Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1985, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR11. JOLI1985.
15
Lesendur Lesendur Lesendur
Gervihnattasjónvarp:
Póst- og símamálastjórnin lokar
„menningar”-lofthelginni
„Frjálst sjónvarp fyrir alla," segir sjónvarpsnotandi.
Sjónvarpsnotandi skrifar:
I frétt frá Póst- og símamálastjórn-
inni, sem birt var í flestum dagblöðum
nýlega, er vakin athygU á því að þeir
sem hyggjast taka á móti efni frá ECS
gervihnöttunum verði að fá til þess
sérstakt leyfi frá stofnuninni.
Auövitað þýöir þettajþaðeinfaldlega
að ekkert leyfi verður fáanlegt. Það
segir nefnilega ennfremur í þessari
frétt að hnettirnir séu í eigu samtaka,
sem nefnast Eutelsat og þess vegna
verði að sækja um „leyfi” til móttöku
efnis þess sem þeir senda út.
I fréttinni segir að samþykki sé háð
eiganda Eutelsat. En fyrr í fréttinni
segir að það sé háð leyfi frá Póst- og
simamálastjórn! — Hvor aöilinn er
það sem veitir leyfið? — Svo kemur
viðbótarklásúla frá Póst- og síma-
málastjórninni. Hún er um þaö að um-
sækjendur verði að afla sér heimildar
frá rétthöfum sjónvarpsefnisins tU
þess að geta tekið á móti efninu. —
Síðan verður hann að ábyrgjast að
greiða þau gjöld sem Eutelsat setur
upp fyrir móttöku. — Ekkert er minnst
á hvort greiða á svo Póst- og síma-
málastjórninni líka fyrir náðina,
leyfisveitinguna!
Sem sagt, hér virðist á ferðinni ein
tilraunin enn hjá hinu opinbera, með
Póst- og símamálastjóm sem blóra-
böggul, til þess aö hindra að Islending-
ar geti horft óhindraö á sjónvarpsefni
frá erlendum gervihnöttum.
Það hefur margsinnis komið fram að
i loftinu eru, eöa em að komast í gagn-
ið, gervihnettir sem sjónvarpa
skemmtiefni, öllum að kostnaðar-
lausu, því þeir afla tekna með aug-
lýsingum, auglýsingum, sem kannski
eiga ekki upp á pallborðið hjá hinu
opinbera, ef þær eru t.d. um vín eöa
tóbak!
Auðvitað bíða allir eftir því hér á
landi að hægt sé að ná skemmtiefni frá
þessum erlendu gervihnöttum, efni
sem verður öllum að kostnaðarlausu,
því þessum stöðvum er í mun að sem
flestir sjái dagskrána, sem er haldið
uppi af auglýsingum. Þetta verður líka
ofan á. En Póst- og símamálastjórnin
mun auðvitaö reyna að koma í veg
fyrir þessa nýbreytni.
Flestir þeir er nú hafa sjónvarp eru
búnir að kaupa sér videotæki, því
annars nýtist sjónvarpstækið
hreinlega ekki, vegna lélegrar dag-
skrár, jafnt hvort um er að ræða helga
eða rúmhelga daga. Það er því beðið
eftir hverju tækifæri sem býðst til að
notfæra sér hina erlendu gervihnetti
sem nú eru til taks.
Viðamiklar reglugerðir og fréttatil-
kynningar frá Pósti og síma munu ekki
geta hindrað okkur í að iná þessu
markmiöi. — Frjálst sjónvarp fyrir
alla.
ALLTTIL
PIPULAGNA
B.B. BYGGINGAVÖRUR HF
SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
r1
Málningarverktakar — utan-
hússmálning
Óskum eftir tilboöum í að mála utanhúss húseignir okkar
við Óseyrarbraut 5—7 og við Strandgötu (áður íshús
Hafnarfjarðar). Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Til-
boðum sé skilað fyrir 22. þ.m.
Sjólastöðin hf.
Óseyrarbraut 5—7
simi: 52170.
AEROBIC LEIKFIMI
KONUR - STÚLKUR
Sumarnámskeið í fullum gangi í allt sumar
Innifalið er aðgangur að þrektækjum.
Ljós og gufa á staðnum.
Orkubankinn
Vatnsstíg 11 — Sími 21720.
\
Unimog til sölu
Unimog til sölu með original húsi,
aflúrtaki fyrir gírspil,
lokuðu húsi að aftan, loftbremsum.
Bíll í fyrsta flokks ástandi.
Góðir greiðsluskilmálar.
Verð kr. 290.000,-
Staðgreitt kr. 260.000,-
V
V.
pÁLmn/on & vnuxon
Kiapparstíg 16.
Sími 27745 og 27113.
..... ^