Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Blaðsíða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Þeir brenna í skinn- inu að hegna Gaddafi Ætluðu hernaðarstorveldi á borð við Bandaríkin og Israel að fara með vopnum að Líbýu tii að hefna fyrir meint tengsl Gaddafis ofursta við hryðjuverkaöfl? Sú spurning kom mörgum til að standa á önd- inni alla síðustu helgi, sem leið þó án þ'ss að til þriðju heimsstyrjald- arinnar kæmi, eins og þeir voru samt famir að kvíða, er mest tóku mark á yfirlýsingum Gaddafis. I Washington hefur því verið haldið fram að Abu Nidal, leiðtogi eins öfgafyllsta skæruliðahópsins, sem klofið hefur sig út úr PLO og talinn er bera ábyrgð á hryðju- verkaárásunum í flughöfnum Vín- ar og Rómar 27. desember njóti dyggilegs stuðnings Gaddafis og Líbýustjómar til ódæðisverkanna. „Riki lögleysunnar" Undir helgina hvatti Washing- ton-stjórnin til þess að ríki heims tækju höndum saman um að ein- angra Líbýu, sem Reagan forseti hafði áður kallað „ríki lögleysunn- ar“. Hann hvatti til þess að Líbýa yrði beitt efnahagsþvingunum, diplómatískum einangrunarað- gerðum og á kreik komst kvittur um að Washingtonstjómin íhugaði hemaðaraðgerðir. Þar sem mörg vestræn ríki eru háð Líbýu um olíu og aðra verslun, þá em þeir í Washington ekkert yfirmáta vongóðir um að hrinda af stað alþjóðlegri vakningu til að einangra Líbýu. Og einir á báti eygja Bandríkjamenn ekki marga góða kosti. Þegar eru í gildi hjá þeim ýmis höft í viðskiptum við Líbýumenn. Þeir banna útflutning á hergögnum til Líbýu og tak- marka kaup á olíuvörum þaðan. Það hefur ekki miklu breytt í stefnu Gaddafis og önnur efna- hagsleg tök hafa Bandaríkin engin á þessu Norður-Afríkuríki. Og jafnvel þótt Washington- stjórninni tækist að tryggja sér samstarf mikilvægra bandamanna til þess að koma strangari viður- lögum yfir Líbýu, er ekki víst að það hefði meiri áhrif heldur, eins og sagan sýnir almennt af öðrum efnahagslegum refsiaðgerðum. Hitti þá sjálfa fyrir Kornsölubannið, sem Banda- ríkjastjórn setti á Sovétríkin eftir innrásina í Afganistan, hitti þá fyrir sjálfa, því að bannið bitnaði harðast á bandarískum kornbænd- um. Sovétmenn keyptu sér einfald- lega korn annars staðar á meðan. Enda var Reagan fljótur að afnema bannið þegar hann náði kosningu. Viðskiptabann, sem sett var seint á árinu 1981 til höfuðs gasleiðslu- lagningunni frá Síberíu vegna þrýstings, sem Bandaríkjastjórn fannst Sovétmenn beita pólsku stjórnina, hafði ekki önnur áhrif en vekja gremju bandamanna í Vestur-Evrópu. Þeir vildu kaupa gasið og aðstoðuðu við að leggja gasleiðsluna. - Viðskiptahömlur, sem Bandaríkin hafa sett á Víet- nam, Norður-Kóreu, Kúbu og Nic- aragua, hafa ekki valdið neinum tiltakanlegum umskiptum á efna- hagslífi. Nýlega var birt skýrsla í Wash- ington þar sem fram kom að af alls 68 efnahagslegum refsiaðgerðum, sem Bandaríkjastjórn hefur gripið til síðan 1914, hafa aðeins níu verk- að eins og ætlast var til en margar hafa algerlega mistekist. Hernaðarihlutun óaðlaðandi kostur Annar möguleiki, sem óspart hefur verið ræddur í Washington, er hernaðaríhlutun, en þótt herráð- ið í Pentagon hafi haft á reiðum höndum ýmsar áætlanir úr að velja fyrir menn í Hvíta húsinu, eins og loftárásir eða eitthvað annað ámóta, þá fylgdi öllum ærinn vandi einhver. Einn er sá að í Líbýu eru staddir 1500 Bandaríkjamenn, sem Líbýu- menn gætu tekið gísla, og er Hvíta hússtjórnin ekki of trúuð á yfirlýs- ingu Gaddafis um að Trípólístjórn- in líti á þá sem gesti sína og aldrei kæmi til greina að skerða hár á höfði þeirra. Raunar eru einnig um 15 þúsund ítalir í Líbýu og 8 þús- und breskir ríkisborgarar. Raunar hafa bæði Reagan og herráðið í Pentagon margvarað við því að svo hart væri brugðið við hryðjuverk- um að viðbrögðin gætu bitnað á saklausu fólki. Særðir farþegar á Rómarflugvelli bæla sig undir kúlnahríð hryðjuverkamanna, sem grunur leikur á að hafi notið aðstoðar Líbýu, en fyrir það vilja Bandaríkjamenn refsa Líbýu. Kosningaskjálfti bandarískra forsetaframbjóöenda: Hart leiöir nú demókrata Frá því að Edward Kennedy, öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, opinberaði þá ák- vörðun sína í desember síðastliðn- um að gefa ekki lengur kost á sér til útnefningar sem forsetaefni Demókrataflokksins hefur starfs- bróðir hans í öldungadeildinni, Gary Hart frá Colorado, verið tal- inn líklegastur til að hljóta út- nefninguna. Það er ekki einungis skoðun demókrata heldur einnig almennt álit þeirra manna er undirbúa nú af kappi Repúblikanaflokk Reag- ans forseta fyrir væntanlegan kosningaslag. Samkvæmt skoðanakönnunum frá því í sumar er Kennedy sá demókrati sem líklegastur var tal- inn til að hljóta útnefningu flokks síns. Samt grétu hann engir hærra en einmitt höfuðandstæðingarnir í höfuðstöðvum repúblikana. „Sá andstæðingur, er við vorum vissir um að sigra í forsetakosning- unum, hefur tilkynnt að hann verði ekki með,“sagði Edward J. Rollins, kosningastjóri Reagans í kosn- ingasigrinum 1984, og átti þá við Edward Kennedy. Hart úr öldungadeild Kjörtímabil Gary Harts í öld- ungadeildinni rennur út í nóvemb- er á þessu ári. Hart tilkynnti það á blaða- mannafundi þann 4. janúar síðast- liðinn að hann hygðist ekki stefna að endurkjöri í væntanlegri kosn- ingabaráttu um öldungadeildar- sætið. Þrátt fyrir opinbera tilkynningu um að verða ekki með í öldunga- deildarslagnum hefur Hart ekki enn formlega tilkynnt framboð sitt til forseta. Sumir stjómmálaskýrendur hafa sagt að forsetaframbjóðandi, er ekki á sæti á þingi, komi til með að eiga í vandræðum með að vekja athygli á sjálfum sér, missi af sviðs- ljósi fjölmiölanna. Telja þeir þetta veikja stöðu Harts. Aðrir telja ákvörðun Harts hafa verið þá einu réttu. Segja þeir að öldungadeildarþingmaðurinn fyrr- verandi verði ekki í neinum vand- ræðum með að verða í sviðsljósinu. „Hart er þannig persónuleiki að hann verður ekki í neinum vand- ræðum með að ná athygli," segir Kevin Sweeney, einn aðalaðstoð- armaður Harts. Segir hann ennfremur að frjáls- ræði það er hlýst af brottför úr öldungadeildinni og aukinn tími til raunverulegrar kosningabaráttu komi til með að virka jákvætt fyrir Hart. „Sagan hefur sýnt okkur að það er vita vonlaust að vera á kafi í störfum öldungadeildarinnar á sama tíma og barist er um útnefn- ingu til forsetaframboðs," sagði David Spear, kunnur stjórnmála- skýrandi í Washington eftir að ákvörðun Harts var opinberuð. Kosningabarátta um helgar Spear ætti að vita um hvað hann talar. Maðurinn er fyrrum aðstoð- armaður Howard Baker sem nú er talinn einn af líklegri frambjóðend- um repúblikana 1988. Baker barðist fyrir útnefningu repúblikana fyrir kosningarnar 1980, en með litlum árangri. Þar varð Baker bókstaflega að heyja kosningabaráttu sína um helgar á sama tíma og mótframbjóðendur hans, Bush og Reagan, einbeittu sér alfarið að kosningabaráttunni. Hvað peningahliðina varðar virðist ákvörðun Harts skynsam- leg. Kosningabarátta um öldunga- deildarsæti er bæði dýr og tímaf- rek. Hart skuldar enn yfir þrjár og hálfa milljón dollara frá því í kosn- ingaundirbúningnum 1984 er Mondale sigraði hann naumlega og hlaut útnefningu flokks síns. Edward Kennedy. Byrði þess er fremstur fer Það fylgja alltaf vissar kvaðir þeim frambjóðanda er talinn er hafa forystuna innan síns flokks í bandarískum slag um forsetaemb- ættið. „Þú ert með heila hjörð af með- frambjóðendum á hælunum og allir bera þeir sig saman við manninn í forystunni og allir vilja þeir nálg- ast hann,“ segir Lee Atwater, einn nánasti ráðgjafi Bush varaforseta. Maðurinn í fyrsta sæti á auðveld- ast með að safna áheitum í kosn- ingasjóði og hann á auðvelt með að vera í sviðsljósinu en hann má alltaf eiga von á gagnrýni frá öllum hinum frambjóðendunum saman- lagt. Naumir sigrar í forkosningum teljast tæplega sigrar fyrir þann sem fremstur telst heldur frekar ósigur. Um manninn á toppnum segir Lee Atwater ennfremur. „Toppmaðurinn vekur alltaf gaumgæfilega athygli. Hann verð- ur að teljast sigurvegari í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur daginn út og inn. Hann hefur ekkert að vinna en öllu að tapa.“ Líklegastir frambjóðenda demókrata eru nú: Gary Hart, öldungadeildarþing maður frá Colorado. Mario Cuomo, rikisstjóri í New York. Joseph R. Biden Jr., öldunga deildarþingmaður frá Delaw- are.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.