Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1985, Side 13
DV. FIMMTUDAGUR11. JULl 1985.
13
GRÓDAGRUNNSKÓUNN
Formanni fræðsluráðs Reykja-
víkur, Ragnari Júliussyni, þótti það
yfirmáta frekja að kalla fræðsluráð
saman til að ræða „einkaskólann”
nýja. Hann frábaö sér slíkar uppá-
komur i f ramtíðinni og þótti tilefni aö
æskja breytinga á grunnskólalögum,
þannig aö ekki væri verið aö kalla
fræðsluráð saman aö tilefnislausu í
miöju sumarleyfi.
Formanni fræðsluráðs hefði ef til
vill þótt ailt eins eðlilegt að kalla
s^man útgerðarráð til að ræða
„einkaskólann”.
Morgunblaðið og DV hafa ekki
reynt að hemja gleði sína yfir hug-
myndinni um „einkagrunnskóla”.
Leiöarahöfundar hafa rætt fjálglega
um merk tímamót, stórkostlegt
byrjunarstarf, hugumstóra braut-
ryðjendur, þannig að ætla mætti að
nýir Fjölnismenn væru upprisnir.
Snýst málið um vilja eða
fjármagn?
En hvað er nýtt hjá eigendum
hugmyndarinnar um „einkagrunn-
skóla”? Er það einsetinn skóli; 25
börn í bekk; fjölbreyttari námskrá?
Viljaaðrir skólamenn ekki einsetinn
skóla, fámennari bekkjardeildir,
námsefni í takt við samfélagiö? Með
öðrum orðum; vilja kennarar og
skólastjórar almennt ekki fram-
fylgja gnumskólalögunum? Er það
sá hnífurinn sem stendur í kúnni?
Hverjir eru það sem halda grunn-
skólum í fjársvelti, þannig að
kennarar þurfa að ganga á milli
prentsmiöja snapandi pappír fyrir
bömin? Jú, sömu aðilar standa þar
að baki og eru tilbúnir að veita
eigendum „einkagrunnskóla” alla
mögulega fyrirgreiðslu.
Á sama tíma og sérlegur sendi-
sveinn borgarstjóra, sem vel að
merkja er ekki formaður fræðslu-
ráðs Reykjavíkur og ekki skólastjóri
grunnskóla í borginni, leitar og
finnur „einkaskólanum” húsnæði og
aðstöðu þá liggja á borði borgar-
stjóra teikningar af nýjum Vestur-
bæjarskóla sem gera ráð fyrir
tvísetnum skóla.
Fyrir nokkrum árum varð Austur-
bæjarskólinn loks einsetinn eins og
nýting hans hafði verið skipulögö i
upphafi. Þá átti að leggja skólann
niöur, þetta þótti svoddan bruðl með
húsnæði borgarinnar.
Margoft hef ég lesið áskoranir og
óskir kennara og annarra skóla-
manna þess efnis að skólar verði ein-
setnir, skóladagur samfelldur og
námsgögn margbreytilegri en nú er.
Eg hef hinsvegar hvorki séð sérlega
sendisveina borgarstjóra né aöra
fulltrúa fjárveitingarvaldsins
hlaupa grimmt upp til handa og fóta
til að uppfylla óskimar. Þær þurfa
kannski að koma frá einstaklingi.
Menntamálaráöherra sá til þess á
nýliönu þingi aö starfsheiti kennara
fékkst ekki lögvemdað. Þess vegna
er málið trúlega, að ég t.d. labbi mig
til Ragnars Júliussonar, ekki for-
manns fræsðluráðs heldur einka-
starfsmanns borgarstjóra, og selji
honum hugmynd um „einkaskóla”.
Hann Ragnar teldi það naumast
eftir sér að trítla fyrir mig um bæinn
og finna handa mér húsnæöi og
annaö sem til þyrfti þannig að fyrir-
tækið kæmist í gang.
Skipulögð mismunun
Mig varðar engu þótt einhverjir
foreldrar komi á fót skóla fyrir elsku
blessuð afsprengin sem ekki eiga
heima meðal almennings, eins þótt
einhverjir kennarar gerðu slíkt hið
sama. Það væri þeirra mál. Hug-
myndin um „einkaskólann” er ekki í
þá vem. Þar er verið að selja
forráðamönnum bama hugmynd aö
gróðamöguleika einstaklinga og
mismunun grunnskólanema með
öflugum stuðningi ríkis og Reykja-
víkurborgar.
„Ekki er verið að mismuna
börnum heldur skapa fjölbreytni,”
segja talsmenn „einkaskóla”. Þaöer
ekki rétt. Þegar ríki og Reykjavíkur-
borg gangast inná það aö styrkja
f járhagslega einkaaöila í gróöaleit á
grunnskólastigi á sama tíma og
hvorki ríki né Reykjavíkurborg upp-
fylla þær skyldur sem þeim em
lagðar á herðar samkvæmt grunn-
skólalögum þá er verið að brjóta
skipulega niður fræðslukerfið í
landinu og mismuna bömum skipu-
lega eftir tekjum forráöamanna. Er
það enda mjög i anda núverandi
ráðamanna menntamála sem
virðast hata fátt meira en
almenningsmenntun. Það eru vissu-
lega gömul sannindi að ómenntaður
vinnulýður lætur betur að stjóm og
trúlega býr það að baki. Annars-
vegar lærð ráðastétt með sérfræð-
inga í þjónustu sinni og hinsvegar
púlsveií sem ekki þarf nema lág-
marksskólalærdóm til að skila nýti-
'legu vinnuframlagi.
Engar nýjar hugmyndir —
utan gróði
„Einkaskólinn” hefur verið bor-
inn saman við lsaksskóla. Þegar
Isaksskóli var stofnaður var það til
að reyna ákveðnar kennslufræði-
kenningar í framkvæmd. Svo er yfir-
leitt með tilraunaskóla. En því er
ekki að heilsa í „einkaskólanum” við
Tjömina. Eigendur hans fylgja
engum sérstökum kennslufræðikenn-
ingum, a.m.k. hafa þær hvergi komið
fram fyrir almenningssjónir. Eg
minnist ekki sem fjölmiölaneytandi
aö hafa heyrt eða séð eitthvað frá
eigendunum varöandi skólamál,
kennsluaöferöir eða uppeldismál,
hvorki í ræðu né riti. Enda er ekki
byggt á annarri kenningu en einka-
gróðanum.
Þennan fyrirhugaða skóla er ekki
hægt aö kalla einkaskóla. Ríki er
ætlað að greiða laun kennara sam-
kvæmt kjarasamningum og borgin
lætur í té ókeypis húsnæði, auk þess
sem „eigendur” munu ætla sér aö-
gang að tækjum og tólum annarra
skóla. önnur fyrirgreiðsla hefur ekki
fengist á hreint.
Eina „einka”-atriðið er einka-
gróði sem mögulegt verður að hala
inn úr buddum forráöamanna barna
og forráðamennimir eiga þannig að
fá fíling í gegnum buddumar fyrir
því að bömin séu að læra eitthvað
spes. Hvemig eigendur skólans ráð-
stafa einkagróðanum er alfarið
þeirra mál.
Þennan skóla ber því að kalla
gróðagrunnskóla en ekki
einkaskóla.
I tengslum viö gróðagrunnskólann
hafa á ný heyrst óánægjuraddir með
það að „afburðagáfuðu” bömin
skulu ekki fá sérkennslu i grunn-
skólum. „Bömin mín eru svo gáfuð
og þau fá enga kennslu við sitt hæfi.”
Þetta leyfa foreldrar sér að segja
þegar ástandið er þannig að ráða-
menn menntamála hjá ríki og borg
sinna ekki þeirri frumskyldu að veita
börnum með sérþarfir þann stuðning
sem lög gera ráð fyrir.
En hvaða máli skiptir það, er ekki
allt í lagi að þeir sem eru á botnL.um
hvort sem er sitji þar áfram, bara ef
súpergáfuðu börnin mín fá ómælda
aðstoð?
3.200 krónur á mánuöi —
spurning um viðhorf!
Eigendur gróðagrunnskólans
BIRNA
ÞÓRÐARDÓTTIR
SKRIFSTOFUMAÐUR
lýstu því yfir á fyrsta blaöamanna-
fundi að spumingin væri um viöhorf
og forgang foreldra. Allir gætu
borgað 3.200 kr. á mánuöi í skóla-
gjöld. Sama segir aöstoöarmaöur
menntamálaráðherra, Inga Jóna
Þórðardóttir, í viðtali við Þjóðvilj-
ann6. júlí.
Hún á sér lítil takmörk vanþekk-
ingin og fyrirlitningin á stöðu lág-
launafóiks. Þrjúþúsundogtvö-
hundruð kall — smáaur sem engu
skiptir!
Verkafólk sem fær greidd laun
eftir fimm neðstu launaflokkum ASl
er með 15.300 — 15.700 kr. á mánuöi.
Auðvitað skipta 3.200 kr. þaraf engu
máli! Spurning um viðhorf!
Konur sem ræsta nýja gróöa-
grunnskólann fá þessi laun. Hvað,
vilja þær ekki að blessuö börnin fái
að njóta góörar og skemmtilegrar
kennslu i einsetnum skóla og fá-
mennum bekkjardeildum? Skelfing
geta konumar verið vondar við
börnin sín og haft litinn skilning á
nauðsynlegum forgangsviðhorfum.
7. júlí 1985
Birna Þórðardóttir.
i
„Þennan fyrirhugaða skóla er ekki
hægt að kalla einkaskóla.”
í vítahring erlendra lána
Þótt nokkur kyrrð sé nú yfir
íslenskum stjórnmálum eftir að
sextíumenningarnir við Austurvöll
hafa lokið maraþonræðum sínum í
bili, þá heldur þróunin í efnahags-
málunum áfram og væri synd aö
segja að hún auki mönnum bjart-
sýni. Skuldabyrði okkar erlendis
eykst stöðugt og forsætisráðherrann
hefur jafnvel talað um neyðarskatt
til aö jafna eitthvað hallann. Fjár-
málaráðherrann segir raunar að við
slíkum hugmyndum fáist lyf út á lyf-
seðla hjá læknum og væri það ekki
nema eftir öðru sulli sem ofan í fólk
er dælt nú til dags, að það væri rétt.
En hvort sem þetta með neyðar-
skattinn var nú rétt eftir Steingrími
haft eða ekki og hvort sem Albert
kann formúluna að skatt- og gjald-
eyöandi dropunum eða ekki, þá hygg
ég að viö höfum hér séö upphaf að
þeirri umræðu sem setja mun mark
sitt i æ ríkari mæli á íslenska stjórn-
málaumræðu. í nálægri framtíð.
Skuldasöfnun okkar erlendis er oröin
svo geigvænleg að hún ógnar ekki að-
eins efnahagslegu sjálfstæði okkar,
hún er þegar búin að skerða verulega
möguleika okkar á stjóm eigin efna-
Kjallari
á fimmtudegi
MAGNÚS
BJARNFREÐSSON
hagsmála, þótt menn geri sér ekki
alltaf grein fyrir því.
Erlendir vextir af inn-
lendum lánum
Gleggst kemur þetta fram í vaxta-
málunum. Allir, nema einstöku
sprenglærðir hagfræðingar, eru
löngu búnir að gera sér grein fyrir
þvi að í okkar þjóðfélagi eru háir
vextir verðbólguhvetjandi. I því
sambandi get ég ekki stillt mig um
aö setja hér smáinnskot sem ég
heyrði frá hagfræðimenntuöum
manni fyrir nokkru, þegar þessi mál
bar á góma og hnýtt var í einn þeirra
hagfræðinga sem halda því fram að
háir vextir auki ekki verðbólgu
heldur eigi að draga úr henni. Þá
sagði þessi maður: „Þetta er alveg
rétt hjá manninum, þetta er hin
viðurkennda kenning. Það sem hann
tekur hins vegar ekki með í reikning-
inn er að í henni er miðað við
„normal” þjóðfélag, en það hefur ís-
lenska þjóðfélagiö ekki verið lengi og
mun ekki verða á næstunni og því
dugar kenningin ekki hér.” En nóg
um það. Kenningunni trúir vart
meira en tugur manna hérlendis
lengur.
Því er það að margir hafa talið
það eina af grundvallarforsendum
þess að draga úr verðbólgunni að
vextir séu lækkaðir og einnig nauð-
synlegt til að bæta kjör fólks sen.
skuldar, einkum húsbyggjenda. En
þá rekum við okkur á slæman
þröskuld.
Við erum nefnilega orðin svo
skuldum vafin erlendis að meirihluti
þess lánsf jármagns sem hér er í um-
ferð er raunverulega erlendur og af
því fjármagni eru háir raunvextir
hvað sem við viljum og segjum.
Jafnvel þótt viö vildum hafa litla
sem enga vexti af því f jármagni sem
raunverulega er innlent myndu
vextir samt sem áður verða háir
nema við tækjum erlend lán til að
greiða þá niður, og væri það vissu-
lega eftir margri annarri vitleys-
unni.
Það er í raun og veru orðið ákaf-
lega erfitt að greina á milli erlends
og innlends fjármagns í umferð. Til
gamans langar mig að minnast á
frétt sem ég heyrði í ríkisfjölmiðli
fyrir skömmu um að tiltekin raf-
magnsveita ætlaði að greiða upp er-
lendar skuldir sínar á þessu ári,
vegna góðrar afkomu. Nú er það svo
að vafalítiö mun viðkomandi raf-
veita greiða sínar skuldir og andar-
tak fannst mér ég sjá erlenda skulda-
baggann minnka. En — æ, þá rann
það upp fyrir mér að væntanlega
myndi viðkomandi rafveita ekki
senda dollarapoka í bankann heldur
bara íslenskar krónur.
Hvernig má snúa þróun-
inni við?
I raun og veru er svarið einfalt en
hins vegar ekki eins auðvelt í fram-
kvæmd. Aðeins eitt getur bjargað
okkur út úr þeim vítahring sem við
erum í. Það er stóraukin framleiðsla,
aukinn útflutningur. Og ekki nóg
með það. Þaö verður að vera umtals-
verð aukning umfram það sem við
eyðum.
Og þar lendum við í blindgötu. A
tímum fríverslunar og frjálsræðis
virðist óhugsandi að setja nokkrar
raunverulegar skorður við eyðslu og
innflutningi, hvað sem liður raun-
verulegum þörfum. Ekki nóg með
það að við viljum ekki rjúfa gerða
samninga og viljum forðast öll höft
og bönn, heldur mundi slíkt einfald-
lega kippa fótunum undan stórum
hluta útflutnings okkar. Við þurfum
því ekki að ræða þann möguleika.
Þá er að höföa til þjóöhollust-
1 unnar. Þið verðið að fyrirgefa þótt
ég segi að ég haldi að við getum
gleymt þeirri leið. Til þess eru nú-
tíma Islendingar einfaldlega ekki
nógu þjóðhollir.
Alls kyns nýjungar og byltingar
halda áfram að flæða yfir hin
vestrænu neysluþjóðfélög. Við
þurfum að gleypa þær allar strax og
helst í heilu lagi eins og mörg dæmi
sanna, og því hraðar sem minni þörf
er fyrir þær.
Þess vegna stöndum við frammi
fyrir þeirri óþægilegu staðreynd að
við megum ekki láta allt það sem
aflast kann með auknum útflutningi
vöru og þjónustu ganga til almenn-
ings í landinu, ekki fara út í neysluna,
því þá eykst skuldabagginn uns yfir
snarast á Skjónu. Það virðist því
miður vera eini raunhæfi möguleik-
inn til þess að halda í leifarnar af
efnahagslegu sjálfstæði að láta efna-
hagsbatann fyrst í stað renna í
áframhaldandi atvinnuuppbyggingu
en ekki til launþega, ekki i aukna
neyslu einstaklinga eða samfélags.
Mér er það ljóst að þetta er harður
dómur, ekki síst í augum þeirra sem
berjast í bökkum. En ef við höldum
i áfram á sömu braut kemur að því í
nálægri framtíð að erlendir lánar-
drottnar segja: Hingað og ekki
lengra. Þá verður sjálfgefið að
stöðva innflutning, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr. Þá
fyrst fá menn að kynnast efnahags-
þrengingum, því þá mun atvinnulíf
meira og minna lamast og útflutn-
ingur okkar Bjótlega stórlega
dragast saman. Þá geta menn hætt
að þrasa um vexti, því það verður
ekki lánað sem ekki er til. Og af því
verða ekki heldur greiddir skattar.
Magnús Bjarnfreðsson.
$ „Aðeins eitt getur bjargað okkur
út úr þeim vítahring sem við erum
í. Það er stóraukin framleiðsla, aukinn
útflutningur.”