Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Qupperneq 28
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985. Ríkisfjölmiðlarnir hafa líflegan sýningarbás og á degi fjölmiðlunar var upptaka unnin á staðnum. Þarna eru Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Sigrún Björnsdóttir á fullri ferð. í básnum meðal hárgreiðslufólks og snyrtifræðinga er ýmislegt að gerast. Gestir eru teknir og klipptir og snyrt- ir á ýmsa enda og kanta. Þessi fékk sérstaka meðhöndlun sem ekki allir urðu aðnjótandi, enda mikil vinna að baki slikri förðun. DV-myndirKAE Bókagerðarmenn eru með ýmsa sýnisgripi sem vekja mikinn áhuga sýningargesta. Þar má nefna áhöld til bókbandsvinnu og sveinsstykki í iðngreininni. í KVENNA- SMIÐJU Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna á störfum kvenna í seðlabankahúsinu nýja - Kvenna- smiðjuna svonefndu. Opnað var á tíu ára afmæli kvennafrídagsins á ís- landi undir yfírskriftinni KONAN VINNAN - KJÖRIN og gefst þarna kjörið tækifæri til þess að kynnast atvinnuþátttöku kvenna í þjóðfélag- inu. Hver dagur er tileinkaður ein- hverju ákveðnu - í dag eru það „VR, STRV og SFR“ og á morgun „Um- hverfi og byggingar". Morgundagur- inn er jafnframt lokadagur sýningar- innar sem opin er til klukkan tíu á kvöldin. Ýmislegt hefur verið unnið á staðnum þessa daga síðan sýningin var opnuð og margar athugasemdir fallið sem seint gleymast. Einn karl- maður leit á dögunum inn í básinn hjá fjölmiðlafólkinu, fletti frétta- blaðinu og sagðist ákveðinn í því að fjárfesta í einu til tveimur eintökum. „Biðið aðeins, _ég þarf að ná í konuna. Hún hefur fjármálavaldið á heimilinu og það hefur gefist vel í gegnum árin. Það er betra að sá hagsýnni sjái um þá hlið málanna og konur eru oft miklu betri á því sviði.“ Hann hvarf um stund og kom síðan til baka með upphæðina - keypti blaðið sitt og hvarf fyrir næsta horn, hæstánægður með viðskiptin. Þetta var ekki eina atvikið af þessu tagi þannig að fjármálavaldið í landinu er greinilega ekki alfarið í höndum karlmanna. Þess má geta að eintakið af Kvennasmiðjunni kostar tíu krónur. -baj. Módelin ársgömlu kynntu sig og starfsemina í veitingastaðnum Hollywood og fengu öll eitt stykki blóm í tilefni dagsins. DV-mynd KAE. ARSGOMUL MODEL Það eru allir að eiga afmæli um þessar mundir og að sjálfsögðu er ekki sleppt því tækifæri að halda upp á daginn. Eitt slíkt atvik var gleðivaldur í veitingastaðnum Hollywood nú um helgina - samnefnd módelsamtök urðu hvorki meira né minna en eins árs gömul. Ljós- myndari DV mætti á staðinn og festi merkisatburðinn hið snarasta á filmu. Sunnudagurinn var tileinkaður íjölmiðlun og annarri útgáfustarfsemi. Þarna eru í bás Blaðamannafé- lags íslands Magdalena Schram, Álfheiður Ingadóttir og Auður Hermannsdóttir, önnum kafnar við vinnslu Kvennasmiðjunnar sem er fréttablað, unnið á staðnum. Á valdi kvenna Þetta var erfiður dagur fyrir karl- peninginn - miðbærinn í Reykjavík alfarið á valdi kvenna - 24. október síðastliðinn. Á þessari mynd Gunnars Andrés- sonar, ljósmyndara DV, sést bág aðstaða manna af röngu kyni þennan merkisdag. Þeir sem hættu sér út í miðbænum fóru sér hægt og reyndu að láta sem minnst á sér bera. Sumir gægðust fyrir húshorn til þess að vera vissir um að óhætt væri að haida áfram - aðrir læddust með veggjum, krepptu hnefana, bitu á jaxlinn og hugguðu sig við að þetta liði hjá eins og annað í tilverunni. Tíu ára húllumhæ kvenna var að renna sitt skeið á enda - hvað við tekur veit enginn. -baj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.