Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR3. MAI1985. DoubleCoinog WARRIOR Kínverskir hjólbaröar, diagonal og radial, stórir og smáir. Verðiö það besta sem þekkist. Umboðsmenn um land allt. Reynir sf. Sími 95-4400 Blönduósi SLYSAVARNADEILD ÍftP LÁGAFELLSSÓKNAR — BJÖRGUNARSVEITIN lifij I S ■!« ; KYNDILL 270 Varmá — Box 52 — Sími 666850 Aðalfundur Slysavarnadeildar Lágafellssóknar verður haldinn þriðjudaginn 7. maí í Hlégarði kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Málflutningsskrifstofa Ragnars Aðalsteinssonar hæsta- réttarlögmanns, sem verið hefur í Austurstræti 17, er flutt í Borgartún 24, 3. hæð. Símanúmer er óbreytt, 27611. Jafnframt hefur sú breyting orðið á eignar- og rekstrarað- ild skrifstofunnar, sem lýst er hér að neðan. Frá og með 2. maí 1985 rekum við sameiginlega málflutn- ingsskrifstofu að Borgartúni 24, 3. hæð, og annast skrif- stofan öll almenn lögfræðistörf. MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Ragnar Aðalsteinsson hrl. Lilja Ólafsdóttir lögfr. Sigurður Helgi Guðjónsson hdl. Viðar Már Matthíasson hdl. Borgartún 24 - Pósthólf 399 -121 Reykjavik Simi 27611. TÆKNISTJÓRI FLUGREKSTRAR Staða tæknistjóra flugrekstrar hjá Landhelgisgæzlu Ís- lands er laus til umsóknar. Starfið felst í því að stjórna og hafa umsjón með viðhaldi, skoðunum, viðgerðum og breytingum loftfara Landhelg- isgæzlu og Landgræðslu ríkisins. Æskilegt er að viðkomandi hafi mikla reynslu í viðhaldi loftfara, sé flugvirki, flugtæknifræðingur eða flugverk- fræðingur að mennt og geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum um starfið skal skila til Landhelgis- gæzlu íslands, Seljavegi 32, fyrir 15. maí nk. REYNDU Nýbók,sjötta metsölubekin Israel Navarez var hörkutól, foringi einnar harösvíruðustu glæpaklíkunnar í New York borg. Hann og félagar hans buðu öllum byrginn, eiturlyf og hnífabardagar voru daglegt brauð i hörðum heimi götunnar. Eftir hefndarárás á annan glæpaflokk lenti Israel í fangelsi, ákærður fyrir morð. í ógnarheimi fangelsisins var harkan ennþá meiri en f ; skuggasundum stórborgarinnar. Var lífi þessa ógæfusama manns í raun ekki lokið^ eða örlaði á einhverri von? ’MagnjJrungin spennusaga sem gagntekuj lesandann. á \ / 'Sá/ " 'i t tamhjolp - Bogi Ágústsson Mokkar maður í Kaupmannahöfn”: Með hljóðnema og pulsu í hendi Bogi Agústsson fœr aór pulsu í Kaupmannahöfn. Þær eru svo góðar að margar af dúfunum á Róðhústorginu geta ekki lengur flogið vegna offitu. DV-mynd -EIR. „Nei, fólk þarf ekki aö halda að ég hangi á bamum á Inter-Continental hótelinu og drekki bjór meö strákunum eins og þeir geröu í Saigon. Þannig er þetta ekki hér í Kaupmannahöfn,” sagöi Bogi Agústsson, „okkar maður í Kaupmannahöfn” eins og þeir segja í sjónvarpinu. DV hitti hann í pulsuvagni á Amag- erbrogade í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu. Þar stóö Bogi meö pulsu í hendi svona eins og sjónvarpsáhorf- endur eru vanir að sjá hann meö hljóð- nemann. I pulsunni var þó enginn þráöur og Bogi beit í hana gagnstætt því sem hann gerir viö hljóðnemann á öörum stundum. „Þaö er sjálfsagt skemmtilegt að vinna í nýju og framandi umhverfi eft- ir 8 ár á fréttastofu sjónvarps viö Laugaveginn. En þetta getur veriö strembiö, stundum erfitt,” segir Bogi þegar pulsan er hálf nuö. „Okkar maður í Kaupmannahöfn hefur ekki eigin skrifstofu í hjarta Kaupmannahafnar eins og tíökast um erlenda fréttamenn frá stærri löndum. Hann veröur að vinna starf sitt einn og í kyrrþey á heimili sínu rétt utan viö Kaupmannahöfn. Þar býr hann ásamt konu og barni. „Þaö versta viö aö vera svona einn í þessu er aö maður verður alltaf aö vera aö. Ég verö að fylgjast meö öllum sjónvarpsfréttum, bæði dönskum og sænskum, og þori bókstaflega ekki aö sleppa einum einasta fréttatíma. Það er aldrei að vita hvað leynist í þessu. Smáfrétt héma getur varðaö Islend- inga miklu, maður veröur alltaf að vera meö það í huga hvað þykir áhuga- vert heima á Islandi.” En Bogi Ágústsson gerir ekki allt heima hjá sér. Þegar þarf hefur hann aöstööu í danska sjónvarpinu til upp- töku en sjálfur verður hann aö bruna með spólurnar út á Kastrupflugvöll þannig aö þær komist heim og nái aug- um íslenskra sjónvarpsáhorfenda. Bogi fór tU starfa í Kaupmannahöfn síöastliöið haust en ráöningartími hans sem fréttamanns í Kaupmannahöfn er tvö ár. Pulsurnar eiga því eftir að veröa margar áður en yfir lýkur. Enda em þær ágætar með tómati og sinnepi eins og sést best á dúfunum á Ráðhústorg- inu sem em orðnar svo feitar að þær geta ekki flogið. -EIR. Athugasemd við Sandkorn Athugasemd viö Sandkorn Undarlegir eru stundum vegir DV. Undirritaöur er sagöur hafa verið sérfræðingurinn á bak viö auglýsingar Mjólkurdagsnefndar á mjólk. En þar varö blaðamanni DV heldur betur á í messunni. Eg er nefnilega sérfræðingurinn sem átti aö vera á bak við auglýsingarnar (aö vísu var nefndin ekki samdóma um þaö), en náöist ekki í fyrr en kvöldið áöur en auglýsingin átti að birtast. Náöi ég því aðeins aö leiö- rétta stærstu gloppurnar í þessari hrikalegu hugsmíö. Mitt hlutverk var hins vegar aö púsla þessu sam- an í skiljanlega auglýsingu í sam- ráði við starfsmann Hollustuvernd- ar ríkisins. Var þaö æriö verk og þeirrar gerðar sem ég mun frá- biöja mér í framtíðinni. Þaö sýnir vel vinnubrögð blaöamannsins aö ég var áður búinn aö svara þessari spurningu fyrir DV og hafði svar mitt birst í blaðinu. Þaö skal tekiö fram til þess að forðast misskilning að sú hugmynd að vitna í bækling eftir mig.um kalk og beinþynningu er ekki kominfrá undirrituöum. Meöþökk fyrir birtinguna, Jón Öttar Ragnarssoh dósent. * Aths.: Hafi einhverjum orðlð „á í messunni”, þá á það viö sérfræö- inginn „á bak viö” mjólkuraug- lýsingarnar, en ekki blaðamann DV. Umrætt sandkorn stendur því óbreytt. -JSS Skagfirska söngsveitin æfir nú af krafti fyrir tónleika í Austur- bæjarbíói á sunnudaginn. DV-mynd KAE. „Kærir bræður ha...” Skagf irska söngsveitin frumf lytur tónverk eftir Gunnar Reyni Sveinsson . Skagfirska söngsveitin frumflytur á sunnudag nýtt tónverk ettir Gunnar Reyni Sveinsson. Nefiist þaö Kærir bræöur ha... Er nafnið sóttí ræðustúf úr Brekkukotsannál Halldórs Laxness. Gunnar Reynir samdi verkið sérstak- lega fyrir kórinn vegna söngferðar til Italíu síðar í þessum mánuöi. Á tón- leikunum á sunnudaginn verða einnig flutt íslensk þjóölög og lög eftir inn- lenda höfunda. Er efnisskráin sú sama og Itölum verður boðið aö hlýöa á. I Italíuförinni mun kórinn einnig syngja hluta af Litlu Orgehnessunni éftír Haydn við guösþjónustu í klaustri á Noröur-Italíu. Skagfirska söngsveit- in flutti Litlu órgelmesspna á tónleik- unumupi síöustu jól. Stjórrfandi Skagfirsku söngs.veitar- tanar er Björgvin Þ. Valdemarsson. Hann tók fyrir tveim árum viö af Snæ- þjörgu Snæbjarnardóttur sem stjórn- aði kórnum um árabil. I vetur hefur Sigurður Dementz Fransson þjálfað raddir kórstas. Undirleikari er Olafur Vignir Albertsson. Tónleikarnir eru í Austurbæjarbíói og hef jast kl. 14.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.