Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 3. MAI1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Norski saksóknarínn:
Njósnir Treholts höfdu
áhrif á sambúð A-V
— krefst20 ára fangelsisyfir Treholt
Varflur Treholt settur i 20 ára
fangalai? Þafl vill saksöknari, auk
flmm mllljfln krflna sektar.
Saksóknari í Treholt-mólinu krefst
þess aö Ame Treholt verði dæmdur í
20 ára fangelsi vegna þess aö njósnir
hans hafi skaðað samskipti austurs og
vesturs. I ræðu sinni við lok niu vikna
réttarhaldanna, sem hafa verið mest
lokuð, sagði Lasse Qvigstad að „óyggj-
andi sannanir” sýndu aö Treholt heföi
njósnað fyrir Sovétríkin og Irak.
Treholt er sakaður um að hafa látið
sovésku leyniþjónustuna KGB fá
leyniskjöl frá Noregi og Atlants-
hafsbandalaginu þegar hann var
aðstoöarmaður ráðherra í Noregi,
sendimaður hjá Sameinuðu þjóðunum
og nemandi við Vamarmálaskóla Nor-
egs.
Qvigstad sagði að réttarhöldin væm
þau mikilvægustu í Noregi eftir stríðs-
lok og að „kostnaðurinn vegna njósna
hins ákærða væri geysimikill og skað-
inn væri óbætanlegur.”
„Rétturinn veit hvað ég er að tala
um,” bætti hann við, enda hefur mest-
ur vitnisburðurinn við réttarhöldin
verið ieynilegur.
Qvigstad bað réttinn líka aö sekta
Treholt um 1,1 milljón norskra króna
eða um fimm milljónir íslenskra vegna
þess aö 52.000 dollararnir sem hann á
að hafa tekið viö sýndu að „i því tilviki
voru það peningar og hans eigin gróði
sem knúöu hann til að njósna og það
voru engin hugsjónasjónarmið.”
Treholt hefur haldiö því fram að upp-
lýsingamar sem hann lét Sovétmenn
fá hafi ekki geta skaðað Vesturlönd og
hann hafi látið þau i hendur Sovét-
manna til að bæta tengslin milli aust-
urs og vesturs.
Lögmaður Treholts heldur sína ræðu
í dag og á mánudag mun rétturinn lík-
lega draga sig í hlé til að íhuga dóm-
inn.
ÆTLUÐU AÐ SMYGLA
TÆKJUM TIL SOVÉT
Leiðtogarnir sjö
ræða sérstaklega
fíkniefnavandann
Búist er við því að leiðtogarnir sjö,
sem sitja efnahagsráðstefnuna í Bonn,
láti frá sér fara í dag stuðningsyfirlýs-
ingu við afstöðu Bandaríkjastjórnar í
vopnatakmörkunarviðræðunum við
Sovétríkin.
Leiðtogar Bandaríkjanna, Kanada,
Bretlands, Frakklands, V-Þýskalands,
Italíu og Japans komu saman í gær til
þess að ræða efnahagsmál og stöður i
ýmsum heimsmálum.
I gær bar meðal annars á góma
Afghanistan og Kampútsíu og einnig
hlýddu leiðtogarnir á skýrslu Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um
Genfarviðræður Bandarikjamanna og
Sovétmanna. I gærkvöldi var og lengi
rætt um fíkniefhavandamálið en það
verður einnig á dagskrá á fundi utan-
ríkisráðherra þessara landa í dag.
Burtgekk ut i fussi
Frá Asgeiri Eggertssyni, fréttaritara
DVíMunchen:
Blaðamannafundur sem verðandi
sendiherra Bandarikjanna í Vestur-
Þýskalandi, aðstoðarutanríkisráðherr-
ann Richard Burt, hélt í Bonn endaöi
með upplausn. A fundinum var rætt
um viðræður Kohls og Reagans Banda-
ríkjaforseta sem þeir áttu á fundi vest-
rænna leiðtoga sem hófst í Bonn í gær.
Astæðan fyrir upplausninni var sú aö
bandarísku biaðamennirnir höfðu ekki
áhuga á því sem Kohl sagði og gripu
þeir sí og æ frammí fyrir Burt með
hlátri og köllum. Ekki komst hann
lengra í setningu sinni en, „Kanslarinn
sagði. ..” áöur en hæðnishlátur braust
út. Þá yfirgaf Burt salinn.
Samkvæmt þýskum heimildum
ræddu Kohl og Reagan um viðreisn
efnahagslifsins. Þeir voru sammála
um að létta þyrfti hömlum af viðskipt-
um ef hagur vestrænna ríkja ætti að
batna.
Kohl tjáði Reagan að stjórnin í Bonn
styddi þróun vopna sem komið yrði
fyrirígeimnum.
I viðræðum urðu Reagan og Mitterr-
and Frakklandsforseti ósammála i
mörgum málum. Mitterrand sagði að
Frakkar gætu ekki samþykkt geim-
vopnaáætlunina nema með vissum
skilyrðum. Þar að auki væri enn margt
óljóstíáætluninni.
Forsætisráðherra Italíu, Bettino
Craxi, kom með skilaboð frá
Gorbatsjov Sovétleiðtoga með sér til
Bonn. Sovéski sendiherrann sagði að
innihald þeirra varðaði afvopnunar-
viðræður stórveldanna tveggja í Genf
og geimvopnaáætlanir Bandaríkja-
manna.
Ekki var látið neitt uppi um einstök
atriði skilaboðanna.
Tveir Pólverjar og einn bandarískur
ríkisborgari, á snærum sovésku leyni-
þjónustunnar KGB, voru handteknir í
Los Angeles þegar þeir reyndu að
smygla úr landi eldflaugabúnaöi sem
Bandarikjastjórn flokkar undir örygg-
isleyndarmál.
Afgreiðslumaður í Hughes-flugvéla-
verksmiðjunni, framleiðanda þessa
tækjabúnaðar, fékk illan bifur á kaup-
um þessum og gerði yfirvöldum við-
vart. Voru mennirnir stöðvaðir þegar
þeir voru á leið upp í flugvél til London
og Ziirich með búnaðinn í farangri sín-
um.
Um er að ræða eitthvert tæki sem
notað er til þess að gera skotflaugar
nákvæmari.
Aðeins einn útlendur aðih, Tadiran
rafeindafyrirtækið í Israel, hefur
keypt þennan búnað og vaknaði grunur
þegar Hughes-verksmiðjan fékk aðra
pöntun á nafni Tadiran á sama búnaði.
Símhringing til Tadiran leiddi í ljós að
það var ekki aðili að þessari nýju pönt-
un og var tollþjónustunni og FBI gert
viðvart. Leyfð var afgreiðsla tæk-
isins en viðtakendum veitt eftirför og
þeir stöðvaðir á flugvellinum í Los
Angeles.
Pólverjunum tveim var vísað úr
landi en þriðji maðurinn verður sóttur
tilsaka.
pMlN&W
MIKIL yEfi&lÆKKi)K
LAUGAVEGrl 95
SlCÓVE^UiW ^$A?-?éTaí»S0HM&á-|lS7o
■ ■
OLL
GARÐYRKJU-
VERKBERI
Garðsláttuvélar Heykvíslar Arfaklórur Stungugafflar
Garðslöngur Slöngutengi Garðhrífur Stunguskóflur
Garðúðarar Hnausagaflar Hjólbörur Plöntuskóflur
Hekkklippur Kantskerar
Grasklippur Undirstunguspaðar
KB
byggingavObur he
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.