Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Side 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986.
íþróttir íþróttir íþróttir
Leggur Ami
skónaá
hilluna?
„Ég reikna alveg eins með því
að ég hætti að leika knattspyrnu.
Ég myndi þá jafnvel hvíla mig í
eitt eða tvö ár,“ sagði Skagamað-
urinn Árni Sveinsson í samtali
við DV í gærkvöldi en hann er
fluttur til Reykjavíkur og býr þar
ásamt konu sinni.
„Ég var að tala við Framara um
daginn en það kom ekkert út úr því.
Ég get fullyrt að ef ég leik knatt-
spyrnu næsta keppnistímabil þá leik
ég með Akranesi. Annars á ég alveg
eins von á því að ég hætti eins og
ég sagði áðan,“ sagði Ami Sveinsson
í gærkvöldi.
Miklar sögur hafa verið í gangi
varðandi framtíð Árna á knatt-
spyrnuvellinum og ein slík hljóðaði
upp á félagaskipti Árna yfir í 2. deild-
arlið Víkings. Enginn fótur er sem
sagt fyrir þessum sögusögnum. Það
yrði mikið áfall fyrir Akurnesinga
ef Árni leggði skóna á hilluna. Hann
hefur um árabil verið einn allra besti
leikmaður liðsins og jafnan verið
fastur maður í íslenska íandsliðs-
hópnum í knattspyrnu. -SK.
15
bAt-i-a í fkW
^rvlUl 1 er nigi
— segir Ásgeir Sigurvinsson um
þá f rétt í Kicker að hann sé jaf nvei
á leið til Bayer Leverkusen.
„Viðtalið tilbúningur,” segir Ásgeir
„Ég var að koma hingað til
Þýskalands eftir jólafrí á lslandi
og var að sjá þetta í Kicker.
Þetta er algert rugl. Ég er ekki
á förum frá Stuttgart," sagði
knattspyrnumaðurinn Ásgeir
Sigurvinsson i samtali við DV í
gærkvöldi.
í vestur-þýska íþróttablaðinu
Kicker var fyrir skömmu grein um
hugsanleg félagaskipti Ásgeirs og
viðtal við hann. Þar var sagt að
forráðamenn Bayer Leverkusen
hefðu mikinn.áhuga á að fá Ásgeir
til liðs við sig og haít eftir Ásgeiri
að hann hefði jafnvel áhuga á að
skipta um félag. Einnig var sagt í
greininni í þýska blaðinu að samn-
ingur Ásgeirs við Stuttgart rynni
út í júní í ár. Ásgeir hafði eftirfar-
andi um þetta að segja í gærkvöldi:
„Ég hreinlega skil þetta ekki.
Blaðamaðurinn sem skrifar
þetta hefur algerlega rangt fyrir
sér og ég kannast ekki við að
hafa talað við hann. Þetta er því
eintómur tilbúningur og enn ein
vitleysan i blaðinu að samning-
ur minn við Stuttgart renni út
I
I
I
I
I
I
I
I
w~........... 1
í sumar. Hann rennur út í júní ■
1987.“ I
Á Stuttgart enn möguleika á að I
verða þýskur meistari? ■
„Ekki held ég það. Möguleikar I
okkar eru aðallega tengdir bikar*. :
keppninni en þar erum við í undan- I
úrslitum. Ef við fáum heimaleik í I
undanúrslitunum og verðum eilítið ■
heppnir ættum við hæglega að geta I
komist í úrslitin í bikarnum og ;
jafnvel orðið bikarmeistarar. Hvað |
viðkemur deildinni þá má ljóst vera ■
að möguleikar á meistaratitlinum I
eru mjög litlir og ég tel mikla a
möguleika á að Werder Bremen I
verði meistari. Þeir náðu mjög I
góðum árangri í fyrri hluta keppn- ■
innar fyrir jól og léku þá lengst af |
án markaskorarans Rudi Völlers. -
Hann mun hins vegar leika með |
þeim síðari hlutann og ég reikna ■
með þeim mjög sterkum og líklega I
sem meisturum þegar upp verður ■
staðið í vor. Við í Stuttgart höfum I
hins vegar sett stefnuna á UEFA- ■
sæti og ég vona bara að okkur I
takist að ná 5. sætinu," sagði Ás-
geirSigurvinsson. I
-SK.j
„Norsku dómaramir stálu
öllu f rá okkur7
segir Leif Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik,
„Að við skulum ekki hafa sigrað
í fyrsta leik okkar gegn íslending-
um er einungis sök norsku dóm-
aranna. Þeir hreinlega stálu
sigrinum frá okkur. Dómgæsla
þeirra var fyrir neðan allar hellur
og fslendingar högnuðust mjög á
henni.“
Þetta segir Leif Mikkelsen, danski
landsliðsþjálfarinn í handknattleik,
meðal annars í viðtali við eitt dönsku
blaðanna eftir ferð danska landsliðs-
ins í handknattleik til íslands milli
jóla og nýárs. Mikkelsen er mjög sár
út í norsku dómarana og segir þá
hafa verið hlutdræga. Hann segir
Tvö töp á heimavelli
Tveir leikir fóru fram í ensku
bikarkeppninni i knattspyrnu í
gærkvöldi. Crystal Palace tapaði
á heimavelli fyrir Luton, 1-2, og
Oldham tapaði á heimavelli fyrir
Orient með sömu markatölu.
Fresta varð fimm leikjum þar til
á morgun. -SK.
ennfremur að frammistaða danska
liðsins hafi verið mun betri en úrslit-
in í leikjunum gegn íslendingum gefi
til kynna. Dómaramir hafi komið í
veg fyrir hagstæðari úrslit.
Danska blaðið Politiken segir að
norsku dómararnir hafi staðfest
orðstír sinn sem miklir heimadómar-
ar. Hvorki Mikkelsen né Politiken
minnast einu orði á þá staðreynd að
íslenska liðið var aðeins fullskipað í
fyrsta leiknum gegn Dönum. í ís-
lenska liðið vantaði sem kunnugt er
þá Pál Ólafsson, Atla -Hilmarsson,
Einar Þorvarðarson og Alfreð Gísla-
son. Danir léku hér með sitt sterk-
asta lið að sögn Leifs Mikkelsen.
Hættir Helgi Helga? j Ármanns
yrði áfall fyrir Völsung. Guðmundur þjálfar liðið næsta sumar ;
þremur árum þegar krossbönd í 2. dcildinni. Þess má geta að I
fóru i hnénu og þetta hefur ísfirðingurinn Guðmundur Ól-
aldrei verið gott síðan. Ég
meiddist síðan á æfingu í sum-
ar og hef verið mjög slæmur,“
sagði Helgi.
„Ég á alveg eins von á þvi að
ég verði að hætta að leika knatt-
spyrnu. Ég er mjög slæmur í
hnénu og verð að fara í upp-
skurð. Eftir hann kemur í ljós
hvað þetta er,“ sagði knatt-
spyrnumaðurinn Helgi Helga-
son, sem leikið hefur undan-
farin ár með Völsungi frá Húsa-
vík, í samtali við DV í gær-
kvöldi. Helgi lék áður með Vík-
ingi.
„Ég var skorinn upp fyrir
Það yrði mikið áfall fyrir Völs-
ung ef Helgi þyrfti að leggja
skóna á hilluna því hann er
mjög snjall knattspyrnumaður
og hefur undanfarið verið einn
af bestu leikmönnum Völsungs
afsson, sem þjálfaði meistara- I
fiokk kvenna í knattspyrnu hjá |
Breiðabliki á síðasta keppnis- .
tímabili, hefur verið ráðinn *
þjálfarihjáVölsungifyrirnæsta |
keppnistímabil. Skagamaður- .
inn Sigurður Halldórsson, sem |
þjálfaði Völsung í fyrra, mun ■
þjálfa lið Selfoss næsta sumar. ■
-SK. !
í einu dönsku blaðanna er Mikk-
elsen spurður að því hvað hann hafi
helst uppgötvað í sambandi við
danska liðið í Islandsferðinni. Og
Mikkelsen svarar: „Það að Poul
Sörensen er besti markvörður Dan-
merkur. Hann varði stórkostlega
gegn Islendingum." Þá kemur fram
í umræddu viðtali að Leif á enn eftir
að gera upp hug sinn varðandi val
leikmanna í fjórar eða fimm stöður
í danska landsliðinu fyrir HM í Sviss.
-SK.
Þórður til
Ármenningar hafa ráðið þjálfara
fyrir meistaraflokk félagsins í knatt-
spyrnu fyrir næsta keppnistimabil.
Við liðinu tekur Þórður Lárusson
sem þjálfað hefur yngri flokka Fram
með mjög góðum árangri. Þórði til
aðstoðar verður gamall refur innan
Ármannsliðsins, Pétur Christiansen.
Starf knattspyrnudeildar Ármanns
hefur verið í nokkrum öldudal á
undanförnum árum en engu er líkara
en að vel _sé að rætast úr málum á
þeim bæ. í fyrra var starfandi 4. og
5. flokkur hjá félaginu eftir margra
ára hlé og næsta sumar hyggjast
Ármenningar senda lið í 3. flokki
karla og meistaraflokki kvenna til
keppni. Er vonandi að þetta upp-
byggingarstarf Ármenninga gangi að
óskum.
-SK.