Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985.
5
Togarínn Kolbeinsey
boðinn upp á morgun
.Tj
76
[iji- - v
iimu ak'íÁnm
Húsavíkurtogarinn Kolbeinsey
ÞH—10 veröur sleginn hæstbjóöanda á
nauöungaruppboöi, ööru og síðara,
sem £ram fer hjá bæjarfógetanum
á Húsavik á morgun, fimmtudag,
klukkan 14. Skuldir skipsins nema um
275 milljónum króna.
Búist er viö aö aðalkröfuhafinn,
Fiskveiðasjóður, muni eignast togar-
ann fyrir 170 milljónir króna, en þá
upphæð bauð sjóöurinn á fyrra uppboð-
inu 3. september síöastliöinn. Krafa
Fiskveiðasjóös í skipið nemur um 260
milljónum króna. Byggðasjóður á
Byggingarsjóðirnir:
DREGIÐ UR LAN-
VEITINGUM1986
— engir peningar til nýrra bygginga
verkamannabústaða
Á fjárlögum næsta árs er gert ráö
fyrir aö ráðstöfunarfé byggingarsjóös
ríkisins veröi um 2,05 milljarðar en á
þessu ári veröi þaö 2,024 milljarðar.
Samt má gera ráð fyrir því aö fé til
heföbundinna útlána minnki á næsta
ári, m.a. vegna þess aö inn i þessum
upphæðum er sú fjáröflun sem
ákveðin var á þessu ári vegna vanda
húsbyggjenda.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að útlán
byggingarsjóðs ríkisins nemi um 2,05
milljörðum. Af þessari upphæð eru 665
milljónir sem koma í rikissjóð vegna
sérstöku fjáröflunarinnar. Þetta hefur
í för með sér að hefðbundin lán verða
ekki nema um 1400 milljónir. Ekki
hefur enn náðst samkomulag um
hvernig hinum rúmlega 600 milljónum
verður ráðstafað. Um það er þessa
daga fjallaö í milliþinganefnd sem
ætlað var að svara þvi. Yfirlýst stefna
stjórnvalda er að þeim verði varið til
þeirra sem eiga í vanda vegna hús-
næðiskaupa.
Til útlána úr byggingarsjóöi verka-
manna er áætlað að verja 760
milljónum. Hins vegar er áætlað að
fjárþörf sjóösins á næsta ári sé rúm-
lega 1 milljarður. Þessi skerðing hefur
það í för með sér aö ókleift verður aö
byrja á nýjum framkvæmdum við
byggingar verkamannabústaöa á
næsta ári. Áðeins verður hægt að sinna
þeim verkefnum sem þegar eru hafin.
APH
SAÁ og foreldrar í baráttu fyrir
vímuefnalausa æsku:
Kynna sér vímuef nabar-
dagann í Bandarík junum
I næstu viku fara tveir starfsmenn
SÁÁ og tveir forystumenn í æskulýðs-
og foreldrastarfi í skólum til Banda-
rikjanna til þess að kynna sér nýjar og
öflugar aðferðir í vímuefnabaráttunni.
Ýmis samtök þar hafa náð miklum
árangri síðustu misseri, svo sem
MADD eða Mothers Ágainst Drug
Driving.
Framkvæmdastjóri SAA, Einar Kr.
Jónsson, sagði DV að viða i Bandaríkj-
unum og Kanada væru nú þegar til eða
í deiglunni baráttusamtök foreldra
fyrir vimuefnalausa æsku. Innan SÁÁ
er mikill áhugi á að nýta reynslu þess-
ara samtaka hér í samvinnu við for-
eldra og félög þeirra.
Ferðin núna er í tengslum við ráð-
stefnu landssamtaka bandarískra for-
eldrafélaga í Washington. Þetta er eitt
fyrsta skrefið til þess að undirbúa
fræðslu gegn vímuefnanotkun í yngri
árgöngum skólanemenda hér. Allt er
þetta talsvert fyrirtæki og SÁA leitar
nú fjárstuðnings til að kosta fulltrúana
á ráðstefnuna í Washington.
HERB
einnig kröfu í togarann, um 13
milljónir króna.
Hlutafélagiö Höfði á togarann. Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur er stærsti eig-
andi þess, með um 59 prósent hlut.
Húsavíkurbær á 27 prósent og Kaup-
félag Þingeyinga 12 prósent.
Húsvíkingum þykir sárt að missa
skipið úr sínum höndum. Þeir hafa
fullan hug á aö eignast það aftur eftir
uppboðið. Uppi eru ráðagerðir um að
stofna nýtt hlutafélag sömu eigenda til
að kaupa skipið af Fiskveiðas jóði.
Togarinn Kolbeinsey var smiöaður
á Akureyri árið 1981. Hækkun dollar-
ans er meginorsök þess hvernig fjár-
hag skipsins er komið.
-KMU.
Húsvíkingar fögnuðu komu Kolbeinseyjar árið 1981. Á morgun missa þeir
togarann.
á topp
skíöavömm fxá-
A FI5CHER DACHSTEIN
,oY TYROLIA
' 'iAtyf ÞEKKING- REYNSLA- ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
jpÁ'
SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 91-84670
1
Útsölumarkaður
SKÚLAGÖTU 26 - SÍM111728
ÚLPUR, KR. 300,
ULPUR, KR. 495,
ÚLPUR, KR. 1490,
SKYRTUR, KR. 395,
GALLABUXUR, KR. 795,
SOKKAR, KR. 69,
BLÚSSUR, KR. 595,
BARNABUXUR, KR. 395,
NÆRFÖT, KR. 65,
SAMFESTINGAR, KR. 795,
PEYSUR, KR. 395,
PEYSUR, KR. 595,
VINIMUFATABUÐIIM