Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985. — Ríkið leigir ónothæft húsnæði fyrir Bif reiðaeft irlit ið: Eg hef ekkert haft með húsið að gera Rflúð hefur leigt stórt og mikiö hús í nafni Bifreiðaeftirlitsins og gert leigusamning um það til ársins 1995. En þótt rfldð hafi peninga til að borga leiguna eru engir peningar til að ganga svo frá húsinu að það sé nothæft. „Eg hef ekkert með þessa skemmu haft að gera. Við höfum enga aöstöðu í henni og ég sé ekki að það verði í bráð,” sagði Guðni Karlsson, for- stööumaöur Bifreiöaeftirlitsins, segir f orstöðumaður Bif reiðaef tirlitsins þegar hann var spuröur um hús þetta sem ríkið hefur leigt af Páli G. Jónssyni í Pólaris. Húsiö er við Bílds- höföa handan við Bifreiöaeftirlitið. Olafur Walter Stefánsson, skrif- stofustjóri í dómsmálaráöuneytinu, sagði DV að undanfarin ár hefðu tæknimenn verið sendir til útlanda til að skoða og fylgjast með bifreiða- eftirlitum erlendis. „Þaö hafa verið lagöar fram tillögur um hvernig eigi aö innrétta nýja húsiö þannig að bifreiðaskoðun geti farið þar fram. En þaö eru ekki til peningar til að ganga frá húsinu,” sagöi Olafur Walter. „Við höfum nóga þekkingu til aö koma upp fullkomnu bifreiöaeftirliti. Þaö vantar aðeins húsnæði. Erlendis telja menn það arðbært og góöa fjár- festingu að byggja upp gott og fullkomiö bifreiöaeftirlit. Þau eru mikilvægur þáttur og spara víöa,” sagöi Guöni Karlsson. „Jú, þaö hljóta allir aö sjá að þaö er dýrt að leigja hús sem ekki er hægt að nota fyrir það verkefni sem það var leigt til,” sagði Olafur Walter. Þess má að lokum geta að DV hefur frétt að þetta húsnæöi Bifreiða- eftirlitsins, sem hefur verið leigt til 1995, sé nú notað sem geymslu- húsnæði fyrir gömul leiksvið Þjóöleikhússins. -SOS Hér é myndinni sést skemman sem er leigfl i nafni Bifreiðaeftirlitsins. Í baksýn má sjá núverandi húsnœði Bifreiflaeftirlitsins sem er ófullnœgjandi. DV-mynd: GVA Ferskf isksölur erlendis: íslenskur karfi full- unninn i Þýskalandi — og síðan seldur til Ameríku ,^Eg veit um dæmi þess að karfi hafi veriö seldur á markaöi í Þýska- landi og hafi síöan veriö unninn í blokkir og seldur til Ameríku. Þetta gerist á sama tima og karfablokkir vantar héðan á Bandaríkjamarkað,” sagöi Sighvatur Björgvinsson, Alþýðuflokki, en hann hefur, ásamt Helga Seljan, lagt fram ítarlegar fyrirspumir um gámaútflutning á ferskum fiski og sölur skipa erlendis. Þeir spyrja m.a. hvort veittar séu heimildir til sölu á ferskum fiski til útlanda þó að hráefnisskortur sé í heimahöfn viðkomandi fiskiskips. Þeir vilja einnig fá að vita hversu mikið hafi verið flutt út af ferskum fiski á þessu ári og hvaöa skip hafi seltmest. „Hitt er svo annað mál hvemig hægt er að selja ferskan fisk erlendis á þreföldu verði miöaö við verð hér, fullvinna hann og selja síðan á lægra verði en við fáum í Bandaríkjunum,” sagði Sighvatur sem vill vekja upp umræöu um þessi mál. „Islenskur sjómaöur, sem vill selja fiskinn sinn hér á landi, verður í raun að afsala sér tveimur þriðju hlutum launa sinna því hann fær allt að þrefalt verð erlendis. Þaö verður að ræða þessi mál. Eg held að við séum að komast á sviö þróunarlandanna þegar við emm byrjaðir að flytja út óunnar afurðir okkar,” sagði Sighvatur. APH Ný umferðarregla ívesturbænum samþykkt í dag? Allir bílar nemi staðaráðuren ekið er yf ir gatnamótin Fyrir umferðarnefnd Reykjavíkur liggur tillaga frá Katrínu Fjeldsted um að á gatnamótum Furumels og Haga- mels við Melaskóla veröi stöðvunar- skylda úr öllum áttum. Búist er viö að á fundi umferðarnefndar í dag verði samþykkt að reyna þetta fyrirkomulag. Gatnamót með stöðvunarskyldu allra bíla, sem aö koma, eru algeng í Bandaríkjunum. Þar gildir sú regla aö þegar fleiri en einn koma aö gatna- mótunum á sá sem fyrstur kom að þeim að halda fyrst af stað yfir gatna- mótin. Enginn hefur rétt til aö aka yfir án þess að nema staöar áöur. Hugsanlegt er að hægri réttur verði látinn ráöa hver ekur fyrst af stað. Umferðarnefnd hefur leitað álits lög- reglustjóra. Niðurstaða hans er sú aö ekkert sé því til fyrirstööu í lögum aö stöövunarskylda veröi sett á allar áttir. Við Melaskóla er nú stöðvunar- skylda við Furumel gagnvart Haga- mel. Til að draga enn úr umferðar- hraöa við skólann stendur umferðar- nefnd fyrir því vali að fjölga upphækkunum við gatnamótin eða setjaástöðvunarskylduallra. -KMU. Alþjóðafriðar- musteri á Þingvöllum Pétur Sigurgeirsson biskup hefur gert að tillögu sinni að byggð veröi kristnitökukirkja á Þingvöllum er veröi sérstakt musteri fyrirbæna um friö á jörðu fyrir allar þjóðir. Þessi tillaga er ein af.þeim tillögum sem kristnitökunefnd hefur lagt fram um undirbúning aö tilhögun hátíöahald- anna á Þingvöllum áriö 2000. „Þingvellir eru ekki aðeins staður einnar þjóðar, heldur er hann heilög jörð, með tilliti til þess að þjóðin hefur lifað í 1000 ár frá kristnitöku án vopna- veldis og unnið sína stærstu sigra án vopna. Þetta musteri ætti að verða staður þar sem bæöi útlendingar og Islendingar geta beðið fyrir friöi á jörð. Þjóð án vopna alla sína sögu hefur sérstöðu hvaö varðar baráttuna fyrir friði,” sagði Pétur Sigurgeirsson, biskup Islands, í samtali við DV. — Hafa komið upp hugmyndir um hvar á Þingvöllum musterið ætti að vera? „Ekki er búið að hugsa um hvar musterið gæti veriö en sú staðsetning verður að sjálfsögðu valin með hliösjón af heildarskipulagi Þingvalla- svæðisins,” sagöi biskup Islands. „Það verður að vanda til þessa musteris alveg sérstaklega ogekkier ráð nema i tima sé tekið,” sagði biskup Islands að lokum. kb KOLSÝRUVERKSMIÐIA REIST A NÆSTA ÁRI Rekstur Sjóefna- vinnsl- unnar: Samkvæmt tillögum stjómar Sjó- efnavinnslunnar á Reykjanesi verður lokið við að reisa 8000 tonna saltverksmiöju og einnig 1560 tonna kolsýruverksmiðjú í tengslum við Sjóefnavinnsluna. Byggingartími er áætlaður 1 ár og viðbótarfjárfesting samfara þessu er áætluö 63 milljónir. Samkvæmt markaösrannsóknum er talið að þessi viðbótarfjárfesting muni nc\to rHM '1 H ■ i föstu verðlagi. Þessar upplýsingar komu fram í svari Alberts Guömunds- sonar iðnaðarráherra við fyrirspurn Kjartans Jóhannssonar um rekstur Sjóefnavinnslunnar. I svari ráöherrans kom fram aö helsti markaður fyrir kolsýru væri í sambandi við notkun hennar í gróður- húsum. Samstarf hefur tekist við Félag garðyrkjubænda og Garðyrkju- r^ificinq nrn ?»?S VynT?° n^tínffU Off hagkvæmni þess aö auka kolsýruinnihald í gróðurhúsum. Ráðherra lagði áherslu á að fram færi tilraunastarfsemi í Sjóefna- vinnslunni. Akveðiö hefur verið aö nota hana sem vettvang rannsókna á nýtingu háhita og sölu á gufu til stór- notenda og hefur verið veittur styrkur til þess sem nemur 3 milljónum. Einnig er unnið aö því að kanna hag- verksmiðju á Reykjanesi. Það kom einnig fram að allt salt sem verksmiðjan hefur framleitt hefur selst, aðallega til síldarsöltunar. Framleiöslan hefur verið um 6 til 8 tonn á sólarhring. „Kostnaöur fyrirtækisins umfram tekjur, sem flokka má undir rannsóknir, viðhald og gæslukostnað, nemur nú að meðaltali um 1,6 mOl*Amirr* 6 f-v--' or ,* stöðva núverandi fyrirkomulag og koma á hagkvæmu rekstrarfyrir- komulagi,” sagði ráðherrann m.a. Áætlað er að afla fjármagns vegna kostnaðar kolsýru- og saltverksmiðju með því að auka hlutafé og með lán- veitingum fjár úr endurlánareikningi ríkissjóðs. Bólrfærðar skuldir Sjóefnavinnslunn- ar voru í ágúst rúmar 284 milljónir og •:■'.'•••' »|»H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.