Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Side 26
26 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986. Andlát Afmæli Happdrætti Dregiö í happdrætti styrktarfé- lags vangefinna Á aðfangadag var dregið í happ- drætti Styrktarfélags vangefinna og hlutu eftirtalin númer vinning: 1.-3. Þóra Franklín lést 28. desember sl. Hún fæddist 7. mars 1919 í innbænum á Akureyri. Foreldrar hennar voru ajónin Valgerður Friðriksdóttir og Jónas Jóhannsson Franklín. Ung að árum giftist Þóra Ólafi Daníelssyni en hann lést árið 1980. Þeim hjónum fæddist eitt barn. Útför Þóru verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag kl. 13.30. Sigríður Tómasdóttir,Hverfisgötu 70, lést í St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi sunnudaginn 5. janúar. Margrét Árnadóttir, Lyngholti, Þórshöfn, lést föstudaginn 3. janúar. * Hekla Sæmundsdóttir, Grettisgötu 45, andaðist í Borgarspítalanum 4. ianúar sl. Kristrún Kristófersdóttir, Reyni- hvammi 34, Kópavogi, sem lést þann 31. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 9. ianúarkl. 13.30. Guðný Guðmundsdóttir frá Minna-Núpi, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 10. janúar kl. 13.30. Gunnlaugur J. Guðmundsson, Stýrimannastíg 11, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 8. janúar kl. 13.30. 80 ára afmæli á i dag, þriðjudaginn 7. janúar, frú Svanhildur Guð- mundsdóttir, Dunhaga 11, Reykja- vík. Hún verður í dag á heimili sonar síns í Granaskjóli 50. Guðmundur Magnússon,fræðslu- stjóri Austurlands, Mánagötu 14, Reyðarfirði, verður 60 ára fimmtu- daginn 9. janúar nk. Hann hefur gegnt fræðslustjórastarfi Austur- lands undanfarin 9 ár, en var áður m.a. skólastjóri Breiðholtsskóla og Laugalækjarskóla í Reykjavík. Guð- mundur og kona hans, Anna Frí- mannsdóttir, taka á móti gestum í Félagslundi, Reyðarfirði, laugardag- inn 11. janúarkl. 16-19. Kennara vantar nú þegarað Iðnskóla Patreksfjarðar. Upplýsingar í síma 94-1257 og 94-1466. £)□ □□□□□□□□□□□□□ 3 3 3 3 0 0 □ □ 3 3 + 3 3 3 3 3 3 □ □ □ □ □ □ □ Blaðbera vantar AKUREYRI Blaðberi óskast i innbæ. Upplýsingar á afgreiðslu DV, sími 96-25013. □ □□□□□□□□□□□ niO vinningur, bifreiðar: 69008, 66947, 52778. 4. 10. vinningur, húsbúnaður: 7404, 7522, 25264, 40645, 45341, 51503, 75639. Á gamlársdag var aðalvinn- ingurinn afhentur og var myndin tekin við það tækifæri. Félagið þakk- ar veittan stuðning og óskar lands- mönnum farsældar á nýja árinu. Ný fyrirtæki Ymislegt Pennavinir Jónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í janúarmánuði Sinfóníuhljómsveit íslands heldur þrenna tónleika í janúar, tvenna fimmtudagstónleika og eina stjörnu- tónleika. Fyrstu fimmtudagstónleik- arnir á árinu verða 9. janúar og er einleikari Joseph Ognibene, horn- leikari, og stjórnandi Páll P. Pálsson. Á efnisskránni vérður frumflutt nýtt verk, Sinfónía eftir John Speight, en hann fékk styrk frá Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins til þess að semja þetta verk. Ognibene verður einleik- ari í hornkonsert í Es-dúr, sem Ric- hard Strauss samdi, og síðasta verkið á efnisskránni er eftir Respighi, Furur Rómarborgar. Fimmtudaginn 16. janúar verða haldnir árlegir Vínartónleikar hljómsveitarinnar þar sem flutt verður sívinsæl tónlist eftir Johann Strauss og Robert Stolz. Síðustu fimmtudagstónleikar fyrra misseris verða haldnir 23. janúar undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat. Einleikari á þeim tónleikum verður Guðný Guðmundsdóttir konsert- meistari. Að gefnu tilefni eru tón- leikagestir vinsamlegast beðnir að athuga að þrenns konar áskriftar- kort eru nú í gildi: á fimmtudagstón- leika, helgartónleika og sérstaka tónleika (Stjörnutónleika). Tónleik- arnir verða haldnir í Háskólabíói og hefjast allir kl. 20.30. Miðar á ein- staka tónleika í janúar eru nú til sölu í bókabúðum Sigfúsar Ey- mundssonar og Lárusar Blöndal, og í ístóni. Embætti Hinn 12. nóvember 1985 veitti heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- ið Steinunni G.H. Jónsdóttur, cand. med. et. chir., leyfi til þess að stunda almennar lækningar hér á landi. Hinn 13. nóvember 1985 veitti heil- brigðis- og tryggingamálaráðuney- tið cand. med. et. chir. Kjartani B. Örvar, leyfi til þess að stunda al- mennar lækningar hér á landi. Forseti íslands hefur hinn 13. nóv- ember sl. skipað Halldór Kristinsson sýslumann í Þingeyjarsýslu og bæj- arfógeta á Húsavík, frá 1. desember 1985 að telja. Tapað-Fundið DV hefur borist bréf, skrifað á bjag- aðri íslensku, frá 19 ára enskum strák sem vil skrifast á við íslenska stelpu. Hann hefur mikinn áhuga á að læra íslensku og segir að penna- vinkona sin geti lært af sér ensku. Áhugamál hans eru ljósmyndun, bíóferðir, söngur og ferðalög. Heim- ilsfang hans er: Darian Sole, 15 Delhi St., London N.I.OAN., England. Brandur er týndur Þessi fallegi högni, sem gengur undir nafninu Brandur og er ómerktur, er týndur. Hann hvarf sl. fimmtudags- kvöld frá heimili sínu að Austurbergi 2. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta veitt um ferðir hans vinsamleg- ast hringi í síma 71358. ATH. Þeir sem búa í nágrenni Austurbergs eru vinsamlegast beðnir að athuga í bíl- skúra eða kjallara því Brandur gæti leynst þar. Þórdís Helgadóttir og Þorgerður Tryggvadóttir reka í Kópavogi sam- eignarfélag undir nafninu Gott útlit sf.. Tilgangur félagsins er rekstur hár- og snyrtistofu. Eirikur Þórðarson, Leirubakka 16, Reykjavík, rekur einkafyrirtæki í Kópavogi undir nafninu Danska smurbrauðið. Tilgangur með starf- seminni er að selja smurt brauð. Kristján Sigurbjörnsson, Lyngmóum 16, Garðabæ, rekur í Hafnafirði einkafyrirtækið Kjötás. Tilgangur: vinnsla matvæla og tilheyrandi starfsemi. Þorvaldur Hermannsson, Syðra- Kambhóli, Arnarneshreppi, Þor- steinn Hermannsson, s. st., Jóhannes Hermannsson, Hjalteyrarskóla, Arn- arneshreppi, Sigurður Þorbergsson, Syðri-Reistará, Arnarneshreppi, reka í sameiningu sameignarfélag á Hjalteyri undir nafninu Hlein sf. Tilgangur félagsins er rekstur frysti- klefa og fiskverkun. Borgarsalan sf., Ráðhústorgi 1, Akureyri rekur verslun með sælgæti og fleira að Hafnarstræti 100B, Akureyri, undir nafninu Turninn. Brynjólfur Snorrason, Gröf, Öngul- staðahreppi og Bergmundur Stefáns- son, Löngumýri 26, Akureyri, reka sameignarfélag á Akureyri undir nafninu Nuddstofa Brynjólfs sf. Tilgangur félagsins er rekstur Nudd- og gufubaðsstofu og skyldur rekstur. Ólæti á Selfossi: Lögregluþjónn slasadist Gífurleg ólæti brutust út á Sel- fossi í gærkvöldi þegar unglingar geystust um götur bæjarins á þrettándanum. Lögreglan á Sel- fossi fékk liðsauka. Átta lög- regluþjónar komu frá Reykjavík og fékk einn lögregluþjónninn flösku í andlitið. Var hann fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Fjöldi unglinga gekk berserks- gang um bæinn. Kveiktur var eldur víða um götur og slökkvi- liðsbíll var stórskemmdur. Rúður voru brotnar víða, flestar í Gagn- fræðaskólanum, eða alls 30. Þá voru unnar skemmdir á Brauð- og kökugerð Kaupfélagsins. Það má segja að allt hafi verið á tjá og tundri á Selfossi. - -sos RÖSKUN A FLUGI INNANLANDS Innanlandsflug gat ekki hafist í morgun þar sem flugumferðarstjóra vantaði til að stjóma blindflugi. Fyrsta vél fór í loftið eftir klukku- stundar seinkun. Búist er við töfum ídag. Óánægja flugumferðarstjóra með nýtt skipulag, sem tók gildi um ára- mót, virðist eiga stóran þátt í vand- anum. Flugumferðarstjórar tregast við að manna stöður, sem myndast í millibilsástandi vegna breytinganna, og afþakka áukavaktir í mótmæla- skyni. Ekki virðist um skipuleg veik- indaforföll að ræða. I morgun voru tveir menn af tólf á vaktinni veikir en tvær aðrar stöður voru ómannað- ar. Tvennum sögum fer af veikindun- um í gær. Flugmálastjóri spgir að sex hafi verið veikir en talsmaður flug- umferðarstjóra segir aðeins þrjá hafa verið veika, þar af einn vegna bíl- slyss. Hjálmar Diego Arnórsson, formað- ur Félags flugumferðarstjóra, sagði að vegna mikillar yfirvinnu að und- anförnu væru menn þreyttir og tregir til að taka aukavaktir. -KMU. Teflir Kasparov ekki v/ð Karpov? Skákheimurinn bíður þess nú með öndina í hálsinum hvað úr rætist með heimsmeistaratitilinn í skák, en i gær rann út frestur Kasparovs hins nýbakaða heimsmeistara til þess að svara tilboðum um hvar hafda skuli í febrúar næsta einvígi þeirra Karpovs. Kvisast hefur að Kasparov hafi neitað að tefla einvígi svo fljótt aftur um titilinn. „Forseti alþjóðaskáksambandsins hefur lagt svo fyrir að engar upplýs- ingar skuli veittar fyrr en hann gefur út yfirlýsingu um málið, en hann er á ferðalagi og ég veit ekki hvar,“ sagði dr. Lim, ritari þegar DV hafði samband við skrifstofu FIDE í Luz- erne í morgun og spurði hann hvort svar hefði borist frá Kasparov. - Verður Kasparov sviptur titlinum eins og Bobby Fischer forðum ef hann neitar að tefla einvígið við Karpov? Það er ein af spurningunum sem brennur og beðið er eftir því að Campomanes forseta gefist stund frá ferðalögum til að svara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.