Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Qupperneq 31
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
31
Menning Menning
Hasselbyslotið.
Hásselby
- nýtískulegasti herragarður á Norðurlöndum
Þeir eru ófáir Islendingarnir sem
sótt hafa ráðstefnur um aðskiljanleg
menningarmál í Hasselby- slotinu í
nágrenni Stokkhólms. Þetta slot er
í raun herragarður frá 17. öld sem
nú er staðsettur í lystigarði þar sem
m.a. er að finna fornminjar frá vík-
ingaöld.
Slotið er byggt á þeirra tíma vísu,
með þriggja hæða aðalbyggingu sem
þungamiðju og vængi sem teygja sig
í áttina að aðkomumanni. Stokk-
hólmsborg eignaðist Hásselby árið
1931 og lengi vel vissu borgaryfirvöld
ekki hvað þau áttu við slotið að gera.
Það var svo árið 1963 að fulltrúar frá
öllum höfuðborgum Norðurlanda
fóru fram á að Hásselby yrði gert að
menningarmiðstöð og ráðstefnusetri
íyrir Norðurlöndin og gekk það
eftir.
f stórum dráttum hefur slotið verið
látið halda sínu gamla lagi en hins
vegar hafa verið gerðar nauðsynleg-
ar breytingar á kjallara og tengi-
byggingum. Þar er að finna ágæt
gistiherbergi og matstofu sem hefur
á sér gott orð. Margt er í bygging-
unni sem minnir á hlutverk þess, t.d.
samnorrænt bókasafn, auk þess sem
hver höfuðborg Norðurlanda á sér
sitt herbergi.
Nýmóðins gistiaðstaða
í herbergi Reykjavíkur er að finna
íslenska listmuni og myndlistarverk
sem ylja íslenskum gesti um hjartar-
ætur.
Nú hefur ýmislegt verið gert til að
gera Hásselby kleift að gegna hlut-
verki sínu enn betur. Byggður hefur
verið fullkominn samkomu- og mat-
salur á ská við gömlu aðalbygging-
una. Þeim sal tengist síðan nýmóðins
gistiaðstaða, 25 herbergi, með að-
gangi að sundlaug og sánabaði.
Þá hefur Hásselby yfir 110 gistihér-
bergjum að ráða og getur séð um
allt að 200 manna ráðstefnur.
Þessar breytingar á Hásselby voru
kynntar gestum og gangandi í síð-
ustu viku. Þá voru einnig vígð lista-
verk eftir listamenn frá öllum Norð-
urlöndunum, sem gerð voru sérstak-
lega fyrir nýbyggingarnar. Finnska
listakonan Maija Lavonen gerði
mikinn vef í fundarsal, norski mynd-
listarmaðurinn Odd Tandberg hann-
aði dyr aðalbyggingarinnar, Anders
Tinsbo frá Danmörku gerði listaverk
í mótttökuna, sænskur myndhöggv-
ari, Leif Bolter, gerði útilistaverk við
aðkomu og síðan unnu þau Rúna og
Gestur Þorgrímsson veggmynd úr
keramík í matsal.
Allir gestir trakteraðir
Forstjóri Hásselby, Torbjörn Fors-
Menningarmál
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
ell, hefur sömuleiðis lýst yfir áhuga
sínum á því að auka enn á samnorr-
æna starfsemi á staðnum. Hann vill
stórauka áróður fyrir norrænu sam-
starfi í Stokkhólmi, t.d. meðal skóla-
fólks og félagssamtaka, og hyggst
hvetja bókaverslanir til að setja á fót
sérstakar deildir með norrænum
bókmenntum.
Alla gesti á Hásselby á einnig að
traktera með bókagjöfum og uppá-
komum af norrænum toga. Menn eru
einnig velkomnir til staðarins ann-
arra erinda en ráðstefnuhalds. í ly-
stigarðinum við slotið er að finna
vinnustofu, sem stendur norrænum
listamanni til boða og brátt munu
rithöfundar og blaðamenn geta sótt
um styrki til dvalar í lítilli villu í
námunda við Hásselby.
-ai
Torbjörn Forsell, forstöðumaður á Hásselby, með Flateyjarbók sem þar er
að finna.
Sandkorn Sandkorn
Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri.
Vinsæll
lögreglustjóri
Nýskipaður lögreglustjóri,
Böðvar Bragason, mun
þegar hafa aflað sér mikilla
vinsælda í starfi. Lögreglu-
menn eru sagðir sallaó-
nægðir með yfirmann sinn
enda mun hann hafa lagt
sig allan fram um að kynna
sér alla þætti lögreglu-
stjórastarfsins en ekki bara
mýkt stólsins.
Það var til dæmis sér-
staklega til þess tekið um
daginn þegar lögreglustjór-
inn stóð heila næturvakt.
Fór hann á milli stöðva og
fylgdist með sinum mönn-
um í starfi. Þótti þetta
framtak mjög af hinu góða.
Og svo leggur Böðvar
mikla óherslu ó að bæta
kjör lögreglumanna. Það
þykir aldrei skaða...
Úrþrifaráð
Hæstvirtur alþingismaður,
Sighvatur Björgvinsson,
mun hafa brugðið sér til
ísafjarðar í jólafríinu. Þar
hélt hann fund með heima-
krötum. Nokkur örvænting
mun hafa grípið um sig á
Sighvatur Björgvinsson.
samkundunni ef marka mó
frásögn blaðsins Bæjaríns
besta. Er einn fundar-
manna sagður hafa hlaupið
út, reikað aö húsabaki og
skotið þar á loft neyðar-
blysi.
Þjarmað að
smáfuglunum
Bakarar hafa verið nokkuð
í sviðsljósinu að undan-
förnu. Hafa kastararnir
beinst að þeim vegna þeirr-
ar umræðu um vörugjald ó
sætabrauð sem staöið hefur
yfir.
Sem kunnugt er ætlaði
Þorsteinn Pálsson fjár-
málaráðherra að skatt-
leggja sætabrauö. En bak-
arar svöruðu fullum hálsi
og sögðust ekki kæra sig
um neinar álögur ó sitt
bakkelsi. Síðan hefur verið
hringlað með skattinn fram
og til baka.
En eitthvað varð að gera
til aö bjarga ríkissjóði ón
þess að fórnardýrunum
gæfist tækifæri til að rakka
stjórnina niður í svaðið. Og
lausnin var í sjónmáli. Það
var einfaldlega lagður 25%
söluskattur á smáfuglafóð-
ur núna rétt fyrir frost-
hörkurnar.
Það er ekki ofmælt að
vegir Þeirra séu órannsak-
anlegir.
Húsmæður og
heilsufar
Ofangreindur hringlanda-
háttur fjármólaráðherra
með kökugjaldið var tekinn
upp á þingi nú þegar það
kom saman eftir jólafrí.
Voru menn afar ósammála
um þessa hegðun hans og
hvort hún kæmi neytend-
um vel eða illa.
Guðrún Agnarsdóttir
kvennaUstakona taldi
gjaldið af hinu illa. Kæmi
það einkum niður á hús-
mæðrum og væri því bein-
línis aðför að þeim.
Friðrik Sophusson.
Friðrik Sophusson, vara-
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sá að þarna yrði
að koma krókur á móti.
bragði. Sté hann þvi í pontu
og lýsti því yfir að gjaldið
værí aðeins tæki fjármála-
róðherra til að beina
neysluvenjum landsmanna
inn á heilsusamlegri braut-
ir. Þykir þessi alþýðuskýr-
ing sjálfstæðismanna ein sú
nýstárlegasta þeirrar teg-
undar sem fram hefur
komið í seinni tíö.
Guörún Agnarsdóttir.
Fangaverðir
áskóm
En það eru fleiri en bakarar
sem staðið hafa í deilum við
stjómvöld. Fangaverðir
hafa lengi deilt við þau um
hvort þeir skuli fá að ganga
á skóm i vinnunni eða ekki,
Telja fangaverðir að skóm-
ir séu hluti af einkennis-
búningi og beri ríkinu að
greiðafyrirþá.
t Félagstiðindum SFR er
greint frá þessu máli og
segir þar að fangaverðir
hafi leitað til félagsdóms til
að ná fram rétti sínum. Og
það gekk eftir, þeir höföu
fullan sigur. Fjórmólaráðu-
neytið hefur nefnilega við-
urkennt skyldu sína til að
leggja fangavörðum til,
þeim að kostnaðarlausu,
allan þann einkennisfatnað
sem reglugerð kveður á um
að þeiri eigi að hafa, þar á
meðal skó.
Að auki samþykkti róðu-
neytið að greiða 25 þúsund
í mólskostnað. Sú upphæð
hefði auðvitað átt að renna
í sokkasjóð fangavarða.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu í sama símtali.
Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,-
Hafið tilbúið:
'Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer -kortnúmer'
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.