Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Síða 29
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 7. JANÚAR1986.
29
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Garðar Kjartansson afhendir sigurvegaranum i skákkeppni FÍGP - Hermanni Gunnarssyni -
glæsileg skíðaverðlaun. Á milli þeirra er Karl Harry Sigurðsson sem hafnaði í öðru sæti eftir harða
baráttu. DV-myndGVA
á tanum
■ ■ ■
Hermann Gunnarsson um væntanlegan skíðaferil.
Glæsilegu .skákmóti FÍGP - Fé-
lags íslenskra grjónapunga - lauk
með sigri íþróttagarpsins og út-
varpsmannsins Hermanns Gunn-
arssonar og af því tilefni fór fram
verðlaunaafhendi ng í Torfunni þar
sem vinningshafmn varð glæsileg-
um skíðum ríkari.
„Líklega er skíðaiðkun eina
íþróttin sem ég hef ekki komið
nálægt," sagði Hermann glaður og
ánægður með sigurinn, „ enda af-
sakað mig með því að ég væri svo
kulsæll - yrði bara kalt á tánum.“
„Reyndar gerði ég eina tilraun
og þá á Akureyri fyrir nokkrum
árum. Fékk lánuð gtæsileg skíði
og viðeigandi búning hjá kunn-
ingja mínum og dreif mig upp í
Hlíðar(jall,“ bætir Hermann við,
hinn hressasti með sigurinn í þessu
skákmóti FÍGP sem staðið hefur í
rúmt ár. Þetta var útsláttarkeppni,
háð á Torfunni í Reykjavík og
verðlaunaafihending fór fram á
sama stað.
„I öðru sæti varð vinur minn
Karl Harry Sigurðsson í Útvegs-
bankanum - frægasta banka lands-
ins - en þátttakendur voru úr Fé-
lagi íslenskra grjónapunga. Með-
limir þar eru aðallega gamlir
íþróttafuglar sem ekki hafa nennt
heim í hádeginu og hittast því á
Torfunni, inntökuskilyrði er að
vera í góðu skapi á staðnum. Núna
liggur væntanlega næst fyrir hjá
mér að snúa sér að skíðaíþróttinni,
þeirri einu sem ég ekki hef komið
nálægt um árin, að undanteknu
eftirmiðdeginu á Akureyri um árið.
Þar var ég örugglega flottasti
maðurinn á staðnum ef litið er á
útbúnaðinn, veltist þar um dags-
part í brekkunum og eyðilagði fyrir
öðrum annars ágætar brautir.
Svona eftir á að hyggja finnst mér
ekki ósennilegt að þama hafi verið
byrjað á öfugum enda þannig að
núna verður útbúnaðurinn ekki
jafnglæsilegur en tékkað á því
hver'nig tæmar taka íþróttinni
áður en lengra er haldið.“
baj
FATAVERKSMIÐJAN GEFJUN,
Snorrabraut 56,
óskar að ráða í eftirtalin störf:
1. Saumastörf.
2. Sníðslu (fóður).
Hér er um framtíðarstörf að ræða fyrir áhugasamt
fólk.
Vinnutími erfrá kl. 8 til 16.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 16638 og
18840.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
íþróttafélagið
Gerpla,
símar 74807
og 74925
Innritun er hafin í öllum deildum félagsins.
Fimleikadeild, byrjendur, stelpur og strákar.
Karatedeild, byrjendur og framhald.
Júdódeild, byrjendur og framhald.
Badmintondeild, unglinga- og barnaflokkur.
Þjálfari Helgi Magnússon.
Einnig eru nokkrir vellir lausirtil útleigu.
Kvennaleikfimi, aerobic og jass,
byrjendur og framhald. Æfingar eru að hefjast,
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.30, 19.30 og
20.30.
íþróttafélagið Gerpla.
Útsala í
Skólavörðustíg 12
og
Vogue Hafnarfirði
Ódýr handklæði, KR.
stærð 70x140 150
stærð 50x100 100
Sængurfataefni 150
Acryl gardínuefni 150
Handofin bómullarefni,
hentug í sumarbústaðinn 120
Rifflað flauel 350
Óuppúrklippt flauel 250
Ýmis efni, verð frá 75 kr.
til 350 kr.
Sem dæmi um verðlækkun.
Flauel kr. 639, nú kr. 350.
Kápuefni áður kr. 689, nú kr. 350.
Bómullarefni áður kr. 340, nú kr.
120.
Bútar í öllum
Vogue-búðunum.