Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 9
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
11
Munum halda áfram
Vísindamenn NASA, bandarísku
geimferðastofnunarinnar, hafa nú
hafið rannsóknir á hundruðum smá-
hluta úr braki geimferjunnar Chal-
lenger er rekið hefur á land í Flórída
síðustu tvo sólarhringa eða hefur
verið bjargað úr hafi af björgunar-
mönnum.
Geimfarar NASA, er tekið hafa
þátt í geimferjuáætluninni, hafa
tekið höndum saman við vísinda-
menn við rannsókn slyssins.
NASA hefur lýst því yfir að rann-
sókninni verði skipt í tvo hluta til
að flýta fyrir og einfalda gagnasöfn-
un.
Hættulegt brak
Minjagripasafnarar hafa strang-
lega verið varaðir við því að snerta
nokkra þá hluti er rekið gæti á landi
og telja má að séu úr braki geim-
ferjunnar.
Segja vísindamenn að mikið magn
hættulegra efna, sum geislavirk, hafi
verið um borð í geimferjunni er hún
sprakk í tætlur og mögulegt sé að
efnin geti valdið skaða séu þau
handfjötluð af ókunnugleika.
Yfirmenn NASA hafa hrósað geim-
förum stofnunarinnar fyrir sam-
starfsvilja við rannsókn málsins.
Áætlun heldur áfram
Yfirmenn geimferðastofnunarinn-
ar lögðu á það áherslu að þrátt fyrir
tímabundna seinkun á geimferjuá-
ætluninni væri aðalatriðið að stofn-
Leitarmaður úr landgönguliði
Bandarikjahers kemur með hluta
úr braki geimferjunnar Challenger
á land á Cocoa strönd á Flórída í
gær.
segja yfirmenn NASA
unin hygðist ótrauð ætla að halda
áfram með geimrahnsóknir sínar í
framtíðinni en við þær rarmsóknir
hafa geimferjurnar spilað stórt hlut-
verk.
Vísindamenn geimferðastofnunar-
innar munu til að byrja með leggja
áherslu á rannsóknir á braki því er
finnst af Challenger en á síðari stig-
um rannsóknarinnar yrðu upplýs-
ingar um flug og undirbúning fyrir
flugtak athugaðar.
Strandgæslan fann í gær stærsta
brakhluta er fram að þessu hefur
fundist úr ferjunni skammt frá Cana-
veralhöfða.
Tekist hefur að finna um 300 kíló
braks fram að þessu, mest af því
afarsmátt.
Samúðarkveðjur Reagans
Skip flotans og strandgæslunnar,
auk fjölda flugvéla og þyrlna, fín-
kembir nú 5500 fermílna leitarsvæði
undan Flórídaströndum.
Reagan forseti hringdi i gær til
aðstandenda þeirra sjö geimfara er
fórust með Challenger og vottaði
þeim samúð sípa.
Forsetinn sendi einnig handskrif-
aða samúðarkveðju til gagnfræða-
skólans í Concord New Hampshire
þar sem Christa McAuliffe, fyrsti
óbreytti borgarinn er sendur var út
í geiminn, var kennari.
Yusupof hefur unniö
3 íröðaf Timman
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman hefur rekið sig á vegg í
áskorendaeinvíginu við Artur Ju-
supov eða það kalla gárungamir
hinn 25 ára gamla Moskvubúa sem
hefur núna unnið þrjár skákir í röð
af Timman og þarf aðeins að vinna
eina til viðbótar til þess að komast
i úrslitaeinvígið.
Hollendingurinn hefur tekið sér
hlé til þess að hugsa ráð jsitt og
stöðva sigurgöngu Rússans en þeir
tefla aftur næst á laugardag.
í skákstigum reiknað hefur Timm-
an verið talinn í þriðja sæti, jafn
Yusupov, að baki þeim Karpov og
Kasparov. Hefur Timman almennt
verið álitinn bestur skákmanna vest-
an járntjalds. En þetta einvígi hefur
reynst honum þungt. Hann vann
fyrstu skákina fyrir tveim vikum en
síðan marði hann þrisvar jafntefli
áður en Yusupov komst á skrið og
vann þrjár í röð. - Sá sem fyrstur fær
fimm og hálfan vinning fer með sigur
úr einvíginu.
En hvor þeirra sem sigrar mætir
síðan Sokolov sem kolvann landa
sinn V aganian(6-0) í einvígi í Minsk.
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
og
Hannes Heimisson
Tryggingar verja
sig gegn eyðni
Líftryggingarfélag í Ástralíu selur
ekki nýjum viðskiptavinum líftrygg-
ingu nema þeir skrifi undir yfirlýs-
ingu um kynlífsvenjur sínar eða
gangist undir blóðprófanir í leit að
ummerkjum eyðni (ónæmistæring-
ar).
Nokkur tilvik hafa verið þar sem
krafist hefur verið líftryggingarfjár
af félaginu vegna eyðnidauðsfalla en
alls hafa 67 látist í Astralíu af völdum
eyðnisjúkdómsins síðan fyrsta
AIDS-tilfellið fannst þar 1983. Vitað
er um 77 eyðnisjúklinga þar í dag.
Líbýskt flutningaskip, fullhlaðið
eldfimum olíuefnum, brennur nú
stafnanna á milli undan suðurströnd
Englands, skammt frá Dorset.
Yfir 50 breskir slökkviliðsmenn
strandgæslunnar hafa barist við eld-
inn frá því í gærkvöldi í Ebn Magid,
Flestir sjúklinganna hafa verið
kynhverfir, á aldrinum 30-39 ára.
Fundist hafa í Sydney 50 þúsund
manns með mótefni gegn eyðni í
blóði sínu sem gefur til kynna að
þeir hafi komist í snertingu við sjúk-
dóminn.
Líftryggingarfélögin krefjast þess
nú að skjólstæðingar þeirra gangist
undir blóðprófun áður en skilmál-
arnir eru undirritaðir.
5000 lesta flutningskipi frá Trípolí.
Auk slökkviliðsbáta eru flugvélar
með vatnssprautubúnaði notaðar við
slökkvistarf.
Áhöfninni var allri bjargað eftir
að eldsins varð vart í gærdag.
ELDAR LOGAIMAGID
Opið laugardag kl. 13—17.
TÖGCUR HR
UMBOÐ FYFUR SAAB OG SEAT
BÍLDSHÖFÐA16, SlMAR 81530-83104
----------------„. 1983, 4ra dyra,
Ijósdrapp, beinskiptur, 4ra gíra,
ekinn 56 þús. km. Góður bill. Verð
kr. 485.000,-
Saab 99 GL árg. 1980, 4ra dyra,
rauður, beinskiptur, 4ra gíra, ek-
inn 90 þús. km, mjög góður og
fallegur bill, skipti á ódýrari mögu-
leg. Verð kr. 285.000,-
Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra,
Ijósblár, sjálfskiptur, ekinn 61 þús.
km, mjög góður bill, skipti á ódýr-
ari möguleg. Verð 430.000,-
Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra dyra,
blágrár, sjálfsk. + vökvastýri,
topplúga, litað gler, rafmagnslæs-
ing o.fl.Verðkr. 490.000,-
Saab 99 GL árg. 1982, 4ra dyra,
silfurlitaður, ekinn 32 þús. km,
beinskiptur, 5 gira, skipti möguleg
á ódýrari Saab. Verð kr. 375.000,-
_______________________ I
Saab 900 Turbo árg. 1982, 5 dyra,
hvitur, beinskiptur, 5 gíra, ekinn
63 þús. km, skipti möguleg á
ódýrari eða góð kjör. Verð kr.
575.000,-