Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1985, Síða 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd „Þar sem ró hefur komist á í landi voru fannst mér endurnýjun i stjórn landsins timabser." Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í Danmörku; úrslitanna með óþreyju Schliiter: Verða kosningarnar dómur á stjórn borgaraflokk- anna? DV-mynd ÞóG. aldistana. Stefnuskrá þeirra kom út á hverjum fimmtudegi og var boö- beri þeirra enginn annar en Andrés önd og félagar. Sögöu talsmenn don- aldista aö eftir aö hafa keyrt skrípa- söguna í gegnum flokksapparatiö sé útkoman einfaldlega veruleikinn. Sé þaö skárra en útkoma hinna hefð- bundnu flokka sem, eftir aö hafa keyrt veruleikann í gegnum stefnu- skrár sínar, fái ekkert út nema skrípasögu. Hver sagði aö stjórnmál væruflókin? DV-mynd ÞóG. Þannig buöu sumir hinna hefð- bundnu flokka ekki fram á sumum stööum. Þessir nýju listar báru þá nafn eftir málefni því sem barist var fyrir eöa eftir einum manni, t.d. Jenslistinn. Þannig var því fariö um lista í Helsingör, en aö baki honum stóöu aöilar er leiddist hreinlega allt þetta kosningavafstur og nefndu sig don- Áhrif kosninganna Margar spurningar brenna á vörum fólks þegar hugað er að úrslit- um kosninganna. Veltu menn því m.a. fyrir sér hvort Jafnaðarmanna- flokkurinn mundi bíöa sinn 5. kosningaósigur í röö og þá hvort fyrrverandi forsætisráöherra, Anker Jörgensen, neyddist til aö segja af sér formennsku í flokknum. Mundi velgengni Sósíalistaflokks- ins í síðustu þingkosningum leiöa til fylkisaukningar í þessum kosning- um? Mundi íhaldsflokkurinn skjótast fram fyrir Vinstriflokkinn í sveitum og bæjum, eins og raunin varð í síðustu þingkosningum og mundi þaö hafa áhrif á samstarf þessara flokka í ríkisstjórn? Mundu miödemókratar, kiistnir og framfaramenn missa svo mikið fylgi að landspólitík þeirramissti auðvitað nauðsynlega festu? Að síöustu veltu inenn því fyrirsér hvort græningjar mundu ná einhver jum áhrifum í landspólitík. Fylgisspár samkvæmt skoðanakönnunum Þegar þetta var skrifaö leit ekki út fyrir aö veröa mundu neinar róttækar breytingar hvað varöar skiptingu í hægri og vinstri væng. Yröi helst um aö ræða innbyrðis baráttu Ðokka á hverj- umvængfyrirsig. Samkvæmt skoðanakönnunum missir Jafnaöarmannaflokkurinn fylgi er nem- ur einu til tveimur prósentum að meðal- Anker í forsætisráðherraskrifstofunni. tali, miöaö viö síöustu bæjar- og sveitar- stjómarkosningar. Sósíalistum var spáö 12—13% fylgis- aukningu og var reiknað með að þeir fengju um 10% allra atkvæöa. Hingaö til hefur Vinstriflokkurinn veriö umsvifamikill í bæjum og sveitum, en frá og með deginum í dag er reiknað með aö þaö heyri liö- inni tíö. 1981 fékk Ihaldsflokkurinn um 16% atkvæða, en nú var honum spáð aö meöaltali 21% meðan vinstri- menn falla úr 18% og niður i 17% allraatkvæða. Verður því lítill flutningur á at- kvæðum yfir miðjuna í dönskurr stjórnmálum. Aukiö fylgi sósíalista mun koma frá jafnaöarmönnum og vinstribrotunum og munu íhalds- menn fá atkvæði vinstrimanna, miðdemókrata og framfaramanna. Andrés önd í pólitík I mörgum bæjum og sveitarfélög- um spruttu upp nýir listar. Tengdust þeir frekar ákveðnum málum á hverjum staö frekar en ákveðinni pólitískri hugmyndafræöi. sem Schluter heldur til í nú. I Endurnýjun Umsjón: / /7 ' Þórir Guðmundsson Frá Hauki Lárusi Haukssyni, fréttarit- ara DV í Kaupmannahöfn. I gær gengu Danir til bæjar- og sveitarstjórnarkosninga. Þing- kosningar voru síðast í janúar 1984 og þær næstu veröa væntanlega ekki fyrr en haustið 1987. Þessar kosningar voru því eins konar milli- kosningar er geta haft veruleg áhrif á dönsk stjómmál almennt. Þing- menn biöu spenntir eftir úrslitum kosninganna, þar eö ýmsar pólitískar línu voru taldar skýrast. Munu úrslit kosninganna vera vísbending um starf flokkanna á þingi sl. 2 ár. Síðast en ekki síst mun skapast vinnufriöur á þinginu, en þessar kosningar hafa legiö eins og vofa yfir þingmönnum síðan þingiö var sett í haust. Þá geta stjórnar- flokkarnir líklega, með Ihaldsflokk- inn í broddi fylkingar ásamt róttæk- um vinstrimönnum, lagt síöustu hönd á niðurskurð fjárlaga fyrir 1986. Einnig ætti aö færast líf í samningaviðræður um aö brúa Stóra- belti og nýja sjónvarpsrás sem yröi fjármögnuö meö auglýsingum. Ofan á allt þetta hafa sumir búist viö efna- hagsaögerðum, er ganga út ,á að skerða einkaneyslu meö auknum álögum. HaukurLárus Hauksson, f réttaritari DV, skrifarfrá KaupmannahÖfn Þingmenn biðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.