Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1985, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR14. SEPTEMBER1985.
i
sem nær aö þessu sinni alla leiö yfir
ána sem betur fer, er tekið á móti
okkur með kostum og kynjum og
annar aðaleigandi bústaðarins er
ekki fyrr búinn að gefa mér kaffi en
hann spyr hvort ég sé ekki svona
sæmilega á mig kominn líkamlega.
Vegna þess að áöumefndur eigandi
er sérfræðingur í sálarástandi fólks
finnst mér spumingin dálítið grun-
samleg og mér dettur í fyrstu í hug
að hann ætli annaðhvort að skora á
mig í maraþonhlaup eða hástökk og
þess vegna tek ég það til bragðs að
svara eins og ráðherra sem ætlaði að
segja af sér embætti ef skuldir færu
yfir ákveðið mark.
— Ég var svona sæmilega vel á
mig kominn líkamlega fjTir tuttugu
árum, segi ég, — en satt að segja veit
ég því miður ekki hvort mér hefur
farið fram eða aftur í líkamlegu at-
gervi þaðan í frá.
Þetta fannst mér gott svar þangað
til sumarbústaðaeigandinn tilkynnti
mér að hann þyrfti að koma niðþung-
um skápi upp á ef ri hæðina í bústaön-
um og þar sem ég væri svona hraust-
ur bauöst hann til að taka undir létt-
ari endann á skápnum og þar að auki
lofaði hann mér því að ef skápf jand-
inn dytti í hausinn á einhverjum yrði
þaö ekki í hausinn á sér því að hann
ætlaöi að vera fyrir ofan og stjórna
ferðinni.
Mér fannst þetta satt að segja ekki
góð tillaga en þegar maöur er í heim-
sókn hjá fólki sem er óskaplega fegið
aö sjá mann og gefur manni kaffi og
með því er svo sem ekki margra
kosta völ.
Þriðji kafli
Ég er ekki viss um að það hefði geng-
ið jafnvel og raun bar vitni að koma
skápfjandanum upp á efri hæðina ef viö
heföum ekki átt von á griilveislu að
verki loknu.
Að vísu þurftum viö að byrja á því
að víkka uppgönguna með því aö
saga svolítiö af pallinum sem hávax-
ið fólk rak hvirfilinn í á leiðinni upp á
efri hæðina en ennið í á niðurleiðinni.
Þetta gekk alveg prýðilega þangað
til kom að því að saga í sundur sex
tommu naglana sem voru tveir og
svo vandlega huldir sjónum manna
að þeir komu ekki í ljós fyrr en sögin
var orðin jafnbitlaus og stjómarand-
staðan að mati þeirra sem eru í and-
stöðu við hana.
Þegar búiö var að saga seinni
naglann í sundur og úrskuröa sögina
óhæfa til annars en að smyrja með
henni brauð tók sérfræðingurinn í
sálarháska undir sinn enda og ég
undir hinn og í sameiningu klöngruð-
umst við með skápinn eins langt upp
og hægt var að komast og að því
búnu vorum við eins og kappamir í
Islendingasögunum, ákaflega móðir
en lítt sárir, og þakkaði ég guði fyrir
aö þessu skyldi ekki vera öfugt farið.
Fjórði kafli
Að verki loknu fórum við út á ver-
önd í grillveisluna og borðuðum
mikið af lauki vegna þess að hann er
svo góður við hálsbólgu og drukkum
talsvert af rauðvíni af því aö það er
svo gott við blóðleysi, held ég. Að vísu
þjáöumst við hvorki af hálsbólgu né
blóðleysi en allur er varinn góður
eins og stundum er sagt.
— Nú er komið að því að tína kal-
kvisti, sagöi sérfræðingurinn í sálar-
háska þegar hann var búinn með
laukinn og rauðvínið.
Eins og allir vita eru kalkvistir
dauð tré sem sýnast vera lifandi
þangað til komiö er mjög nálægt
þeim og því fannst mér þetta heilla-
ráð í fyrstu. En þegar við vorum
komnir út á lóðina, annar okkar á
sundskýlu og hinn í úlpunni sinni, fór
mesti glansinn af kaikvistatínslunnL
Og þótt ég sé kannski enginn sérstak-
ur friöunarsinni myndi ég styðja
grínpissamtökin heils hugar ef
þeirra næsta verk yrði að friða kal-
kvistina í Grímsnesinu.
Jafnvel þótt þau létu sér nægja að
friða aðeins helminginn.
Kveðja
Ben. Ax.
Frá helgarskákmótinu á Hólmavík. Benóný Benediktsson (t.h.), sem
Ihlaut öldungaverfllaun, á hér í höggi vifl Akureyringinn Pálma
Pétursson.
Benóný Benediktsson. Aukaverðlaun
fyrir besta frammistöðu í síðustu
fimm helgarmótum hreppti Haukur
Angantýsson, eftir haröa keppni við
Sævar og Karl Þorsteins. Karl hafði
yfirburöatafl í síðustu umferð gegn
Halldóri G. Einarssyni og með jafn-
tefli hefði hann náð aukaverðlaunun-
um, 40 þúsund krónum. En hann vildi
meira, lék af sér manni og tapaði
skákinni.
tJrslitaskák mótsins gekk þannig:
Hvítt: Jón L. Áraason
Svart: Sævar Bjaraason
Frönsk vöra.
1. e4 e6 2 d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5 Rfd7
5. c3 c5 6. Bd3 Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4
f6 9. Rfl?
Leiðir til meiri sviptinga en 9. exf6
Rxf610.0—0 Bd611. Rf3 o.s.frv., sem
er tiskuafbrigöi frönsku varnarinnar
þessa dagana.
9. —Rxd410. Dh5+ Ke711. exf6+
Nákvæmara en 11. Rg6+ hxg6 12.
exf6+ Kxf6! en þannig tefldist skák
Guðmundar Sigurjónssonar og Jó-
hanns Hjartarsonar á alþjóðlega
skákmótinu í Vestmannaeyjum.
11. —Rxf6 12. Rg6+ hxg6 13. Dxh8
Kf714. f4!?
Guðmundur fór líkt að í skákinni
við Jóhann. Við litum á þetta fyrir
ólympíuskákmótið í Grikklandi í
fyrra. Eftir 14.0—0 e5 má svartur vel
við una með peð og sterka miðborðs-
stöðu fyrir skiptamun. Með texta-
leiknum nær hvítur betri tökum á
miðborðinu.
14.—Db615.0-A!
abcdefgh
Á þessu byggist hugmyndin, því að
hvítur væri ekki öfundsverður af
stöðunni ef hann gæti ekki hrókað.
Það er alltof hættulegt fyrir svartan
að taka hrókinn: 15. —Rb3+ 16. Khl
Rxal 17. Rf3 og hvítur nær myljandi
sókn.
15. —Rf3+ 16. Khl Rxd2 17. Bxd2
Dd4?
Or öskunni i eldinn. Eftir 17. —
Dxb2 er 18. Hadl Bd7 19. Be3 ásamt
Bd4 sterkt eða jafnvel 18. Bxg6+!
Kxg6 19. Dxf8 Dxd2 20. Hf3 Re4 21.
Hafl með sterkri sóknarstöðu.
18. Hf3 Re4
Ekki 18. —Dxb2? 19. Bc3!
19. Bc3Db6
Eða 19. —Rf2+ 20. Hxf2 Dxd3 (20.
—Dxf2 21. Dh7 og vinnur) 21. Hcl og
siöan Bxg7 með vinningsstööu. Ef 21.
—d4? þá 22. Hd2 og 21. -De3 22. Hffl
d4 23. Hcel Dd3 24. Hdl gengur held-
urekki.
20. Bxe4 dxe4 21. Hh3 e5 22. Hh7 g5
Eina leiöin til að valda g-peðið.
23. Bxe5 Dg6 24. Hcl Bd7 25. Hc7 Hd8
— Og svartur gafst upp um leið
vegna 26. Hxg7+ Bxg7 27. Dxd8 og
vinnur. jlá.
mætum vel. Nýir félagar sérstaklega
velkomnir. Spilamennskan hefst kl.
19.30 stundvíslega.
Bridgedeild
Rangæingafélagsins
Halló, halló. Bridgedeild Rangæ-
ingafélagsins í Reykjavík kallar.
Byrjum að spila 25. september 1985
kl. 19.30 5 kvölda tvímenning.
Höfum flutt okkur í Armúla 40 í mjög
glæsilegan sal. Látið skrá ykkur í sima
30481 Sigurleifur, 74095 Svanfriður,
34441 Ingólfur. Spilarar, sem eiga
verðlaun frá síðasta keppnistímabih,
eru vinsamlegast beönir að koma og
taka á móti verðlaunum og mæta tim-
anlega.
Bridgefélag Reykjavíkur
Starfsemi BR hefst aftur að nýju
næsta miövikudag, 18. sept. Fyrsta
kvöldið verður spilaður eins kvölds tví-
menningur. Nýkjörin stjórn félagsins
tók þá ákvörðun aö flytja starfsemina í
Hreyfilshúsið og verður spilaö þar í
vetur á miðvikudögum eins og venja
er. Spilamennska hefst kl. 19.30.
Dagskrá til jóla er ekki endanlega
ákveðin en næst veröur spilaöur 2ja
kvölda hausttvímenningur og því næst
aðalsveitakeppnin.
Aðalfundur BR var haldinn 28. ágúst
’85 að Hótel Esju. Félagsmenn sýndu
félagsstarfinu heldur lítinn áhuga og
var fámennt á fundinum. Á dagskrá
voru venjuleg aöalfundarstörf.
Stjóm BR fyrir næsta starfsár er
þannig skipuð:
Formaður: SigurðurB. Þorsteinsson.
Varaformaður: Hermann Lárusson.
Ritari: Jakob R. Möller.
Gjaldkeri: Hallgrímur Hallgrímsson.
Fjármálaritari: Sigurður Sverrisson.
Fulltrúi í Reykjavíkursambandið:
Olafur Lárusson.
Fulltrúar á ársþing: BSI:
Hjalti Elíasson,
Hermann Lárusson,
KristjánBlöndal,
Sigmundur Stef ánsson,
tilvara: JakobR. Möller.
Bridgefélag
Breiðholts
Fyrsta spilakvöld haustsins verður í
Gerðubergi þriðjudaginn 17.
september kl. 19.30. Þá verður spilaður
1. kvölds tvímenningur. Aðalfundur
félagsins verður haldinn sunnudaginn
22. september kl. 14.00 í Gerðubergi.
Þriðjudaginn 24. september hefst
þrigg ja kvölda hausttvímenningur.
Stjómin.
Sumarkeppni Skagfirðinga
Síðasta spilakvöld í sumarkeppni
Skagfirðinga í Reykjavík var sl.
þriðjudag. Þá mættu til leiks 38 pör og
var spilað i 3 riðlum. Orslit urðu þessi
(efstupör):
1)
GuðniKolbeinss.-MagnúsTorfas. 195
Lovísa Eyþórsd.-Vigdís Guðjónsd. 192
Anton R. Gunnarss.-Friðjón Þórhallss. 185
Eyjólfur Magnúss.-Guðm. Kr. Sigurðss. 183
B)
Arnar Ingólfss.-Magnús Eymundss. 189
Jakob Ragnarss.-Jón Steinar Ingólfss. 188
Hildur Helgad.-Karólina Sveinsd. 173
Hrannar Þ. Erlingss.-Matthias Þorvaldss. 163
C)
Steingrímur Jónass. ÞorfinnurKarlss. 127
Andrés Þórarinss.-Hjálmar S. Pálss. 126
Elísabet Jónsd.-Leifur Jóhanness. 114
Friðrik Jónss.+uðjón Jónss. 112
Og eins og fram hefur komið varð
Anton R. Gunnarsson efstur að stigum
í sumarkeppni Skagfirðinga.
Á þriðjudaginn kemur hefst svo
barometer-tvímenningskeppni hjá
félaginu. Þegar eru 29 pör skráð til
leiks en hámarksþátttaka verður 36
pör. Enn er því hægt að bæta við
pörum. Þeir sem áhuga hafa geta haft
samband við Olaf Lárusson (18350—
16538, heima) eða Sigmar Jónsson
(687070).
11
ekinn 58.000 km, rauður, sportfelgur, sóllúga o.fl., 5gíra.
Einn sá fallegasti í bænum.
Verð kr. 460.000,-, skipti á ódýrari.
Opið
iaugardag
kl. 10-19.
BÍLASALAN BUK
Skeifunn/8 S/m/ 68-64-77.