Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 30. JANtJAR 1986. Frjálst.óháó dagbiað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóriog útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Félag verðursjóður Þróunarfélagið hefur færzt nær uppruna sínum. Það verður opinber sjóður, arftaki Framkvæmdastofnunar- innar, svo sem Framsóknarflokkurinn alltaf vildi, þótt hann sætti sig um tíma með semingi við hlutafélags- formið. Ein fyrirgreiðslustofnun kemur í stað annarrar. Þróunarfélagið hefur fengið framkvæmdastjóra for- vera síns, -framsóknarmann, sem hefur öðlast reynslu í fyrirgreiðslunni, sem jafnan hefur einkennt Fram- kvæmdastofnunina og gert hana svo óvinsæla, að nafna- skipti voru nauðsynleg. En sama stefnan heldur áfram. Stjórnarformaðurinn og stjórnarmaðurinn, sem sögðu upp, hafa verið sakaðir um sýndarmennsku. Sá fótur er fyrir gagnrýninni, að þeir eru báðir hálfgildings stjórnmálamenn, -hafa starfað innan Sjálfstæðisflokks- ins og voru á hans vegum í stjórn Þróunarfélagsins. Sú stjórn var mynduð í samræmi við helmingaskipta- regluna, sem jafnan hefur einkennt samstarf Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokks. Forsætisráðherra taldi rétt, að flokkur sinn fengi framkvæmdastjórann, úr því að hinn fékk formanninn og þrjá af fimm stjórnarmönnum. Engum virðist hafa dottið í hug, að stjórn félagsins skyldi skipuð mönnum , sem ekki væru þar á vegum sérstakra stjórnmálaflokka. Þess vegna er tæpast frétt- næmt, þótt Framsóknarflokkurinn vilji hugsa helm- ingaskiptaregluna til enda, -til rökréttrar niðurstöðu. Forsætisráðherra hefur líka bent á, að mestallt hluta- féð komi frá ríkinu, stofnunum þess og sjóðum. Sam- kvæmt siðalögmáli hans er sjálfgefið, að stjórnmála- menn fari með umboð fyrir slíkt fé. Það siðalögmál hefur raunar ríkt hér svo lengi sem elztu menn muna. Einhvern tíma verður að rjúfa hefð siðalögmáls forsæt- isráðherra. Einhvern tíma verðum við að losna við hugarfarið að baki Framkvæmdastofnun. Einhvern tíma verða stjómmálaflokkkar framkvæmda- og löggjafar- valdsins að sleppa dauðahaldinu á peningavaldinu. Fagna ber og ekki lasta, ef pólitískt kosnir fulltrúar í Þróunarfélaginu verða fyrstir til að rjúfa hefðina og heimta ópólitíska framkvæmdastjórn í því félagi. Ein- hvers staðar verður að byrja á að hleypa út skítalykt- inni, sem fylgir stjórnmálaflokkunum í atvinnulífmu. Athyglisvert er, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins klofna í máli þessu. Annars vegar eru uppreisnarmenn frá fyrirtækjum, sem standa vel. Hins vegar stendur með Framsóknarflokknum pilsfaldakapítalisti, sem varð í fyrra að segja fyrirtæki sitt til sveitar. Þessi klofningur endurspeglar Sjálfstæðisflokkinn. Þar er mikið af fólki, sem lifir á fyrirgreiðslukerfi hins opinbera og vill halda áfram að hanga í pilsfaldinum, meðan aðrir vilja koma upp heilbrigðu fjármálakerfi í líkingu við það, sem tíðkast í öðrum löndum. í þessari atrennu tókst ekki að rjúfa hin spilltu tengsli stjórnmála og fjármála. Þróunarfélagið hefur verið eyðilagt sem framfaraafl í þjóðfélaginu, svo sem Fram- kvæmdastofnunarsinnar beggja flokka vildu. Tilraunin var samt ekki gagnslaus, því að hún beindi kastljósi að vandanum. Einhvern tíma skal siðalögmál forsætisráðherra víkja. Það varð ekki í þetta sinn og verður ef til vill ekki í hið næsta. En stefnan er í átt til heilbrigðari tíma, -sjálfstæðs atvinnulífs. Fyrirgreiðslustefnan mun víkja í fyllingu tímans, þegar skorið verður á fjármálatengsli stjórnmála og atvinnulífs, svo sem gerzt hefur í öðrum löndum. Jónas Kristjánsson „skítaskattarnir“ Einna ógæfulegastir allra skatta hins opinbera eru smáskattamir, „skítaskattarnir", eins og einn vinur minn nefnir þá. Þessi skatta- hrákasmíð, sem verið er að klambra saman í óðagoti á engri stundu vegna þess að mönnum fell- ur ekki eða þeir þora ekki að sækja ríkissjóði aukið fé eftir hefðbundn- um leiðum. Ollum þessum „skítasköttum" er það sammerkt að þegar þeir voru fyrst í lög leiddir voru þeir afsakað- ir í bak og fyrir með „sérstökum, tímabundum aðstæðum“. Allir áttu þeir að vera bara til eins árs. Allir voru sammála um að útilokað væri með öllu að hægt væri að hafa þá lengur. Allir eiga „skítaskattarnir" það hins vegar sammerkt að vara til eilífðarnóns. Jafnvel skattar eins og lestargjald, sem lagt var á þegar Franklín Roosevelt var for- seti Bandaríkjanna frekar en Tru- man, og Stalín stýrði Rússlandi og Þjóðverjanum, stendur enn og stendur vel. Ekki man ég hvort hann nemur einni krónu og fimm- tán aurum á rúmlest skipa yfir 10 tonn að stærð eða hvort það eru fimmtán aurar. - Ég man ekki heldur hvort hann skilar tuttugu þúsundum á ári í ríkissjóð eða sextíu. Altént þótti hann vera svo mikilvægur fyrir ríkissjóðstekjurn- ar og skattajafnréttið á fslandi að þegar við alþýðuflokksmenn lögð- um til fyrir jólin að þessi „skíta- skattur" yrði felldur niður ásamt öðrum af sama toga þá jesúsaði gervallt íhaldið sig og greiddi samviskusamlega atkvæði á móti öllum slíkum tillögum - líka á móti afnámi hins stórmikilvæga skatts, lestargjalds. Skattahreins- un er nefnilega nokkuð sem íhaldið má ekki heyra nefnt þegar það stjómar landinu. Gunnar Schram, sem sagði i grein í hittiðfyrra að hann myndi skoða hug sinn til þeirrar ríkisstjórnar sem ekki stæði við ályktanir Alþingis um afnám tekjuskatts í áföngum, lét svo um mælt um jólin að hann styddi áform um að slá nú öllu á frest í t.rausti þess að það sem ekki væri gert nú yrði gert næst. Furðulegt viðtal Því komu mér þessi „skítaskatta- mál“ í hug að ég las á föstudaginn var alveg furðulegt viðtal við Þor- stein Pálsson. Viðtalið fjallar nefnilega um „skítaskattana" og þá ákvörðun Þorsteins að hækka SIGHVATUR BJÖRGVINSSOIM FYRRVERANDI ALÞINGISMAÐUR nokkra þeirra eins og t.d. flugvall- argjald og bifreiðagjald um 250-300% (en flugvallarskatturinn var einn af þeim sem við alþýðu- flokksmenn lögðum til í fjárlagatil- lögum okkar fyrir jólin að yrði hreinsaður út). f viðtalinu segir fjármálaráðherrann orðrétt: „Aðalatriði málsins er hins vegar ekki það, hvort flugvall- arskatturinn er 250 eða 750 krónur heldur hvort hann eigi yfirleitt rétt á sér eða ekki.“ Á Alþingi fellir Þorsteinn Páls- son tillögur um að þessi skattur sé lagður niður. Á sama þingi ráðgerir hann fyrst og framkvæmir svo 250% hækkun á skattinum. Annars staðar í viðtalinu rökstyður hann þessa niðurstöðu - hækkunina - með því að skattur- inn hafi stöðugt verið að tapa verð- gildi sínu. Hvaða heilvita maður getur lesið annað út úr þessu en það að ráð- herrann telji að skatturinn eigi rétt á sér? Samt ætlast hann til þess að les- endur leggi þveröfuga merkingu í orð sín! Hvaða skrípaleikur er þetta? Skattahreinsun Fyrir nokkrum árum var sam- þykkt á Alþingi tillaga frá alþýðu- flokksmönnum um lagahreinsun - þ.e. að farið yrði yfir gildandi lög á íslandi, sem sum eru margra alda gömul, og þau felld út sem orðin væru úrelt eða merkingarlaus. Sambærilega afgreiðslu þarf að gera á skattheimtunni. Hreinsa þarf út þá smáskatta hvers konar, bæði á félög og einstaklinga, sem lagðir hafa verið á af ýmsum tilefn- um á liðnum árum og áratugum og aldrei var ætlað að vera nema til bráðabirgða en gera skatt- heimtu óþarflega flókna og svara jafnvel í sumum tilvikum alls ekki kostnaði. Tillögu um einmitt svona afgreiðslu fluttum við alþýðu- flokksmenn fyrir jólin en fyrir daufum eyrum. Meðal skatta, sem við lögðum til að hreinsaðir yrðu út með þessum hætti, var einmitt margnefndur flugvallarskattur ásamt vitagjaldi, lestargjaldi, gjaldi af heillaskeytaeyðublöðum, skoðunargjaldi á bifreiðir og fjöldamörgum öðrum „skítaskött- um“ af þessu tagi. Sami grautur í sömu skál Slíkar breytingar og nýmæli hefðu átt að fylgja í kjölfar þess að nýr og ungur fjármálaráðherra kom í ráðuneytið sem sagðist ætla að breyta og bæta í fjármálastjórn- inni. Það gerðist bara ekki. Þvert á móti bar hann á borðið sama graut í sömu skál og brá á það ráð að hækka „skítaskattana" meira en nokkur fyrirrennari hans hefur gert. Miklu veldur sá sem upphafinu veldur. Ekki líst mér svo á að þetta hafi verið upphafið að nýjum og breyttum tímum hjá íhaldinu. Sighvatur Björgvinsson. „Þvert á móti bar hann á borðið sama ^ graut í sömu skál og brá á það ráð að hækka „skítaskattana“ meira en nokk- ur fyrirrennari hans hefur gert.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.