Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 4
4
DV. MIÐVKUDAGUE 30. OKTOBER1985.
Tippaðátólf rétta
Tippaðá tótf rétta
Tippaðátólf rétta
U-RAÐA KERFIA UTOPNU
Aö þessu sinni tek ég fyrir svo-
kallaö U-raða kerfi. (Utgangsraöa-
kerfi) U-raöa kerfi er kerfi þar sem
tipparinn velur eitt merki sem for-
gangsmerki á leikina. Þetta merki
getur verið 1, X eða 2, allt eftir því
hvaö er liklegast. Svona kerfi spara
mikinn pening. Kerfiö, sem ég nota
núna, er U 6—3—640. Þaö þýðir að
sex leikir eru meö U-merki, þrir
leikir meö tveimur merkjum og aö
kerfið er 640 raöir. Ef notaö væri eins
kerfi, sem alltaf gæfi tólf rétta, þyrfti
5832 raðir þannig aö U 6—3—640
sparar 5192 raöir, en gefur þó góöa
möguleika á tólf réttum. Einungis
eru notaðir 16 raða seðlar sem eru
gulir. Þetta kerfi er hægt aö stækka
eftir þörfum og er þá notuð einföld
margföldun. Ef bætt er viö þrítrygg-
ingu veröur kerfiö U 7—3—1920 en ef
bætt er viö tvítryggingu veröur
kerfiö U 6—4—1280. Svona er hægt aö
leika sér meö kerfi, að stækka þau og
minnka. En svona lítur kerfiö út hér
tilhægri.
Þaö fyrsta, sem tippari þarf aö
gera, er aö festa þrjá leiki eins á alla
40 seðlana. Því næst eru þrír leikir
teknir meö tveimur merkjum. Best
aö fara eftir töflunni en þar eru tví-
tryggöu leikirnir neöstir. Leikina má
hafa lx, 12 eða X2. Þá eru eftir sex
leikir. Sett er eitt merki á hvem fyrir
sig. Ef sett er einn á leikinn þá eru
merkin látin standa sem eru á töfl-
unni en ef haft er X þá er X sett alls
staöar þar sem 1 er og 12 í stað X2.
Þannig er fariö með alla leikina.
Líkur á 11 réttum eru mjög góöar
og líkur á 12 réttum töluverðar. Alit
fer þetta þó eftir því hvað tipparinn
er snjaU aö finna út U-merkin og svo
auövitaö föstu»leikina. Hér fylgir
tafla sem segir um líkur á 11 og 12
réttum ef rétt er spáö um U-merki:
Rétt U-merki 12 11 10 Líkur
5 — 20 Alltaf
4 — 4 20 Alltaf
3 1 4 13 1-2
3 — 2 20 1-2
2 — 2 12 Ailtaf
1 — — 5 Alitaf
Þessi tafla sýnir aö ef tippari er
meö föstu leikina og þá tvítryggðu
rétta þá eru 50% Ukur á 12 réttum ef
3 U-merki af sex eru rétt.
Og þá er aö drífa sig út á næsta get-
raunasölustað, kaupa seðla og tippa
á 12.
Stórsala á
getraunaseðlum
Um síöustu helgi jókst sala á get-
raunaseölum enn einu sinni og seld-
ust aö þessu sinni 769.688 raöir sem
gefa 1.443.165 krónur í pottinn. Þar
af fóru í 1. vinning 1.010.215 krónur
en 432.959 krónur í 2. vinning. Að
þessu sinni voru úrslit frekar snúin
enda komu ekki fram nema 10 raöir
meö 11 réttar lausnir og hlaut hver
röð 101.020 krónur. I 2. vinning
komu fram 148 réttar lausnir og
hlýtur hver röð 2925 krónur.
Þetta er í fyrsta skípti í vetur aö
ekki finnst röð með 12 réttum
lausnum.
X. 2 3 f *-r 5 6 7 8 9 lö 11 12 13 i 4 15 16 : 7 18 19 20
1 X i. : i i .*. X X -L X X 1 i
X2 A 2 ,X 2 X X2 X 2 X 2 X 1 X2 X2 X 2 i i. X2 X2 X 2 1 1
X2 X2 i X 2 X X2 1 1 X2 X2 X2 X . i X2 X2 X 2 X 2 X X 2 i
•_ i X2 X 2 X 2 X2 X2 1 X2 X 2 X 2 X2 i i X X2 X 2 X 2
X2 i .i. X 2 X 2 X X2 X2 x X2 X X2 X 2 i X 2 X 2 X X X2 X2
-í. X 2 >'2 i X2 X X X 2 X 2 X2 J. i. X2 X2 X 2 X X 2 X 2 i X2
i X -L i X ± > X X X X X X X X X A X X
L i 1 ± X X X X X i 1 X i _L X X X X X
IX 1X IX IX IX IX IX IX :x X X IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX
21 2 2 23 24 2 5 2 6 27 2 o 29 3 0 .31 32 3 3 3 4 35 36 37 38 39 40
X2 X2 X 2 X 2 X 2 X2 X2 X2 *X 2 X 2 X2 X 2 X2 X 2 X 2 X 2 X 2 X2 X2 X2
X2 X2 i L. X2 X2 X i i X2 X 2 i. X i X2 X2 X I i
I 1 X 2 X 2 i X2 X 2 1 1 X 2 X X2 1 1 X i X2 X 2 i
X2 ]_ X2 X i. X X2 X2 X i X X2 X2 X2 i X2 1 1
X X2 i. j_ X2 X i X2 X2 X i 1 X2 X 2 i 1. X 2 ’l 1 X2
1 i. i X2 X2 i X2 i i X 2 i X2 1 1 X2 1 X X X 2 X2
-L i 'i X -L X 7 X 1 X i. i 1 X X X X X X X X X X X
i i i X 1 X X X X X i i i L i X X X X X
IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX
Óvænt úrslit á
erfiðum völlum
Nú eru knattspymuvellir í Bret-
landi farnir aö þyngjast og þau liö,
sem ekki spila „góöa” knattspyrnu,
hagnast á því. Ovænt úrslit koma oft-
ar upp, samanber síöustu helgi er
ekki stóð steinn yfir steini í sam-
bandi viö úrslit í leikjum ensku liö-
anna. Um næstu helgi eru sex leikir
úr 1. deildinni ensku og sex leikir úr
2. deildinni.
Arsenal—Manch.C 1
Luton-Birmingham 1
Newcastle—Watford x
QPR-Sheff. Wed. 1
Southampton—Tottenham x
West Ham—Everton 1
Barnsley—Oldham x
Brighton—Norwich 1
Fulham—Sunderland 1
Leeds—Portsmouth x
Middlesbro—Blackuburn
Stoke—Huddersfield
Lið Arsenal hefur ekki leikið sann-
færandi undanfariö þó aö sigrar hafi
marist. Nú sigrar Arsenal liö
Manchester City sem á í erfiöleikum.
Luton sigrar Birmingham örugglega
á gervigrasinu en Newcastle nær
jafntefli á heimavelli gegn Watford
sem ýmist sigrar eöa tapar stórt.
QPR er sterkt á gervigrasinu á
Loftus Road og Siggi Jóns og félagar
tapa. Southampton nær jafntefli á
heimavelli gegn óútreiknanlegu liöi
Tottenham. West Ham er á mikilli
siglingu um þessar mundir en
Everton ekki sannfærandi. West
Ham sigur. Barnsley og Oldham úr.
2. deild gera jafntefli en Fulham
'1X2
Umsjón:
Eiríkur Jónsson
sigrar Sunderland. Sunderland féll
úr 1. deild í fyrravor og hefur ekki
náð að aðlaga sig 2. deild sem stend-
ur. Leeds og Portsmouth gera jafn-
tefli en Middlesbro, sem ekki hefur
skoraö nema 7 mörk í 14 leikjum,
tapar á hehnavelli fyrir Blackbum.
Stoke hefur ekki verið sannfærandi í
haust, gert fimm jafntefli á heima-
velli en unniö einn og tapaö einum
leik. Sigur að þessu sinni.
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Að segja sig á sveitina
Fyrr í haust geröust þau tíöindi að
Verkamannasambandið hvatti fisk-
vinnslufólk til verkfalla tii að mót-
mæla bónusgreiðslum í frystihúsum.
Mun það hafa verið i fyrsta skipti
sem verkalýðshreyfingin gerlr kröfu
til þess að launþegar neiti að þiggja
hærri laun fyrir vinnu sína. Fisk-
vinnslufólk tók mark á þessum til-
mælum Verkamannasambandsins,
enda ætlast verkalýðsforingjarair tQ
að fólk gegni þeim og leyfi þeim að
ráða þegar kjaramál era annars veg-
ar.
Verkamannasambandið settist síð-
an á rökstóla við vinnuveitendur og
útkoman varð sú að skrifað var undir
nýja samninga. Síðustu daga hefur
fólk verið að fá greidd laun, sam-
kvæmt hinnm nýju samningum og þá
kemur i ljós að launin í fiskvinnsl-
unni hafa lækkað en ekki hækkað
þegar upp er staðið. Nú mætti ætla
að báðir samningsaðilar gætu vel við
unað. Verkamannasambandið
bannaði jú fiskvinnslufólki að þiggja
bónusa, sem þýðir á mæltu máli að
verkafólkið í frystihúsunum mátti
ekki taka við meiri launum fyrir
betri afköst. Vinnuveitendur hljóta
einnig að fagna þessari útkomu
vegna þess að þar með eru útgjöldin
minni. Hvað fiskvinnslufólkinu
sjálfu finnst til þessarar launahækk-
unar koma skiptir inlnna máli enda
hefur enginn spurt það álits. Þvi er
ætlað að gegna þvi sem samið er um
við samningsborðið.
Ekki eru þó allir sáttir við þessar
niðurstöður. Sóffanias Cecilsson,
sem er formaður fiskvinnslustöðva,
kvartar undan því að fólk fáist ekki
lengur til vinnu. Hann vill taka upp
nýtt heiti á fiskvinnslufólkinu og
kalla það fiskifreyjur. Hefur hann
sjálfsagt í huga að þær fósturlands-
ins freyjur sem nefnast flugfreyjur
hafi óiíkt betri laun. Ekki er vist að
flugfreyjur séu Sóffaniasi sammála í
þeim efnum enda má um það deila
hvort er betra hlutskipti að lækka i
launum eða vera dæmdur til vinnu
með lögum frá Alþingi.
Þeir hjá tsbirninum og Bæjarút-
gerð Reykjavíkur hafa heldur ekki
fengið neina lausn á taprekstri sín-
um þótt launin séu lækkuð i fisk-
vinnslunni. Tapið er svo stórt hjá
þessum reykvisku frystihúsum að nú
hafa þau ákveðið að sameinast i eitt
fyrirtæki til að létta byrðunum af
eigendum tsbjarnarins og færa þær
alfarið yfir á herðar útsvarsgreiö-
enda í Reykjavík.
Spurning er hvort f iskvinnsluf ólkiö
geti ekki gert það sama. Ekki er að
efa að þröngt er i búi hjá mörgum
fjölskyldum sem hafa haft lifibrauð
sitt af vinnu í frystihúsunum. Getur
ekki borgarstjórinn í Reykjavik
gengið í það að sameina þessar fjöl-
skyldur og einhverjar aðrar sæmi-
lega illa stæðar fjölskyldur í Reykja-
vfk, og látið útsvarsgreiðendur um
að sjá um tapið á sameiginlegum
rekstri þessara fjölskyldna?
Verkamannasambandið, sem hef-
ur haft frumkvæðið að því að lækka
launin í fiskvinnslunni, getur haft
milligöngu um að benda borgar-
stjórnum á þær fjölskyldur sem
kjarasamningarnir hafa leikið hvað
verst. Morgunblaðið hefur einnig
mœlt með því að bæjarfélög og fisk-
vinnslufyrirtæki útí á Iandi fari að
fordæmi BÚR og tsbjarnarins. Sam-
eini tapið. Leggi saman skuldirnar
og segi sig á sveitina. Þetta er sem
sagt nýjasta aðferðin á tslandi til að
mæta efnahagserfiðleikum og tap-
rekstri. Að vísu þekktist þetta i
gamla daga þegar lausungarlýður og
ónytjungar áttu i hlut. En nú eru það
stóreignafyrirtækin og fiskvinnslan,
undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar,
sem verða að segja sig á sveitina af
þvi launin í fiskvinnslunni hafa lækk-
að. Það er af sem áður var, þegar
launin bækkuðu, gengið var fellt og
allir græddu á því að vera tii.
Dagfari.