Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1986, Page 17
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 7. JANÚAR1986. 17 Dttir Iþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir Dregið í ensku bikarkeppninni: STÓRLEIKURINN Á BRÚNNI — Chelsea ge|h Liverpool Sigurður Jónsson, KR-ingur, við ráspall á Evrópumeistara- mótinu í Mónakó 1947. þeirra og þeir skiptust oft á um að sigra. Sigurður KR-ingur bætti meira að segja Islandsmet sem Sigurður Þingeyingur hafði náð frá honum. -hsím Stórleikur fjórðu umferðarinn- ar í ensku bikarkeppninni verður viðureign Chelsea og Liverpool á Stamford Bridge í Lundúnum. Þessi lið drógust saman þegar dregið var til fjórðu umferðarinn- ar í gær. Þau sigruðu bæði í leikj- um sínum í 3. umferð á laugar- dag. Vegna frestana sl. laugardag og jafnteflisleikja er enn mjög óljóst hvaða lið leika saman í 4. umferðinni. Þó er greinilegt að stórleikur verður á Maine Road i Manchester. Þar leika Man.City og Watford. Nafn Sunderlands kom fyrst úr ’hattinum í gær og í 4. umferðinni, sem háð verður laugardaginn 25. janúar, fær Sunderland annað hvort Man.' Utd eða Rochdale í heimsókn. Forráðamenn Sunderland vona auðvitað að United sigri 4. deildar lið Rochdale því þá verður troðfullur völlur á Roker Park ef bikarmeistar- ar Man. Utd koma í heimsókn. York fær heimaleik annað hvort gegn Birmingham eða Altrincham. í fyrra sló York Arsenal út í bikarkeppninni sem 3. deildar lið og enn er York í 3. deild. Altrincham er eina liðið utan deildanna sem enn er í bikar- keppni - útborg Manchester. Everton, sem lék til úrslita við Man. Utd sl. vor í bikarkeppninni, fékk heimavöll í 4. umferð. Leikur annað hvort við Nottingham Forest eða Blackburn. Þar gæti orðið stór- leikur ef Forest sigrar Blackburn. Hins vegar verður einnig spenna á Goodison Park ef Blackburn, eitt af betri liðum 2. deildar, sigrar. Það er Lancashirelið eins og Everton. Hull 4 * eða Plymouth leika á heimavelli gegn Brighton. Fjárhagslega yrði gott fyrir Plymouth að fá heimaleik gegn Brighton, öðru liði af suður- ströndinni. PlymouthBrighton mundi draga að mikinn íjölda áhorf- enda. Er röðin komin aðþér 9 Tíminn er aö renna út! HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings Ekki hefur enn tekist að koma á leik Middlesbrough og Southampton en það liðið, sem sigrar í þeim leik, fær Wigan úr 3. deild í heimsókn í 4. umferð. Aston Villa og Portsmouth leika á ný annað kvöld og það liðið, sem kemst í 4.umferð, fær Lundúna- liðið Millwall í heimsókn. Arsenal var heppið í drættinum, fær Rother- ham á Highbury. West Ham fékk einnig heimavöll, leikur annað hvort við Ipswich eða Bradford. Það má reikna með að mikið verði um bikar- leiki í Lundúnum í 4. umferðinni. Lánið lék við bæði Sheffield-liðin á ný í drættinum. Þau éiga að vísu bæði eftir að leika heimaleiki sína úr 3. umferðinni. Sheff. Wed. við WBA og ef liðið sigrar í þeim leik leikur það næst á Hillsborough við annað hvort Oldham eða Orient. Sheff. Utd á eftir að leika við Fulham í 3. umferð. Sigurliðið úr þeim leik ~ leikur annað hvort við Gillingham eða Derby á heimavelli. Peterbrough fær annað hvort Carlisle eða QPR í heimsókn. Bristol Rovers leikur á útivelli annað hvort við Crystal Palace eða Luton. Tveir síðustu leik- irnir eru hvað flóknastir. Hudders- field eða Reading leika á heimavelli annað hvort við Bury eða Bamsley og Stoke eða Notts County leika á heimavelli við Tottenham eða Ox- ford. -hsím HSVvillfá Kóreumann Frá Atla Hilmarssyni, fréttarit- ara DV í Þýskalandi: V-þýska liðið Hamburger Sport- verein hefur nú mjög mikinn áhuga á að klófesta Kóreu- manninn Hoi Soon Ho sem tví- vegis hefur verið kjörinn knatt- spyrnumaður S-Kóreu. Það eina sem stendur í vegi fyrir kaupun- um á Ho er það að hann þarf að gegna herskyldu í tvö ár fyrir land sitt en v-þýska liðið er von- gott um að yfirvöld í S-Kóreu muni ekki standa í veginum. Hoi Soon Ho er framlinumaður og er honum ætlað að fylla skarð Horst Hrubesch en HSV hefur reynst erfitt að fá arftaka hans. -fros „Meira samband við leikmenn” Frá Kristjáni Bernburg, frétta- ritara DV í Belgíu: „Arie Haan er með mun \ skemmtilegri æfingar en Paul Van Himst var með. Þá ræðir hann meiri taktik og er í nánara<c sambandi við leikmenn en forveri hans,“ sagði Arnór Guðjohnsen sem líst mjög vel á hinn nýja þjálfara Anderlecht. „Sjálfur skokka ég bara á æf- ingum og æfi sér. Eg mun gera það í að minnsta kosti tvær vikur í viðbót,“ sagði Arnór en hann er að ná sér eftir uppskurð. -fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.