Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Side 4
4
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Niðurstöður skoðanakönnunar DV um borga rstjómarkosni ngar:
MIKUR YFIRBURÐIR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikla
yfirburði yfir aðra flokka í Reykjavík
samkvæmt skoðanakönnun sem DV
gerði um síðustu helgi. Meirihluti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
virðist standa traustum fótum. Fylgi
flokksins hefur eflst frá því að DV
gerði sams konar skoðanakönnun í
maí á síðasta ári, og var þó yfirgnæf-
andi fyrir. Flestir andstöðuflokkarn-
ir liggja niðri nema helst Alþýðu-
bandalagið samkvæmt þessari síð-
ustu skoðanakönnun.
Eins og fram hefur komið gerði DV
um síðustu helgi skoðanakönnun
með 600 manna úrtaki á öllu landinu.
Jafnt var skipt milli kynja og jafnt
mifii Reykjavíkursvæðisins og
landsbyggðarinnar. DV hafði nú þá
aðferð að spyrja þá úr úrtakinu, sem
voru á Reykjavíkursvæðinu, hvort
þeir væru borgarar í Reykjavíkur-
borg. Ef þeir sögðu já við því voru
þeir spurðir hvaða lista þeir mundu
kjósa ef borgarstjórnarkosningar
færu fram nú þegar.
Alls reyndust 224 vera borgarar í
Reykjavík. Þessi hópur svaraði því
spurningunni um hvaða lista fólk
mundi kjósa til borgarstjórnar. Af
þessum hópi sögðust hvorki meira
né minna en 48,2 prósent mundu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. 8 prósent
af heildinni sögðust mundu kjósa
Alþýðubandalagið. Alþýðuflokkur-
inn fékk 1,8 prósent og Kvennafram-
boðið einnig 1,8 prósent og Fram-
sókn 1,3 prósent. Óákveðnir voru
26,8 prósent og 12,1 prósent vildu
ekki svara. í skoðanakönnun DV í
maí í fyrra sögðust 40,7 prósent
mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 3,8
prósent Alþýðuflokkinn, 2,3 prósent
Framsóknarflokkinn, 1 prósent
Bandalag jafnaðarmanna, 6,3 pró-
sent Alþýðubandalagið, 3,8 prósent
Kvennaframboðið og 0,2 prósent
Flokk mannsins. Bandalag jafnaðar-
manna og Flokkur mannsins komast
nú ekki á blað. í könnuninni í maí
í fyrra voru 30,3 prósent af úrtakinu
óákveðin, svo að þeim hefur nú
fækkað. Þá voru 11,5 prósent sem
ekki vildu svara, sem er svipað og nú.
Alþýðuflokkur
Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur
Alþýðubandalag
Kvennaframboð
Úákveðnir
Svara ekki
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
4 eða 1.8%
3 eða 1,3%
108 eða 48,2%
18 eða 8%
4 eða 1,8%
60 eða 26,8%
27 eða 12.1%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar þessar. Til
samanburðar eru niðurstöður skoðanakönnunar DV i maí i fyrra og úrslit siðustu
borgarstjórnarkosninga:
NÚ Maí '85 Kosn.
Alþýðuflokkur 2,9% 6.6% 8%
Framsóknarflokkur 2,2% 4% 9.5%
Bandalag jafnaðarmanna - 1,7% -
Sjálfstæðisflokkur 78,8% 69,9% 52,5%
Alþýðubandalag 13,1% 10,9% 19%
Kvennaframboð 2,9% 6,6% 10,9%
Flokkur mannsins - 0.3% -
Ef við tökum aðeins þá sem taka
afstöðu nú hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn 78,8 prósent, sem er nokkru
meira en hann hafði í maíkönnun-
inni í fyrra og langt yfir fylgi flokks-
ins í síðustu borgarstjórnarkosning-
um. Alþýðubandalagið hefur nú 13,1
prósent og hefur bætt við sig frá
maíkönnuninni. Sjá nánar í með-
fylgjandi töflu um samanburð á fylgi
listanna í könnununum og í síðustu
kosningum. Alþýðuflokkurinn fær
nú aðeins 2,9 prósent af þeim sem
taka afstöðu. Kvennaframboðið fær
einnig 2,9 prósent. Stórmerkilegt er
hvernig Kvennaframboðið dettur
niður í fylgi til borgarstjórnar á sama
tíma og Samtök um kvennalista bæta
miklu við sig á landsvísu. Framsókn-
arflokkurinn fær 2,2 prósent. Þetta
er mikil lægð vinstri flokkanna og
skýrist auðvitað ekki á því að úrtak-
ið sé fremur lítið. Hitt er annað mál
að margir Reykvikingar munu eiga
erfitt með að gera upp við sig hvern
vinstri listanna þeir mundu kjósa í
borgarstjórnarkosningum, þótt
nokkur slíkur hópur sé í andstöðu
við núverandi meirihluta. En mikið
fjall er að klífa fyrir vinstri listana
eigi þeir að koma skammlaust út úr
borgarstjórnarkosningum. Þeir
liggja allir langt undir kosningafylg-
inu, einnig Alþýðubandalagið, sem
hafði 19 prósent atkvæða í síðustu
borgarstjórnarkosningum. - HH
Ummæli fólks í skoðanakönnuninni:
Davíd dýrk-
aöur mikið
Karlmaður sagðist mundu kjósa
listann, sem Davíð væri á, eins og
hann komst að orði. Annar sagðist
mundu kjósa hann Davíð. Karl sagð-
ist hafa kosið D-ið en mundu næst
kjósa G vegna gerræðis Davíðs. Karl
sagði betra að kjósa stjórn Sjálfstæð-
isflokksins fremur en samkrull
margra flokka. Annar sagði, að
Davíð væri sinn maður. Karl sagðist
kjósa Davíð. Annar sagði Davíð hafa
staðið sig vel í sjónvarpsþætti Óm-
ars. Kona sagðist kunna vel við
Davíð. Önnur sagði, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði staðið sig mög vel
í borginni. Kona sagðist kjósa þann
flokk, sem Davíð Oddsson væri í.
Kona sagðist óákveðin. Hún væri
þreytt á öllum pólitískum flokkum.
Kona sagðist telja Davíð ágætan.
Margir mættu taka hann sér til fyrir-
myndar. Önnur sagðist mundu kjósa
Davíð. Kona sagðist ætla að kjósa
listann hans Davíðs. - HH
I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari
Albert í Framsókn
Samkvæmt skoðanakönnunum
sópast fylgi að Sjálfstæðisflokkn-
um. Virðist raunar sem ekki skipti
máli hvað flokkurinn tekur sér
fyrir hendur né heldur hvaða vit-
leysu forystumennirnir láta út úr
sér. Alltaf skal íhaldið koma stand-
andi niður í fylginu. Ýmsir hefðu
haldið að stjórnmálaflokkur mætti
vel við slík úrslit una sem þessar
skoðanakannanir sýna og fagnaði
dijúgu fylgi.
En það er nú öðru nær. Maður
að nafni Leifur Sveinsson, sem ku
vera einn af aðaleigendum Morg-
unblaðsins og ævifélagi í flokkseig-
endafélaginu, hefur af þessu
áhyggjur. Hann vill losa Sjálfstæð-
isflokkinn við þetta déskotans
lausafylgi og aðskotadýr og skrifar
grein í einkablað sitt og leggur til
að Albert Guðmundssyni sé vísað
yfir til Framsóknarflokksins. Þar á
hann heima, segir Leifur og telur
að Albert hafi alla tið villt á sér
heimildir. Nú er kominn timi til að
kappinn fari aftur heim til föður-
húsanna, segir Leifur Sveinsson og
fermikinn.
Nú er það nokkuð ljóst að Albert
Guðmundsson hefur meira per-
sónufylgi en aðrir islenskir stjórn-
málamenn á okkar dögum. Hvað
eftir annað hefur hann orðið efstur
í prófkjörum og trónað í fyrsta sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokksins.
Er ekki að efa að flokkurinn hefur
notið góðs af framboði og fram-
göngu Alberts í þágu Sjálfstæðis-
flokksins og Albert átt þátt í um-
talsverðu fylgi flokksins í hverjum
kosningum, jafnt til borgarstjómar
sem alþingis.
Ef kenning Leifs er rétt, að Albert
hafi alla tíð verið framsóknarmað-
ur i laumi, hafa kjósendur að
minnsta kosti ekki áttað sig á þvi
né heldur flokksfory stan sem hefur
sýnt honum margvíslegan trúnað í
gegnum árin. Hitt er þá ekkert
skritið hversu litið fylgi Framsókn-
arflokkurinn hefur haft í Reykja-
vík, þegar í ljós kemur að L. tin
af framsóknarfylginu hefur kosið
Sjálfstæðisflokkinn til að pranga
framsóknarmanninum Albert
Guðmundssyni til forystu hjá íhald-
inu. Sem er auðvitað mikið betri
aðferð heldur en að hafa hann í
framboði hjá Framsókn, þar sem
áhrif hans mundu verða lítil og
óveruleg.
Þetta.hefur sjálfstæðisfólk ekki
vitað, nema þá Leifur Sveinsson,
og verður að átelja hann fyrir það
ábyrgðarleysi að halda flokksskir-
teini Alberts leyndu í hálfan annan
áratug. Hann ber ábyrgð á því að
kjósendur hafa verið gabbaðir í
hverjum kosningunum á fætur
öðrum með því að kjósa framsókn-
armanninn Albert á D-listanum
meðan Leifur vissi betur allan tím-
ann.
Það að Leifi Völundarbróður
dettur í hug að upplýsa þetta leynd-
armál akkúrat núna getur ekki
stafað af öðru en því að honum
finnst nóg um fylgið sem Sjáfstæð-
isflokkurinn situr uppi með í krafti
Alberts.
Albert mun hafa komið upp um
sig þegar hann fór aö hæla Jónasi
frá Hriflu. Það er nefnilega dauða-
sök hjá íhaldinu að hæla Jónasi,
jafnvel þótt hundrað ár séu frá
fæðingu hans. Hjá Sjálfstæðis-
flokknum, eða í það minnsta hjá
þeim partinum sem tilheyrir flokk-
seigendafélaginu, fyrirgefast engar
syndir og hver og einn skal gjalda
hugsjóna sinna út yfir gröf og
dauða. Jónas frá Hriflu verður ekki
tekinn í sátt og ekki heldur neinar
styttur af honum. Albert varð það
á að fara vinsamlegum orðum um
þennan látna stjórnmálaforingja á
aldarafmæli hans og það er mesta
óhæfuverk sem hægt er að vinna í
augum hinna heittrúuðu.
Leifur Sveinsson safnar gaman-
sögum. Þær birtir hann í Morgun-
blaðinu. En gamansagan um fram-
sóknarmanninn Albert Guðmunds-
son var fyndin. Það er meira heldur
en hægt er að segja um allar hinar.
Dagfari