Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1986, Blaðsíða 4
22 DV. FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófasts- dæmi sunnudaginn 2. febriiar 1986. Biblíudagurinn. Árbæj arprestakall Barnasamkoma í Foldaskóla í Grafar- vogshverfí laugard. 1. febr. kl. 11 árdegis. Barnasamkoma í safnaðarheimili Ár- bæjarsóknar sunnudag kl. 10.30 árdegis. Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Væntanleg fermingarbörn lesa ritningargreinar. Tekið á móti gjöfum til Hins íslenska biblíufélags. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. Áskirkja Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Aðalfundur Hins íslenska biblíufé- lags x safnaðarheimili Áskirkju eftir messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall Laugardagur kl. 11. Bamasamkoma í Breiðholtsskóla. Sunnudagur kl. 14. Biblíudagur. Messa í Breiðholtsskó'a. Vænst er þátttöku fermingarbama og foreldra þeirra. Sóknarprestur. Bústaðakirkja Bamasamkoma kl. 11. Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Lesari Dagmar Gunnlaugsdóttir. Organ- isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúlason. Þriðjudagskvöld: Æskulýðs- félagsfundur. Síðdegis á miðvikudög- um: Félagsstarf aldraðra. Dómkirkjan Laugardagur 1. febr.: Barnasamkoma kl. 10.30. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir. Sunnudagur: Messa kl. 11. Sr. Hjaltí Guðmundsson. Messa kl. 14. Fermingar- böm aðstoða. Sr. Þórir Stephensen. Dómkórinn syngur við báðar messumar. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Lárus Halldórs- son. Fella- og Hólakirkja Laugardagur: Kirkjuskóli kl. 10.30. Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 14. Sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Mánudagur 3. febr. - Fundur í æsku- lýðsfélaginu kl. 20.30. Sóknarprestur. Grensáskirkja Bamasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Organisti Árni Arinbjamarson. Tekið á móti gjöfum til Biblíufélagsins. Sr. HalldórS. Gröndal. Háteigskirkj a Messa kl. 10. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 14. Sr. Arngrímur Jónsson. Organleikari Ort- hulf Prunner. Kársnesprestakall Barnasamkoma kl. 11 í félagsheimilinu Ðorgum. Messa í Kópavogskirkju kl. 14. Organisti Guðmundur Gilsson. Sr. Guð- mundur Örn Ragnarsson. Langholtskirkja Óskastund barnanna kl. 11. Söngur- sögur-myndir. Sr. Sigurður Haukur og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Hvetjum fólk til að mæta í kirkju á bíblíudegi. Laugarnesprestakall Laugardagur 1. febr. Guðsþjónusta í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sunnudagur 2. febr. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakórinn syngur. Kári Geirlaugsson hefur frásöguþátt. Mánudagur 3. febr. Aðalfundur Kvenfélags Laugamessókn- ar kl. 20. Þriðjudagur 4. febr. Bæna- guðsþjónusta kl. 18. Sóknarprestur. Neskirkja Laugardagur: Samvemstund aldraðra í dag kl. 14. Farið í ferð að Reykjum í Mosfellssveit. Veitingar í Hlégarði. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Sunnu- dagur: Barnasamkoma kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. Mánudagur: Æskulýðsstarfið kl. 20. Þriðjudagur og fimmtudagur:- Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðvikudagur: Fyrirbæna- messa. kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórs- son. Fimmtudagur: Biblíulestur kl. 20. Seljasókn Bamaguðsþjónusta í Seljaskóla kl. 10.30. Bamaguðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 14. Sr. Ólafur Jóhannsson prédikar. Þriðjudagur 4. febr.:- Fyrirbænasam- vera í Tindaseli 3 kl. 18.30. Fundur í æskulýðsfélaginu í Tindaseli 3 þriðjudag kl. 20. Sóknarprestur. Seltjarnarnessókn Bamaguðsþjónusta kl. 11 í kirkjunni. Sóknarnefndin. Frikirkjan í Reykjavík Laugardagur 1. febr.: Fermingarböm komi kl. 14. Sunnudagur 2. febr.: Guðs- þjónusta kl. 14. Sigurður öm Stein- grímsson, kennari við guðfræðideild Háskóla Islands, flytur prédikun. Safn- aðarprestur þjónar fyrir altari. Frí- kirkjukórinn syngur. Söngstjóri og org- anisti Pavel Smid. Sr. Gunnar Bjömsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði Bamasamkoma kl. 10.30. Sr. Einar Eyj- ólfsson. Kirkja Óháða safnaðarins Bamamessa kl. 10.30. Á dagskrá eru t.d.: Víddir í GaUerí Borg Fimmtudaginn 30. janúar kl. 17.00 opnar Kristín Þorkelsdóttir sýningu í Gallerí Borg, en sýning- unni hefur hún gefið nafnið Víddir. Kristín Þorkelsdóttir hefur starf- að við auglýsingagerð síðan 1960 og á eigin auglýsingastofu, AUK hf., síðan 1967. Hún lauk námi í fi-jálsri myndlist frá MHÍ 1954 en aðalkennarar hennar þar voru þau Sigurður Sigurðsson, Valgerður Briem og Sverrir Haraldsson. Kristín kenndi við auglýsingadeild MHÍ 1974-76 og var aðstoðarkenn- ari á kvöldnámskeiðum hjá Sverri Haraldssyni við MHÍ síðasta náms- ár sitt við skólann. Kristín hefur tekið þátt í sjö samsýningum hér heima og erlend- is en þetta^br önnur einkasýning hennar; sú fyrri í Gallerí Langbrók í apríl í fyi*ra. Á sýningu Kristínar í Gallerí Borg nú er vel á fjórða tug vatns- litamynda sem flestallar eru gerðar á síðastliðnu sumri. Viðfangsefni Kristínar er landið og víðáttur þess. Eins og fyrr segir verður sýningin opnuð nk. fimmtudag kl. 17.00 og stendur til 12. febrúar og er opin daglega frá kl. 10.00-18.00 og milli klukkan 14.00 og 18.00 laugardaga og sunnudaga. Fimm tónleikar framundan hjá Tónlistarfélaginu Síðari hluti starfsvetrar Tónlist- arfélagsins er að hefjast. Fimm tónleikar verða haldnir og á fjórum þeirra verða einleikarar eða ein- söngvarar hinir sömu og koma fram með Sinfóníuhljómsveit Is- lands. Með samvinnu sem þessari gefst áheyrendum tækifæri til að kynnast listamönnum frá fleiri hiiðum. Það er bandaríski píanóleikarinn Nancy Weems sem heldur fyrstu tónleikana laugardaginn 8. febrú- ar. Hún vakti mikla hrifningu allra þeirra sem heyrðu hana leika á tónleikum í Norræna húsinu í apríl 1984. Á efnisskrá tónleikanna nú verða verk eftir Beethoven, Brahms, Chopin og Prokofieff. Þriðjudaginn 4. mars munu þeir Janos Starker sellóleikari og Alain Planes píanóleikari flytja verk eftir Couperin, Bethoven, Cassadó, Debussy og Bartók. Fimmtudaginn 13. mars verða tónleikar með gríska píanóleikar- anum Dimitri Sgouros en hann er aðeins 17 ára gamall. Nancy Weems. Myndlistar- sýning með tónverkum Dagana 30. janúar - 2. febrúar opnar Guðmundur Rúnar Lúðvíks- son myndlistarsýningu í Bókhlöð- unni á Akranesi. Guðmundur Rúnar er fæddur og uppalinn á Skaganum, sonur hjónanna Lúð- víks Jónssonar (Ársól) og Guð- rúnar Sæmundsdóttur. Hann fæddist 1954. Guðmundur hefur haldið sex einkasýningar, þar af tvær götusýningar, aðra í Eyjum en hina í Reykjavík. Hann hefur tekið þátt í einni samsýningu. Á sýningunni verða frumflutt tón- verk sem Guðmundur hefur samið Guðmundur Rúnar Lúðvíksson. og tengjast að einhverju leyti myndunum. Á þessari sýningu er hann með mjög blandaðar myndir, olíu-, vatnslita- og krítarmyndir. Guðmundi Rúnari hefur verið boðið til útlanda með sýninguna á Vinsæl tónlist á helgartónleikum Laugardaginn 1. lQbrúar verða haldnir aðrir Hclgartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar Islands í Há- skólabíói. Stjómandi er Jean Pi- erre Jacquillat og einleikari á píanó James Barbagallo, verð- launahafi í hinni frægu Tchaikov- skykeppni í Moskvu 1982. Tónleik- arnir bera yfirskriftina Úr austri og vestri og eru samansettir af vinsælum og velþekktum verkum, slavneskum og bandarískum. James Barbagallo lauk píanó- námi við Julliard skólann í New York en kom fyrst fram með sin- fóníuhljómsveitinni í San Francis- co, á heimaslóðum, árið 1970 þegar hann vann verðlaun hljómsveitar- innar sem hún veitir efnilegum, ungum listamönnum. Árið 1982 vann hann, sem fyrr segir, verðlaun í Moskvu og 1983 hélt hann ein- leikstónleika í Lincoln Center í New York sem vöktu mikla at- hygli- Um tónlistina. Tónleikarnir hefj- ast á Ungverskri rapsódíu nr. 2 eftir Franz Liszt, eitt litríkasta tónskáld 19. aldarinnar. Liszt samdi 12 ungverskar rapsódíur og notaði þjóðlög og dansa sem efni- við, og er súlur 2 best þekkt. Copland og Gershwin fæddust báðir í Brooklyn, New York um aldamótin. Copland sótti sína tón- listarmenntun til Nadia Boulanger i París, en Gershwin til Tin Pan Alley, aðalstöðvar Ragtime og Jazz í New York. Árið 1932 fór Copland til Mexico City og nafn verksins sem flutt verður, E1 Sallón Mexico, kemur frá vinsælum dansstað þar í borg og er byggt á mexíkönskum þjóðlögum og dönsum. Gershwin var vinsæll sönglagahöfundur þeg- ar Paul Whiteman hljómsveitar- hreyfisöngvar, sálmar, bænakennsla, sögxxr, myndasögur, útskýringar á biblíu- textum í myndum, kvikmyndir og margt fleira. Séra Þórsteinn Ragnarsson. Keflavíkurkirkj a Guðsþjónusta á sjúkrahúsinu kl. 10.30, sunnudagaskóli kl. 11. Munið skóJabíl- inn. Messa kl. 14. Gideonfélagar kynna biblíuna. Sóknarprestur. Tilkynningar 'i Neskirkja - samverustund aldr- aðra á morgun, laugardag, kl. 15. Farið í ferð að Reykjum í Mosfellssveit. Veitingar í Hlégarði. Happdrgetti körfuknattleiks- deildar IR Dregið hefur verið í happdrætti körfuknattleiksdeildar fR. Upp komu eftirtalin númer: 1567, 2623, 2856, 19, 1085, 3322, 1843, 77, 1331, 1668, 677, 1466, 676. Uppl. um vinn- inga i síma 621502. Sameining á leigubifreiða- stjórafélögum Frá og með 1. febrúar 1986 tekur gildi sameining á leigubifreiðastjórafélög- unum Neista í Hafnarfirði og Frama í Reykjavík. Eftir sameininguna verður Frami eitt stéttarfélag leigu- bifreiðastjóra á höfuðborgarsvæð- inu. Reykjavík, Kópavogur, Sel- tjamarnes, Hafnarfjörður, Garða- kaupstaður, Bessastaðahreppur og Mosfellshreppur verða eftir samein- inguna eitt atvinnusvæði og jafn- framt eitt gjaldsvæði. Reglugerð um takmörkun leigubifreiða í Hafnar- firði og ráðstöfun atvinnuleyfa nr. 17 frá 24. janúar 1978 ásamt síðari breytingum fellur niður en reglugerð nr. 293 frá 2. júlí 1985 um takmörkun leigubifreiða á félagssvæði bifreiða- stjórafélagsins Frama gildir fyrir allt höfuðborgarsvæðið. íslandsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum Laugardaginn 1. febrúar nk. kl. 13.30 fer fram fslandsmeistaramót unglinga i kraftlyftingum. Fer mótið fram í Garðaskóla, Garðabæ, í fé- lagsmiðstöð skólans. Meðal kepp- enda verða m.a. heimsmeistarinn, Torfi Ólafsson, og bronsverðlauna- hafamir á HM og EM unglinga, Hjalti Árnason og Magnús Ver Magnússon. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir besta keppanda í léttari flokkum, 52-90 kg £1., og þyngri fl., 100 125 og yfir, ásamt stigabikar fyrir besta mann mótsins. Félag harmóníkuunnenda Skemmtifundur félagsins fyrir febrúarmánuð verður sunnudaginn 2. febníar og hefst að vanda kl. 15 í Templarahöllinni við Skólavörðu- holt. Þarna koma £ram ýmsir hljóð- færaleikarar. Góðar veitingar verða fram bornar og endað með dansi. Félagsmenn sem aðrir ávallt vel- komnir. Þór og Danni trúlofast Nú er dagurinn skammur og tíðin hörð. Hitt er svo annað mál að hinir sígrænu grínarar, Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson, hafa nú ákveðið, vegna gífurlegrar eftir- spumar og fjölda áskorana, að standa fyrir almennu spaugi og al- þýðlegu glensi hvers konar viðs vegar um höfuðborgarsvæðið næstu vikumar, og jafnvel víðar ef færi gefst. Gamanmál þeirra félaga er, að sögn, við allra hæfi og ættu því nð Æfingar hjá lávarðadeild IR eru í Fellaskóla á fimmtudögum kl. 20. Félagsvist Húnvetningafélags- ins verður spiluð laugardaginn 1. febniar kl. 14 í Skeifunni 17. Fjög- urra laugardaga keppni."Allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir. henta lionsklúbbum, kvenfélögum, frimúrarafundum, stúkusamkomum, þorrablótum, árshátiðum, skáta- skemmtunum og allrahanda minni og stærri samkomum, svo eitthvað sé nefnt. I þessu sambandi er rétt að benda á að tölurnar 10221 og 15935 gegna lykilhlutverki varðandi nán- ari upplýsingar. Þeim sem slyngir eru í notkun símtækja ætti ekki að vera skotaskuld úr því að verða sér úti um þær. öðrum er bent á að fá ~'J' '' - •"■xnneskju sér til aðstoðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.