Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
A
leiksviði
lífsins
Ekki ber á öðru - þetta er Karólína frá Mónakó á
reiðhjóli með soninn unga. Fregnir herma að hún
eigi nú von á öðru barni en sé ekki komin langt á
leið og því fjallhress í líkamsræktinni. Hún hefur
greinilega annað lífsmynstur en Kristín Onassis
og gæti sú síðarnefnda gert margt vitlausara en
losa sig við einkabilinn, bilstjórann, barnfóstruna
og kókflöskuna og setjast upp á næsta reiðhjól
með barnungann. Gott fyrir bæði líkama og sál.
segja þeir sem vitið hafa á þeim málum.
„Hann sagði mér aldrei
frá sjúkdómnum."
Augnabliksmynd af elskendum frá árinu 1984.
Andlát kvikmyndakleikarans
Rocks Hudson er eitt af því sem
menn seint gleyma fyrir ýmissa
hluta sakir. Hæst ber dánaror-
sökina - Hudson var með sjúk-
dóminn AIDS og er því eitt
fórnarlamba þessa vágests sem
hræðir Vesturlandabúa meira en
nokkuð annað. Kjarnorku-
sprengjur, krabbamein og önn-
ur áhyggjuefni þykja barnaleik-
ur samanborið við AIDS-veir-
una.
Því á elskhugi Hudsons síðustu
þrjú árin, Marc Christian Mac-
Ginnis, samúð almennings í
kvikmyndaborginni Hollívúdd.
Hann er eins konar gangandi
auglýsingarskilti fyrir áhættu-
hópana svonefndu, líka eftir að
rannsóknir á honum sjálfum
sýndu engin AIDS-mótefni I
blóðinu. Það getur nefnilega
komið fram síðar.
Engum ætti að koma það á óvart
að nú fer Marc Christian fram á
bætur fyrir það rask á lífsmynstr-
inu sem þessir atburðir hafa í för
með sér fyrir hann. Og biður um
litlar þrjátíu milljónirdollara fyrir
ónæðið.
Hann horfði út um
gluggann
„Rock sagði mér ekki að hann
væri með AIDS," segir Marc
Christian „og það var ekki fyrr
en á dánarbeðinu að ég komst
að hinu sanna. Og við höfðum
búið saman síðustu þrjú árin!"
„Þegar fyrstu fréttirnar bárust
Elskhugi
Rocks
Hudson
í mála-
ferlum
fékk ég óskaplegt áfall, bætir
hann við „og ég flýtti mér strax
upp á spítala til þess að fá stað-
festingu hjá honum sjálfum.
Fyrst í stað reyndu menn þar
að losna við mig með góðu en
þegar ég fékk móðursýkiskast
komu nokkrir lífverðir og hentu
mér út. Og það tók talsverðan
tíma að ná sambandi eftir öðr-
um leiðum."
Þetta var erfiður tími fyrir elsk-
hugann sem beið í húsinu í
Beverly Hills og reyndi að forð-
ast að hitta annað fólk. Einungis
blaðagreinar færðu fréttir um
hvað gerðist innan veggja spít-
alans en smám saman fór að
komast heilleg mynd á undan-
farna atburði. Og taugaáfall sem
Rock Hudson fékk í París
skömmu áður varð skiljanlegt