Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Side 14
14
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985.
Spurningin
Hefur þú farið
í leikhús nýlega?
Ásgeir Samúelsson: Nei, það er nú orð-1
ið langt síðan en ætla að fara á Litlu
hryllingsbúðina á föstudaginn.
Sirry Jóhannsdóttir: Ég hef nú ekki
farið í 20 ár en vildi gjarnan sjá leikrit-
ið hans Kjartans í Iðnó sem verið er að
sýna núna.
Anna Ragnarsdóttir: Nei, ég hef ekki
farið nýlega og þar er ekkert leikrit
sem vekur áhuga minn núna.
Jóna Guðmundsdóttir: Já,. mikil
ósköp, ég fór á Land míns föður og
þótti þaö sérstaklega gott leikrit með
góðri tónlist.
Þrándur Baldursson: Nei, en ég er allt-
af að hugsa um það en það vill því
miður oftast bregðast.
Jón Þórðarson: Nei, en ég fer í leikhús
ef ég hef tækifæri til þess.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Hvar eru þingmenn
Framsóknarflokksins?
Stjórnarsinni skrifar:
Þar sem ég er einn þeirra sem
styðja núverandi ríkisstjórn fylgist
ég gjarnan með því sem er að gerast
i þjóðmálum, ekki síst því sem fram
kemur hjá þessari ríkisstjórn.
Vissulega er hún umdeild en er þó
að mínu mati sú besta sem hefur
setið hér um langt árabil.
Það er þó einn ljóður á ráði
hennar þegar hún á í deilum við
andstæðinga úr öðrum flokkum,
ekki síst þegar tekist er á í ríkis-
fjölmiðlum, og raunar í blöðum
líka. Ríkisstjórnin, eða þingflokkar
hennar, eru alltaf að senda sömu
mennina fram sem talsmenn.
Það nær ekki nokkurri átt að
bjóða kjósendum þingmanna okk-
ar, ekki heldur úr röðum stjórnar-
andstæðinga, að láta ekki þing-
menn almennt koma fram til að
svara hinum ýmsu málaflokkum
sem á dagskrá eru.
Hjá Sjálfstæðisflokki hefur þetta
verið afleitt því þar koma alltaf
fram sömu mennimir, en upp á
síðkastið er eins og fleiri séu kall-
aðir til að svara og koma fram í
ýmsum málaflokkum.
Sömu sögu er að segja um Al-
þýðubandalag, þar eru helst tveir
menn kallaðir til, þeir Svavar for-
maður og Guðmundur J. Guð-
mundsson. Nú sjást þeir ekki leng-
ur, Hjörleifur Guttormsson og
Ragnar Arnalds, svo dæmi sé tekið.
Fleiri þingmenn eiga þeir hjá Abl.
en þeir koma lítið sem ekkert fram,
utan hvað þeir eru sumir að senda
frá sér kjallaragreinar í DV.
Hjá smáflokkafarganinu er ekki
um auðugan garð að gresja í þing-
mannaliði en þeir láta þó hina fáu
koma fram fyrir sína hönd og virð-
ist skiptingin þar nokkuð jöfn milli
manna.
Hjá Framsóknarflokknum er
þetta þó verst. Þar virðast ekki
vera nema tveir menn á þingi, for-
maðurinn og sjávarútvegsráð-
herra; stundum þó dómsmálaráð-
herra og æ sjaldnar húsnæðisráð-
herrann.
En þegar þessir þingmenn og
ráðherrar hjá Framsóknarflokkn-
um eru taldir þá virðist þing-
mannalið framsóknarmanna líka
upptalið.
Af fjórtán manna þingliði er það
mjög klént að ekki skuli nema fjór-
ir menn geta komið fram í fjölmiðl-
um fyrir flokkinn til að fjalla um
hin ýmsu mál sem þeir ættu að
geta rætt, ekki síður en ráðherrar.
Þetta er ekki síður slæmt fyrir
flokkinn sjálfan en okkur kjósend-
ur því þeir sem sjaldan eða aldrei
koma fram fyrir hönd flokksins
gleymast hreinlega og eiga ekki
upp á pallborðið sem talsmenn eða
málsvarar.
Herðið ykkur nú, framsóknar-
menn, og skikkið þingmenn ykkar
til að koma fram og sýna sig.
Bréfritari er efins um gildi þess að hafa golfvöll í Fossvogsdal. Telur hann heppilegra að hafa hann
í Fífuhvammslandi.
Kópavogur:
GOLFVÖLLUR í FOSSVOGSDAL
Ragnar Jónsson skrifar:
Það liggur við að maður fái fyrir
hjartað þegar forystumenn í Kópa-
vogi sýna golfíþróttinni slíkan áhuga
að vilja leggja Fossvogsdalinn undir
18 holu golfvoll (eða 9). En hver er
raunverulega ástæðan fyrir þessum
áhuga? Golfíþróttin - eða tilraun til
að koma í veg fyrir lagningu Foss-
vogsbrautar? - Getið nú!
Fyrir nokkrum árum, er ég undirrit-
aður bjó í Kópavogi, kom einmitt upp
þessi spuming um stofnun golf-
klúbbs í Kópavogi og lagningu golf-
Alþýðu-
flokksmenn:
Verkamaður í Dagsbrún hringdi:
Nú sitja á Alþingi þeir mestu
kratavesalingar sem Alþýðuflokkur-
inn hefur átt. Eru það þeir Jón Bald-
vin, Sighvatur Björgvinsson og
þeirra félagar. Þessir menn eru
komnir af verkalýðsforystumönnuin
vallar en þá fannst engin lóð eða
staður fyrir golfvöll, nema ef vera
skyldi uppi við Lögberg sem ekki
kom til greina vegna hæðar yfír sjáv-
armál því að völlur þar yrði ekki
nothæfur nema lítinn part ársins.
Nei, Fossvogurinn er of lítill fyrir
alvöru golfvöll eða, réttara sagt, of
þröngur, eða hvað fyndist mönnum
um að fá golfbolta inn í stofu hjá sér
í tíma og ótíma? Slík er reynslan þar
sem golfvellir eru innan um íbúðar-
hús. Þar að auki fer golf ekki saman
með öðmm íþróttum því þar sem
og fylgja nú íhaldinu. Það er ekki
nóg að blaðra linnulaust á Alþingi
og haga sér svo eins og þeir gerðu í
flugfreyjuverkfallinu.
Um daginn voru 12 menn í áburð-
arverksmiðjunni í verkfalli sem gat
haft þær afleiðingar að það þyrfti að
golf er leikið er hætta á ferðum!
Ef aftur á móti forysta Kópavogs-
kaupstaðar hefur virkilegan áhuga á
að koma upp aðstöðu fyrir íþrótta-
iðkanir og einnig að byggja upp
alvöm 18 holu golfvöll þá eiga þeir
besta golfvallar- og íþróttasvæði sem
til er á öllu Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, fyrir utan Korpúlfsstaði, en það
er Fífuhvammslandið! Þar væri
hægt að byggja „super“ 18 holu golf-
völl, auk annarra íþróttamann-
virkja, öllum til ánægju en engum
til ama.
flytja inn áburð í stórum stíl. Þetta
verkfall stóð í 2 mánuði en ekkert
var gert þá. Hins vegar er rokið upp
til handa og fóta og lög sett á hátíðis-
degi kvenna til að stöðva lögmætar
aðgerðir þeirra í launamálum.
Skömm þeirra manna, sem stóðu að
þessu, mun lengi lifa.
Útvarpið:
Frábærir
þættirhjá
Eyvmdi
Ertendssyni
Útvarpshlustandi hringdi:
Ég vil færa útvarpinu og Ey-
vindi Erlendssyni þakkir fyrir frá-
bæra þætti á sunnudagskvöidum
kl. 19.30 undir nafninu „Það er nú
sem gerist“, þar sem fjallað er um
hinar mannlegu hliðar lífs og til-
vera. Hafið þökk fyrir.
Pósturogsími:
ánangrað
lengi vegna
bilunar
Siguijón Jónsson:
„Ég verð að segja að ég er ekki
alveg sáttur við starfsemi Pósts
og síma. Síminn hjá fyrirtæki
minu úti á Seltjamamesi hefur
verið meira og rainna í ólagi
undanfarinn mánuð og var þar
að auki bilaður í eina viku sam-
fleytt.
Þetta er alveg að fara með
fyrirtækið því það troystir mikið
á viðskiptavini úti á landi sem
verða að hafa samband símleiðis.
Hefur það verið þannig þennan
mánuð að enginn hefur getað náð
í okkur og viðskiptavinir okkar
og við því orðið fyrir tilfinnan-
legu tjóni. Auglýsingar okkar
hafa einnig dottið dauðar niður
út afþessu.
Hjá Pósti og síma fást þau svör
að þama sé verið að gera við
ónýtan streng. Finnst mér það
alveg hreint ótrúlegt hve illa
gengur við það. Um frádrátt á
símagjöldum út af þessu virðist
ekki vera hægt að tala, nema þá
lítils háttar lækkun á fastagjaldi,
Símareikningarnir virðast vera
það eina sem stenst áætlun hjá
þessari stofnun."
Hjá Pósti og síma varð Þorlelf-
ur Björnsson fyrir svöram:
„Svona tilfelli geta komið upp
öðru hvora. Þarna hafa orðið
þrjár alvarlegar bilanir með
stuttu millibili. Þarna er ekki um
trássaskap að ræða heldur hluti
sem má alltaf búast við. Afnota-
gjald þessa notanda verður lækk-
að vegna þessarar bilunar."
Brugðust í f lug-
freyjudeilunni