Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Síða 17
DV. FIMMTUD AGUR 30. JANÚAR1986.
17
Kaldar kveðjur til
Suðurnesjamanna
Fyrrverandi „letingjar" hjá Vogum
h/f skrifa:
Eftir að hafa lesið grein Sigurður
Garðarssonar í Morgunblaðinu þann
16. janúar og viðtal við hann í DV
daginn eftir urðum við fyrst hissa
og síðan reiðar vegna skrifa þessa
manns. Við, höfundar þessarar
greinar, eigum það sameiginlegt að
hafa unnið hjá fyrirtæki hans í gegn-
um árin en við erum búsettar í
Vogum.
Sigurður kallar Suðurnesjamenn
letingja. Hann getur svarað fyrir sig
hvað það varðar, en okkur finnst
hann ómerkilegur og ósvífinn að
kasta þannig skít í það fólk sem er
búið að þræla hjá hans íyrirtæki á
liðnum árum. Hann heldur því fram
að það fólk sem hann hafi fengið af
atvinnuleysisskrá séu tómir letingj-
ar. Þar með hlýtur hann að telja þær
örfáu hræður sem enn vinna hjá
honum letingja, því að þær voru á
atvinnuleysisskrá. Það kemur úr
hörðustu átt að hann kallar þessar
bætur leti- og tekjutryggingarbætur,
því að hann hefur verið manna iðn-
astur við að senda fólk á þessar
bætur af því að hans fyrirtæki hefur
aldrei getað skaffað starfsfólki sínu
fulla atvinnu. Hann talar um að
vinnandi fólk sinni ekki sínum
skyldum í sambandi við uppsagnar-
frest og annað. Hefur hann engar
skyldur við það sama fólk? Er ekki
gagnkvæmur uppsagnarfrestur?
Hann hefur ekki farið eftir þeim
skyldum sjálfur heldur sagt við fólk
að loknum vinnudegi að hann hringi
í það þegar vinna hefjist aftur. Svo
bíður það og bíður heima eftir að
kallið komi og lætur auðvitað skrá
sig atvinnulaust á meðan, því ekki
borgar þetta fyrirtæki kauptrygg-
ingu. Svo hringir Sigurður í fólkið
eftir 1-3 vikur og segir að það sé
vinna daginn eftir. Þetta kallar hann
leti!
Ef hann heldur að einhver verði
ríkur af að vera á atvinnuleysis-
bótum þá ætti hann að prófa það
sjálfur. Ætli hann gæti þá farið í
utanlandsreisur nokkrum sinnum á
ári? Svo eru atvinnuleysisbætur
ekkert hærri á Suðurnesjum en
annars staðar á landinu. Við eigum
til atvinnuleysisskráningarskírteini
frá árinu 1984 en það ár unnum við
hjá fyrirtæki hans. Þar kemur í ljós
að frá 1. janúar til 10. ágúst voru 520
atvinnuleysistímar eða tæpir 4
MÁNUÐlRaf8.
Lái okkur svo hver sem vill að
hafa hætt hjá þessu fyrirtæki. Auð-
vitað er fyrirtækið búið að auglýsa
sig sjálft í gegnum árin og þess vegna
fær það ekki fólk til starfa, hvorki
til sjós né lands.
di vera stór, feit og svö
/iðtal við Ragnhildi Gísladóttur
eitum engum bellibrögúdii
lelgi Daníelsson rannsóknariögregluma
og DeMck eitthvað sÉápgmtegt? c
nn þo það
weknimaður á rás tvo
frá^v
Hann talar um að fólk rápi á milli
vinnustaða með sínar skoðanir. Hef-
ur hann einn leyfi til að hafa skoðan-
ir? Þó að hann líti á verkafólk sem
letingja og aumingja þá er ennþá
skoðanafrelsi í þessu landi, hvort
sem honum líkar hetur eða verr.
Þegar honum hefur verið bent á
að ýmislegt, sem hann hefur sett á á
sínum vinnustað, svo sem frumsamið
launakerfi, sé ekki eftir gerðum
samningum milli Vinnuveitenda-
sambandsins og launþegasamtaka
hefur svarið verið: ÉG hef ekki samið
um þetta, stelpur!
Við ætlum ekki að eyða fleiri orð-
um í sambandi við þessa grein en
vonum bara að hann og hans fyrir-
tæki komi sér í burtu til þess staðar
sem engir letingjar eru því að þetta
fyrirtæki er hreinlega dragbítur á
þessu sveitarfélagi.
Meðal annarra orða: Er Sigurður
Garðarsson virkilega í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórnar-
kosningunum hér á Suðumesjum?
Hvað segir forysta Sjálfstæðisflokks-
ins við þessu skítkasti á verkafólk á
Suðurnesjum? Er verið að reyna að
minnka flokkinn?
Þessi mynd er úr fiskvinnslu í Grindavík en bréfritarar mótmæla þvi að
Suðumesjamenn séu letingjar.
<•
ABLAÐSOLUSTÖ
Lesendur Lesendur Lesendur
Dýrt eld-
varna-
kerfi
Einn dálítið hissa skrifar:
Hver er að plata hvern í sambandi
við eldvarnakerfi í Kópavogshæli?
Hvað kemur til að þurfi heilt húsverð
fyrir svoleiðis kerfi? Venjulegur
maður hefði talið að nokkur hundruð
þúsund hefðu nægt, frekar en að
nefna milljóna tölur. Er þarna
kannski á ferðinni þessi venjulega
óráðsía fslendinga? Eða hver er
skýringin á þessu og hvert verður
framhaldið á öðrum stofnunum? Mér
bætti eaman að vita bað