Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
Enska bikarkeppnin í gærkvöldi:
Aston Villa átti aldrei
Millwall
—sem vann, 1:0. Oruggur sigur Man. Utd gegn Sunderland, 3:0, og
Tottenham vann N. County, 5:0
Jesper Olsen, sló í gegn. Hann lék í skoraði tvö markanna, annað úr víti,
fremstu víglínu með Frank Stapleton og átti auk þess skot í þverslá. Nor-
vegna leikbanns Mark Hughes og manWhitesideskoraðiþriðjamarkið
eftir að markvörður Sunderland
hafði hálfvarið skot frá Olsen. Bryan
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
Óvæntustu úrslitin i knattspyrnu-
leikjum í Englandi í gærkvöldi litu
dagsins ljós í leik 2. deildar liðs Mill-
vall og 1. deildar liðs Aston Villa i
ensku bikarkeppninni. Millvall sigr-
aði, 1-0, og sló liðið þar með Aston
Villa út úr keppninni. Fyrri leik lið-
anna lauk með jafntefli.
Aston Villa átti aldrei möguleika
gegn Millvall. Leikmenn 2. deiidar
liðsins yfirspiluðu andstæðinga sína
og sigurmarkið kom á 56. mínútu og
það var John Fashanu sem skoraði
markið. Áður hafði hann átt skot í
stöng. Mark Fashanus var hans 11.
mark fyrir Millvall á keppnistímabil-
inu. Steve Lovell var klaufi að skora
ekki fyrir Millvall þegar hann lét
varamarkvörð Aston Villa, Kevin
Poole, verja frá sér vítaspyrnu. Eina
marktækifæri Aston Villa í leiknum
fékk Simon Steinrod en Peter San-
some, markvörður Millvall, varði
skot hans af sex metra færi af stakri
snilld. Millvall mætir Southampton
á heimavelli í 16-liða úrslitum bikar-
keppninnar á heimavelli sinum.
Robson lék með allan leikinn. United
mætir Ipswich eða West Ham í 16-
liða úrslitunum á útivelli.
brotthvarfs Alan Brazil til Coventry
og skilaði sínu hlutverki mjög vel,
Sigur Man. Utd en Strachan
meiddist
Meiðsli Gordons Strachan á 15.
mínútu gegn Sunderland skyggðu
nokkuð á annars mjög öruggan sigur
Manchester United gegn Sunderland
í leik liðanna í bikamum í gærkvöldi.
Strachan tognaði nokkuð illa á ökla
og varð að yfirgefa leikvöllinn. Ekki
fyrsti leikmaður United sem meiðist
í vetur og greinilegt að stöðug
meiðsli leikmanna liðsins fylgja lið-
inu eins og skugginn. United vann,
3 0. á Old Trafford og Daninn litli,
• Jesper Olsen lék í fremstu víglínu hjá Manchester United í gærkvöldi og
átti snilldarleik gegn Sunderland. Hann skoraði tvö markanna og var óhepp-
inn að skora ekki þrennu.
Jeppesen tryggði
Ribe útisigurinn
gegn Skovbakken en liðið mátti síðan sætta sig við tap heima gegn Helsingör
og er nú í þriðja sæti í dönsku deildinni
Lið Ribe í fyrstu deild handboltans
í Danmörku lék tvo leiki í vikunni.
Liðið vann góðan útisigur á Skov-
bakken, 19-18, síðasta fimmtudag en
mátti síðan þola tap á. heimavelli
sínum gegn Helsingör í spennandi
viðureign á sunnudaginn, 18-17. Liðið
er því í þriðja sæti deildarinnar þegar
sex umferðum er ólokið.
Frábær markvarsla Jeppesen
Lið Skovbakken var allsráðandi í
byrjun leiksins við Ribe. Liðið komst
i 8-3 en þá tók gamli skröggurinn í
marki Ribe, Mogens Jeppesen, til
sinna ráða. Hann hreinlega lokaði
marki liðsins og nýliðar Ribe náðu
að tryggja sér sigurinn á lokamínút-
unum eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 11-9 Skovbakken í hag.
Anders Dahl Nielsen, þjálfari og
leikstjómandi Ribe liðsins, átti mjög
góðan leik og skoraði níu mörk, þar
af tvö úr vítaköstum. Gunnar Gunn-
arsson komst einnig vel frá leiknum,
hann skoraði fjögur mörk.
Bikarmót
í Bláfjöllum
Bikarmót Skíðasambands íslands
fer fram í Bláfjöllum á laugardag og
sunnudag um næstu helgi. Á laugar-
dag hefst keppni klukkan ellefu og
verður þá keppt í stórsvigi karla og
svigi kvenna. Á sunnudag heldur
„Hi-C-mótið“, en svo er það nefnt,
áfram og verður þá keppt í svigi karla
og stórsvigi kvenna. -SK.
Slakur sóknarleikur Ribe
Leikurinn gegn Helsingör var að
sama skapi spennandi. Mogens
Jeppesen stóð einnig í marki Ribe
þann leik og er það í fyrsta sinn sem
hann eða Gísli Felix fá að leika tvo
leiki í röð, þeir hafa hingað til alltaf
skipst á að leika. Ástæðan fyrir því
var að sjálfsögðu frábær markvarsla
Mogens í leiknum við Skovbakken.
Það er skemmst frá því að segja
að sóknarleikmenn Ribe náðu sér
aldrei á strik í þessum leik. Leikur-
inn var þó allan tímann jafn en stór-
leikur Jens Eric Roepstorf tryggði
Helsingör sigur. Roepstorf er einn
aðalleikmaðurinn í HM-liði Dana og
hann var sannarlega í essinu sínu í
leiknum á sunnudaginn. Skoraði
átta af átján mörkum liðs síns sem
vann 18-17 sigur. Fleming Pedersen
varð markahæstur leikmanna Ribe
með fjögur mörk, Gunnar skoraði
þrjú.
Gladsaxe er nú í efsta sæti deildar-
innar með átján stig eftir tólf leiki,
HIK hefur sextán og Ribe fjórtán.
Næstu lið eru Holte með þrettán stig,
Kolling, Viruin og Helsingör hafa
tólf stig en Helsingör hefur aðeins
leikið ellefu leiki. Neðstu liðin eru
Skovbakken með níu stig eftir þrett-
án leiki, Stadion með átta eftir þrett-
án og Holberg með sex stig eftir ell-
efu leiki. Tvö neðstu lið falla og það
þriðja neðsta þarf að leika aukaleik
um fall við þriðja efsta liðið í annarri
deild.
Næsti leikur Ribe er við Kolling á
útivelli en það veikir nokkuð stöðu
Ribe að liðið á eftir að leika fjóra
útileiki gegn aðeins tveimur heima-
leikjum.
-fros
Stórsigur Tottenham
Tottenham vann öruggan sigur í
ensku bikarkeppninni í gærkvöldi
er liðið mætti Notts County í öðrum
leik liðanna. Leikið var á White
Hart Lane og úrslitin 5-0. John
Chidozie, Clive Allen, Mark Falco,
Chris Waddle og Glenn Hoddle skor-
uðu mörkin fyrir Tottenham sem
mætir Everton á heimavelli i 16-liða
úrslitunum. -SK.
Wallace
skoraði
ífyrsta
leiknum
— þegar England vann
Egyptaland, 0:4,
íKaíróígær
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
Englendingar áttu ekki í miklum
vandræðum með að tryggja sér sigur
gegn slöku liði Egypta er þjóðirnar
léku vináttulandsleik í knattspyrnu
í gær. Enskir sigruðu og skoruðu
þeir þau fjögur mörk sem skoruð
voru í leiknum.
Það kom fljótt í ljós að Englending-
ar voru í allt öðrum gæðaflokki en
Egyptar. Strax á 16. mínútu skoraði
Trevor Stevens fyrsta mark Englend-
inga og þremur mínútum fyrir leiks-
Iok skoruðu heimamenn sjálfsmark.
I síðari hálfleik skoruðu Englending-
ar einu marki fleira en í þeim fyrri.
Dariny Wallace, sem lék sinn fyrsta
lanrlsleik fyrir England, skoraði á 55.
mínútu og síðasta markið skoraði
svo Gordon Cowans á 74. mínútu.
Egyptar. áttu skyndisóknir öðru
hvoru en gamla brýnið Peter Shilton
varði allt sem á enska markið kom.
Mjög fáir áhorfendur voru á leiknum
enda var honum sjónvarpað beint
um allt Egyptaland, ekki á hverjum
degi sem landslið á borð við það
enska heimsækir Egyptaland.
-SK.
• Gunnar Guðmundsson, formaður I
hér bjóða Marcelo Houseman velkom
inni er Marcelo ásamt eldri bróður sín
en Rene þessi varð heimsmeistari í kna
DV-my nd Gunnar Bendcr.
„LITLIE
K0MI
Yngri bróðirinn frá Argei
Argentinumaðurinn, Marcelo Hou-
seman, sem mun leika með KR-ingum
í 1. deildinni i knattspyrnu i sumar,
kom til landsins í gær. Eldri bróðir
hans, Rene Houseman, kom ekki með
„litla bróður“ en hann er væntanlegur
í herbúðir KR-inga eftir vikutíma.
Marcelo Houseman fannst ekkert
sérstaklega kalt þegar hann kom til
landsins i gær og sagði sem svo að
Lota í 210 mín.
HjáQPRogCKelsea
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
Leikmenn Queens Park Rangers
komu mjög á óvart í gærkvöldi er
þeir gerðu sér lítið fyrir og slógu
Chelsea út úr mjólkurbikarnum í
Englandi. Leikið var á heimavelli
Chelsea en það kom ekki í veg fyrir
að QPR færi með sigur af hólmi, 0-2.
Þeir 27 þúsund áhorfendur sem
mættu á leikinn urðu engu að síður
að bíða í 109 mínútur eftir marki í
leiknum. Framlengja þurfti leikinn
þar serp fyrri leik liðanna á gervi-
grasinriá Loftus Road lauk með jafn-
tefli, 1-1. Það var sem sagt á 4.
mínútu síðari hálfleiks framlenging-
arinnar sem fyrra markið kom og það
skoraði miðvörðurinn Alan McDon-
ald. Síðara markið kom síðan þegar
örstutt var til leiksloka og var Mike
Robinson 'þar að verki. Hann skaut
af 30 metra færi yfir markvörð
Chelsea sem var kominn út úr víta-
teignum. Samtals þurftu liðin að
leika í 210 mínútur til að knýja fram
úrslit.
Leikmenn Chelsea geta nú einbeitt
sér að toppbaráttu 1. deildar enda
liðið dottið út úr öðrum keppnum.
Lið QPR er nú komið í undanúrslit
í mjólkurbikarnum og mætir þar
Liverpool á Loftus Road. Hinn leik-
urinn í undanúrslitunum er leikur
Aston Villa/Arsenal og Oxford. Leik-
ið er heima og heiman. -SK.