Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR 3. MAI1985. 11 Björgvin Jóhannesson forstöðumaður Skálatúnsheimilisins. „Starfsemin á heimsmælikvarða” Vistheimili þroskaheftra í Mos- fellssveit, Skálatúnsheimilið, tekur í notkun í næsta mánuði nýja og fullkomna aðstööu fyrir vistmenn, svokallaða heimiliseiningu. Heimilið hefur rekið slíkar heimiliseiningar í nokkur ár en hér er um mun fullkomnari aðstöðu að ræða og verða færri vistmenn í hverri einingu. Við báðum Björgvin Jóhannesson, forstöðumann Skála- túnsheimilisins, aö segja okkur nánarfrá starfseminni. „Skálatúnsheimilið er næst- stærsta heimilið á landinu fyrir vangefna, en þar eru nú alls 57 þroskaheftir einstaklingar, mis- munandi þroskaheftir og á öllum aldri, sá yngsti er 8 ára og sá elsti 59 ára. Þetta er sólarhringsstofnun, þ.e.a.s. fólk býr héma, þetta er bæði vinnustaður og heimili vistmanna. Hér á heimilinu fer fram heljar- mikil þjónusta, t.d. bæöi hvað varðar margs konar vinnu og þjálfun allan daginn.” Miklar breytingar orðið á rekstri síðustu ár „Á síðustu árum hafa orðið gífur- legar breytingar. Á árunum áður voru kannski 20 manns á hverri heimiliseiningu, en nú er talan komin ofan i 7 manns á mörgum einingum. Á hverri heimiliseiningu býr fólk sem er á svipuðu þroskastigi og sannkallaður heimilisbragur á hlut- unum en að sjálfsögðu undir yfir- stjóm þroskaþjálfa og starfsfólks stofnunarinnar. Það er einmitt svona eining sem við erum að taka i notkun núnalmaínk.” Fjölbreytt starfsemi vistmanna Að sögn Björgvins taldi hann starfsemi Skálatúnsheimilisins og það sem gert væri fyrir vistmenn með því besta sem fyrirfýndist og mikla byltingu hafa orðið á starf- seminni sl. þrjú ár. „Þetta er orðið heimili á heimsmælikvarða. Sem dæmi um það sem gert hefur verið að undanfömu má minnast á ferð ellefu vistmanna til Akureyrar. Góð samvinna er við skóla um allt land í meðferð þroskaheftra. Það er kór í gangi og æfingar em vinsælar auk margs konar annarrar félags- og íþróttastarfsemi. Nú emm við að undirbúa ferð vistmanna til Hollands i sumarhús, auk þess sem hópar héðan munu fara saman í íslensk sumarhús um allt iand,” sagöi Björgvin Jóhannesson að lokum. hheL LUXUS , 35MM.MYNDAVEL FYRIRUD-AR 5700,- KRONUR Hvaða kröfur gerir þú til myndavéla? Vilt þú geta tekið góðar Ijósmyndir við tjölbreyttar aðstæður, a einfaldan og þægilegan hátt. þægilegan hátt. Zenit Í2XP er 35 mm myndavél sem fullnægir kröfum flestra. Þú hefur í þessari vél marga þá kosti sem einkenna mun dýrari mvndavélar, — i þó kostar þessi vél ekki nema 5.700 krónur. Tæknileg atriði í stuttu máli:58 mm linsa fylgir Ijósop f/2 - f/16, fókus frá 0,5 m, hraoi 1/30—1/500. Innbyggður LED Ijósmælir, tímarofi, festing fyrir þrífót og hlífðarkassi með ól fylgir. Sendum í póstkröfu um allt land. hefurhloho viouiKenningu í Bnetian Skipholti 7 - Simar 26800 og 20080 Rvík. Heíurðu gert þér grein íyrir því að milli bíls og vegar eru aðeins íjórir lóíastórir íletir. Aktu því aðeins á viðurkenndum hjólbörðum. Sértu að hugsa um nýja sumarhjólbarða á íólks- bílinn œttirðu að haía samband við nœsta umboðsmann okkar. ÞÚ ERT ÖRUGGUR Á GOODpYEAR FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING IhIHEKLAHF Laugavegi 170-172 Símar 21240-28080 HUGSIÐ UM EIGIÐ ÖRYGGI OG ANNARRA Flestar stœrðir íyrirliggjandi — HAGSTÆD VERÐ —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.