Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Qupperneq 13
13 DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985. UPPGJÖRIALLABADDARII Allir tala um að á landsfundi Alþýðubandalagsins hafi tekist að sætta sjónarmiðin. Sérhver skoð- anahópur hafi fengið nokkuð fyrir sinn snúð og þannig hafi menn krækt saman rifunum. Mikill mis- skilningur er þetta. Mönnum virðist fyrirmunað að skilja kjama málsins sem er sá að andstöðuaflið í Alþýðubandalag- inu náði á landsfundinum fótfestu í öllum mikilvægustu stofnunum flokksins. í útvarpsþætti fáum dögum fyrir landsfundinn gaf ég þessum andstöðuöflum nafiiið „lýðræðiskynslóðin“ og sú nafn- gift hefur þótt svo vel við hæfi að hún er nú almennt notuð. „Lýð- ræðiskynslóðin“ náði ekki fót- festu í stofnunum flokksins vegna einhverrar málamiðlunar eða sátt- fýsi flokkseigendafélagsins; nei, svo langt í frá. Hún náði þessum árangri einfaldlega vegna þess að hún reyndist sterkari. Flokkseig- endafélagið varð að láta í minni pokann. Svavar Gestsson er eins og fanginn í Zenda með virkis- múrana Ólaf Ragnar Grímsson og Kristínu Ólafsdóttur sitt til hvorr- ar handar. Týndur sigur Glöggir menn hafa haldið því fram að í lok sjöunda áratugarins hafi Hannibal Valdimarsson, Bjöm Jónsson og félagar verið búnir að ná meirihluta í Alþýðubandalag- inu - þeir hafi bara ekki gert sér grein fyrir því sjálfir. Tónabíós- fundurinn og eftirleikur hans hafi verið frumhlaup þar sem leifum gamla flokkseigendafélagsins - Reykjavíkurkommakjamanum - hafi verið leyft að útkljá málin í stað þess að bíða landsfundar þar sem þetta lið hefði orðið í rungandi minnihluta. Með ótímabæru upp- gjöri á þeim eina vettvangi þar sem flokkseigendafélagið átti enn möguleika á að ná undirtökunum hafi lýðræðisöflin í kringum þá Bjöm og Hannibal afhent flokks- eigendafélaginu og gamla komma- kjamanum Alþýðubandalagið aft- ur til eignar og umráða og hrakið í klæmar á því fólki sem hafði verið gengið til liðs við lýðræðisöflin. Með þessu ranga stöðumati hafi lýðræðisbyltingunni í Alþýðu- bandalaginu verið seinkað um eina kynslóð. Framhaldið athyglisvert Þessi viðhorf glöggra manna eru mjög umhugsunar- og áhugaverð í ljósi þeirra atburða sem hafa verið að gerast í Alþýðubandalaginu. þeim Kristínu t.d. þeir og Ólafi Ragnari um, eins og Ólafsdóttur og Grímssyni, kosningu í einhverjar stöður. Kjallarinn Menn mega ekki gleyma þeim viðhorfum sem þetta fólk er fulltrú- ar fyrir. Menn mega ekki gleyma því t.d. að þetta fólk er fulltrúar „Svavar Gestsson er eins og fanginn í Zenda með virkismúrana Ólaf Ragnar Grímsson og Kristinu Ólafsdóttur sitt til hvorrar handar.“ Menn skyldu varast að ganga út frá því sem gefnu - eins og menn hafa gert - að baráttan á lands- fundinum hafi staðið um að tryggja einhverjum tilteknum einstakling- þeirra afla sem vill fá klárt og kvitt uppgjör við kommúnismann í fortíð Alþýðubandalagsins og afdráttar- lausa afneitun flokksins á öllum þeim röksemdum og tilhneigingum sem lögðu grundvöllinn að stofhun Kommúnistaflokks íslands, Sam- einingarflokks alþýðu - Sósíalista- flokksins og Rússadindleríinu öllu saman eins og það leggur sig. Það er líka þetta fólk sem alfarið vill vísa því á bug að Ásmundur Stefánsson, Guðmundur Þ. Jóns- son, Benedikt Davíðsson og komp- aní hafi meira rétt fyrir sér en annað fólk af því að þeir tilheyri einhverju batteríi sem sé kórrétt- ara en önnur batterí. Það er líka þetta fólk sem lítur svo á að skýring á fjölmiðlafátækt vinstri manna geti mætavel verið að þeir skrifi ekki nógu góð blöð og skýringin á málefnastöðu þeirra geti líka mætavel verið að þeim detti ekki nógu mikið og nógu gott íhug. Þetta er auðvitað alger gol- franska í eyrum flokkseigendafé- lagsins. Þess vegna getur ekki verið um neina málamiðlun að ræða á milli þessara afla - heldur uppgjör. Meiri-hvað? Vangaveltur um að þetta fólk hafi meirihlutann á móti sér í stofnunum eins og framkvæmda- stjórn og öðrum slíkum er með sama hætti gersamlega út í hött. Fyrir landsfundinn var þessi meiri- hluti ennþá meiri - meira að segja nær alveg óskoraður. Hverju breytti það? Gangi menn út frá því sem gefnu að kosning t.d. þeirra Kristínar og Ólafs Ragnars hafi bara verið tog um einstaklinga þá skiptir svona meirihluta Ásmunda og Guð- munda, Svavara og Steingríma máli. Það er vegna þess að þau eru fulltrúar viðhorfa sem hann skiptir engu máli. Láta menn sér til hugar koma að þetta fólk láti einhvern svona Mundameirihluta sam- þykkja á sig skoðanabann eða munnkefli? Auðvitað ekki. Slíkar Síberíusendingar hafa þveröfug áhrif. Nei, lesendur góðir! Uppgjörinu í Alþýðubandalaginu lauk ekki með sameiginlegri magalendingu á landsfundi. Uppgjörið er rétt að byija. Sighvatur Björgvinsson. RISNA SKIPHERRANS, REISN LANDHELGISGÆSLUNNAR í októbermánuði hefur nokkuð verið ritað í DV um deilumál milli Höskuldar Skarphéðinssonar skip- herra og Gunnars Bergsteinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, en skipherrann hefur verið settur í land um óákveðinn tíma. Kjarni málsins Deilt er um það hvort skipherrar gæslunnar eigi að fá greiddar kr. 1.250,- sem risnufé á mánuði þegar þeir koma til starfa á flugvél eða í stjómstöð Gæslunnar um stundar- sakir. Um er að ræða tvo menn sem gegna þessum störfum og útgjöld Gæslunnar, sem deilt er um, eru kr. 2.500,- á mánuði. Vissulega er af hinu góða þegar forstjórar fyrirtækja innan ríkisgeirans gæta hagsmuna skattborgarans í hví- vetna. Það ber þó að hafa í huga að hér er tekist á um framkvæmd og túlk- un gildandi kjarasamnings sem deiluaðilar hafa báðir undirritað. Eðlilegur farvegur þessarar deilu er því dómstólar sem endanlega kveða upp sinn úrskurð og þangað stefndi málið. Aukaatriði - aðalatriði Dagsetningar á reikningum vegna áfengisúttektar framlagðrar kröfugerðar skipherrans á hendur Gæslunni eru nú orðnar aðalatriði þaðsins og þess vegna er skipherr- ann settur út í „kuldann". Sem sönnunargagn í rekstri „risnu“- málsins er lögð fram í hendur lög- manns nóta frá ÁTVR með heildar- upphæð risnukostnaðar frá 1. apríl til ágústmánaðar sl. en lögmaður vill fá nótur frá ÁTVR sundurlið- aðar með risnuupphæð hvers mán- aðar. Þá ber svo við að starfsmaður áfengisútsölunnar gefur út nótur dagsettar á laugardegi þegar versl- anir ÁTVR eru lokaðar. Já, málið er mjög alvarlegt, ekki í augum almennings heldur þeirra embættismanna sem að sjálfsögðu vilja pappírana á borðið án form- galla. Formsatriði og skýrslugerðir I þriðja þorskastríðinu 1975 var mikil harka og urðu beinir árekstr- ar varðskipa og breskra herskipa a.m.k. 54 sinnum. Mikil átök áttu sér stað á fiskimiðunum við landið og íslendingar voru stoltir af varð- Kjallarinn GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON skipsmönnum fyrir dirfsku og þor, bjóðandi Bretum, sem voru á ógn- arstórum herskipum samanborið við hin íslensku varðskip, birginn. Dettur nokkrum manni í hug að skipherrar varðskipanna hafi verið áhyggjulausir yfir þeirri ógnun mannslífa sem fylgdi sífelldum ásiglingum breskra skipa og til- raunum þeirra til að sökkva varð- skipunum okkar? Og svo var komið í land og skýrslur gefnar af skip- herrum, kannski misritaðist dag- setning eða tímasetning örlaga- ríkra atburða sem gerðust á svip- stundu. Það var ekki meginmálið heldur hitt að satt og rétt væri frá sagt. Málalok strax Það gengur ekki að tveir embætt- ismenn innan stofnunar Landhelg- isgæslunnar takist svo á í tvíþættu deilumáli að út yfir alla skynsemi gangi. Hér verður dómsmálaráð- herra að taka á sig rögg og bera klæði á vopnin og útkljá deilumál um dagsetningar risnuúttektar. Sjálft meginmálið fari fyrir dóm. Skipherrann og forstjórinn mætist á miðri leið og skipherrann haldi tilhafsáný. Guðmundur Hallvarðsson. ^ „Hér verður dómsmálaráðherra að taka á sig rögg og bera klæði á vopnin og útkljá deilumál um dagsetningar risnu- úttektar. Sjálft meginmálið fari fyrir dóm.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.