Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR12. JULt 1985. Millisvæðamótið: SÓKOLOV MISSTI FORYSTUNA Frá Jóni L. Árnasyni, fréttaritara DV i Biel: Rafael Va'ganjan notaði aöeins klukkustund af umhugsunartíma sínum til þess að vinna Kínverjann Lí í 8. umferö millisvæðamótsins í Biel. Skákin var þó langt frá því að vera einstefna. I erfiðri stöðu greip Armeninn til þess ráös að fóma skiptamun og náði við það að treysta varnirnar. Kínverjinn lenti síðan í tímahraki og lék af sér heilum hrók. Þar með er Vaganjan orðinn einn efstur. Helsti keppinautur hans, sovéski stórmeistarinn Sókolov, tapaði fyrir Hollendingnum Van der Wiel, sem við það skaust upp í 2. sætið. Urslit8. umferðar: Lí—Vaganjan 0—1 Martin—Jansa 0—1 Quinteros—Gutman 1—0 Ljuboievié—Rodriguez 1—0 Seirawan—Margeir biðskák Sókolov-Van der Wiel 0—1 Pólúgaévskí—Short 1—0 Torre—Andersson jafnt Sax—Partos 1—0 Margeir tefldi Tarrasch-vörn að vanda en fékk leiðinlega stöðu, sat uppi með stakt peö á d5 og lítið mót- spil því mikil uppskipti urðu á mönnum. Rétt í lok setunnar tókst Seirawan að veiða af honum peðið en fékk þá í staðinn stakt peð á d- línunni. Þannig var staöan er skákin fór í biö. Hún fór síðan aftur í bið síðar í gærkvöldi og enn er Margeir peði undir. Skákin er hins vegar komin út í hróksendatafl og staða Margeirs langt frá því aö vera vonlaus. Hversu miklir jafnteflis- möguleikarnir eru skal ósagt látiö að svo stöddu. Mikil barátta var í skákunum í gær og ekki samið jafntefli fyrr en í fulla^ hnefana. Jansa vann Martin fremur auðveldlega og hefur Spánverjinn aðeins hlotið einn vinning á mótinu. Hann á í sannleika sagt ekki meira skilið, miðaö viö taflmennsku. Sigur Quinteros á Gutman voru kannski óvæntustu úrslitin, fyrsti sigur Argentínumannsins. Eftir hörmulegar ófarir í fyrstu umferðunum virtist hann alveg búinn að missa móðinn og búinn að snúa sér að því að eltast við pilsin hér í Biel. Þá tókst Sax loksins að vinna skák. Er skák Pólús og Short fór í bið sagði Arsjak Petrósjan, einn aðstoöarmanna Rússanna, að Pólú væri með hartnær tapaða stöðu. Short tefldi framhaldiö hins vegar illa og lék að lokum af sér skákinni. Ljuboievié færði sig upp móts- töfluna með laglegri fléttu. Hvítt: Lubomir Ljuboievié Svart: Amador Rodriguez Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. d3 Bg7 5. Be3 d6 6. Dd2 e6 7. Bg2 Da5 8. Rf3 Rd4 9. 0-0 Bd7 10. Bf4 Lokaða afbrigðið af Sikileyjarvörn er ekki teflt eins og venja er. Nú á svartur hiklaust aö leika 10. — e5 en hann velur drottningunni slæman reit. 10. - Db6? 11. Hb1 Hc8 12. He1 Re7 13. e5 Bc6 14. Re4 Bxe4 15. Hxe4Rxf3+ 16. Bxf3dxe57 Og nú var 16. — d5 betra. 17. Bxe5 Bxe5 18. Hxe5 0-0 19. h4 Rf5 20. c3 h5 21. Hbe1 Hfd8 22. a3 Dc7? abcdefgh 23. Bxh5I f6 Eftir 23. — gxh5 kemur 24. Hxf5! exf5 25. Dg5+ Kf8 (annars He7) 26. Df6! Kg8 27. He7 og vinnur drottn- ingu fyrir tvo hróka. Hvítur vinnur þá stöðu vegna þess hversu svarta kóngsstaðan er opin. 24. Hxf5l gxf5 25. Hxe6 Hd6 26. De2 Fyrir skiptamuninn hefur hvítur tvö peð og yfirburðastöðu. Ef nú 26. - Hxd6 þá 27. Dxd6+ Kg7 28. Dxf5 og staðan er ekki fögur hjá svörtum. 26. - Hcd8 27. He7 H8d7 28. Bf7+ Kf8 29. He8 +1 Kg7 Ef 29. - Kxf7 30. Dh5+ Kg7 31. Dh8+ Kg6 32. h5+ Kg5 33. Hg8+ og vinnur. 30. Hg8 +1 — og svartur gafst upp. Eftir 30. — Kxf7 31. De8 er hann mát. Og hér takast á fulltrúar hinna kommúnísku stórvelda. Hvítt: LíZunían Svart: Vaganjan Slavnesk vörn. 1. Rf3 Rf6 2. c4 c6 3. d4 d5 4. Rc3 Kínverjinn Li (t.h.) lék hrikalega af sór í sjöundu umferö millisvæða- mótsins i Biel. Eða sigraði sovésk hugmyndafræði þá kinversku? DV-mynd JLÁ. dxc4 5. a4 Bf5 6. Re5 Ra6 7. e3 e6 8. Bxc4 Rb4 9. 0-0 Be710. De2 0- 0 11. e4 Bg6 12. Hd1 c5 13. Rxg6 hxg614. d5 exd515. e5l Nú sýnist svartur í vanda því ef riddarinn víkur sér undan kemur 16. Rxd5 og hvítur á mun betra tafl. 15. — He8! Lúmskur varnarleikur. Ef 16. exf6 þá 16. - Bd6! 17. Dd2 dxc4 18. Dxd6 Dxd6 19. Hxd6 Hel mát. 16. Bb5 Bf8 Skiptamunsfórnin er þvinguð. Ekki 16. - Rd7? 17. Rxd5 með yfir- buröatafli. 17. Bxe8 Rxe8 18. e6 Rc7 19. exf7+ Kxf7 Sennilega hefur svartur næg færi fyrir skiptamuninn, peö og sterka miðborðsstöðu. 20. Bf4 Bd6? 21. Bxd6? Eftir skákina taldi Kínverjinn sjálfur að 21. Df3 hefði verið mun betra. Ef 21. — Kg8 þá 22. Rxd5 og hvítur vinnur að sögn Kínamannsins. Og ef 21. - Bxf4 þá 22. Dxf4+ Kg8 23. Re4 og staða hvíts er betri. 21. Dxd6 22. Re4 De7 23. Dg4 Gildran felst í innrás hróks til d7 ef hvítur drepur á e4 en síðustu leikir Kínverjans reynast tímaeyðsla. 23. - Ro6 24. Rc3 Hd8 25. Hac1 Betra er 25. Hd2 og síðan 26. Hel. 26. He1? 27. Rc3 He3?? Dxf2 + 28. Khl Dxe3 29. Hf1 + Kg8 — og Kínverjinn gafst aö vonum upp. Hrikalegurafleikur! Loks er hér biöstaðan í skák Margeirs og Seirawan. Seirawan hefur hvítt og lék biðleik. 8 7 ó 5 4 3 2 1 abcdefgh Biðskákin verður tefld áfram á laugardag. Staðan eftir átta umferð- irer þessi: 1. Vaganjan6,5 2. Van der Wiel 5,5 + biðskák 3. -4. Sókolov, Jansa 5,5 5. Seirawan 5 + biöskák 6. -7. Ljuboievié, Pólúgaévskí 5 8. Torre 4 + biðskák 9. -11. Andersson, Gutman, Short 4 12. Margeir Pétursson 3 + biðskák 13. LÍ3 14. Sax 2,5 15. Rodriguez 2 + biöskák 16. Partos 2 17. Quinteros 1,5 + biðskák 18. Martin 1 I dag teflir Margeir meö hvítu gegn Sax. Aðrir sem eigast við eru Martin-Rodriguez, Jansa-Lí, Vaganjan-Torre, Sókólov-Anders- son, Van der Wiel- Pólúgaévskí, Gutman-Ljuboievic, Paitos-Quinte- ros, Short-Seirawan. JLÁ/-IJ. Víkingar $ ‘ í fullum * her- klæðum Það var kátt í höllinni á Bessastöð- um síðdegis í gær. Þar voru saman- komnir rúmlega hundraö danskir vík- ingar í fullum skrúöa sem þar fóru með lúðrablæstri og söng... og hrópum þegar þeir hylltu forsetann. „Mér líöur vel í herklæðunum,” sagöi einn víkingurinn. „Þá fyrst líður mér sem sönnum karlmanni,” bætti hann við, barði sér á brjóst og heilsaöi konu sem stóð við dyrnar á húsi forset- ans. „Nú, er þetta ekki forsetinn?” spuröi hann þegar félagi hans hnippti í hann. En hann tók fljótt gleði sína á ný. I ávarpi sínu til víkinganna sagði Vigdís meðal annars: „Þótt nú sé kall- að: Hér koma víkingarnir, vekur það engan ótta. Eg sé að þið eruð allt sóma- fólk. Eg er líka viss um að víkingarnir voru hreint ekki eins slæmir og af er látið. Eg býð ykkur hjartanlega vel- komna.” Og víkingarnir sungu hátíöarsöng sinn fyrir forsetann. „Guðirnir hafa bænheyrt okkur þegar við báðum um gott veður,” sagði borgarstjórinn í Fredriksund, en hann hafði orö fyrir víkingunum. „Eg vil þakka þér fyrir að vilja fá okkur hingað,” bætti hann við og beindi orðum sínum til Vigdísar og færði henni sverð að gjöf í þakklætisskyni, en nokkir víkinganna báru það á þar til gerðum heiðursbörum. I kvöld hefst svo víkingahátíðin með prompi og prakt á Laugarvatni. Þar munu víkingarnir f æra upp leikinn umHagbarðogSignýju. -RÞ- Þessir fóru fyrir víkingasveitinni með lúðrablæstri. Á börunum var sverðið, sannkallað vikingasverð. Vigdis heilsar einum vikinganna. Til vinstri er Elisabet Knútsdóttir Kristj- énssonar 10., Danaprinsessa. DV-myndir S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.