Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985.
11
Þórshöfn:
Sjö hundruð íæknislaus
Mikið neyðarástand hefur nú ríkt
í rúmt ár í Þórshafnarlæknishéraði
vegna læknisleysis. Eina læknisað-
stoðin, sem íbúar fá, er einu sinni í
viku þegar læknir kemur frá Vopna-
firði. Getur hann aðeins sinnt fólki
í þessu sjö hundruð manna læknis-
héraði í fimm tíma sem er auðvitað
allt of lítið. Hefur fólk átt í miklum
erfiðleikum með að panta tíma ef það
hefúr þá verið mögulegt. T.d. hefur
fólk, sem þarf á myndatökum að
halda, þurft að sjá um það sjálft og
þurft að fara alla leið inn til Akur-
„Eina ráðið
að skipa tvo
læknaá
Þórshöfn”
— strandará
ráðuneytinu
„Ástæðan fyrir þessu læknisleysi
er í raun ekki flókin. Menn vilja
gjaman koma hingað en vilja ekki
vera einir hér. Því er eina úrræðið
að hafa tvo lækna en ekki hefur
fengist leyfi fyrir tveim stöðum hér.“
Þetta kom fram í máli Stefáns Jóns-
sonar, sveitarstjóra á Þórshöfn.
Hann sagði einnig að sveitarstjómin
hefði reynt að gera sitt ýtrasta til
að fá lausn á þessu máli því greiður
aðgangir að lækni væri sjálfsögð
mannréttindi. Læknum stæði til
boða frítt húsnæði ásamt fríum síma.
Nú væri að hefjast bygging nýrrar
heilsugæslustöðvar sem fullhönnuð
yrði til mikils öryggis fyrir íbúa stað-
arins. Stöðin býður upp á að þar
verði tveir læknar.
„En það strandar á ráðuneytinu
að fá leyfi fyrir tveim læknastöðum
sem myndu örugglega leysa vanda
byggðarlangsins í þessu máli,“ sagði
Stefán.
í heilbrigðisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar hjá Jóni Ingimars-
syni skrifstofustjóra að nánast væri
útilokað að fá tvo lækna í ekki
stærra læknisummdæmi. Þetta væri
það fámennt umdæmi að það yrðu
ákaflega litlar tekjur á mann. Það
væri erfitt að ráða í svona stöður úti
á landi á meðan ekki væri beinlínis
þegnskylduvinna á lækna. Þó batt
Jón vonir við að ástandið myndi
batna þegar heilsugæslustöðin yrði
tekin í notkun.
Ekki kvaðst Jón vita um afdrif
undirskriftalistans um það þyrfti að
snúa sér til landlæknisembættisins.
Ekki tókst að ná í frekari upplýsing-
ar þar í gær.
SvavarviðÞröst:
Látið ekki
sundra ykkur
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akurey ri:
„Hugmyndir Þrastar um lífskjara-
samninginn ganga út á að tryggja
kaupmáttinn. Og það er algjör sam-
staða í verkalýðshreyfingunni og-
Alþýðubandalaginu um að kaup-
máttur verði try ggður.“
Þannig svaraði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins, á
opnum fundi flokksins á Akureyri
fyrir helgi, spurningu eins fundar-
manns um það hvort samstaða væri
í Alþýðubandalaginu um lífskjara-
samning Þrastar Ólafssonar.
Svavar bætti síðar við svar sitt:
„En ég hef sagt það við Þröst Ólafs-
son og aðra í verkalýðshreyfingunni:
Látið ekki sundra ykkur í þetta skip-
tið.“
Landsfund Alþýðubandalagsins
bar mjög á góma. „Það sem lögð var
mest áhersla á var að kveðja forystu-
menn í flokknum og verkalýðshreyf-
ingunni saman til að hefja nýja sókn.
Og um það náðist algjör samstaða."
70kmínæstalækni
eyrar til þess. Öðru hvoru hafa komið
læknakandídatar en þeir stoppa
mjög stutt. Á síðasta ári hafa 10
læknar komið, flestir kandídatar,
sem gerir u.þ.b. einn á mánuði.
Þetta kom fram í máli Líneyjar
Sigurðardóttur en hún hefur ásamt
nokkrum íbúum Þórshafnar staðið
fyrir undirskriftasöfnun til að knýja
á um lausn þessa máls. Sagði Líney
að fólk væri orðið langþreytt á þessu
ástandi sem stæði velferð byggðar-
lagsins fyrir þrifum. Það væru 70 km
til Vopnafjarðar, þar sem væri næsti
læknir, og það gætu allir séð hvað
gæti gerst. Það hefði verið hjúkr-
unarkona á staðnum en hún hefði
einfaldlega gefist upp á ástandinu.
Líney sagði að listinn, sem hefði
fengið mjög góðar undirtektir, hefði
verið sendur til Matthíasar Bjama-
sonar, þáverandi heilbrigðisráð-
herra. Hefði málið farið þaðan til
landlæknis en íbúar Þórshafnar ekki
enn séð nein viðbrögð við honum.
Taldi Líney að eina lausnin til þess
að fá lækna til að setjast þama að
væri að hafa tvo lækna þar í einu,
enda veitti ekki af því í svo stóru
læknishéraði. SMJ.
Dvalarheimili fyrir aldraða í Seljahlíð var tekið í notkun fyrir helgi.
Húsið er þrjár hæðir auk kjallara. Er heimilið ætlað fyrir 80 íbúa í 60
einstaklingsíbúðum og 10 hjónaíbúðum. Á myndinni, sem tekin var
við opnun heimilisins í gær, eru t.v. Sigurður Björgúlfsson og Hróbjart-
ur Hróbjartsson arkitektar, Hilmar Guðlaugsson, Páll Gíslason, Jóna
Gróa Sigurðardóttir og Hólmfríður R. Árnadóttir. Fjögur siðasttöldu
eru í framkvæmdanefnd vegna bygginga stofnana í þágu aldraðra.
DV-mynd.'
íiölmiðli íramtíðarinnar.
Islenska útvarpsfélagið hí.
er almenningshlutafélag
með yíir 300 hluthaía.
Markmið félagsins er að
standa að útvarpsrekstri,
jafnt hljóðvarps sem
sjónvarps. Stefnt er að því
að hefja hljóðvarpsútsend-
ingar strax d vormdnuðum
1986 að fengnu leyíi út-
varpsréttameíndar. íbúar
d öllu Suðvesturlandi munu
ná útsendingum íslenska út-
varpsfélagsins.
Nú hyggst íslenska út-
varpsfélagið auka
hlutafó sitt um 10 milljónir
króna.
Með því verður hlutaíé íé-
lagsins 15 milljónir króna.
Við bjóðum þér hlut í félag-
inu. Þannig verður þú þátt-
takandi í byltingu íjölmiðl-
unar á íslandi. Hlutur þinn
rœðst af því hversu mikið
þú vilt og getur lagt fram.
Hlutabréíin eru geíin út í
stœrðum 1000, 10.000 og
100.000 krónur. Eitt atkvœði
íylgir hverjum 1000 króna
hlut. Hœgt er að greiða
hlutaféð með 6 mánaða
skuldabréíi.
22<7»
Um leið og þú leggur þitt
af mörkum tryggir þú
arðsemi peninga þinna.
í rekstraráœtlun íslenska út-
varpsíélagsins* er gert ráð
íyrir 22,24% arðsemi hluta-
íjár. Þetta þýðir með öórum
orðum það að fjárfesting
þin gœti skilað 22,24%
ávöxtun umfram verðbólgu
á fyrsta ári!
* Rekstraráœtlunin er unnin at
Endurskoðunarmiðstöðinni ht. - N.
Manscher.
r
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSLANDS HF
Haínarstrœti 7-101 Rvík, s. 28566 og 28466
Fjárfesting þín í Í.Ú. er
líka frádráttarbœr írá
skattskyldum tekjum*
Hún skilar því arði strax.
Einstaklingur getur dregið
allt að 25.000 krónum írá
skattskyldum tekjum. Hjón
mega draga allt að 50.000
krónum írá tekjum sínum.* *
* sbr. 1. no. 9/1984 og samþykktir
Ríkisskattstjóra.
" Þessar tölur giltu árið 1984. Ekki
er ólíklegt að þœr hœkki um u.þ.b.
30% á þessu ári.
Bréfin eru seld hjá Fjár-
íestingaríélagi íslands
hí. Hafnarstrœti 7. Sölutími
er frá 14. nóvember - 31.
desember 1985.
Allar nánari upplýsingar
um þetta útboð fást hjá
Fjárfestingaríélagi íslands.
ÍO milljón króna
hlutafjárútboö
<
o