Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 1
DAGBLAÐIÐ —VÍSIR 248. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1985. — Sovéski utanríkisráðherrann kom til landsins í morgun: SEVARDNADZE VAR KALT VID KOMUNA „Það er kalt,” sagði Edvard Sévardnadze, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna, við blaðamann DV við komu sína til Keflavíkurflugvallar í gær. Á móti ráðherranum tók Evgení Kos- arev sendiherra sem þarna hitti þenn- an yfirmann sinn í fyrsta sinn. Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra fagn- aði Sévardnadze þegar hann sté af flugvélastiganum. Þeir keyrðu svo í sama bíl mót morgunroðanum í austri til Reykjavíkur. „Við munum ræða almennt um al- þjóðamál og ef til vill um samskipti þjóðanna tveggja ef slíkt ber á góma,” sagði Geir Hallgrímsson viö DV. „Þetta eru óformlegar viðræður.” Viðkoma sovéska utanríkisráðherr- ans er skyndiheimsókn sem Sovét- menn stungu upp á. Edvard Sév- ardnadze kom á fjögurra hreyfla Iljúshin-62M þotu. Hann átti að ræða við Geir Hall- grímsson í ráðherrabústaðnum til klukkan 9.35, en þá hugðist sovéski ut- anríkisráðherrann halda 10 minútna fréttamannafund. Áætlað flugtak var svo klukkan 10.30. Edvard Sévardnadze kemur frá Kúbu þar sem hann heilsaði upp á Kastro Kúbuleiðtoga. Áður hélt hann ræðu á þingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar þótti mönnum til koma aö hann bauð að Sovétmenn væru reiðubúnir til aö gangast undir eftirlit með því að þeir héldu hugsanlega vopnatakmörkunarsamninga. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem Sévardnadze stígur fæti á hervöll NATO. -ÞóG Édvard Sévardnadze og Geir Hallgrímsson ganga að bílum sínum. Svo keyrðu þeir í 10 bíla lest mót roðan- um 1 austri til Reykjavíkur. Á innfelldu myndinni eru Geir og Halldór Asgrímsson að ræða við sovéska ut anríkisráðherrann. DV-mynd GVA. "nSbragð? 1 Þrumuskot sparifjár- F m ■ m Ffmme ^EJ a atvmnulim „Á því er enginn vafi að með þessu er ríkissjóður að yfirbjóða atvinnulífið á sparifjármarkaðnum og að þessi ráð- stöfun heldur vöxtunum uppi meðan hún er í gildi,” segir Pétur Blöndal, forstjóri Kaupþings hf., um sölu spari- skírteina rikissjóðs með afföllum. Skírteini með bindingu til þriggja ára eru nú um óákveöinn tíma til sölu með verðtryggingu og 9,23% ávöxtun. Nafnvextir eru 7% en sölugengi 94 af 100. Bankatryggð verðbréf fyrirtækja voru til sölu með 10% ávöxtun, en hana verður nú að hækka þar sem reikna verður með 1% í eignarskatt. Pétur Blöndal segir að daginn fyrir þessa vaxtahækkun ríkissjóðs hafi vextir á almennum verðbréfum verið lækkaöir um 2%. Á bréfum einstakl- inga er nú 14—16% ávöxtun en bréfum fyrirtækja 13—15%. Hann taldi ekki líklegt að þessir vextir hækkuðu aftur nema ríkissjóður drægi til sín þeim mun meira fé úr tilboði sínu. „tJt af fyrir sig fagna ég því að ríkis- sjóður tekur aukinn þátt í markaðn- um,” segir Pétur, „en ég álít að rfldð heföi getað náö sama árangri með því að fylgjast betur með því sem er að gerast og kynna á auðskiljanlegri hátt kosti spariskírteinanna. Þetta tilboð hefur vissulega þá þróun að vextir fari lækkandi með vaxandi sparnaði og þaö kemur fyrst og fremst við atvinnulíf- ið.” Pétur bendir á að fyrir aöeins hálfu öðru ári hafi ávöxtun á verðbréfa- markaönum verið nærri helmingi lægri en í dag og þá verið nær því sem eðlilegt væri. Að undanfömu hafi aukið peningaframboð gefið vonir um að stefndi á ný í eölilegra horf. Skyndiráö- stöfun ríkissjóðs setji óhjákvæmilega strik í reikninginn standi hún lengur en nokkra daga. HERB Tippaðátólf ^^-sjábls.4 Varárekstur herskipanna afásetningi? — sjá bls.8 • Ríkiö leigir ónothæfthús- næöifyrir Bifreiöa- eftirlitiö — sjá bls. 2 • Hvareru þingmenn Framsóknar flokksins? — sjá bls. 14 Rínarvíniö flaut íElliöavog — sjá bls.ll Kolbeinsey boöinupp ámorgun -sjábls.5 Kampavíniö flýturíLondon — sjá bls. 10 Stöövunar- skyldaúr öllumáttum? — sjá bls. 2 • Kolsýru- verksmiöja í tengslum viö Sjóefna- vinnsluna - sjá bls. 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.