Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 1
„Þetta er pólitískt mál”
— telur ástæðuna vera formennsku sína í Flokki mannsins
Júlíusi Kr. Valdimarssyni, fram-
kvæmdastjóra Vinnumálasambands
samvinnufélaganna, hefur veriö sagt
upp störfum.
Július sagöi í samtali viö DV aö
ástæöan fyrir uppsögninni væri for-
mennska hans í Flokki mannsins.
„Þetta er pólitískt mál,” sagði hann.
„Það er ekki nokkur fótur fyrir
því,” sagði Þorsteinn Ölafsson,
stjórnarformaöur Vinnumálasam-
bandsins og framkvæmdastjóri hjá
SÍS, þegar DV bar undir hann þessi
ummæli Júlíusar. „Júlíus hefur unn-
iö hjá okkur í tuttugu ár og honum er
frjálst aö sækja um aöra stööu hjá
sambandinu ef hann vill.” Þorsteinn
vildi ekki tjá sig um þetta mál aö
öðru leyti.
EA.
SPRENGJA
í HELGUVÍK
— verksamningur Núps nemur um 20 milljón kr.
„Viö erum hér að sprengja syllu
utan úr berginu," sagöi Baldur
Jónsson, sprengimaöur hjá Núp sf. 1
Helguvík hófust framkvæmdir í
síöustu viku á aökeyrsluleið á
hafnarsvæðinu.
Frá því var greint í DV í gær aö sex
verktakafyrirtæki hafi stofnaö eitt
samsteypufyrirtæki, Núp sf., til aö
vinna þarna undirbúningsvinnu. Er
þetta verk sem áætlað er aö taki þrjá
mánuöi. Verksamningur hljóöar upp
á tæpar 20 milljónir króna.
I gær voru tíu menn þama aö
störfum. Sprengimaðurinn Baldur
var í óöaönn að koma fyrir sprengi-
þráöum en annar haföi nýlokiö viö
borim í klettanna. Þarna voru stór-
virk vinnutæki, borvagnar, gröfur og
jarðýtur.
„Viö byrjuöum hér þriöjudaginn
2.júlí og komum þá fyrst tækjum á
staðinn,” sagði Ingi S. Guðmundsson
verkstjóri sem viö tókum tali þarna.
Sagöi hann að samsteypuhugmynd
verktakafyrirtækjanna sex, sem
stofnuðu Núp sf., heföi átt nokkum
aödraganda.
Núpur sf. er undirverktaki en
Islenskir aöalverktakar annast
heildarframkvæmdir í Helguvík.
-ÞG.
Er hinn mikli umframafli „slys”?
Þetta átti ekki
að geta gerst
— segir Kristján Ragnarsson
„Það er mín skoðun að þessi
mikli umframafli aö undanförnu
hafi ekki átt aö geta orðið, kvótinn
á aö sjá fyrir því. Enda held ég aö
menn séu aö átta sig á að þaö
gengur ekki aö veiða meira en hægt
eraðvinna.”
Þannig komst Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna,
aö oröi í gær þegar DV spuröi hann
hvort hann teldi þaö „slys” sem
gerst hefur hjá mörgum aö und-
anförnu aö þeir hafi veitt of mikiö.
Þeir boruðu og síðan voru holurnar fyíltar af dynamíti. Í Helguvik voru bormenn, mælingamenn og
sprengimenn að störfum í gær. Og siðan þá hafa nokkrar syllur sprungið i loft upp. Undirbúningur er
hafinn að hafnarmannvirkjum þarna og er verkið í höndum Núps sfnýstofnaðs verktakafyrirtækis.
-ÞG. DV-mynd Páll Kjartansson.
„Hér er bannað aó slást”
—sagði Vigdís Finnbogadóttir og bauð víkingana velkomna
„Hér er bannaö að slást og bannaö
aö kveikja eld, eins og hjá Njáli
forðum,” sagði Vigdís Finnboga-
dóttir þegar hún bauð rúmlega
hundraö danska víkinga í fullum her-
klæðum velkomna aö Bessastööum
síödegis i gær.
Þar var mikiö um dýröir enda ekki
Borgarstjóri Fredrikssund afhend-
ir forseta íslands sverð eitt mikið.
I m DV-mynd S.
á hverjum degi sem slíka gesti ber
aö garöi. Víkingarnir voru hressir og
kátir eins og sönnum víkingum ber
en eins og kunnugt er taka þeir þátt í
mikilli víkingahátíð á Laugarvatni
um helgina. Þeir komu beint frá
Keflavíkurflugvelli aö Bessastööum.
Þegar þangaö kom gengu þeir fylktu
liöi meö borgarstjóra Fredrikssund í
broddi fylkingar frá Bessastaða-
kirkju aö húsi forsetans. Næst
honum fór fjögurra manna lúöra-
sveit og þar á eftir víkingamir,
karlamir fyrst, konumar á eftir.
Enda sagði Vigdís í ræöu sinni:
„Aldrei hef ég séö samankomna eins
marga herramenn sem ganga á und-
an konunum.”
Borgarstjóri Fredrikssund talaði
næstur fyrir hönd víkinganna og
þakkaði boð forsetans og færöi Vig-
dísi aö gjöf hið fegursta víkinga-
sverö. -KÞ.
— sjá nánar á blaflsiðu 2.