Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Kampavínið flýtur í London og Karl og Díana brosa blítt Umsjón: Þórir Guðmundsscn Gyða J. Jónsdóttir, f réttaritari DV, skrifar f rá London: Vetur er genginn í garð, atvinnu- leysi eykst hægt og sígandi og kampavínsdrykkja hefur aldrei verið meiri hér í landi. Það má vera að England sé ólíkt öðrum löndum hvað varðar krepputímabil og tísku en það má samt segja að ástandið hér í London sé næsta undarlegt fyrir íslensk augu. Óeirðir virðast spretta upp í öðrum hverjum bæjarhluta þessa dagana, lögreglunni hefur orðið það á að skjóta blásaklausa svarta móður á heimili sínu og sofandi barn í öðru húsi og viku fyrir októberlok er búið að setja upp jólaskreytingar í Oxford Street. En það er þetta með kampavínið. Englendingar drekka mest kampa- vin í heimi, miðað við höfðatölu, þessa dagana. Auðvelt er að sjá hvernig þeir ná þeirri stöðu. Ef farið eh inn á bari og skemmtistaði mið- og efri stéttarinnar er kampa- vín aðaldrykkurinn - og ekki ein- ungis hreint kampavín heldur kampavínskokkteilar af ýmsum gerðum. Kampavínið er orðið stöðutákn. Sá sem kaupir slíka flösku handa félögum sínum að loknum vinnu- degi er ekki bara að halda upp á lok vinnudags. Hann er að segja: „Ég á fullt af peningum.“ Að hafa svona mikla peninga að kampavín sé orðinn hversdagsdrykkur - það er klassi. í fatatískunni eru perlufestar og demantar og grófar gullkeðjur skartgripir hversdagsins og ef við- komandi hefur ekki efni á hinum raunverulegu gersemum þá er auðvelt að verða sér úti um ódýrar eftirlíkingar. Það sem skiptir máli er að líta út fyrir að hafa peninga, svo mikla að viðkomandi líti út íyrir að vita ekki hvernig hann á að eyða þeim. Hér í landi eru hjón sem eiga svo mikla peninga að þau vita varla hvernig þau eiga að eyða þeim, og þau eru líka undir kraftmikilli smásjá fjölmið!a. Þetta eru prins- inn og prinsessan af Wales, Karl og Díana. Það var reyndar Díana sem kom af stað perlufestatískunni. Áður þótti það ekki við hæfi ann- arra en eldri og heldri kvenna að vefja margföldum perlufestum um háls sér. Nýlega var tekið sjónvarpsviðtal við hjónin þar sem þeim var gefinn kostur á að svara fyrir sig eftir allar getgáturnar í dagblöðunum varð- andi hjónaband þeirra, fatakaup og matarlyst Díönu, auk áhuga Karls á óvísindalegum læknisað- ferðum, galdri og húsbyggingalist. Þetta er í fyrsta skipti sem Díana gefur slíkt viðtal svo- ekki var að undra þó 20 milljónir áhorfenda sætu sem límdar við skerminn. Myndin, sem þeim tókst að gefa af sjálfum sér, var hversu venjuleg þau væru; í raun og veru ekkert öðruvísi en við hin. Þegar Díana var spurð út í fata- kaup sín - í brúðkaupsferðinni var hún í þrem til fjórum nýjum göllum á dag - svaraði hún: Já, en ég gat ekki gengið um í hlébarðaskinn- um. Díana lagði mikla áherslu á starf sitt sem er aðallega að vera eigin- kona og móðir og að heimsækja spítala og aðrar stofnanir fyrir hina veiku og fátæku. Hún vildi að blöðin skrifuðu minna um útlit hennar og hegðan en meira um fólkið sem á bágt og þarfnast hjálp- ar. Hún sagði hluti sem stinga mjög í stúf við þá ímynd sem blöðin hafa gefið af henni, eins og það að henni hefði fundist brúðkaupið „alveg hræðilegt". - „í fyrsta lagi allt of langt að ganga þetta hræðilega kirkjugólf." Framtíðardrottning Breta hefur augljóslega kímnigáfu. Maður hennar átti erfitt með að halda á yngri syni sínum í sjónvarpssal. Svo virtist sem slík samskipti sem faðmlög væru sjaldgæf og Harry lét sem hann þekkti ekki pabba sinn. Eitt skein berlega í gegn í þessu 45 mínútna sjónvarpsviðtali og það er að Díana hefur Karl í vasanum - og honum virðist líða þar mjög vel. En í öllu viðtalinu var aldrei minnst á peninga þeirra og eignir og hvergi sást í kampavínsglas. Díana var skartgripalaus. „. . . Diana hefur Karl i vasanum. Og honum virðist líða þar mjög vel." Holland: Losnaði úr gíslingu eftir 60 stunda martröð Frá Sigrúnu Harðardóttur, fréttaritara DV í Amsterdam: Átján ára gömlum pilti, Gijs van Dam, var rænt fyrir utan heimili hans í Amsterdam þriðjudagsmorg- un í síðustu viku. Hann var færður í flutningabíl til Lelystad, um klukkustundar akstur frá Amst- erdam, og lokaður þar inni í skáp sem er einn sinnum tveir metrar að stærð. Ræningjamir fóru fram á átta milljónir gyllina (rúmar 100 millj- ónir íslenskra króna) í lausnarfé. k meðan á gíslingunni stóð var drengurinn sprautaður með val- íum. Lengst framan af var honum ekki færður matur. Þegar hann loks fékk mat varð hann að borga fyrir hann sjálfur. Faðir piltins, 50 ára gamall kaup- sýslumaður, réð einkaspæjara til að vinna í málinu og tókst honum að rekja ferðir mannræningjanna til Lelystad. Lögreglan fékk ábend- ingu frá móður eins ræningjanna því hún áleit að eitthvað dularfullt ætti sér stað í íbúð sonar síns. Lögreglan umkringdi húsið og aðfaranótt föstudags ók svo Merce- des Benz frá húsinu og fylgdi lög- reglan honum. Eftir mikinn elt- ingaleik tókst lögreglunni að stöðva bílinn í úthverfi Amsterdam og lögðu Qögur ungmenni á flótta. Einn flóttamannanna náðist á bóndabæ þar sem bóndinn hafði króað hann af inni í bás með hey- kvísl að vopni. Hin þrjú náðust Ræningjar piltsins eru nú komnir má búast við því að þetta fangelsi í þeirra. í hendur lögreglunnar og því Amsterdam sé nú heimkynni fljótlega. Þetta voru þríj piltar og ein stúlka á aldrinum 17 til 23 ára. Einn piltanna hafði verið atvinnu- hermaður í Libanon. Enn er leitað tveggja manna sem viðriðnir eru málið og eru þekktir afbrotamenn. í aftursæti bifreiðarinnar lá Gijs bundinn. Hann var mjög þreyttur eftir ævintýrið. Ekki er vitað hvers vegna verið var að flytja hann um nótt en hugsanlegt er talið að skipta hafi átt á honum og lausnar- fénu eða þá að flytja hafi átt hann ánýjanfelustað. Faðir piltsins hafði samið við mannræningjana um að greiða eina milljón gyllina í lausnarfé, eða um 13 milljónir íslenskra króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.