók á móti þríburunum. „Þetta er eitt af því í lífinu, sem kemur í gusum. Við kunnum enga skýringu á þessu.” -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.