Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Qupperneq 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985. íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Torfi Magnússon. „Við stálum þessum sigri” — sagði Torfi Magnússon, Val, eftir leikinn við ÍBK í gærkvöldi „Við stálum þessum sigri,” sagði þjáifari og leikmaður Vals, Torfi Magnússon, eftir sigurinn á Keflavik í úrvalsdeildinni. „Ég hamraði á því fyrir leikinn að Keflavíkur- liðið væri mjög sterkt en einhvern veginn þá trúðu menn því ekki innst inni. Liðið er miklu sterkara en menn höfðu búist við fyrir mótið og við vorum heppnir að fá bæði stigin,” sagði Torfi sem var atkvæðamestur Valsmanna í leiknum. 'fros Uerdingen steinlá — áheimavellifþýsku bikarkeppninni Bikarmeistarar Uerdingen fengu heldur betur slæma útreið hjá áhugamönnum Eintracht Tri- er í 2. umferð bikarkeppninnar í Bayer Uerding- en í gærkvöldi. Liðin höfðu gert markalaust jafntefli, fyrst í Trier, en á heimavelli sínum í gær steinlágu bikarmeistararnir. Trier sigraði 3—0. Harald Kohr var maðurinn bakvið sigur Trier. Skoraði tvívegis með 10. mín. millibili í síðari hálfleik. hsím. 80 milljónir — fyrir eitt keppnistímabil hjá LakersíNBA Kareem Abdul-Jabbar, stigahæsti maðurinn í NBA-deildinni frá upphafi meö 33.262 stig í byrj- un þessa keppnistímabils, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Los Angeles Lak- ers fram til 1987. Jabbar er elsti leikmaðurinn í bandarísku deildinni og sá leikmaöur sem lengst hefur leik- iö í henni, er nú á sínu 17. keppnistímabili. Hann fær tvær milljónir fyrir keppnistímabiliö hjá Lakers sem samsvarar litlum áltatíu milljónum íslenskra króna. Jabber er 2,18 metrar á hæð og leikur sem framherji. -fros Ástralía eða Nýja-Sjáland leika um HM-sætið við Skotland Það reyndist Nýsjálendingum vel að fá Rufer- bræðurna frá FC Ziirieh í HM-ieik sinn við ísraei á laugardag í Auckland. Wynton Rufer skoraðí strax á 2. mín. og Nýja-Sjáland sigraði, 3—1. Malcolm Dunford og Coiin Walker skoruðu hin tvö mörkin en Zahi Armeli eina mark Israel. Áhorfendur 10.000. Við sigurinn komst Nýja-Sjáland í efsta sæti Eyjaálfu-riöilsins en þaö stóö þó stutt því á sunnudag sigraöi Astralía Taiwan, 8—0. Þaö veröur því úrslitaleikur í riðlinum, þegar Astra- lía og Nýja-Sjáland leika 2. nóvember í Astralíu. Það liöiö sem sigrar þar leikur tvo leiki viö Skot- land um sæti í úrsUtum heimsmeistarakeppn- innar í Mexíkó næsta sumar. Verði hins vegar jafntefli þarf Nýja-Sjáland að sigra í leik sínum við Israel, síðasta leiknum í riðlinum. Staðaner nú þannig: ÁstraUa 5 3 2 0 18- 2 8 Nýja-Sjáland 4 3 1 0 13- 2 7 Israel 5 2 1 2 14- 6 5 Taiwan 6 0 0 6 1—36 0 -hsim. Einar þjófóttur skoraði sigurkörfu Vals í leiknum gegn IBK í gærkvöldi á lokasekúndu leiksins og tryggði Valsmönnum sigur, 73-70 Valsmaðurinn Einar Olafsson kem- ur liklega seint tU með að gleyma ioka- sekúndunni í leik liðsins við Keflavik i úrvalsdeild körfuboltans í gærkvöldi. Þegar aðeins ein sekúnda var eftir af leiktimanum misstu Keflvikingar bolt- ann. Valsmenn fengu innkast á sinum vallarhelmingi og staðan var 70—70. Leifur Gústafsson tók innkastið fyrir Val og sendi boltann til Einars sem var staddur i vonlausu skotfæri nálægt miðiinu vallarins. Einar hafði snör handtök, sendi boltann í áttina að Sður- nesjakörfunni rétt áður en timaflautan gall. Boltinn fór rakleiðis ofan í körf- una án þess að snerta bringinn og þar með höfðu Valsmenn unnið einn af ótrúlegustu sigrum í islenskri íþrótta- sögú. Lokatölur, 73—70, en Keflviking- ar höfðu haft mikla forystu í fyrri hálf- leiknum og meðal annars náð 20 stiga forskoti. Valsmenn sem áttu alltaf undir högg að sækja náðu að jafna leik- inn sjö sekúndum fyrir ieikslok er Leif- ur Gústafsson skoraði úr tveimur víta- skotum. En það var meira en heppni Vals- manna (eða ótrúleg leikni) sem reið baggamuninn í gærkvöldi. Nýliðar IBK voru heimsins mestu klaufar að missa forskot sitt niður á lokamínútun- um. Þegar þrjár og hálf mínúta var til loka var munurinn á liðunum tíu stig. Þá fóru Valsmenn að reyna að pressa á sókn Keflvíkinga og þaö gaf góðan árangur. Keflvíkingar vissu ekki sitt rjúkandi ráð og í þrígang náði Torfi Magnússon knettinum af sóknar- mönnum Keflavíkur sem í stað þess aö spila knettinum fóru að reyna ýmislegt upp á sitt eindæmi. Lokakaflinn var reyndar sá eini er jafnræði var með lið- unum. Leikur Keflvíkinga var frábær í fyrri hálfleiknum. Allir leikmenn liðs- ins voru mjög hreyfanlegir og Jón Kr. Gíslason fór hreinlega á kostum. Hann skoraði 19 stig í fyrri hálfleiknum og var langbesti maður liðs síns í leikn- um. Guðjón Skúlason lék vel lengst af en fór illa að ráði sínu á lokamínútun- um. Torfi Magnússon hlýtur þó að teljast maður þessa leiks. Hann stjórnaöi vörn Valsliðsins eins og hershöföingi og hélt Hreini Þorkelssyni algjörlega niðri í leiknum. I sóknarleiknum var hann einn Valsmanna fær um að hitta ofan í körfuhringinn lengst af og án hans heföi útkoma Vals orðiðslæm. Stig Vals: Torfi 2í, Jón Steingrímsson 10, Sturla örlygsson 9, Leifur Gústafsson og Ein- ar Olafsson 8, Tómas Holton 6, Jóhannes Magnússon 2, Björn Zoega 1. Stig ÍBK: Jón Kr. 26, Sigurður Ingimundar- son 15, Hreinn Þorkeisson 10, Óiafur Gott- skálksson 9, Guðjón 6, Pétur Jónsson og Ing- ólfur Haraldsson 2. -frne Loksins eru Frakkar með sitt sterkasta lið — í HM-leiknum við Lúxemborg í kvöld Loksins kom að því að landsliðsþjálf- ari Frakka í knattspyrnunni, Henri Michel, gat stillt upp sínum bestu mönnum í HM-leik. Það verður í kvöld þegar Frakkar leika við Lúxemborg í París í 4. riðli. Frakkar þurfa að sigra með miklum mun og þá gæti þeim nægt jafntefli þegar þeir ieika við Júgóslava í París 16. nóvember til að tryggja sér HM-sæti í Mexíkó. Lið Frakka veröur þannig skipaö í kvöld. Joel Bats, William Ayache, Patrick Battiston, Maxime Bossis, Manuel Amoros, Luis Fernandez, Jean Tigana, Alain Giresse, Michel Platini, Dominique Rocheteau og Jose Toure. Staðan í riðlinum er þannig. Búlgaría 7 5 11 A-Þýskaland 7 4 0 3 Júgóslavía 7 3 2 2 Frakkland 6 3 12 Lúxemborg 7 0 0 7 Búlgaría hefur þegar tryggt sér HM- sæti en mikil keppni er um annað sæt- ið. Frakkar virðast hafa mesta mögu- leika með tvo heimaleiki eftir. Austur- Þýskaland á eftir að leika við Búlgaríu heima 16. nóvember. I sambandi við leikinn í kvöld má geta þess að Lúxem- borg hefur ekki sigrað Frakkland í 71 ár og hefur ekki unniö HM-leik frá 1974. Þá unnu þeir Tyrki 2—1. Þá verða tveir aðrir HM-leikir í kvöld í Evrópuriðlunum. Sovétríkin og Noregur leika í 6. riðli í Moskvu. Sovéskum nægir jafntefli en eflaust 12-3 11 14-8 8 7-6 8 7-4 7 2-21 0 Alain Giresse mun leika með Frökk- um gegn Lúxemborg i kvöld en hann hefur nú náð sér eftir slæm meiðsli. vinna þeir stórt og ná HM-sæti í riðlin- um ásamt Dönum. Þá leika Albanía og Grikkland í 1. riðli, leikur sem engu máli skiptir. hsím. Jóhannes Kristbjörnsson, besti leil gegn KR, sést hér i baráttu við Pál Kol „Stærsta stund i hjá Swindon Tov — sagði Lou Macari eftir að 4. deildar lið hans hafði slegið Sheff. Wed. út í deik Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV á Englandi. „Ég er ekki aiveg búinn að átta mig á þessu, spennan var mikil en þetta var sanngjarn sigur. Stærsta stund mín hjá Swindon Town,” sagði Lou Macari, stjóri Swindon, eftir aö lið hans — í 7. sæti í 4. deild — hafði slegið Sheff. Wed. út í deildabikarnum í gær- kvöldi í Swindon. Sheff. Wed. í þriðja sæti í 1. deild. Það voru óvæntustu úr- slitin I gær. Ungur strákur, Peter Coine, skoraði eina mark leiksins á 10. minútu, leikmaður sem áður hafði ver- ið hjá Man. Utd. en látinn fara vegna slæmrar hegðunar. Macari mundi eftir honum frá því hann var hjá United og fékk hann frá liði utan deildanna. Hann var hetja 3. umferðarinnar. Það merkilega var að Swindon var við að skora fleiri mörk en Sheff. Wed. að jafna. Og nú er Man. Utd. óskalið Swindon í 4. umferð. Ellefu leikir voru í 3. umferð í gær- kvöldi. Deildabikarmeistarar Norwich komust áfram eftir óvæntan sigur í Luton og það gerðu einnig stórliðin Everton, Liverpool og Man. Utd. Nokkrir leikir verða háðir í kvöld en úrslit í gær urðu þessi. Birmingham—Southampton Chelsea—Fulham Coventry—WBA Grimsby—Ipswich Liverpoll—Brighton Luton—Norwich Man. Utd—West Ham Portsmouth—Stoke Shrewsbury—Everton Watford—QPR Swindon—Sheff. Wed. 1-1 1-1 0-0 0-2 4-0 0-2 1-0 2-0 1-4 0-1 1-0 Gífurlegur fögnuður braust út í Swindon eftir leikinn — eins og liðið hefði sigrað í keppninni. Það hefur Swindon reyndar gert einu sinni sem 3. deildar lið. Sigraði Arsenal í úrslitum 1965. Þrenna Walsh Liverpool hafði mikla yfirburði gegn Brighton og Paul Walsh, sem vill fara frá Liverpool, skoraði þrennu. Fyrsta markið á 11. mín. 1—0 í hálfleik. Ken Dalglish skoraði síðasta mark leiksins á 70. mín. Walsh hefur nú skorað sex mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið í stað Ian Rush. Everton átti líka í litlum erfiðleikum með Shrewsbury, eitt neðsta liö 2. deildar. Þó var Shrewsbury drifið áfram af 10.236 áhorfendum, betra lið- ið framan af en gegn gangi leiksins náði Graeme Sharp forustu fyrir Everton á 21. mín. Skallaði í mark, 1— 0, í hálfleik en í byrjun þess síðari sendi Darren Hughes knöttinn í eigið mark, 0—2. Colin Robinson minnkaði muninn í 1—2 á 51. mín. en Kevin Sheedy skor- aði fljótt þriöja mark Liverpool-liös- ins. Adrian Heath það f jórða rétt í lok- in. Leikmenn Luton voru miklu meira með knöttinn gegn Norwich en gátu ekki skoraö. Deildabikarmeistarar Norwich skoruðu tvívegis rétt eftir miðjan fyrri hálfleikinn. Peter Mend- ham á 29. mín. Steve Bruch beint úr aukaspyrnu á 34. mín. Bailey bjargaði United Man. Utd. hafði yfirburði gegn West Ham lengstum í fyrri hálfleik. Lítið þó um færi nema hvað Jesper Olsen mis- notaði opið færi. Rétt fyrir leikhléið meiddist Mike Duxbury, tognaði á fæti, og varð að yfirgefa völlinn. Paul McGrath fór í stöðu hans og mesti þunginn fór úr sóknarleik Man. Utd. West Ham mun betra liðið framan af s.h. en Bailey markvörður hélt liði sínu á floti. Varði þrívegis snilldarlega frá Cottee, Dickens og McAvennie. Á 77. mín. brunaöi svo Olsen upp kantinn og að endamörkum, gaf fyrir og Norman Whiteseide skoraði. 33 þúsund áhorf- endur önduðu léttar, Man. Utd. enn án Strachan, Robson, Moses og Gidman. Fyrsti tapleikur Lundúnaliðsins í 12 leikjum. Reyndar skoraði West Ham eftir mark Whiteside beint úr auka- spyrnu af 30 m færi en það var dæmt af. Mikil spenna var á Stamford Bridge síðustu tvær mínúturnar í innbyrðis- viðureign nágrannaliöanna, 0—0, og fram á 88. mín. Þá skoraði Hazzard fyrir Chelsea. 30 sek. síðar var dæmt víti á Chelsea, sem fyrirliði Fulham, Cliff Carr, skoraði úr og á síðustu sek- úndum leiksins óð Keith Dublin,.bak- vörður Chelsea, upp kantinn og sendi knöttinn í netið. Dómarinn hafði hins I I | — og Liverpool keypti Það er margt skritið í lifinu, ekki I síður í íþróttum en á öðrum sviðum. | Laugardaginn 19. október sl. fékk Mike Hooper, 22ja ára markvörður I Wrexham, á sig sex mörk í 4. deUdar “ leik í Aldershot á Englandi. Eftir | leikinn kaUaði þjálfari Wrexham Ihann tU sín, ekki tU að skamma hann, heldur tU að skýra bonum frá Iað menn frá Liverpool hefðu fylgst með honum. Liverpool vUdi kaupa I hann og Wrexham, Utla norður- ^welska félagið, mundi ekki leggja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.