Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Blaðsíða 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985. Auglýsing frá Reykjavíkurhöfn Eigendum smábáta, sem báta eiga í höfninni, stendur tii boða upptaka og flutningur báta laugardaginn 23. nóvemberfrá kl. 9 — 18. Upptaka báta ferfram við Bótar- bryggju í Vesturhöfn. Gjald fyrir upptöku og flutning á bátasvæði á landi Reykjavíkurhafnar í örfirisey er kr. 1.400,- og greiðist við upptöku báta á staðnum. Skipaþjón ustustjóri. getrluna- VINNINGAR! VINNINGSRÖÐ: X22 - X21 - 1 12 - 1 XX 1. Vinningur:i2réttir 103588(6/11) 2. Vinningurinrétti, 1.172.380 kr. 29.555 40529 95663 5377 + 97626 + 58484 92591+ 103118 105354(2/11)+ 106051 183661 íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík Kærufrestur er til mónudagsins 9. dosember kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar Kærueyöublóð fást hjá umboösmonnum og á skrifstofunni i Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina Handhafar nafnlausra seðla ( + ) veröa aö framvisa stofni eöa senda stofnmn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Gefrauna fyrir lok kærufrests. ÓDÝR KVENSTÍGVÉL Laugavegi 1 — Sími 1-65-84 Útlönd Útlönd Útlönd Danmörk: Sigur sósíalista í bæjar- og sveitar- stjómarkosningum íhaldsf lokkur jók fylgi sitt — Framfaraf lokkurinn tapaði öllum fulltrúum Poul Schliiter, leiðtogi íhaldsmanna, litur á úrslitin sem aðvörun til kjósenda flokksins um að hafa á sér andvara í þingkosningunum. manna og íhaldsmanna. fylgisaukningar. Fengu sósíalistar um 11,5% atkvæða sem er um helmings- aukning frá sveitar- og bæjarstjómar- kosningunum 1981. Ihaldsflokkurinn gat og fagnað auknu fylgi þó að ekki yrði það eins mikið og spáð hafði verið. Fengu íhaldsmenn 20% (17% 1981). Jafnaðarmenn, mið-demókratar og Kristilegi flokkurinn stóðu því sem næst í stað en jafnaðarmenn fengu um 36% greiddra atkvæða. Vinstri flokkurinn missti örlítið fylgi, fór úr 17% niöur í 15%. Framfaraflokkurinn beið mikinn ósigur. Féll fylgi hans úr tæpum 17% og niður í 2%. — Róttæki vinstri flokkurinn varö fyrir minni háttar fylgistapi. Síðast en ekki síst létu græningjar mikið aö sér kveða en þeir fengu 2,6% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var dræm eöa um 67%. — I kosningunum 1981 hafði kosningaþátttakan verið rúmlega 73%. Kunna menn engar skýringar á þess- ari lélegu þátttöku í kosningunum. Álitiö var fyrir kosningarnar að þær gætu verið mikilvægur prófsteinn á starf stjórnarflokkanna og því búist við góöri kjörsókn þótt raunin yröi önn- ur. Jafnaöarmenn kenndu um veðrinu en kalt var hér í gær og snjókoma hér og þar. Fylgistap jafnaðar- manna í Kaupmannahöfn Þrátt fyrir nær óbreytta stöðu jafnaðarmanna á iandsgrundvelli misstu þeir mikið fylgi í Kaupmanna- Einmitt sú samvinna virðist hafa orðiö þess valdandi að fylgisaukning íhaldsmanna varð minni en búist hafði verið við. Græningjar í sókn Græningjar fengu 4,5% atkvæða í Kaupmannahöfn og er búist við aö áhrifa þeirra gæti mjög þegar reynt verði aö skapa starfsgrundvöll meðal flokkanna eftir kosningarnar. En Glistrup á niðurleið Ósigur Framfaraflokksins þykir ekki koma mjög á óvart en ósamlyndi og klofningur hefur staðið honum fyrir þrifum undanfarið. Fékk flokkurinn aðeins um 2% greiddra atkvæða og missti nær alls staðar fulltrúa sína í bæjar- eða sveitarstjómum. Eru áhrif hans í bæjum og sveitum því nánast engin. Mogens Glistrup, stofnandi flokksins og helsti talsmaður hans, var í fram- boði en náöi ekki kosningu. Þykir framfara-gúrúinn” mega muna fífil sinn fegri en fyrir um 8 árum var flokkurinn einn stærsti stjórnmála- flokkurinn í Danmörku. Forsætisráðherra ánægður Poul Schliiter forsætisráðherra og formaöur Ihaldsflokksins var ánægður fyrir hönd síns flokks. Sagði hann íhaldsmenn enn einu sinni geta glaðst yfir auknu fylgi og þar með líklegt að ríkisstjórnin gæti komist heil í gegnum næstu þingkosningar. Þó undirstrikaöi hann að fylgisaukningu vinstriflokka mætti skoöa sem aðvörun til kjósenda borgaraflokkanna. Glistrup náði ekki kosningu og viðbrögð kjósenda og óvinsældirnar hafa leikið Framfaraflokkinn, áður næststærsta flokk landsins, illa. Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari DV i Kaupmannahöf n: Eins og spáð hafði veriö fyrir dönsku bæjar- og sveitarstjómarkosningarnar naut Sósíalistaflokkurinn mikillar höfn eða 6,2%. Sósíalistar juku aftur á móti fylgi sitt um 10,5% og krefjast nú beinnar hlutdeildar í stjóm borgar- innar. Hingaö til hafa þeir þurft að lúta í lægra h.ildi fyrir samvinnu jafnaöar- þessi úrslit þykja óhjákvæmilega hafa pólitískar væringar í för með sér. Talið er að græningjar muni vega þungt á vogarskálunum víös vegar um landið þegar velja á bæjar- og sveitar- stjóra. Almennt virðist afstaöa til umhverfismála hafa haft töluverö áhrif á fylgi flokkanna á hverjum stað. Enda hefur áhugi á umhverfisvernd aukist stórlega í Danmörku siðasta árið. Er svo komið aö félagafjöldi ýmissa náttúruverndarsamtaka er hærri en samanlagður meðlimafjöldi stjómmálaflokkanna. N0RÐMENN SAMÞYKKiA FRYSTINGU KJARNAV0PNA Hægri minnihlutastjórnin norska bjargaði sér frá ósigri í þinginu með því aö greiða atkvæði með tillögu um frystingu kjarnavopna á þingi Samein- uðuþjóðanna. Káre Willoch forsætisráðherra sagði aö stjómin mundi samt fullvissa Atlantshafsbandalagið um stuðning sinn viðstefnuþess. Noregur hefur áður setið hjá þegar atkvæöi hafa verið greidd um þessa til- lögu. Stjóm Noregs hefur sagt um hana aö tillagan sé of gagnrýnin á Bandaríkin og ekki nógu gagnrýnin á Sovétríkin. Erlendir sendimenn telja að ákvörðunin um atkvæðagreiðsluna hafi verið prófsteinninn á utanríkis- stefnu stjómarinnar og að stjómin kunni aö verða að beygja sig oftar fyrir meirihlutanum á þingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.