Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Page 4
4 DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. NÓVEMBER1985. DV tekur í notkun eitt af stærstu tölvukerfum landsins Gjörbylting er orðin í allri vinnslu DV. Blaðið hefur tekið í notkun tölvukerfi, sem er eitt hið stærsta í landinu. Svo sem fram kom í DV í gær er starfsemi blaðsins nánast öll undir sama þaki nú í nýju og glæsilegu húsi við Þverholt 11. Tæknibyltingin fór fram samfara flutningnum. Ritvélaglamur heyrir nú sögunni til á ritstjóm DV. Nú sitja blaðamenn fyrir framan tölv- uskjái og ganga frá sínu efni til fréttastjóra og hönnunardeildar. Þaðan er gengið frá efninu til prentsmiðju. Hentugasta kerfið Tölvukerfið er norskt af gerðinni Norsk Data. Nokkuð er nú liðið á þriðja ár frá því farið var að huga að nýjum tækjabúnaði. Valið stóð milli íjögurra til fimm sérhæfðra fyrirtækja. Norsk Data var valið þar sem það er sérhannað til notk- unar á blöðum. Þá var það fyrir- tæki lengst komið í þvi að ráða við íslenska orðaskiptingu. Kerfið hentaði einnig vel, þar sem dagblöð á Norðurlöndum em unnin á svip- aðan hátt og hérlendis. Hjarta blaðsins Það má segja að hjarta blaðsins sé nú fjórar tölvur. Hver um sig hefur innra minni sem er 3 MB, þ.e. þrjár milljónir bókstafa. Sam- tals er því innra minni þeirra tólf milljónir bókstafa. Við þessar tölv- ur eru tengdir sex seguldiskar. Hver þeirra er með 288 MB, eða 288 milljóna bókstafa minni. Heild- arminnið er því um 1,7 GB, eða sem svarar 1,7 milljörðum bókstafa. Til gamans má geta þess að eitt tölu- blað af DV inniheldur um það bil eina milljón bókstafa. j dag mælir Dagfari______________I dag mælir Págfari ___________j dag mælir Dagfari fram í vor. Fyrir okkur hin, sem ekki tókum þátt í prófkjörinu, er ástæðulaust að hafa áhyggjur af þessu í bili. Við skulum þakka fyrir að þessi gerningahríð aug- lýsinga og áróðursbæklinga er gengin yfir. Einhveijir fram- bjóðendanna munu sjálfsagt sleikja sár sín og komast að þeirri niðurstöðu að laun heims- ins séu vanþakklæti. Eftir stendur sú kald- ranalega stað- reynd að það er ekki nóg, þegar lýðræðið er annars vegar, að hafa alla hæfileika til að bera, reynslu, þekkingu, hugmyndir og útlit. Það sem skiptir máli í prófkosningum er að eiga nógu stóra fjölskyldu og vini sem hægt er að hringja í þegar mikið liggur við. Það er hins vegar huggun harmi gegn fyrir alla þá sem ekki náðu í annað sætið eða borguðu nokkur hundruð þús- Und í herkostnað til að verða hornrekur á listanum að Reyk- víkingar munu fljótlega gleyma öllu oflofmu sem frambjóðend- urnir báru á sjálfa sig þannig að þeir verða ekki að athlægi nema rétt þessa vikuna. Dagfari Gemingahríðinni lokið Þá er blessuðu prófkjörinu lokið hjá íhaldinu. Ekki verður með sanni sagt að kjörsókn hafi verið upp á marga fiska, að minnsta kosti í öfugu hlutfalli við auglýsingaflóðið sem gengið hefur yfir Reykvíkinga síðustu dagana. Sagt er að sumir fram- bjóðendanna hafi varið allt upp í hálfri milljón króna í herkostn- að, án þess þó að gera betur en að slefa inn á listann. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert að komast í borgarstjórn þegar menn vilja borga með sér með þessum hætti. Og eftir hveiju skyldi blessað fólkið vera að slægjast þegar alkunna er og raunar viðurkennt af borgar- fulltrúunum sjálfum að Davíð borgarstjóri ráði öllu sem máli skiptir? Kannski er það orðið hundruð þúsund króna virði að fá að rétta upp höndina og að minnsta kosti létu frambjóð- endur þannig fyrir þetta próf- kjör að himinn og jörð mundu farast ef þeir fengju ekki umboð til að gera það sem Davíð viU aðþeirgeri. Fyrir nokkru varð mikið íra- fár í Laugarnesinu þegar íbú- arnir í hverfinu vildu koma í veg fyrir að afturbatafangar fengju þar búsetu. En ónæðið, sem hlýst af blessuðum föngunum, er áreiðanlega hátíð á móts við það heimilisböl sem skapast af því að vera í einhverjum tengsl- um við frambjóðendur hjá íhaldinu. Og jafnvel þeir sem ekki hafa annað til saka unnið heldur en að búa í borginni og eiga póstkassa hafa ekki haft heimilisfrið fyrir flóði af áróð- ursbæklingum og upphringing- um. Ef Reykvíkingar vilja hafa frið fyrir föngum, er þá ekki kominn tími til að einhver íbúa- samtök skeri upp herör gegn frambjóðendum? Er ekki ástæða fyrir frambjóðendur, sem endilega vilja rétta upp hendurnar fyrir Davíð, að þeir komi sér saman um að senda hver öðrum upplýsingarnar um ágæti sitt í stað þess að ónáða friðsama samborgara sína með þessum ósköpum. Það kemur enda í ljós af kjör- sókninni að kjósendur ná varla mikið út fyrir nánustu skyld- menni, vini og kunningja. Svona prófkjör ganga eiginlega út á það að sá nær bestri kosn- ingu sem á stærstu fjölskyld- una. Frambjóðendur hjá íhald- inu eiga að leggja til í framtíð- inni að öllum kosningum verði sleppt en í stað þess efni þeir til ættarmóta og fjölskyldupartía og raðist síðan á listann eftir því hve margir mæta. Davíð hlaut rússneska kosn- ingu eins og vænta mátti í lýð- ræðislegum flokki þar sem lýð- ræðið er fólgið í því að flokks- menD greiða hinum útvöldu atkvæði samkvæmt ákvörðun ílokksforystunnar. Þetta hefur verið útþrykkilega tíundað í leiður- um Morgunblaðsins og annars staðar þar sem lýðræðið blómstrar. Fram að þessu hefur flokkurinn átt Davíð og hrósað happi. Nú á Davíð flokkinn og báðir hrósa happi. Darraðar- dansinn í prófkjörinu, þar sem frambjóðendur hafa borið á sjálfa sig lof og prís til að kom- ast í annað sætið, hefur ekki leitt til annars en þess að nú er uppi megn óánægja að aðeins einn komst í annað sætið. Má vænta þess að frambjóðendurn- ir finni það fljótlega út að þetta sé ekki þeim sjálfum að kenna heldur kjósendunum og stefnir nú allt í það að obbinn af fylk- ingunni fari í fýlu. Fýlupokunum verður að vísu raðað á listann nokkurn veginn eins og fjölskyldur þeirra kusu en ihaldið þarf á öllum sínum leiðurum að halda til að kveða niður tröllafýluna í liðinu sem á að punta upp á borgarstjórann þegar alvörukosningarnar fara 80 útstöðvar Þegar eru komnir í notkun um 50 skjáir eða útstöðvar, flestir í notkun á ritstjórn blaðsins. Fyrir hendi er 61 skjár og verður afgang- urinn tekinn í notkun innan skamms. Þegar allt kerfi blaðsins verður komið í gang verða um 80 fasttengdir skjáir í notkun. Fullkomnustu setningarvélar 011 vinnsla blaðsins verður nú tölvuvædd. Gildir það jafnt um ritstjóm og hönnun, prentsmiðju og ljóssetningu, safnvinnslu, aug- lýsingar, áskrift, dreifingu og bók- hald. í prentsmiðju hafa verið tekn- ar í notkun fullkomnustu setning- arvélar sem völ er á. Þær vinna með leysigeislum samkvæmt áður gerðu forriti. í þessum vélum er innbyggt forrit þannig að í framtíð- Þegar gengið er inn um aðalinngang er þar móttaka, símaborð og smáauglýsingar. Setningartækin fullkomnu, sem búin eru leysigeislum. DV-myndir PK. Skrifstofurnar í Þverholti 11 eru allar hinar vistlegustu. Hjarta blaðsins, tölvurnar fjórar. inni verður hægt að senda ljós- myndir beint á síður. Leysigeisl- inn skannar ljósmyndimar. Öll þessi nýja tækni eykur af- kastagetu og styttir vinnslutíma blaðsins. Hún býður upp á ótal möguleika í vinnslu og útliti. Með styttri vinnslutíma aukast mögu- leikar á að koma nýjustu og fersk- ustu fréttum til lesenda. Það er takmarkið. -JH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.